Morgunblaðið - 18.10.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2017
Nýtt Zodiac
hálsmen
Verð frá 22.900
Bankastræti 12, 101 Reykjavík, sími 551 4007, www.skartgripirogur.is
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 11-17
Gott úrval - gott verð
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Áhuginn skein úr hverjuandliti þegar Morgun-blaðið heimsótti á mánu-daginn hóp kvenna úr
hópi flóttafólks og hælisleitenda sem
vikulega mæta í aðstöðu Hjálpræð-
ishersins í Mjóddinni í Reykjavík.
Nýlega settu Herinn og Hjálpar-
starf kirkjunnar af stað verkefni þar
sem viðfang fólksins er að sauma
innkaupa- og ávaxtapoka úr taui.
Vaxandi áhugi er á að bjóða upp á
slíka í verslunum í stað plastpoka,
enda er margsagt hve mikil og skað-
leg umhverfisáhrif þeir hafa og
raunar plast almennt. Því má segja
að taupokarnir góðu hafi nú tvöfalt
hlutverk; félagslegt og sem um-
hverfisbætur.
Þúsund stykki í Nettó
Um það bil mánuður er síðan
taupokasaumurinn hófst. Í fyrsta
skipið mættu þrjár konur, sjö í það
næsta, þá ellefu og nú á mánudaginn
voru þær fimmtán. Húsnæði Hjálp-
ræðishersins dugar enn, en fjölgi
saumakonunum áfram er sá mögu-
leiki fyrir hendi að fá inni í félags-
miðstöð Reykjavíkurborgar sem er
ekki langt undan.
„Þetta hófst allt þannig að við
hjá Hjálparstarfi kirkjunnar feng-
um gefins efnisstranga frá Epal.
Þarna sáum við strax að úr þessu
mætti gera eitthvað skemmtilegt og
það blasti við að útbúa taupoka. Ný-
lega komumst við í samstarf við
Nettó, en forsvarsmenn verslunar-
innar ætla að taka hjá okkur alls
þúsund innkaupapoka og til viðbótar
Taupokarnir með
tvöfalt hlutverk
Vel er mætt í Mjóddina þar sem Hjálpræðisherinn og Hjálparstarf kirkjunnar
bjóða konum úr hópi flóttafólks og hælisleitenda að koma. Innkaupapokar úr
plasti eru á undanhaldi og í stað þeirra koma taupokar, sem þessar konur
sauma. En einn er hængur á – þær þurfa fleiri saumavélar!
Saumaskapur Má ekki einhver missa vél sem er geymd í bílskúrnum?
Félagsskapur „Meginmálið er að gefa konunum tækfæri á að komast út á með-
al fólks,“ segir Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar.
Skjólstæðingar Dýraverndunarfélags-
ins Villikatta eru kisur af öllum stærð-
um og gerðum, villi- og vergangskettir,
kettlingar og kisur sem hafa búið við
erfiðar aðstæður. Hinn 16. október sl., á
alheimskattadeginum, hrinti félagið af
stað söfnun á Karolinafund fyrir hús-
næði til að geta hýst kisur í neyð, kisur í
leit að heimili, litla kettlinga og kett-
lingafullar læður. Þörfin er mjög brýn,
því árlega koma félagsmenn að björgun
milli tvö og þrjú hundruð katta.
Á vefsíðunni, villikettir.is, segir að
villikettir séu komnir til að vera á Ís-
landi. Þeim hafi lítið verið sinnt fyrir ut-
an einstaka dýravini og að viðhorf yfir-
valda til þeirra hafi yfirleitt verið
neikvætt og leitt til ómannúðlegra út-
rýmingarherferða. „Flestir villikettir eru
félagsdýr og hópa sig saman á svæðum
þar sem einhverja fæðu er að finna.
Markmið okkar er að stuðla að því að
koma þessum dýrum til hjálpar með
skipulegum aðgerðum. Þar vegur
þyngst að ná dýrunum, gelda og fram-
kvæma ófrjósemisaðgerðir. […] Fanga-
gelda-skila skilar mestum árangri í að
fækka villiköttum og bæta velferð
þeirra,“ segir ennfremur og að félagið
hafi mannúðleg sjónarmið í fyrirrúmi.
Slóðin á söfnunarsíðuna er www.kar-
olinafund.com/project/view/1840 en
á vefsíðunni villikettir.is er hægt að
skrá sig í félagið og fá nánari upplýs-
ingar.
Vefsíðan villikettir.is
Greyið Villikettir eru stundum býsna illa á sig komnir þegar dýravinir og
félagsmenn Dýraverndunarfélagsins Villikatta sjá aumur á þeim.
Villikettir safna fyrir húsnæði
„Back to the 80’s“ er yfirskrift á þema-
partíi þar sem farið verður á tímaflakk
til níunda áratugarnis. Dans og kúltúr
efnir til viðburðarins á Gauknum við
Tryggvagötu í Reykjavík kl. 21 annað
kvöld, fimmtudagskvöldið 19. október.
Áhugadanshópur Dans og kúltúr
verður með danskennslu og er fólk
hvatt til að læra sporin og dansa svo af
hjartans lyst í tímaflakki. Legghlífar og
túberað hár eru sögð flottur stíll fyrir
dansinn.
Endilega …
… hverfið aftur
til fortíðar
Morgunblaðið/Ernir
Dansskór Gott er að vera vel skóað-
ur í dansinn á morgun í þemapartí.
Dr. Þorgerður H. Þorvaldsdóttir, sagn-
og kynjafræðingur, flytur erindið „Að
fá (ekki) kosningarétt – eða missa“,
kl. 12-13 á morgun, fimmtudag 19.
október, í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safns Íslands. Hún beitir aðferðum
samtvinnunar til að rýna með gagn-
rýnum hætti í „sigurgöngusöguna“
um kosningarétt íslenskra kvenna,
sem fékkst 19. júní 1915, og spyrja
„öðruvísi spurninga“ um takmarkanir
kosningaréttarins og hindranir sem
konur – og karlar – gátu staðið
frammi fyrir eftir að hin borgaralegu
réttindi voru formlega í höfn. T.d.
þurftu nýir kjósendur að vera orðnir
40 ára og allt til ársins 1934 missti fá-
tækt fólk kosningarétt og kjörgengi ef
það skuldaði þeginn sveitarstyrk. Hjú-
skaparstaða, ómegð, aldur, fötlun og
heilsufar gátu hindrað fólk í að lifa
mannsæmandi lífi og vera fullgildir
pólitískir þegnar og gerendur í sam-
félaginu. Þorgerður beinir sjónum sér-
staklega að nokkrum konum sem
neyddust til að þiggja sveitarstyrk og
höfðu fyrir vikið ekki kosningarétt.
Erindið er á vegum RIKK og hluti af
Jafnréttisdögum. Aðgangur ókeypis
og allir velkomnir.
Fyrirlestur á Jafnréttisdögum í Þjóðminjasafni Íslands
Öðruvísi spurningar um kosn-
ingarétt íslenskra kvenna 1915
Morgunblaðið/Sverrir
Fagnað Frá baráttuhátíð kvenna á Þingvöllum 2005 þegar 90 ár voru frá því ís-
lenskar konur fengu kosningarétt. Á barmi Almannagjár stóðu valkyrjur vörð.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.