Morgunblaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 9
ALL I R VELKOMN IR
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/K
SS
86
15
8
10
/1
7
Léttar veitingar, próteinbætt hátíðarterta, heilsubúst með próteini, kokteill meðmysualkóhóli, skyrís og fleira próteinríkt.
HEILSUPRÓTEIN EHF.
HÁGÆÐA PRÓTE IN
Heilsuprótein ehf. er fyrirtæki í sameiginlegri eigu Mjólkursamsölunnar ehf. og Kaupfélags Skagfirðinga svf. Sá hluti verksmiðjunnar sem nú
verður tekinn í notkun markar tímamót í umhverfismálum mjólkuriðnaðarins á Íslandi. Þar verður unnið hágæða próteinduft úr mysunni sem
fellur til við ostagerð á Vestur-, Norður- og Austurlandi og runnið hefur til sjávar fram að þessu.
Samhliða því að leysa stórt umhverfismál verður til virðisaukandi starfsemi fyrir mjólkuriðnaðinn með framleiðslu á þurrkuðu mysupróteini
og etanóli, sem vonandi gefur tækifæri á næstu árum og áratugum til verulegrar verðmætasköpunar og gjaldeyrisskapandi framleiðslu.
Síðari áfangi verksmiðjunnar, sem vonast er til að komist í gagnið eigi síðar en á árinu 2019, mun vinna etanól (alkóhól) úr mjólkursykrinum
í mysunni. Eftir síðari áfangann mun einungis hreint vatn renna til sjávar frá þessari framleiðslu.
• Dagskráratriði kynnt
• Ávarp forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson
• Ávarp stjórnarformanns Heilsupróteins ehf., Ari Edwald
• Ávarp stjórnarmanns Heilsupróteins ehf., Pálmi Vilhjálmsson mjólkurverkfræðingur
• Vígsla. Fyrrverandi og núverandi landbúnaðar- og umhverfisráðherrar
vígja verksmiðjuna. Gestum boðið að skoða hana.
• Karlakórinn Heimir syngur á milli atriða
HÁTÍÐIN VERÐUR SETT KL. 15:30
NÝ UPPSPRETTA TÆKIFÆRA
VERKSMIÐJA HEILSUPRÓTEINS TEKIN Í GAGNIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI
VÍGSLUHÁTÍÐ
21 . OK TÓBER 2017