Morgunblaðið - 23.12.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017
Ísland ákvað á dögunum að takaafstöðu gegn Bandaríkjunum
og Ísrael í deilum um Jerúsalem á
þingi Sameinuðu þjóðanna.
Jón Magnússon,lögmaður og
fyrrverandi alþing-
ismaður, fjallar um
deilumálið og segir:
„Skilgreiningin á
höfuðborg ríkis er:
borg sem er mið-
stöð stjórnsýslu og
ríkisstjórnar. Samkvæmt þeirri
skilgreiningu er Jerúsalem höfuð-
borg Ísrael og hefur verið það frá
1949, en frá þeim tíma hefur
stjórnsýslan, löggjafarvaldið og
Hæstiréttur landsins verið í Jerúsa-
lem.
Það er ekki annarra ríkja að
ákveða fyrir eitt ríki hver sé höfuð-
borg landsins. Það er viðkomandi
lands sjálfs að gera það.“
Hann bætir við: „Hvaðan skyldiSameinuðu þjóðunum koma
vald til að ákveða það fyrir frjáls
og fullvalda ríki hvar höfuðborg
ríkisins skuli vera. Í sjálfu sér hafa
Sameinuðu þjóðirnar ekkert með
það að gera. Það er frjálsra og full-
valda ríkja sjálfra að gera það.
Ríkisstjórn Íslands ákvað að
styðja tillögu Erdogan einræðis-
herra í Tyrklandi þess efnis að
Jerúsalem væri ekki höfuðborg Ísr-
ael. Með því gekk Ísland í lið með
meiri hluta þjóða, sem taka sér
vald sem þau hafa ekki.“
Jón nefnir að andúðin á Trumpvirðist byrgja stjórnmálamönn-
um sýn og koma í veg fyrir skyn-
samlegar ákvarðanir, og segir svo:
„Jerúsalem er höfuðborg Ísrael.
Það er ekkert sem kæmi í veg fyrir
það að hún yrði einnig höfuðborg
sjálfstæðs ríkis Palestínu Araba ef
tveggja ríkja lausnin verður ein-
hverntíma að veruleika.“
Jón Magnússon
Byrgir
andúðin sýn?
STAKSTEINAR
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
OPIÐ
Í DAG TIL KL. 20
24. DES. KL. 10-12
VERÐ
8.980
Við óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptavinum okkar
samfylgdina á líðandi ári.
GLEÐILEGA
HÁTÍÐ
Veður víða um heim 22.12., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 3 rigning
Akureyri 5 slydduél
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 9 þoka
Ósló 3 heiðskírt
Kaupmannahöfn 4 heiðskírt
Stokkhólmur -1 heiðskírt
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 8 alskýjað
Brussel 9 þoka
Dublin 10 súld
Glasgow 9 alskýjað
London 10 alskýjað
París 10 súld
Amsterdam 6 þoka
Hamborg 5 skýjað
Berlín 5 skýjað
Vín 6 skýjað
Moskva -5 snjóél
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 13 heiðskírt
Aþena 4 rigning
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal -15 snjókoma
New York 3 alskýjað
Chicago 3 þoka
Orlando 18 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:32
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:54
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:35
DJÚPIVOGUR 11:02 14:52
SMARTLAND
Borgarráð samþykkti á aukafundi í
morgun að heimila sölu á lóðum og
byggingarrétti í Gufunesi til GN
Studios, fyrirtækis í eigu Baltasars
Kormáks. Salan er liður í því að
koma upp kvikmyndaþorpi, miðstöð
skapandi greina auk íbúðabyggðar
og þjónustu í Gufunesi. Samningur-
inn var undirritaður af Degi B. Egg-
ertssyni og Baltasar Kormáki í gær
með fyrirvara um samþykki borgar-
ráðs.
Kaupverð byggingarréttarins
hljóðar upp á 1.290 milljónir króna en
auk þess er áætlað að gatnagerðar-
gjald verði um 350 milljónir króna,
heildarupphæð samningsins nemur
því um 1.640 milljónum króna.
Baltasar Kormákur
fjárfestir í Gufunesi