Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2018, Page 9
13. apríl 2018 fréttir 9
mörg atvik sem áttu sér öll stað
árið 2015. Hann var dæmdur
fyrir að hafa sunnudaginn 22.
febrúar það ár áreitt Ingibjörgu
með því að girða niður buxur
hennar, rífa af henni nærbuxur
og bol og svo strjúka ber kynfæri
hennar.
Ævar Freyr var enn fremur
dæmdur fyrir að hafa þetta sama
kvöld slegið hana þrisvar sinn-
um með flötum lófa í andlitið
og nokkru síðar sparkað þrisvar
sinnum í bak hennar þar sem
hún lá í rúmi í svefnherbergi.
Hann herti svo peysu, sem Ingi-
björg klæddist, að hálsi henn-
ar. Að lokum ýtti hann henni á
skáp í svefnherbergi og hótaði
að brjóta á henni andlitið.
Hann var líka ákærður fyrir
nauðgun en var sýknaður af
henni, þótt allt annað í frásögn
Ingibjargar hafi verið samþykkt
af dómara. Ólíkt öðrum liðum
dómsins er mörgum orðum var-
ið í að túlka það atriði og er sér-
staklega talað um að Ævar Freyr
hafi þurft að gera sér grein fyrir
því að hún hafi ekki verið sam-
þykk mökum. Með öðrum orð-
um þá var dæmt honum í vil þar
sem hann hafi mögulega haft
réttmæta ástæðu til að halda að
hún vildi eiga mök við hann.
Slapp alltof vel
Ævar Freyr var dæmdur fyrir
fleiri brot en þau sem áttu
sér stað 22. febrúar. Hann var
dæmdur fyrir ólögmæta nauð-
ung með því að hafa utan dyra
þann 26. apríl árið 2015 tekið
utan um Ingibjörgu, lyft henni
upp, sett hana inn í bifreið og
reynt að loka bíldyrunum en
hún náði að koma í veg fyrir það
með því að setja fót sinn fyrir
hurðina. Þá var hann dæmdur
fyrir að hafa í júlí 2015 veist að
Ingibjörgu utan dyra við Engi-
hjalla í Kópavogi. Nokkrum
mánuðum síðar, í september,
réðst hann síðan inn á heimili
þáverandi tengdamóður sinnar
og veittist að Ingibjörgu. Hann
hrækti framan í hana og sló
hana með flötum lófa í andlitið.
Í samtali við DV sagði Ingi-
björg að henni þætti Ævar raun-
ar sleppa ótrúlega vel frá mál-
inu í ljósi þess sem hún gekk í
gegnum yfir langt skeið. „Mér
fannst hann sleppa afskaplega
vel miðað við hvað hann lét mig
ganga í gegnum trekk í trekk.
Og svo fannst mér undarlegt að
hann var sýknaður af nauðgun
en dæmdur fyrir líkamsárás og
kynferðisbrot.“
Þá sagði hún dóminn sýna að
nokkru leyti brotalamir íslenska
réttarkerfisins.
„Mér finnst mjög mikilvægt
að vekja athygli á því hvernig
þetta kerfi er. Það er svo erfitt fyr-
ir konur í minni stöðu að halda
svona út til lengdar og verða svo
fyrir vonbrigðum þegar svona
dómur fellur.“
Leit á piltinn sem
trúnaðarvin sinn
Arna er í dag 17 ára gömul og
búa þær mæðgur saman ásamt
tveimur yngri bræðrum Örnu. Í
maí 2015 kynntist Arna eldri
pilti á Facebook. „Hann add-
aði mér og við fórum að spjalla.
Samband okkar byrjaði ágæt-
lega, hann var rosalega góður
en ég sá það strax á honum að
hann vildi gera eitthvað kyn-
ferðislegt. Til dæmis þegar það
var eitthvert fjölskylduvanda-
mál eða önnur vandamál í gangi
hjá mér þá var hann voðalega
góður við mig og sagði hluti eins
og: Æ, elskan mín, ég verð alltaf
til staðar fyrir þig krúttið mitt“.“
Fyrir dómnum sagði Arna að
hún hefði sagt piltinum að hún
væri „00 módel“. Í niðurstöðu
dómsins kemur fram að mann-
inum hafi mátt vera ljóst að
Arna væri fædd árið 2000 og því
annaðhvort 14 eða 15 ára. Hann
hafi hins vegar ekki spurt hana
nánar um það og ekki gert ekki
tilraun til þess að kynna sér það,
til dæmis Facebook-síðu henn-
ar. Hann skeytti því ekki um
hvort hún hefði náð 15 ára aldri.
Rúmlega tveimur vikum eftir
að þau byrjuðu að spjalla vildi
maðurinn hitta hana. Arna taldi
að það væri eitthvað á milli
þeirra og féllst því á það.
„Við hittumst og ég bað hann
um að við myndum bara vera úti
í bíl hjá honum. Þegar við vorum
að keyra út úr götunni minni þá
missti ég það út úr að mamma
mín væri ekki heima, þá snéri
hann við og við fórum inn. Mér
fannst það rosalega óþægilegt
því ég vildi vera úti í bíl því mér
fannst ólíklegra að hann myndi
reyna eitthvað kynferðislegt ef
við værum úti í bíl.“
Hún segir þó ekkert kynferðis-
legt hafa sér stað á milli þeirra
fyrr en tveimur dögum síðar. Þá
hafi pilturinn verið mun ákaf-
ari og suðað í henni um munn-
mök. „Hann þrýsti mér úti í hluti
og hélt mér. Ég náði ekki andan-
um og leið svo illa meðan á öllu
stóð. Þegar hann hafði klárað
þurfti hann að fara.“
Hún segir piltinn aftur hafa
mætt heim til hennar stuttu eftir
þetta og reynt að þvinga hana til
samfara með því að halda henni
niðri og reyna að afklæða hana.
Hún hafi á endanum náð að losa
sig og skipað honum að hætta
og pilturinn hafi brugðist illa við
og rokið út. Í kjölfarið liðu rúm-
lega tvær vikur þar sem piltur-
inn hunsaði Örnu og vildi ekkert
við hana tala.
Rúmlega tveimur vikum síð-
ar var Arna niðurdregin og bað
piltinn um að koma til sín.
„Mér leið illa og ég þurfti á
einhverjum að halda. Ég var
grátandi þegar hann kom en
hann sneri mér aftur við á sóf-
anum. Á þessum tíma leið mér
eins og að ef ég myndi neita
honum aftur þá myndi hann
fara frá mér og hætta að vera
vinur minn. Þannig að ég sagði
„Förum bara inn í herbergi,“ og
var ennþá með tárin í augunum.
Það sem kom eftir á var mjög
vont bæði andlega og líkamlega.
Hann fór strax á eftir og þá sá
hvað ég hafði gert stór mistök.“
Hún lýsir tveimur öðrum
skiptum þar sem hún hitti pilt-
inn og segir hann hafa þrábeðið
hana um að veita honum munn-
gælur. Hún hafi upplifað mikinn
þrýsting. Þegar hún neitaði hafi
hann brugðist við með því að
hunsa hana algjörlega.
Í ágúst byrjaði pilturinn með
núverandi kærustu sinni og
sagði Örnu að „láta sig vera“
sem hún gerði. Hún segir piltinn
hafa haft samband aftur í janúar
2016 og beðið hana að hringja í
sig. Þegar hún hafi svo gert það
hafi hann og kærastan svarað
bæði í símann og haft í hótun-
um við hana ef hún myndi ekki
láta þau vera. Arna kveðst hafa
orðið hrædd en hún var þennan
dag stödd heima hjá vinkonu
sinni.
„Ég fór að hágráta og bað
mömmu um að sækja mig. Þá
sagði ég henni allt sem hafði
gerst.“
Kom grátandi út úr
dómsalnum
Í kjölfarið lagði Ingibjörg fram
kæru á hendur piltinum. „Ég
varð mikið sterkari og ákveðn-
ari fyrir hennar hönd en mína.
Ég varð hrikalega reið, sérstak-
lega vegna þess að ég komst að
þessu svolitlu eftir að hún lenti
í þessu og útskýringar hennar á
því hvernig hann kom fram við
hana, hvernig hann notaði vin-
áttu hennar og traust til þess að
fá það sem hann vildi frá henni
því annars myndi hann ekki tala
við hana aftur. Arna Sjöfn var
14 ára, hafði orðið vitni að of-
beldi í skilnaðarferli okkar for-
eldranna og fann þarna trúnað-
arvin sem henni fannst hún geta
treyst.“ Hún tekur að hennar eig-
in reynsla síðan á síðasta ári hafi
í raun gefið henni aukinn styrk
til þess að vernda barnið sitt.
„Ég gat þó allavega verið sterk
fyrir hana.“
Fyrir dómnum lýsti Arna að
sér hefði liðið misvel eftir sam-
skiptin við piltinn, og eftir að
samskiptum þeirra lauk hefði
henni liðið illa og hún verið
þunglynd. Hún sótti í kjölfar-
ið viðtöl hjá Barnahúsi allt þar
til sálfræðingurinn fór í veik-
indaleyfi.
Ákæra var gefin út í október
2017 og í febrúar síðastliðnum
rataði málið fyrir dóm. Pilturinn
neitaði sök fyrir dómi og sagðist
hafa dregið þá ályktun að Arna
væri „allavega 15 ára“ þar sem
hún hefði sagt honum að hún
væri fædd árið 2000. Þá sagði
hann að honum hefði fund-
ist orðalag „mjög þroskað“ og
fullyrti jafnframt að hann hefði
ekki stundað kynlíf með henni
ef hann hefði hann vitað að hún
væri 14 ára.
Hann fékk að lokum 12
mánaða skilorðsbundinn dóm
auk þess sem honum er gert að
greiða Örnu miskabætur upp á
700 þúsund krónur.
„Þegar niðurstöðurnar komu
þá fannst mér þetta mjög skrít-
ið. Þó svo að þetta sé fyrsta brot
hans þá ætti að vera tekið al-
veg jafn harkalega á þessu máli.
Þó svo að þetta hafi verið fyrsta
brot þá skilur hann eftir sig eina
stelpu sem mun hafa þetta með
sér alltaf, og þetta fylgir mér
hvert sem er,“ segir Arna og bætir
við að dómurinn sé alltof vægur.
„Mér fannst mjög erfitt að það
var skipt um saksóknara á síð-
ustu stundu sem var ekki alveg
inni í málinu. Ég fann mikið til
með Örnu þegar hún kom grát-
andi úr dómsal, henni fannst
skuldinni vera skellt á sig og
svo þegar dómurinn birtist kom
ekkert af því sem hvorki Arna né
ég sögðum fyrir dómi, bara það
sem sakborningur og kærasta
hans báru vitni um,“ segir Ingi-
björg Helga.
Ingibjörg Helga fordæmir
enn fremur að þolendur þurfi að
bíða mánuðum og jafnvel árum
saman með hnútinn í magan-
um eftir því að þurfa að rifja upp
málið fyrir dómi „Fólk reyn-
ir að halda áfram með lífið og
leitar sér hjálpar svo er því gert
að þurfa að rifja allt upp, ganga
í gegnum allar þessar tilfinn-
ingar aftur, mér finnst það verst.
Svo virðist sem ekki skipti máli
hversu stórt brotið er, ef þetta
er fyrsta brot þá er eins og það
sé óskrifuð regla að 12 mánuð-
ir sé nóg refsing, sem mér finnst
mjög furðulegt.“
Sárt og erfitt
Aðspurð um líðan sína í dag seg-
ir Arna:
„Ef ég á að segja alveg satt þá
veit ég það ekki, ég er ekki al-
veg viss hvort ég eigi að brosa
eða gráta. Þetta er, og hefur ver-
ið erfitt frá fyrsta degi og verð-
ur erfitt í einhvern tíma eftir á,
þangað til ég vonandi næ að
vinna úr þessu. Þetta verður
alltaf partur af manni. Það er
bæði partur af mér þar sem ég
er stolt af því að hafa komist í
gegnum þetta en mér líður líka
illa yfir þessu. Að hafa komið
mér í þessa stöðu, að hafa ekki
gert meira og hafa ekki staðið
með sjálfri mér.
Og þetta er sárt og erfitt. Þó
svo að flestallir sjái það ekki, þá
hvíla svona hlutir alltaf á manni.
Ég vildi óska að ég hefði stað-
ið meira með sjálfri mér þegar
þetta gerðist og reynt mitt besta
til að koma í veg fyrir þetta. En
maður getur ekki breytt fortíð-
inni, aðeins lært af henni.“
Ingibjörg Helga segir: „Sem
betur fer er sambandið á milli
okkar mæðgna mjög sterkt. Við
erum báðar að vinna í því að
komast yfir þetta allt, og sem
betur fer er margt gott fólk sem
stendur í kringum okkur. Starfs-
fólk Barnaverndar hefur aðstoð-
að og stutt okkur á allan þann
hátt sem hægt er og svo eigum
við sterka og góða fjölskyldu
sem við getum alltaf leitað til.
Ég veit ekki hvar við værum
ef við hefðum ekki þetta góða
stuðningsnet. Við reynum samt
að halda jákvæðninni lifandi,
við breytum ekki því sem hef-
ur gerst en við munum komast
í gegnum þetta sterkari fyrir vik-
ið.“ n
„Það sem
kom eftir
á var mjög vont
bæði andlega og
líkamlega. Hann
fór strax á eftir
og þá sá hvað ég
hafði gert stór
mistök.
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu þjónustu
okkar á Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS