Morgunblaðið - 09.11.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Fallegir
heimakjólar
Full búð af nýjum vörum
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun
Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.isSkoðið laxdal.is/yfirhafnir
Skipholti 29b • S. 551 4422 • laxdal.is
Jólapeysurnar
komnar
Arnar Geirsson hjartaskurðlæknir
hefur verið ráðinn yfirlæknir
hjartaskurðdeildar háskólasjúkra-
húss Yale í New Haven í Connecti-
cut í Bandaríkjunum. Spítalinn er
með stærstu
sjúkrahúsum
Bandaríkjanna.
Á hjartaskurð-
deild Yale starfa
10 sérfræðingar
sem gera um
1.500 hjarta-
skurðaðgerðir
árlega. Deildin
sérhæfir sig í
flóknum hjarta-
aðgerðum, lokuaðgerðum, ósæð-
araðgerðum, hjartaskiptum og
barnahjartaskurðlækningum.
Læknaskóli Yale er einn af
fremstu læknaskólum Bandaríkj-
anna og hafa margir Íslendingar
stundað þar sérfræðinám.
Arnar Geirsson er fæddur 9.
október 1971, lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Hamra-
hlíð 1990, útskrifaðist frá lækna-
deild Háskóla Íslands 1997, stund-
aði sérnám í almennum skurð-
lækningum við Yale frá 1998 til
2005 og í hjartaskurðlækningum
við University of Pennsylvania frá
2005 til 2007. Hann vann sem sér-
fræðingur í hjartaskurðlækningum
á Yale háskólaspítalanum frá 2007
til 2012 og á Landspítalanum frá
2012 og þar til hann fór aftur til
starfa sem sérfræðingur á Yale
sumarið 2016.
Arnar hefur gefið út fjölmargar
vísindagreinar og stundar grunn-
og klínískar rannsóknir tengdar
ósæðarsjúkdómum og míturloku-
sjúkdómum. Arnar er giftur Sigríði
Benediktsdóttur kennara, þau eiga
þrjá syni og búa í New Haven í
Connecticut.
Ráðinn
yfirlæknir
við Yale
Starfar á hjarta-
skurðdeild
Arnar
Geirsson.
Kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands
og Samtaka atvinnulífsins vegna
Air Atlanta Icelandic hefur verið
vísað til ríkissáttasemjara.
Boðað var til fyrsta sáttafundar í
málinu í gær.
Í september síðast liðnum var
kjaradeilu flugvirkja við SA vegna
Icelandair vísað til sáttameðferðar
hjá Ríkissáttasemjara. Viðræður
hafa ekki leitt til niðurstöðu en
næsti sáttafundur í þeirri deilu
verður 14. nóvember.
Deila við Air
Atlanta til ríkis-
sáttasemjara