Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 126

Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 126
 Ég segi innsetning og aðrir myndu segja tónverk eða ópera en við leitumst við að gera öllu jafn hátt undir höfði. gætum þess að óperan sjálf verði ekki leik- munur á sviðinu. Þetta er mjög þverfag-legur hópur og höfundar verksins eru ég, Borg-hildur Indriðadóttir og Hrafnhildur Árnadóttir, þannig að þetta er mikill Hildarleikur,“ segir Hrafnhildur Giss- urardóttir. En höfundaverkið sem hún vísar til er sýningin Free Play sem verður sýnd í bingósal Vina- bæjar í Skipholti klukkan fimm í dag. Að sýningunni standa listamenn og hönnuðir úr ólíkum greinum og er útkoman um margt óvenjuleg en Hrafnhildur Gissurardóttir segir að upphafið að samstarfinu megi rekja til Hollands. Byrjaði allt í Amsterdam „Við Hrafnhildarnar kynntumst í Amsterdam en þá var ég að reka sýningarrými við hliðina á óperunni og hún að læra óperusöng. Ég fór oft á sýningar í óperunni og hún kom til mín á sýningar. Þannig að svona hófst samtalið sem hélt svo áfram í Berlín þar sem við kynntumst Borg- hildi en hún var í sama skóla og ég í mastersnáminu. Hún var að læra arkitektúr og ég að læra listfræði en hún hafði líka upplifað mikið af óperu þar sem pabbi hennar fór mikið með hana á sýningar þegar hún var yngri. Hún hafði líka reynslu úr leikhúsi í Berlín. Þannig að þetta svona sameinaði okkur að hafa allar verið talsvert í þessum stóru óperu- sölum þegar við kynnumst. Okkar samtal sem er svo núna orðið að sýningu byrjaði út frá þessum for- sendum og eftir að við fluttum heim þá gerðist þetta hratt.“ Hrafnhildur segir að þær hafi sótt um í bæði Mynd- og Tónlistarsjóð og fengið úthlutanir sem nýttust vel til verksins. Það hafi hins vegar vantað tónlistarstjóra á verkefnið en sú leit hafi verið auðveld. „Það var eiginlega strax á fyrsta fundi að nafn Sveinbjarnar Thorarensen, sem margir þekkja undir listamanns- nafninu Hermigervill, kom til tals. Hrafnhildur Árnadóttir þekkti tón- listina hans vel frá því í menntaskóla og ég þekkti hana vegna þess að ég bjó með honum í stóru húsnæði í eitt ár í Amsterdam þegar ég var enn við nám. En við þekktum hann fyrst og fremst sem listamann sem við vissum að mundi ekki vera hræddur við að stökkva út í djúpu laugina. Að hann væri rétti maðurinn til þess að taka þetta að sér vegna þess að hann er bæði opinn og skapandi og við treystum honum vel til verksins.“ La Traviata Spurð um hvaða verk hafi svo komið út úr þessu samtali ólíkra einstaklinga úr ólíkum en skapandi greinum segir Hrafnhildur að þær hafi ákveðið að taka fyrir hina frægu óperu Giu- seppe Verdi, La Traviata. „Violetta er draumahlutverk Hrafnhildar Árnadóttur og hún kann verkið. Við erum að taka ákveðin skref í að gera óperuna aðgengilegri og taka hana úr hámenningarbúningnum. Og þess vegna lá vel við að taka einmitt óperu sem er mjög fræg og allir þekkja lög þaðan svona þegar þeir heyra þau án þess að vera endilega inni í óperu- heiminum. Lög eða aríur á borð við Sempre libera eða Ávallt frjáls sem titill sýningarinnar vísar til. Það er dæmi um að við erum að taka þarna svona „best of“ plús fleiri til sem við vildum halda inni út af sögunni. En Hrafnhildur heldur uppi verkinu, er ein á sviðinu þessa klukkustund Maður getur líka verið einn og einmana í Vinabæ free play er heiti á skemmtilegum listviðburði sem fer fram í vinabæ í dag. hópur listamanna er að baki viðburðinum þar sem tekist er á við óperuna la traviata eftir giuseppi verdi með nýstárlegum hætti. Listamennirnir sem standa að Free Play, þau Borghildur Indriðadóttir, Hrafnhildur Árnadóttir, Sveinbjörn Thorarensen og Hrafnhildur Gissurardóttir fyrir framan Vinabæ. FréTTABLAðIð/STeFÁn Hrafnhildur Árnadóttir í hlut- verki sínu í Free Play í Vinabæ. sem sýningin stendur, og er búin að vera gríðarlega hugrökk í gegnum allt þetta ferli.“ Hrafnhildur segir að þau leitist líka við að skapa í verkinu alveg einstakan hljóðheim sem bindur þetta saman. „Við erum að vinna með ákveðin lykilorð sem við göngum út frá, eins og neðansjávar og endurtekning, og nýtum okkur þau í ferlinu. Svein- björn vinnur með þennan hljóðheim og hann verður á svæðinu en ekki sviðinu. Þar sem rödd óperusöng- konunnar er gríðarlega sterk, hún þarf svo enga hjálp, þá þurfum við ákveðna hjálp til þess að setja rödd hennar inn í hljóðheim Sveinbjarnar. Hún verður því með lítinn hljóðnema og Sveinbjörn sér um að hljóðblanda og stilla þessu saman á staðnum.“ Verdi var pönkari Aðspurð um markmið verksins og áhersluna á óperuna segir Hrafn- hildur að sitthvað við óperuheim- inn hafi komið henni á óvart. „Ég var hissa hvað margir mynd- og tónlistar- unnendur voru líka að fara í óper- una en kannski er það vegna þess að þarna sameinast svo mörg form. En að sama skapi þá erum við svolítið að gleyma því að Verdi var í því að brjóta reglur. Hann var pönkari síns tíma. Og nítjánda öldin er alls ekki heilög, það má vel hreyfa við ýmsu, og það má skoða ýmislegt á nýjan hátt. Það reyndist okkur líka mikilvægt að fá í lið með okkur Þórunni Maríu Jóns- dóttur, leikmynda- og búningahönn- uð, sem hugsaði þetta með okkur á rosalega skemmtilegan hátt.“ Aðspurð um það hvernig maður skilgreinir verk eða sýningu eins og Free Play segir Hrafnhildur að það fari eftir því hvern þú spyrð. „Ég segi innsetning og aðrir myndu segja tónverk eða ópera en við leit- umst við að gera öllu jafn hátt undir höfði. Gætum þess að óperan sjálf verði ekki leikmunur á sviðinu. Við vinnum út frá henni, en erum ekki að staðfæra hana, skoðum í kjölinn sögu Violettu og tökum listrænar ákvarðanir út frá sögunni.“ Hrafnhildur hefur á orði að salur- inn í Vinabæ hafi líka haft heilmikið gildi í þessu samhengi. „Þessi salur er alveg dásamlegur, dálítið eins tíminn hafi staðið í stað, en það var líka nafnið Vinabær sem höfðaði til okkar. Ekki síst í ljósi þess að Viol- etta upplifði sig eina og einangraða í borginni París sem hún kallaði yfir- fulla eyðimörk. Þannig að við erum aðeins að tala um að maður getur verið einn og einmana í Vinabæ.“ 2 6 . m a í 2 0 1 8 L a U G a R D a G U R74 m e n n i n G ∙ F R É T T a B L a ð i ð 2 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 1 4 4 s _ P 1 4 3 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 2 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F E 9 -E 8 9 C 1 F E 9 -E 7 6 0 1 F E 9 -E 6 2 4 1 F E 9 -E 4 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.