Morgunblaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2017
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Skáldsaga Elísu Jóhannsdóttur, Er
ekki allt í lagi með þig?, bar sigur úr
býtum í samkeppninni um Íslensku
barnabókaverðlaunin 2017. Voru úr-
slitin tilkynnt við athöfn í Linda-
skóla í gærmorgun og fékk Elísa þá
um leið afhent fyrsta eintak bókar
sinnar sem kom út í gær.
Í umsögn dómnefndar verðlaun-
anna segir að Er ekki allt í lagi með
þig? sé skemmtileg og spennandi
unglingasaga í hæsta gæðaflokki,
saga sem fjallar á nýstárlegan hátt
um einelti frá sjónarhóli bæði ger-
enda og þolenda en eineltið fer að
hluta fram á netinu.
Sagan er sögð fjalla um vináttu,
vinslit, foreldravandamál og það að
standa með sjálfum sér – heitar og
flóknar tilfinningar sem allir ung-
lingar kannast við.
Í káputexta bókarinnar segir að
þegar Ragnheiður flytur í bæinn sé
hún tilbúin að hefja nýtt líf; gleyma
eineltinu í gamla skólanum og eign-
ast vini í þeim nýja. Það byrjar vel
þegar Hekla, vinsælasta stelpan í
skólanum, kynnir hana fyrir fótbolta
og strákunum í 10. bekk en fljótlega
splundrast vinahópar og engin leið
er að vita hverjir eru með manni í
liði.
Endurskrifaði frá grunni
Elísa Jóhannsdóttir er bók-
menntafræðingur að mennt og Er
ekki í lagi með þig? er fyrsta skáld-
saga hennar.
Hún segist hafa byrjað að skrifa
þessa sögu fyrir fimm til sex árum.
„Það er orðið býsna langt síðan og
ég hef unnið í þessu samhliða vinnu
og barneignum; hef gripið í þetta
þegar ég hef getað,“ segir hún og
brosir en Elísa á tvö ung börn og er
nú í fæðingarorlofi en hún hefur
undanfarið starfað sem markaðs- og
kynningarstjóri við Háskóla Ís-
lands. Þá hefur hún þýtt skáldsög-
una Villt eftir Cheryl Strayed en
hún útskrifaðist úr meistaranámi
árið 2006.
Þegar Elísa er spurð hvernig
staðið hafi á því að hún byrjaði að
skrifa þessa sögu fyrir unglinga seg-
ir hún kveikjuna hafa verið þegar
auglýst var eftir handriti að barna-
eða unglingabók en hún hafði þá
lengi ætlað sér að skrifa unglinga-
bók um einelti.
„Ég sendi reyndar ekki inn hand-
rit það árið en fyrsta útgáfa sög-
unnar var í bloggformi, sem gekk
ekki alveg upp,“ segir hún. „Ég end-
urskrifaði söguna því alveg frá
grunni og hún breyttist við það.
Sagan er sögð frá tveimur sjónar-
hornum, tveggja stelpna, og lesand-
inn les til skiptis kafla með frásögn-
um þeirra.“
Bara saga um krakka
Elísa segir söguna ætlaða les-
endum í 8. til 10. bekk. „Upphaflega
hugsaði ég hana fyrir yngri lesenda-
hóp en svo þróaðist sagan þannig að
hún varð fyrir eldri krakka.
Annars hugsaði ég ekki mikið út í
það fyrir hverja ég væri að skrifa.
Ég var bara að skrifa sögu um
krakka á þessum aldri og reyndi að
skrifa eins góða og sanna sögu og ég
mögulega gæti.“
Hún sendi því tilbúið handrit í
samkeppnina núna og vann svo að
henni í sumar með ritstjóra frá For-
laginu, eftir að dómnefndin hafði
ákveðið að sagan fengi verðlaunin.
Eins og fyrr segir er Elísa bók-
menntafræðingur og segist alltaf
hafa lesið barna- og unglingabók-
menntir og fylgst vel með þeim sam-
hliða öðrum bókmenntum. Í BA-
ritgerð sinni fjallaði hún um þrjár
bækur fyrir ungmenni.
Varð fyrir einelti í skóla
Eitt umfjöllunarefni nýju bókar-
innar er einelti en það þekkir Elísa
af eigin raun.
„Já, ég var lögð í einelti þegar ég
bjó í Danmörku 12-13 ára gömul.
Mig hefur lengi langað til að skrifa
um þetta, alveg síðan ég fór að
hugsa mér að skrifa sögur. Mig
langaði ekki til að vinna úr minni
reynslu eða fjalla um hana á nokk-
urn hátt. Eineltið sem ég varð fyrir
stóð stutt yfir. Ég var látin skipta
um skóla því mamma, sem er grunn-
skólakennari, sá að það gekk ekkert
að tala við skólastjórnendur og tók
mig þá bara úr skólanum. Það tók
mig nokkuð langan tíma að vinna úr
þessari reynslu en ég gerði það þó
þegar á unglingsárunum. Þetta hef-
ur ekkert verið á sálinni á mér en ég
fylgist vel með eineltisumræðu, hef
lesið um það bækur og finnst fókus-
inn alltaf vera á þeim sem verða fyr-
ir eineltinu. Í þessari bók er ég að
segja sögu af tveimur stelpum og
þar er einelti en fórnarlambið er
ekki ein af aðalsöguhetjunum. Ég er
meira að fjalla um það hver leggur í
einelti og af hverju og hvers vegna
hinir gera ekki neitt. Að skoða hver
tekur þátt í því og hver ekki og hve-
nær fólk tekur þátt í eineltinu og
hvenær ekki.“
Elísa bætir við að bókin fjalli um
mjög margt annað og hún sé ekki
niðurdrepandi lesning. „Hún fjallar
til að mynda einnig um það að eign-
ast vini og um vinsældir, um að vera
í fótbolta og ýmislegt annað …“
Fleiri bækur væntanlegar
Þegar spurt er hvort Elísa vilji
markvisst koma boðskap á framfæri
í sögunni neitar hún því, að öðru
leyti en því að fólk hugsi sig um áður
en það tekur þátt í einhverju slæmu
og reyni líka að koma í veg fyrir það
ef það sér eitthvað slæmt gerast.
En er það ekki vindur í segl henn-
ar, nýs rithöfundar, að fá viðurkenn-
ingu sem þessa?
„Jú, tvímælalaust,“ svarar hún.
„Það er vissulega gaman. Næst
kemur vonandi frá mér lítil barna-
bók, sem er ágætlega komin á veg,
og svo er ég með handrit að fullorð-
insbók sem ég hef líka verið að
skrifa á undanförnum árum.“
Það er því kraftur í Elísu og
flæðir úr skáldæðinni.
„Það koma gusur öðru hvoru og
þá er gott að vera skipulögð,“ segir
hún. „Þá hjálpar líka til að vera ekki
með sjónvarp!“
Örva höfunda til skrifta
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka, sem stendur að íslensku
barnabókaverðlaununum, var stofn-
aður 30. janúar 1985 í tilefni af sjö-
tugsafmæli Ármanns Kr. Einars-
sonar rithöfundar (1915-1999). Að
sjóðnum standa fjölskylda Ár-
manns, bókaútgáfan Vaka-
Helgafell, nú innan vébanda For-
lagsins, IBBY á Íslandi og Barna-
vinafélagið Sumargjöf. Fulltrúar
þeirra skipa dómnefnd sem velur úr
handritum en einnig eru í henni
hverju sinni tveir grunnskólanemar,
fulltrúar lesenda. Að þessu sinni
voru það þau Bergþóra Sól og Veig-
ar Elí úr Lindaskóla í Kópavogi.
Megintilgangur sjóðsins er að
örva höfunda til að skrifa fyrir börn
og unglinga og stuðla þannig að
auknu framboði úrvalslesefnis fyrir
æsku landsins. Sjóðurinn efnir ár-
lega til samkeppni um Íslensku
barnabókaverðlaunin sem veitt eru
fyrir það handrit sem dómnefnd
þykir best hverju sinni.
Reyndi að skrifa
góða og sanna sögu
Elísa Jóhannsdóttir hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin
Morgunblaðið/Hanna
Verðlaunahöfundur Elísa Jóhannsdóttir hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin í ár og fékk við athöfn í Lindaskóla í
gærmorgun í hendur fyrsta eintakið að skáldsögu sinni fyrir unglinga, Er ekki allt í lagi með þig?
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 21/10 kl. 20:00 21. s Sun 19/11 kl. 20:00 28. s Lau 9/12 kl. 20:00 36. s
Sun 22/10 kl. 20:00 22. s Mið 22/11 kl. 20:00 29. s Sun 10/12 kl. 20:00 37. s
Sun 29/10 kl. 20:00 23. s Fim 23/11 kl. 20:00 30. s Fim 14/12 kl. 20:00 38. s
Lau 4/11 kl. 20:00 24. s Fös 24/11 kl. 20:00 31. s Fös 15/12 kl. 20:00 39. s
Fös 10/11 kl. 20:00 25. s Mið 29/11 kl. 20:00 32. s Lau 16/12 kl. 20:00 40. s
Sun 12/11 kl. 20:00 26. s Fös 1/12 kl. 20:00 33. s Þri 26/12 kl. 20:00 41. s
Þri 14/11 kl. 20:00 auk. Lau 2/12 kl. 20:00 auk. Mið 27/12 kl. 20:00 42. s
Fim 16/11 kl. 20:00 auk. Sun 3/12 kl. 20:00 34. s Fim 28/12 kl. 20:00 43. s
Fös 17/11 kl. 20:00 auk. Mið 6/12 kl. 20:00 35. s
Lau 18/11 kl. 20:00 27. s Fös 8/12 kl. 20:00 auk.
Stjarna er fædd!
Guð blessi Ísland (Stóra sviðið)
Fös 20/10 kl. 20:00 Frums. Fim 26/10 kl. 20:00 3. s Mið 1/11 kl. 20:00 5. s
Mið 25/10 kl. 20:00 2. s Fös 27/10 kl. 20:00 4. s Fim 2/11 kl. 20:00 6. s
Þetta er 11. september Íslendinga, gjörsamlega.
1984 (Nýja sviðið)
Fim 19/10 kl. 20:00 16. s Sun 22/10 kl. 20:00 17. s Fim 26/10 kl. 20:00 Lokas.
Stóri bróðir fylgist með þér
Kartöfluæturnar (Litla sviðið)
Fös 20/10 kl. 20:00 9. s Sun 29/10 kl. 20:00 12. s Fim 16/11 kl. 20:00 16. s
Lau 21/10 kl. 20:00 aukas. Fim 2/11 kl. 20:00 13. s Þri 21/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 22/10 kl. 20:00 10. s Sun 5/11 kl. 20:00 15. s
Fjölskyldukeppni í meðvirkni!
Úti að aka (Stóra sviðið)
Lau 28/10 kl. 20:00 5. s Lau 11/11 kl. 20:00 6. s Lau 25/11 kl. 20:00 7. s
Sprenghlægilegur farsi!
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 10/11 kl. 20:00 1. s Sun 19/11 kl. 20:00 6. s Fim 30/11 kl. 20:00 11. s
Lau 11/11 kl. 20:00 2. s Mið 22/11 kl. 20:00 7. s Fös 1/12 kl. 20:00 12. s
Sun 12/11 kl. 20:00 3. s Fim 23/11 kl. 20:00 8. s Lau 2/12 kl. 20:00 13. s
Mið 15/11 kl. 20:00 4. s Fös 24/11 kl. 20:00 9. s Sun 3/12 kl. 20:00 14. s
Lau 18/11 kl. 20:00 5. s Mið 29/11 kl. 20:00 10. s Fös 8/12 kl. 20:00 15. s
Draumur um eilífa ást
Natan (Litla sviðið)
Fim 26/10 kl. 20:00 Frums. Mið 1/11 kl. 20:00 3. s Lau 4/11 kl. 20:00 5. s
Lau 28/10 kl. 20:00 2. s Fös 3/11 kl. 20:00 4. s Fim 9/11 kl. 20:00 6. s
Hvers vegna drepur maður mann?
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 29/10 kl. 13:00 48. s Mið 1/11 kl. 13:00 aukas. Fim 9/11 kl. 13:00 aukas.
Þri 31/10 kl. 13:00 aukas. Sun 5/11 kl. 13:00 49. s Sun 12/11 kl. 13:00 50. s
Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor.
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 22/10 kl. 13:00 Sun 5/11 kl. 13:00 Lau 30/12 kl. 13:00
Sun 29/10 kl. 13:00 Sun 12/11 kl. 16:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Lau 21/10 kl. 19:30 5.sýn Fim 2/11 kl. 19:30 Auka Fös 24/11 kl. 19:30 11.sýn
Fim 26/10 kl. 19:30 4.sýn Fös 3/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 25/11 kl. 19:30 12.sýn
Fös 27/10 kl. 19:30 6.sýn Lau 4/11 kl. 19:30 9.sýn Fim 30/11 kl. 19:30 13.sýn
Sun 29/10 kl. 19:30 7.sýn Fim 23/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 1/12 kl. 19:30 14.sýn
Óvenjulegt og áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Mið 18/10 kl. 19:30 Auka Fös 20/10 kl. 19:30 Auka
Fim 19/10 kl. 19:30 33.sýn Sun 22/10 kl. 19:30 Lokas
Fimm Grímutilnefningar!
Eniga Meniga (Stóra sviðið)
Lau 28/10 kl. 13:00 Lau 28/10 kl. 16:00
Fjölskyldutónleikar í Þjóðleikhúsinu með lögum Ólafs Hauks.
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 20/10 kl. 19:30 Frum Fös 10/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 23/11 kl. 19:30 9.sýn
Fim 26/10 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/11 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/11 kl. 19:30 10.sýn
Fös 27/10 kl. 19:30 3.sýn Fös 17/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/12 kl. 19:30 11.sýn
Fös 3/11 kl. 19:30 4.sýn Lau 18/11 kl. 19:30 8.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Óvinur fólksins (Stóra sviðið)
Lau 21/10 kl. 19:30 9.sýn Lau 4/11 kl. 19:30 10.sýn
Eitt frægasta leikverk Henriks Ibsens í nýrri leikgerð
Smán (Kúlan)
Lau 21/10 kl. 17:00 11.sýn Sun 29/10 kl. 17:00 13.sýn Sun 5/11 kl. 19:30 15.sýn
Lau 28/10 kl. 19:30 12.sýn Lau 4/11 kl. 17:00 14.sýn
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 18/10 kl. 20:00 Mið 8/11 kl. 20:00 Mið 29/11 kl. 20:00
Mið 25/10 kl. 20:00 Mið 15/11 kl. 20:00
Mið 1/11 kl. 20:00 Mið 22/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Landsbyggðin)
Mið 18/10 kl. 10:00
Egilsstaðir
Mið 18/10 kl. 13:00
Egilsstaðir
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 21/10 kl. 13:00 Sun 29/10 kl. 16:00 Lau 4/11 kl. 15:00
Lau 21/10 kl. 15:00 Lau 4/11 kl. 13:00
Brúðusýning
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 10/11 kl. 19:30 57.sýn Sun 12/11 kl. 19:30 59.sýn Lau 18/11 kl. 19:30 61.sýn
Lau 11/11 kl. 19:30 58.sýn Fös 17/11 kl. 19:30 60.sýn Sun 19/11 kl. 19:30 62.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200