Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 10
10 13. apríl 2018FRÉTTIR
Þ
órdís Lóa Þórhallsdóttir
er ekki mörgum kunn og
margir klóruðu sér í höfð
inu þegar hún steig fram í
sviðsljósið fyrir stuttu sem borgar
stjóraefni Viðreisnar. Sama dag
og tilkynnt var um að hún myndi
leiða listann í komandi borg
arstjórnarkosningum í Reykja
vík mætti hún í viðtal í frétta
tíma Stöðvar 2 þar sem segja má
að henni hafi verið ýtt út í póli
tísku djúpu laugina strax á fyrsta
degi. Þórdís hitti blaðamann DV á
heimili sínu í Árbæ til að upplýsa
hver hún er og hvers vegna hún
vill verða borgarstjóri Reykjavíkur.
Breiðhyltingur í húð og hár
„Þetta borgarstjóraefni kemur úr
báðum heimum, ég starfaði hjá
Reykjavíkurborg í tuttugu ár áður en
ég fór í viðskipti og hef öðlast reynslu
sem stjórnandi hjá stórum fyrirtækj
um í nærri tuttugu ár,“ segir Þórdís
Lóa og tekur fram að hún sé ávallt
kölluð Lóa. „Ég er borgarstelpa alla
leið og Breiðhyltingur í húð og hár.
Það má segja að ég hafi eytt fyrstu
25 árum ævi minnar í Breiðholti,“
segir hún, en út um stofuglugg
ann hjá henni má einmitt sjá blokk
irnar í Hólahverfinu. „Ég var ótrú
lega heppin að fá búa þar þegar
Breiðholt var að byggjast upp, þetta
var ævintýralega skemmtilegt hverfi.
Allt morandi í krökkum, byggingum
og ævintýrum. Ég er mikill ÍRingur,
æfði handbolta og skíði.“
Eftir stúdentspróf úr Fjöl
brautaskólanum í Breiðholti fór
hún að vinna með unglingum á
vegum borgarinnar. „Ég var að
vinna í Fellahelli og sem afleys
ingakennari í Fellaskóla. Það sem
mér finnst svo gaman við svona
hverfi í Reykjavík er hverfisvitund
in. Við sem borg erum ein heild
og við byggjum þjónustu þvert
yfir borgina. Svo förum við inn í
hverfin þar sem fólk býr og á að fá
sína þjónustu. Fólk á ekki að þurfa
að keyra langar leiðir til að fá það
sem það þarf. Það er einmitt svo
skemmtilegt við þessa hverfisvit
und, ef þú spyrð Reykvíking hvað
an hann kemur þá nefnir hann
hverfið sitt. Það segir manni að
fólk vill þessar tengingar.“
Árið 2003 tóku Þórdís Lóa og
eiginmaður hennar, Pétur Jóns
son, yfir rekstur Pizza Hut á Ís
landi og ráku þau þrjá veitinga
staði á höfuðborgarsvæðinu og
bættu við sig Pizza Hut í Finnlandi
árið 2006. Tveir staðir hér á landi
fóru í þrot eftir hrunið, þau Lóa og
Pétur seldu svo Pizza Hutstaðinn
í Smáralind árið 2015. Árið 2013
varð Lóa formaður Félags kvenna
í atvinnulífinu og árið 2016 varð
hún forstjóri Grey Line á Íslandi.
Kominn tími á breytingar
Þórdís lærði fjölmiðlafræði í New
Orleans í Bandaríkjunum og eftir að
hún lauk félagsfræði með BAgráðu
fór hún í framhaldsnám í félagsráð
gjöf. Hún starfaði síðan hjá Reykja
víkurborg í tuttugu ár, fyrst með
unglingum og síðan með öldruðum
á velferðarsviði. „Ég stýrði öldrunar
málum í Reykjavík í nokkur ár, síðan
stýrði ég allri þjónustu á vegum vel
ferðarsviðs borgarinnar áður en ég
fór í viðskipti. Þetta var tímabil mik
illa breytinga hjá borginni og ég er
mjög ánægð með margt sem borgin
er búin að vera að gera.
Það voru Sjálfstæðismenn sem
stýrðu borginni í sextíu ár og gerðu
það ágætlega að mörgu leyti, þeir
byggðu upp ákveðinn grunn sem
er gott að byggja ofan ár. Núna hafa
vinstriflokkar verið við völd í nán
ast 24 ár og það er kannski kominn
tími á breytingar hérna,“ segir Lóa
og hlær. „Grunnur vinstriflokkanna
er líka mjög góður, en nú er kom
inn tími til að færa þetta áfram og
við erum með sterkar skoðanir á
hvernig eigi að gera það.“
Myndir þú vilja færa
meirihlutann til hægri?
„Ég vil halda stjórnmálunum
í borginni á miðjunni. Grunnur
inn að skilaboðunum okkar í Við
reisn er að við staðsetjum okkur
algjörlega á miðjunni. Við nálg
umst borgarmálin út frá ákveðinni
heildarhugsun, við ætlum að
skapa góða borg fyrir atvinnulíf
ið. Atvinnulífið byggist upp á litl
um og meðalstórum fyrirtækjum,
þar vinna Reykvíkingar. Það er
grunnurinn að búa til skattfé fyrir
samneysluna. Það er lykillinn að
góðum leikskólum, grunnskólum,
velferðarþjónustu og húsnæði.“
„No comment!“
Sem miðjuflokkur er markmiðið
að nota það besta frá hægri og
vinstri vængjum stjórnmálanna,
hjá Viðreisn er það byggingar
og samgöngustefna núverandi
meirihluta, og að straumlínulaga
stjórnkerfið. „Það er vegasalt að
vera á miðjunni. Við erum mjög
fylgjandi þéttingu byggðar innan
borgarmarkanna eins og áætlan
ir standa til um núna, en ekki síð
ur að byggja þá líka upp þau hverfi
sem byrjað hefur verið á, ég nefni
þá sérstaklega Úlfarsárdalinn.“
Viðreisn styður núverandi
samgönguáætlun sem Sjálf
stæðismenn, Miðflokksmenn og
fleiri hafa gagnrýnt. „Við styðjum
borgar línuverkefnið og þéttingu
byggðar. Fólk spyr hvers vegna, en
svarið er einfalt, samgönguáætl
unin er langtímaverkefni sem hef
ur farið í gengum tvær kosningar
og er samstarfsverkefni sveitarfé
laga á höfuðborgarsvæðinu. Það
er ekki okkar að koma inn í það
samtal og skemma verkefnið.“
Hún segir hins vegar að tími
sé til kominn að laga stjórnkerf
ið í borginni. „Við þurfum að hafa
allar gáttir einfaldari og aðgengi
legri á netinu, en þeir eru auðvit
að alltaf til sem vilja ekki hafa sam
skiptin við borgina rafræn en þeir
eru miklu færri en hinir. Þjónusta
á vegum borgarinnar á ekki að
vera neitt mál, þá á ekki að þurfa
að taka lengri tíma en fimm mín
útur að sækja um heimaþjónustu.“
Þarf að skera niður borgarkerfið?
„Það finnst mér ekki sanngjörn
nálgun. Kerfið er stórt, einföld
um það og straumlínulögum það.
Markmiðið er ekki að skera nið
ur, borgin á að vera í heilbrigðum
rekstri og ef það þarf að skera nið
ur þá gerum við það. En að skera
niður til að skera niður, það ætlum
við ekki að gera.“
Svo ég skilji þig rétt, þú ætlar
ekki að slást í lið með Vigdísi
Hauksdóttur, oddvita Miðflokks-
ins, og fara niður í skrifstofur borg-
arinnar í Borgartúni og rýma skrif-
stofurnar sem virðast ekki þjóna
neinum tilgangi?
„No comment!“ segir Lóa og
hlær hátt.
Ætlar að ganga lengra en að
hækka launin
Lóa forðast að koma með stóryrt
ar yfirlýsingar um einstök atriði og
er fljót að átta sig á að blaðamaður
er að reyna að fá hana til að segja
hvort hún hallist frekar að sam
starfi með núverandi meirihluta
eða Sjálfstæðisflokknum. „Við
erum ekki flokkur sem kemur inn
með skyndilausnir eða fyrirsagn
ir eða eitthvert eitt mál. Það er
enginn einn sem stýrir borginni,
það er alltaf samstarf og samtal
ið þarf að byggjast á virðingu og
gagnkvæmum skilningi á sjónar
miðum.“
Viðreisn hefur gefið sig út fyr
ir að vilja jafna kjör kynjanna á
landsvísu, því verkefni ætlar Þór
dís Lóa að halda áfram á sveitar
stjórnarstigi. „Það liggur þings
ályktunartillaga frá okkur fyrir
þinginu þar sem við viljum sátt
um að leiðrétta kjör kvennastétta.
Þarna göngum við miklu lengra en
bæði hægri og vinstriflokkarnir.
Þetta er hluti af heildarhugsuninni
sem við erum alltaf að tala um.“
Ertu þá að tala um að eyða bil-
inu á milli fæðingarorlofs og leik-
skóla, og hækka laun leik- og
grunnskólakennara?
„Já. Það er algjörlega óásættan
legt að árið 2018 sé ungt fólk með
börn í sömu stöðu og ég var í fyr
ir 24 árum þegar ég var að eignast
börn. Það hefur vissulega eitthvað
breyst í fæðingarorlofsmálum og
með feðraorlof en það er algjör
óvissa með þetta stóra bil. Það er
ekki boðlegt að fólk sé að bíða í
mörg ár eftir plássi og öll fjölskyld
an sé í limbói á meðan. Auðvit
að eru hindranir til að laga þetta
en það einfaldlega verður að laga
þetta og það sem fyrst.“
Varðandi launahækkanir
kennara segir Þórdís Lóa að það
þurfi að ganga lengra en að hækka
launin. „Það þarf líka að laga
vinnuaðstöðu barna og kennara,
það er fyrir löngu búið að skoða
hvað þarf að gera, það þarf bara að
gera það og til þess þarf kjark og
þor sem við höfum. Það er enginn
hugmyndfræðilegur grundvöllur
fyrir því að kvennastéttir séu með
lægri laun en karlar og það þarf að
laga það.“
Hressandi innkoma í pólitíkina
Þórdís Lóa vakti mikla athygli
þegar hún mætti í sjónvarpsal á
Stöð 2 þann 20. mars síðastliðinn,
daginn sem hún var kynnt sem
oddviti Viðreisnar. Sindri Sindra
son tók ekki á henni með silki
hönskum og sakaði hana um að
gefa óljós svör og segja lítið um
hvað flokkurinn ætlaði að gera í
borgarstjórn. Margir komu henni
til varnar á meðan aðrir sögðu að
þetta væri sönnun þess að hún
ætti ekkert erindi í borgarstjórn.
Hvernig blasti þetta við henni?
„Ég var aldrei að koma í þetta
viðtal til að henda inn einhverri
reyksprengju. Þetta var tveggja
mínútna innslag í fréttatíma og ég
mætti þarna til að kynna listann
og okkar sýn. Þannig vinnum við.
Ég vildi reyndar ræða menntamál
in en Sindri vildi ekki ræða þau,
hann stoppaði mig,“ segir Lóa og
hlær. „Mér leið nú bara vel þarna
hjá Sindra en það fór ekki fram
hjá mér að samfélagsmiðlar log
uðu. Þetta var hressandi innkoma
í pólitíkina.“ n
Þórdís Lóa ætlar að eyða bilinu á milli fæðingarorlofs og leikskóla
VERÐUR AÐ LAGA
ÞETTA SEM FYRST
Ari Brynjólfsson
ari@dv.is „Sem miðjuflokk-ur er markmiðið
að nota það besta frá
hægri og vinstri vængjum
stjórnmálanna.
Breiðhyltingur alla leið Þórdís
Lóa eyddi fyrstu 25 árum sínum í
Breiðholti, fyrst í skóla og síðan starf-
aði hún með unglingum. MYND HANNA