Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.05.2018, Blaðsíða 10
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is mánudaginn 28. maí, kl. 18 Listmunauppboð í Gallerí Fold Listmunauppboð nr. 110 laugardag kl. 11–16, sunnudag kl. 12–16 og mánudag 10–17 Forsýning á verkunum laugardag til mánudags Þorvaldur Skúlason K ö n n u n 9 . a p r í l ✿ Fylgi flokkanna og úthlutun sæta í borgarstjórn n Björt framtíð n Framsóknarflokkurinn n Viðreisn n Sjálfstæðisflokkurinn n Flokkur fólksins n Miðflokkurinn n Píratar n Samfylkingin n VG Skipting sæta 1 1 9 2 1 2 7 K o S n i n g a r 2 0 1 4 1,37% 1,41% 1,37% 1,83% 3,43% 2,92% 1,37% 1,66% 2,04% 2 2 4 5 1 1 Borgarfulltrúum verður fjölgað úr 15 í 23 í komandi kosningum. KoSningar „Sem betur fer er langt í næstu kosningar og vonandi verður fólk glaðara þegar það fer næst í kosningar,“ segir Friðjón Friðjóns­ son almannatengill um kosninga­ baráttuna sem nú er að renna sitt skeið. „Það er rosalega mikið af reiðu fólki í þessari kosningabaráttu,“ segir Friðjón. Viðmælendur Fréttablaðsins, sem ásamt Friðjóni eru almanna­ tenglarnir Andrés Jónsson og Elías Jón Guðjónsson, eru sammála um að kosningabaráttan hafi almennt verið tilþrifalítil og einkennst af kosninga­ þreytu enda eru þetta fjórðu kosning­ arnar sem fram fara frá árinu 2016. Friðjón segir að hér í Reykjavík hafi frambjóðandi Miðflokksins rekið áhugaverðustu kosninga­ baráttuna. „Mér hefur fundist Vig­ dís Hauksdóttir skemmtileg,“ segir Friðjón og vísar þar í myndbönd sem Vigdís hefur gert og birt á samfélags­ miðlunum. „Hún hefur brotið upp formið og svo höfum líka séð fram­ bjóðendur í öðrum sveitarfélögum þora að fara út fyrir formið,“ segir Friðjón. Þar vísar hann meðal ann­ ars til auglýsinga Ármanns Kr. Ólafs­ sonar í Kópavogi. „Vigdís hefur sýnt fólki að það má vera skemmtilegur í kosningabaráttu,“ segir Friðjón. Það hafi verið helsti gallinn í kosninga­ baráttunni og kosningabaráttu yfir­ leitt að menn taki sig of alvarlega. „Menn verða að vera léttir.“ Kosningabarátta Miðflokksins virðist ætla að skila Vigdísi sæti í borgarstjórn Reykjavíkur næsta kjörtímabilið. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær sýnir ný skoð­ anakönnun, sem Fréttablaðið og frettabladid.is gerðu í vikunni, að Viðreisn, Miðflokkurinn og Fram­ sóknarflokkurinn fengju einn mann kjörinn hver. Píratar og VG fengju tvo menn hvor flokkur, Sjálfstæðis­ flokkurinn fengi svo sjö menn og Samfylkingin níu menn. Í skoðanakönnuninni var spurt um fylgi allra sextán flokkanna sem bjóða fram lista í Reykjavík. Af þeim sem afstöðu tóku sögðust rúm 32 prósent ætla að kjósa Samfylking­ una, rúmlega 26 prósent myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, rúm 10 prósent myndu kjósa Pírata, 7,5 prósent myndu kjósa VG, rúm sex prósent myndu kjósa Viðreisn, rúm  fimm prósent myndu kjósa Miðflokkinn, 3,6 prósent Fram­ sóknarflokkinn, 3,1 prósent Flokk fólksins og 2,3 prósent myndu kjósa Sósíalistaflokkinn. Næst Sósíalista­ flokknum að stærð er Kvennahreyf­ ingin með 1,9 prósent, 0,3 prósent nefna Höfuðborgarlistann og 0,3 prósent nefna Frelsisflokkinn. Þá nefndi 0,1 prósent Alþýðufylking­ una. Hvorki Íslenska þjóðfylkingin, Borgin okkar – Reykjavík né Karla­ listinn komust á blað. Þegar horft er til hlutfallslegrar skiptingar atkvæða sést að Sam­ fylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn eru nánast á pari við það sem flokk­ arnir fengu í borgarstjórnarkosning­ unum 2014. Píratar hins vegar tvö­ falda nánast fylgi sitt en VG er svo aftur á móti með svipað fylgi og fyrir Turnarnir tveir halda fylginu frá 2014 Miðflokkurinn hefur rekið áhugaverðustu kosningabaráttuna, að mati almannatengils. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn halda fylgi sínu frá síðustu kosningum. Mestar líkur á að meirihlutaflokkarnir starfi áfram saman á næsta kjörtímabili, nái þeir til þess fylgi. fjórum árum. Meirihlutaflokkarnir þrír sem bjóða fram að nýju, það er Samfylkingin, Píratar og VG, eru því í nokkuð góðri stöðu eftir kjör­ tímabilið. Björt framtíð er hins vegar horfin af sjónarsviðinu, að minnsta kosti um stundarsakir. Elías Jón Guðjónsson segir að umræðan í aðdraganda kosninganna hafi verið flöt. „Málefnin hafa ekki komist í umræðuna, en hún hefur kannski að mörgu leyti snúist um það hvor verður borgarstjóri, Dagur eða Eyþór. „Fólk er ekki móttæki­ legt fyrir pólitískri umræðu akkúrat núna,“ segir hann. Þá kunni fjöldi framboða að hafa valdið því að fram­ bjóðendur eigi erfitt með að koma stefnumálum sínum á framfæri. Elías Jón, sem þekkir vel til í VG, segir að ef niðurstaða kosninganna í dag verði í samræmi við skoðana­ könnun Fréttablaðsins þá starfi meirihlutinn áfram saman, að und­ anskilinni Bjartri framtíð. „Þá þarf ekkert að flækja málin, þá bara held­ ur sami meirihluti áfram með sömu áherslur. Ég sé ekki neina ástæðu til að bæta einhverjum öðrum inn í. Ekki nema að sá hinn sami vilji vinna að sömu málefnum.“ Andrés Jónsson almannatengill segir að kosningabaráttan sé að verða styttri og knappari. „Sá tími sem kosningabaráttan er í algleym­ ingi var þrjár vikur í þarsíðustu kosningum, tvær vikur í síðustu kosningum og 10 dagar í þessum kosningum.“ Hann segir að mesta spennan á morgun muni snúast um það hvort minni framboð, sem geta vænst þess að fá einn mann inn, geti haft áhrif á stöðu meirihlutans. jonhakon@frettabladid.is Aðferðafræðin Könnun Fréttablaðsins var gerð þannig að hringt var í 1.987 manns með lögheimili í Reykjavík þar til náðist í 1.500 samkvæmt lagskiptu úrtaki 23. og 24. maí. Svarhlutfallið var 75,5 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlut- fallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Alls tók 62,1 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Þá voru 10 prósent sem sögðust ekki ætla að kjósa eða skila auðu, 18,4 prósent sögðust óákveðin og 9,6 prósent vildu ekki svara spurningunni. 1, 37 % 3, 1% 10 ,7 % 2, 5% 3, 6% 7, 3% 5, 3% 5, 9% 7 ,5 % 10 ,3 % 25 ,7 % 22 ,4 % 26 ,3 % 3, 1% 2, 3% 8, 3% 6, 2% 8, 3% 10 ,9 % 7, 5% 31 ,9 % 30 ,5 % 32 ,1 % Vi km ör k Sá tími sem kosn- ingabaráttan er í algleymingi var þrjár vikur í þarsíðustu kosningum, tvær vikur í síðustu kosningum og 10 dagar í þessum Andrés Jónsson, almannatengill og eigandi Góðra samskipta Vigdís hefur sýnt fólki að það má vera skemmtilegur í kosninga- baráttu. Friðjón Friðjónsson, almannatengill og einn eigenda Kom KoSningar Könnun sem Gal­ lup gerði dagana 22. til 25. maí og birt var í fréttum RÚV í gær sýnir aðra mynd af fylgi flokk­ anna. Samkvæmt þeirri könnun er Sjálfstæðis flokkurinn stærsti flokkurinn í Reykjavík með 28,3 prósenta fylgi. Samfylkingin er næst stærst með 26 prósent, svo koma Píratar með 11 prósent, Við­ reisn 8,7 prósent, Vinstri græn 6,2 prósent, Miðflokkurinn 5,8 prósent og Flokkur fólksins 3,8 prósent. Samkvæmt þessari könnun verða fyrrgreindir sjö flokkar með full­ trúa í borgarstjórn. Sósíalistaflokkurinn er næstur með mann inn, flokkurinn mælist með 3,4 prósenta fylgi en 2,9 pró­ sent sögðust ætla að kjósa Fram­ sóknarflokkinn. Aðrir flokkar mældust með 3,8 prósenta fylgi samanlagt. Af þeim sem tóku þátt sagðist enginn ætla að kjósa Frelsisflokkinn og einn Íslensku þjóðfylkinguna. Þrír nefndu Höfuð­ borgarlistann, fjórir ætluðu að greiða Borginni okkar – Reykjavík atkvæði sitt, sex Karlalistanum, ell­ efu Alþýðufylkingunni og sautján Kvennahreyfingunni. Heildarúrtaksstærð í könnun Gallup var 2.215 og var þátttöku­ hlutfall 57,7 prósent eða 1.104. Af þeim sögðust 6,6 prósent ekki ætla að kjósa eða skila auðu og 7 pró­ sent tóku ekki afstöðu. – jhh Könnun Gallup sýnir ólíkar niðurstöður 28% prósent er fylgi Sjálfstæðis- flokksins í könnun Gallup. Kosningar 2014 Könnun 7. maí 2018 Könnun 23. og 24. maí 2 6 . m a í 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 2 6 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 1 4 4 s _ P 1 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E A -3 7 9 C 1 F E A -3 6 6 0 1 F E A -3 5 2 4 1 F E A -3 3 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 1 4 4 s _ 2 5 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.