Morgunblaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2017
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 27. október
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til 23. október
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu ekki svo hræddur um tilfinn-
ingar þínar að þú þorir alls ekki að láta neitt
uppi. Gakktu tækninni á hönd, jafnvel þótt þú
þurfir að lesa leiðbeiningabækling.
20. apríl - 20. maí
Naut Ekki láta það á þig fá þótt yfirmenn og
foreldrar séu að gera út af við þig um þessar
mundir. Mundu að hver er sinnar gæfu smið-
ur og þú átt nóg með þín eigin mál.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Staldraðu við og skoðaðu vandlega
hvað það er sem skiptir þig máli í lífinu og
hvaða þætti þú þarft að rækta betur. Heimi
þínum tilheyra ímyndaðir vinir og aðrar dul-
arfullar verur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þig langar kannski ekki að hlusta á
það sem ástvinur vill segja þér en þú ert
rausnarlegur og góðhjartaður. Ekkert er eins
þroskandi og að vinna að lausn vandamáls.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu til þín taka í viðgerðum á heim-
ilinu í dag. Til allrar hamingju er samband
þitt við samstarfsfólk og viðskiptavini mjög
gott.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Skoðanir þínar eru afar persónulegs
eðlis í dag. Til þín kann að verða leitað sem
sáttasemjara og þá hefur þú þitt á tæru.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhverjir samstarfsmenn þínir kunna að
valda þér erfiðleikum. Þetta fólk er líklegast
með opinn huga ef þú finnur rétta nálgun.
Einnig er það móttækilegra fyrir gleði og
stórmennsku en ella.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þetta er ekki rétti mánuðurinn
til að kaupa nýja tölvu, bíl eða annað far-
artæki. Taki menn höndum saman má ná
ótrúlegum árangri. Ef þér finnst þú einstök
manneskja, þá hefurðu rétt fyrir þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér berast leiðinleg tíðindi sem
valda þér miklu hugarangri. Þér finnst þú
hafa eytt hálfri ævinni í sama hlutinn en þú
getur skipt um verk eftir stutta stund.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þeir sem halla sér upp að þér ein-
um of oft eru farnir að verða of þungir. Vertu
staðfastur og forðastu að falla í freistni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Mundu að það er ekki sjálfgefið
að aðrir vilji endilega heyra það sem þú hefur
til málanna að leggja. Gríptu tækifærið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sérhver manneskja á jörðinni finnur
einhvern tímann til líkamlegrar eða andlegrar
vangetu. Varastu að gera of mikið úr hlut-
unum eða ganga of langt.
ÁBoðnarmiði birtir HólmfríðurBjartmarsdóttir þetta haust-
ljóð, sem byrjar svo fallega en fær
svo dapurlegan endi og heitir Berg-
mál:
Sól í austri, lýsir lyng í mónum
loga birkitré á hvítum grunni.
ber orðin hörð og bragðdaufari í munni
brakandi mosinn frosinn undir skónum.
Yfir tún og engi er hvítt að líta
úfið silfurfax á stráum ljómar.
frjósa nú allar fræhirslurnar tómar
fráteknu lömbin hélu stráin bíta.
Maður með vopnin sín á fætur fer
ferðast um skurði hálfboginn í laumi
hermannafötin hefur valið sér
miðar á fugl sem vel í blámann ber
byssan hans vekur mig í hálfum draumi.
Bergmálið hljómar illa, í eyrum mér.
Jón Atli Játvarðarson segir á
Boðnarmiði að sér hafi dottið í hug
„gamall fyrripartur sem Eysteinn í
Skáleyjum var að leika sér með fyrir
meira en 30 árum. Hann tengi ég
umræðu um sauðfjárvandann í dag.
Partinn þann sendi hann inn í vísna-
þátt sem Stefán Jóhannesson sá um í
NT, ef einhver man eftir því. Mér
fannst erfitt að glíma við þann
fjanda og þar sem ég var í Skál-
eyjum á þessum tíma notaði ég að-
stöðu mína til að láta Eystein heyra
það. Það er ekki nokkur leið að
botna þessa endemis vitleysu.
Silfurföt með sauðakjöt
sjást í mötuneyti.
Hvernig í fjandanum botnar þú
þetta sjálfur? Eysteinn svaraði:
Silfurföt með sauðakjöt
sjást í mötuneyti.
En kelling sjötug leið og löt
leggur skötu í bleyti.“
Margar skemmtilegar limrur eru
eftir Eystein. Hér segir hann „harm-
sögu að austan“:
Ungmeyja austur í Japan
öslaði hnédjúpan krapann.
Rakst þar á Kana,
hann klóraði hana.
Þá réðst hún á dónann og drap hann.
Og þessi:
Hinn gráðugi Geirþjófur dósent
græddi víst þó nokkur prósent
er seldi hann Merði
á margföldu verði
mölétið Jónsbókarljósprent.
Það mætti segja mér að Pétur Stef-
ánsson hlakkaði til föstudaganna:
Á eftir þegar sól er sest,
sálina fátt mun ergja.
Á föstudögum finnst mér best
að fá mér öl að bergja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bergmál og silfurföt
með sauðakjöti
„HELMINGURINN AF ÞESSU ER EKKI
SANNUR. FÉKKSTU ÞESSAR UPPLÝSINGAR
– AF STEFNUMÓTAPRÓFÍLNUM MÍNUM?“
„HVAÐ ERU ÖLL ÞESSI SKILTI AÐ GERA Í
SKOTTINU Á BÍLNUM MÍNUM?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einhver sem er mjög
kyssilegur!
SJÁUM NÚ TIL… Í HVERJU
ÆTTI ÉG AÐ VERA ÞEGAR VIÐ
HITTUM DR. LÍSU…
ÆTTI ÉG AÐ KOMA
MEÐ BLÓM?
HUNDAR ERU EKKI
LEYFÐIR HÉR!
ÞETTA ER ÞJÓNUSTUHUNDUR!
ÆTLI ÞAÐ SÉOF
SEINT AÐ SAFNA
MOTTU?
Ó, ÞETTA
VERÐUR
FJÖRUGT
HANN MUN HJÁLPA MÉR AÐ
RATA HEIM!
TIL
DÝRALÆKNISINS?!
Víkverji fylltist skelfingu fyrr ímánuðinum þegar hann hélt að
hann hefði glatað veskinu sínu. Ein-
hvern tímann heyrði hann haft eftir
Jean-Paul Sartre að það borgaði sig
alltaf að hafa nægt fé í veskinu til að
komast úr landi. Það væri aldrei að
vita hvenær maður vildi forða sér í
skyndi. Víkverja fannst einhver
ævintýrablær yfir því að lifa þannig
lífi að maður sæi ástæðu til að hugsa
svona. Hann hefur því ávallt verið
með einhverja aura í evrum, dollur-
um og jafnvel forintum eða pesóum á
sér. Þetta ráð hefur reyndar ekki
dugað til að hleypa spennu í ofur-
venjulegt líf Víkverja, en erlendu
aurarnir hafa hins vegar áfram átt
sinn sess í veskinu hans ásamt ýms-
um kortum og bunkum af kvittunum.
x x x
Víkverja stóð því ekki á sama þeg-ar veskið týndist. Hann rakti
ferðir sínar, hringdi í tapað/fundið
þar sem hann hafði farið á tónleika
og síðast tekið veskið fram. Hann
rótaði í öllum yfirhöfnum sínum, fór í
gegnum skyrturnar sínar, blaðaði í
bunkum, athugaði undir rúmum og
stólum og bak við húsgögn. Hann
leitaði sumsé dyrum og dyngjum en
allt kom fyrir ekki. Hann fór líka inn
á heimabankann til að athuga hvort
kortið hans væri komið í umferð úti í
bæ, en róaðist þegar hann sá að svo
var ekki.
x x x
Eftir nokkra daga var Víkverji orð-inn úrkula vonar um að finna
veskið og hringdi í bankann til að fá
ný greiðslu- og debetkort. Það gekk
greiðlega og var honum sagt að hann
myndi geta sótt kortin eftir þrjá til
fjóra daga.
x x x
Þegar Víkverji kom heim að kvöldidagsins sem hann hafði tilkynnt
hvarf kortanna var veskið það fyrsta
sem blasti við honum. Hafði það
fundist í óhreinatauskörfunni. Það
fór því eins og Víkverja hafði grunað,
að veskið myndi aldrei finnast fyrr en
hann endurnýjaði kortin sín. Fjöl-
skyldan hefur hins vegar ráðlagt
Víkverja að fá sér græju í veskið sem
hægt er að láta pípa ef það týnist.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn
minni á bug né tók frá mér miskunn
sína.
(Sálm. 66:20)