Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 48
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 512 5402 Bogfimisetrið var stofnað árið 2012 til að bæta aðgengi að bogfimi, sem var áður erfitt að stunda hér á landi,“ segir Ásdís Lilja Hafþórsdóttir, leiðbeinandi hjá Bogfimisetrinu. „Það getur hver sem er komið. Svo lengi sem þú getur haldið á boga geturðu skotið. Þau yngstu sem hafa komið voru svona þriggja ára, svo það er ekkert aldurstakmark. Margir eru hissa á að hver sem er geti komið, en þetta er mjög aðgengilegt og skemmtilegt fyrir alla,“ segir Ásdís. „Sumir gera þetta bara sér til skemmtunar, við fáum til dæmis alls kyns hópa til okkar, en við fáum líka helling af fólki sem æfir af alvöru. Í sumar ætlum við að bjóða upp á námskeið fyrir ungmenni á aldrinum 12-20 ára. Námskeiðið er í átta vikur og stendur yfir í júní og júlí og því fylgir kort í Bog- fimisetrið fyrir þessa tvo mánuði þannig að þeir sem eru skráðir á námskeiðið geta komið utan æfingatíma og skotið eins og þeir vilja,“ segir Ásdís. „Námskeiðið er kennt mánudaga og miðvikudaga frá kl. 16 til 17.30 og byrjar 4. júní. Á námskeiðinu fær fólk leiðsögn frá menntuðum þjálfurum sem eyða miklum tíma með hverjum nemanda og haga þjálfun eftir þörfum hvers og eins, þannig að það skiptir ekki máli á hvaða stigi börnin eru,“ segir Ásdís. „Nám- skeiðið kostar 24.000 krónur, en mánaðarkort hjá okkur er á 12 þúsund krónur, þannig að þetta er eins og að kaupa tvo mánuði og fá æfingar og þjálfun með. Það fylgir líka allur búnaður, svo það er enginn aukakostnaður. Ef fólk hefur áhuga á að halda áfram er svo hægt að fara beint á haustnámskeiðið, sem byrjar snemma í ágúst,“ segir Ásdís. „Full- orðnir geta líka komið til okkar á grunnnámskeið í hverjum mánuði til að læra að nota bogana.“ Bogfimi er aðgengileg fyrir alla Í Bogfimisetrinu er hægt að læra allt í tengslum við bogfimi og bæði leika sér og æfa af alvöru. Í sumar verður boðið upp á námskeið fyrir ungmenni þar sem þau geta fengið persónulega þjálfun. Í sumar verður námskeið fyrir ungmenni á aldrinum 12-20 ára á Bogfimi- setrinu. MYNDir/ErNir Ásdís Lilja Hafþórsdóttir segir að bogfimi henti öllum aldurshópum og sé mjög aðgengileg. Blaðamaður hafði mælt sér mót við sirkuslistamennina á Klambratúni fyrir mynda- töku og viðtal. Þegar á hólminn var komið var ekki hægt að vera úti vegna rigningar svo viðtalið og myndatakan voru færð inn á Kjarvalsstaði og eftir að strák- arnir sýndu ljósmyndara og öðrum aðdáendum listir sínar voru þeir spurðir nánar út í sumarið. Benedikt Ingi: Við ætlum að halda sirkusnámskeið á Klambratúni í sumar. Það er opið fyrir alla en kannski sérstaklega miðað að börnum. En ef einhvern fullorðinn langar að koma og læra að djöggla er viðkomandi velkominn. Steinn Kári: Við verðum hérna frá ellefu til eitt alla góðviðris- laugardaga í júní og júlí. Jóhannes: Við nennum ekki að standa hérna í úrhellisrigningu og halda námskeið auk þess sem það fer mjög illa með sirkusverkfærin okkar. Þremenningarnir hafa verið í sirkusnámi hjá Æskusirkusnum í fjögur ár og eru allir í djöggl- deildinni. Jóhannes: Æskusirkusinn er hluti af Sirkus Íslands þannig að við erum mikið að vinna með fólkinu þar. Benedikt Ingi: Og þar erum við að læra allt sem okkur langar til. Jóhannes: Allar sirkuslistirnar. Steinn Kári: Við erum reyndar ekki mikið í hnífakasti … Benedikt Ingi: Nei. En við djögglum með hnífa. Jóhannes: Það er ekki nærri því eins hættulegt. Námið í Æskusirkusnum er deildaskipt og þeir eru saman í deild. Jóhannes: Við erum allir í djöggl-deildinni en sérhæfum okkur í mismunandi verkfærum. Steinn Kári: Djöggl snýst um að láta hluti gera það sem þú vilt að þeir geri. Þú getur notað hvað sem er til að djöggla, það þurfa ekkert endilega að vera boltar eða keilur heldur getur verið hvað sem er. Þegar körfuboltamaður snýr bolta á puttanum á sér er hann að djöggla. Benedikt Ingi: Þetta er mjög fjölbreytt. Ég er aðallega í bolta- djöggli en er með keilur og hatta líka. Steinn Kári: Ég er aðallega í því sem kallað er „poi“ og „diablo“. Í poi er maður með band með ein- hverri þyngd á endanum á bandinu og sveiflar því í kringum sig. Jóhannes: Ég er líka í diablo en svo er ég líka á einhjóli og hef verið að æfa mig á því. Steinn Kári: Diablo er eiginlega tvær skálar sem eru festar saman á botninum og svo er maður með band með tveimur prikum á end- anum og notar bandið til að grípa og kasta skálunum. Jóhannes: Líka kallað kínverskt jójó. Benedikt Ingi: … eða kínversk fuglahræða því þetta var uppruna- lega búið til til að kasta upp í loft og hræða fuglana. Þannig urðu flestir djöggl-hlutir til, þegar fólk var að leika sér með hluti úr daglegu lífi. Ætlið þið að kenna fólki að nota þessar græjur? Steinn Kári: Já, og við ætlum að vera með nógu mikið af græjum fyrir alla til að æfa sig á. Jóhannes: Svo ef þig langar til að prófa eitthvað ákveðið þá verðum við vonandi með græjur fyrir þig. Steinn Kári: Og ef eftirspurnin verður mikil eða það er spurt um eitthvað sem við erum ekki með þá getum við mögulega reddað því. Þeir segjast eiga allar græjurnar sjálfir og mörg sett af sumum sem þeir hafa sankað að sér gegnum námið. Benedikt Ingi: Þetta eru ekki neitt mjög dýrar græjur. Sirkus er ekki mjög algengt áhugamál svo sirkusgræjur eru í flestum tilfellum búnar til heima hjá fólki sem er að selja þær sjálft á netinu. Steinn Kári: Þetta eru mjög lífræn viðskipti ef svo má að orði komast, beint samband á milli þeirra sem búa til og þeirra sem vilja kaupa. Við erum til dæmis í sambandi við danskan hatta- gerðarmann sem gerði djöggl-hatt- ana okkar. Jóhannes: Það eru ekki margir sem vita að það er mikill munur á djöggl-hatti og venjulegum hatti. Steinn Kári: Djöggl-hattar eru miklu þyngri en venjulegir hattar. Benedikt Ingi: Það eru til margir mismunandi djöggl-hattar. Það eru til mjög harðir en svo er hægt að velja hvað þeir eru þungir og bara alls konar tegundir. Okkar eru með þreföldu lagi af filti í staðinn fyrir einfalt lag í venjulegum hatti. Við sérpöntum okkar hatta eftir þeirri þykkt sem við viljum og litina og allt það. Steinn Kári: Og hattarnir okkar eru líka sérsniðnir á okkur. Í fyrrasumar lagði hluti Æsku- sirkussins land undir fót og kynnti sér sirkuslistir í öðrum löndum. Steinn Kári: Já, við fórum á sirkusnámskeið í fyrra í Svíþjóð. Jóhannes: Það var mjög gaman að hitta hundrað aðra krakka sem eru að æfa sirkus því yfirleitt hittum við bara krakkana sem eru með okkur í Æskusirkusnum. Benedikt Ingi: Já, það var frá- bært að kynnast krökkum með sama áhugamál og líka sirkuslífi í öðrum löndum. Strákarnir eru allir saman í Háteigsskóla og eru þekktir innan skólans fyrir sirkuslistir. Benedikt Ingi: Krökkunum fannst fyrst dálítið skrýtið þegar við vorum að æfa okkur að djöggla á göngunum og komu og horfðu á og vildu fá að prófa en nú eru þau orðin vön þessu. Jóhannes: Við höfum nokkrum sinnum sýnt á hæfileikakeppnum og við önnur tilefni í skólanum. Steinn Kári: Við gerðum einu sinni atriði þar sem við vorum með öll verkfærin sem við höfum talað um hérna nema að við vorum búin að tengja ljós við þau. Það var alveg myrkur og það kom ofboðslega vel út. Hvað tekur við eftir Æskusirkus? Jóhannes: Æskusirkusinn átti bara að vera upp í sextán ára en nú erum við allir að verða sextán svo við verðum líklegast áfram í Æsku- sirkusnum þangað til við verðum átján og þá færum við okkur yfir í Sirkus Íslands. Benedikt Ingi: Við erum nokkur búin að vera að æfa með Sirkus Íslands í vetur og mætum þá líka á fullorðinsæfingarnar. Steinn Kári: Okkur var boðið að sýna með Sirkus Íslands í fyrra, á barnasýningunni, svo við erum að fikra okkur yfir í sirkusheiminn. Erum líklega svona sirkusungl- ingar. Þeir viðurkenna að vera ekki mikið farnir að huga að framtíðar- störfum en sirkus er þó klárlega inni í myndinni. Jóhannes: Það er hægt að taka háskólapróf í sirkuslistum í útlöndum. Við þekkjum nokkra hjá Sirkus Íslands sem gerðu það og það hljómar mjög spennandi. Steinn Kári: Kannski ekki mikl- ir atvinnu- eða valmöguleikar með þannig nám hér á Íslandi núna en við vonum að það breytist. Jóhannes: Það er samt rosalega mikil sérhæfing í sirkuslistum. Þú þarft að vera alveg viss um að þú viljir gera einmitt þetta. Benedikt Ingi: En við ætlum að sjálfsögðu að halda áfram í sirkus þó við séum að fara í framhalds- skóla. En aftur að sirkusfjörinu á Klambra túni sem hefst laugar- daginn 9. júní. Steinn Kári: Við fengum styrk frá Reykjavíkurborg til að halda þessi sirkusnámskeið í sumar og erum mjög spenntir fyrir þessari sumarvinnu. Jóhannes: Og við verðum kannski líka að vinna sem sirkus- dýr með Sirkus Íslands, búa til kandífloss og taka saman í tjaldinu og þannig. Steinn Kári: Við byrjuðum allir á sumarnámskeiði hjá Sirkus Íslands og við vonum að það komi margir að æfa með okkur og prófa allar græjurnar í sumar á Klambra- túni. Sirkusfjörið á Klambratúni verður ókeypis og fer fram alla laugar- daga í júní og júlí ef veður leyfir. Áhugasamir geta fylgst með á Facebook-síðunni Sirkusfjör á Klambratúni. Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Hér má sjá Stein leika listir sínar með diablo, Benni hendir keilurnar á lofti og Jói býr sig undir að kasta hattinum á höfuðið. MYND/EYþór 2 KYNNiNGArBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RSuMAr & BörN 2 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 1 4 4 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E A -8 6 9 C 1 F E A -8 5 6 0 1 F E A -8 4 2 4 1 F E A -8 2 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.