Morgunblaðið - 09.11.2017, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2017
Þegar Arnaldur Indriðasonsendir frá sér bók erskammt til jóla og ástæðatil þess að fara að huga að
betri fötunum, setjast í hæginda-
stólinn og njóta lestursins. Ég hef
skrifað eitthvað í þessa veru áður en
góð vísa er aldrei of oft kveðin.
Myrkrið veit talar sínu máli.
Margar bækur Arnaldar Indriða-
sonar eru sérstakar vegna þess að
lýsingar hans á sögusviðinu og
helstu persónum eru nánast óað-
finnanlegar, viðtölin sérlega vel úr
garði gerð og ekkert virðist vera
honum óviðkomandi. Hann leiðir
lesandann í gegnum söguþráðinn og
í þessari bók bregður hann gjarnan
á leik með gríni í annars háalvar-
legri sögu.
Bestu verk Arnaldar falla svo
sannarlega undir fagurbókmenntir.
Dagurinn var sá stysti á árinu en
samt reyndist enginn dagur lengri í
lífi Konráðs. Hann var aðeins fjórar
stundir og tólf mínútur. Og varði að
eilífu (bls. 214).
Konráð, lögreglumaður á eftir-
launum, er fenginn til þess að að-
stoða við rann-
sókn máls, sem
hann vann að fyr-
ir 30 árum, eftir
að lík finnst á
Langjökli. Hann
rifjar upp liðna
tíð, rekur hvern
þráðinn af öðrum
og margt á eftir
að koma í ljós áð-
ur en yfir lýkur.
Konráð er skemmtileg týpa, yf-
irvegaður og rólegur, reynslunni
ríkari, viðurkennir mistök og veit
hvað hann syngur. Hann hefur lent
í ýmsu, er ekki allra en nær samt
sínu fram. Lýsing á nærgætni hans
við deyjandi eiginkonuna hreyfir við
harðgerðasta lesanda og samskipti
hans við morðingja fá hárin á hinum
sama til þess að rísa.
Aðrar helstu persónur eru líka
eftirminnilegar. Samt eru það sam-
tölin sem tengja mest og best.
Sagnfræðiþekking höfundar leynir
sér ekki og gaman er að rifja upp
breytta tíma þó ekki séu nema 30 ár
síðan maður hvarf í Reykjavík og
rannsókn málsins hófst.
Maður er hreinlega með stjörnur
í augunum eftir lesturinn, jafnvel
tár á hvarmi, eins og einhver hefði
sagt. Þó hraðinn sé ekki að þvælast
fyrir hittir þessi lágstemmda bók
svo sannarlega í mark.
Upp komast svik um síðir
Fegurð „Bestu verk Arnaldar falla svo sannarlega undir fagurbókmenntir,“
segir í rýni um Myrkrið veit, nýjustu skáldsögu Arnaldar Indriðasonar.
Glæpasaga
Myrkrið veit bbbbm
Eftir Arnald Indriðason.
Vaka-Helgafell, 2017. Innb., 263 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Syndafallið er sjálfstætt fram-hald af Týnd í Paradís semkom út fyrir réttu ári og hérheldur Mikael Torfason
áfram þar sem frá var horfið. Synda-
fallið er hafið og foreldrarnir, brott-
reknir úr Paradís Votta Jehóva,
reyna að feta sig í hinum veraldlega
heimi – oft af ákaflega veikum
mætti.
Sagan hefst í upphafi níunda ára-
tugarins en teygir sig allt til sumars-
ins 2017. Foreldrar Mikaels, Torfi og
Hulda Fríða, eru skilin þegar Synda-
fallið hefst. Hulda Fríða nær engum
takti í hinu nýja lífi, hún er peninga-
laus og brotin og glímir við hættu-
legan geðsjúkdóm. Samband Mika-
els við hana er sársaukafullt og
ákaflega stopult en hann segir sögu
hennar af aðdáunarverðu æðruleysi
og yfirvegun þess sem hefur unnið
glímuna við drauga fortíðarinnar. Sú
sem hér skrifar er heilluð af sögu
Huldu Fríðu og hinni þöglu hetju
bókarinnar, Villa.
Mikael elst upp hjá Torfa, sem
hefur nýjan kafla í lífi sínu með
svakalegum slætti; hann er frum-
kvöðull í útrás, veður í ævintýrum,
peningum, partíum, framhjáhaldi og
botnlausri drykkju. Þetta eru tveir
öfgafullir en ólíkir heimar og miklar
sviptingar á hvorum tveggja víg-
stöðvum. „Í skáldskap þarf að vera
lógík fyrir því sem persónan gerir
eða segir,“ skrifar Mikael í bókinni
en æsku- eða lífssaga Mikaels væri
líklega of lygileg væri hún skáldsaga
og fólkið of skrautlegt.
Mikael lýsir fjölskyldu sinni af
miklu hispursleysi en dregur engan
svarthvítum dráttum. Torfi er ekki
bara alkóhólisti
sem drekkur allt
frá sér, hann er
líka skapandi
maður, stór í
brotinu og gjöfull
á lífið og milli
þeirra feðga er
sterkt og mikil-
vægt samband.
Hulda Fríða er ekki bara geðsjúk,
hún er hlý, fyndin og þroskuð kona.
Það eru þversagnirnar og marg-
breytileikinn sem gera Syndafallið
svo áhrifamikið. Fólk er breyskt,
sjúkt og brotið en líka fallegt og gott.
Frásagnarháttur Mikaels hentar
sögunni fullkomlega; engin nafla-
skoðun og aldrei yfirdrifnar tilfinn-
ingar. Hann er einlægur og bein-
skeyttur og einfaldur stíllinn gerir
bókina að því fallega verki sem hún
er. Mikael segir söguna að miklu
leyti af sjúkrabeði föður síns, bókin
hlýtur þó að hafa verið langt komin á
fyrri hluta árs þegar Torfi er lagður
inn á spítala með skorpulifur og
sjúkrahúsvist hans tekur yfir sög-
una. Nú er það ekki faðirinn sem
heldur í hönd sonarins sem barðist
fyrir lífi sínu í Týnd í paradís heldur
vakir sonurinn yfir dauðvona föðurn-
um – með öllu minni látum þó en fað-
irinn á sínum tíma. Þannig öðlast
þessar tvær bækur, Týnd í paradís
og Syndafallið, stærra samhengi og
mynda óvænta og sterka heild, og
stef höfundar hljómar í gegnum öll
áföllin, „það verður allt í lagi með
okkur“, og það er líklega rétt.
Syndafallið er spennandi bók sem
maður les í einum rykk og vonandi
er ekki allt búið enn. Í Syndafallinu
er drepið á margt sem ekki eru gerð
mikil skil og því allt eins líklegt að
höfundur sé hvergi nærri hættur
með sína fjölskyldusögu, nægt er
efnið. Sagan sem Mikael Torfason er
að segja okkur er mikilvæg og hana
ættu allir að lesa. Þetta er skelfileg
en falleg saga, full af sársauka og
átökum, elskusemi og æðruleysi.
Morgunblaðið/Golli
Höfundurinn „Þetta er skelfileg en falleg saga, full af sársauka og átökum,
elskusemi og æðruleysi,“ segir rýnir um Syndafallið eftir Mikael Torfason.
„Það verður allt í
lagi með okkur“
Ævisaga
Syndafallið
bbbbm
Eftir Mikael Torfason.
Sögur útgáfa, 2017. Innb., 254 bls.
HILDIGUNNUR
ÞRÁINSDÓTTIR
BÆKUR
Elly (Stóra sviðið)
Fös 10/11 kl. 20:00 25. s Mið 29/11 kl. 20:00 32. s Lau 16/12 kl. 20:00 40. s
Sun 12/11 kl. 20:00 26. s Fös 1/12 kl. 20:00 33. s Þri 26/12 kl. 20:00 41. s
Þri 14/11 kl. 20:00 auk. Lau 2/12 kl. 20:00 auk. Mið 27/12 kl. 20:00 42. s
Fim 16/11 kl. 20:00 auk. Sun 3/12 kl. 20:00 34. s Fim 28/12 kl. 20:00 43. s
Fös 17/11 kl. 20:00 auk. Mið 6/12 kl. 20:00 35. s Fös 29/12 kl. 20:00 44. s
Lau 18/11 kl. 20:00 27. s Fös 8/12 kl. 20:00 auk. Fös 5/1 kl. 20:00 53. s
Sun 19/11 kl. 20:00 28. s Lau 9/12 kl. 20:00 36. s Lau 6/1 kl. 20:00 54. s
Mið 22/11 kl. 20:00 29. s Sun 10/12 kl. 20:00 37. s Sun 7/1 kl. 20:00 55. s
Fim 23/11 kl. 20:00 30. s Fim 14/12 kl. 20:00 38. s Fös 12/1 kl. 20:00 56. s
Fös 24/11 kl. 20:00 31. s Fös 15/12 kl. 20:00 39. s Fös 19/1 kl. 20:00 57. s
Stjarna er fædd!
Guð blessi Ísland (Stóra sviðið)
Fim 9/11 kl. 20:00 8. s Fim 30/11 kl. 20:00 10. s
Sun 26/11 kl. 20:00 9. s Fim 7/12 kl. 20:00 11. s
Þetta er 11. september Íslendinga, gjörsamlega.
Kartöfluæturnar (Litla sviðið)
Fim 16/11 kl. 20:00 16. s Þri 21/11 kl. 20:00 aukas. Þri 28/11 kl. 20:00 aukas.
Fjölskyldukeppni í meðvirkni!
Natan (Litla sviðið)
Fim 9/11 kl. 20:00 6. s Fös 17/11 kl. 20:00 7. s Sun 26/11 kl. 20:00 9. s
Þri 14/11 kl. 20:00 aukas. Lau 25/11 kl. 20:00 8. s Fim 7/12 kl. 20:00 10. s
Hvers vegna drepur maður mann?
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 10/11 kl. 20:00 1. s Mið 22/11 kl. 20:00 7. s Lau 2/12 kl. 20:00 13. s
Lau 11/11 kl. 20:00 2. s Fim 23/11 kl. 20:00 8. s Sun 3/12 kl. 20:00 14. s
Sun 12/11 kl. 20:00 3. s Fös 24/11 kl. 20:00 9. s Fös 8/12 kl. 20:00 15. s
Mið 15/11 kl. 20:00 4. s Mið 29/11 kl. 20:00 10. s Sun 10/12 kl. 20:00 16. s
Lau 18/11 kl. 20:00 5. s Fim 30/11 kl. 20:00 11. s Fim 14/12 kl. 20:00 17. s
Sun 19/11 kl. 20:00 6. s Fös 1/12 kl. 20:00 12. s Fös 15/12 kl. 20:00 18. s
Draumur um eilífa ást
Úti að aka (Stóra sviðið)
Lau 11/11 kl. 20:00 6. s Lau 25/11 kl. 20:00 Lokas.
Sprenghlægilegur farsi! Allra síðustu sýningar.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 25/11 kl. 13:00 1. sýn Lau 2/12 kl. 13:00 3. sýn Sun 10/12 kl. 13:00 5. sýn
Sun 26/11 kl. 13:00 2. sýn Sun 3/12 kl. 13:00 4. sýn Sun 17/12 kl. 13:00 6. sýn
Tilnefnd sem Barnasýning ársins á Grímunni. Eingöngu sýnd á aðventunni.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Fim 9/11 kl. 10:00 aukas. Sun 26/11 kl. 13:00 52. s Sun 17/12 kl. 13:00 55. s
Sun 12/11 kl. 13:00 50. s Sun 3/12 kl. 13:00 53. s Þri 26/12 kl. 13:00 56. s
Sun 19/11 kl. 13:00 51. s Sun 10/12 kl. 13:00 54. s
Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor.
GUÐ BLESSI ÍSLAND ★★★★★ Fréttablaðið
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 12/11 kl. 16:00 Sun 26/11 kl. 17:00 Sun 7/1 kl. 13:00
Sun 19/11 kl. 13:00 Lau 30/12 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Faðirinn (Kassinn)
Fim 9/11 kl. 20:00 HOF Fim 30/11 kl. 19:30 13.sýn Lau 9/12 kl. 19:30 17.sýn
Fös 10/11 kl. 20:00 HOF Fös 1/12 kl. 19:30 14.sýn Fös 15/12 kl. 19:30 Auka
Fim 23/11 kl. 19:30 10.sýn Lau 2/12 kl. 19:30 15.sýn Lau 30/12 kl. 19:30 18.sýn
Fös 24/11 kl. 19:30 11.sýn Mið 6/12 kl. 19:30 Auka Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn
Lau 25/11 kl. 19:30 12.sýn Fim 7/12 kl. 19:30 Auka Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn
Mið 29/11 kl. 19:30 Auka Fös 8/12 kl. 19:30 16.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fös 10/11 kl. 19:30 5.sýn Fim 23/11 kl. 19:30 9.sýn Lau 9/12 kl. 19:30 13.sýn
Lau 11/11 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 29/12 kl. 19:30 14.sýn
Fös 17/11 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/12 kl. 19:30 11.sýn
Lau 18/11 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/12 kl. 19:30 12.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Smán (Kúlan)
Lau 2/12 kl. 17:00 16.sýn Lau 9/12 kl. 17:00 18.sýn
Sun 3/12 kl. 19:30 17.sýn Sun 10/12 kl. 19:30 19.sýn
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 15/11 kl. 20:00 Mið 29/11 kl. 20:00 Mið 13/12 kl. 20:00
Mið 22/11 kl. 20:00 Mið 6/12 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 25/11 kl. 11:00
291.sýn
Sun 3/12 kl. 11:00 298.sýn Lau 16/12 kl. 11:00
307.sýn
Lau 25/11 kl. 13:00
292.sýn
Sun 3/12 kl. 13:00 299.sýn Lau 16/12 kl. 13:00
308.sýn
Sun 26/11 kl. 11:00
293.sýn
Lau 9/12 kl. 11:00 301.sýn Sun 17/12 kl. 11:00
310.sýn
Sun 26/11 kl. 13:00
294.sýn
Lau 9/12 kl. 13:00 302.sýn Sun 17/12 kl. 13:00
311.sýn
Lau 2/12 kl. 11:00 295.sýn Sun 10/12 kl. 11:00
304.sýn
Lau 2/12 kl. 13:00 296.sýn Sun 10/12 kl. 13:00
305.sýn
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 11/11 kl. 13:00 Lau 18/11 kl. 13:00
Lau 11/11 kl. 15:00 Lau 18/11 kl. 15:00
Brúðusýning
Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 9/11 kl. 21:00 Fös 10/11 kl. 22:00 Lau 11/11 kl. 22:00
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 10/11 kl. 19:30 57.sýn Fim 16/11 kl. 19:30 Auka Sun 19/11 kl. 19:30 62.sýn
Lau 11/11 kl. 19:30 58.sýn Fös 17/11 kl. 19:30 60.sýn
Sun 12/11 kl. 19:30 59.sýn Lau 18/11 kl. 19:30 61.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200