Morgunblaðið - 23.12.2017, Side 28

Morgunblaðið - 23.12.2017, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Bókmenntir geta varpaðljósi á samfélagið. Þærgera okkur kleift að lifalífi annarra eins og Astrid Lindgren orðaði það. Við getum skilið aðstæður fólks sem lifir við allt önnur kjör á öðrum tíma en við sjálf. Við finnum til með skálduðum persónum, reiðumst þeim sem níð- ast á þeim og fögnum sigrum þeirra. Salka Valka er ein þeirra bóka sem standa af sér tímans tönn og segir frá örlögum lítilmagnans. Sag- an byrjar þar sem Salka Valka kemur með móður sinni á báti til Óseyrar. Móðirin er nánast rænu- laus af sjóveiki og neitar að fara lengra. Þær mæðgur eru ferjaðar í land og standa með einn pokaskaufa vegalausar á nýjum stað, þekkja engan og hafa fátt til að greiða með mat eða húsaskjól. Þær fara á milli manna að leita aðstoðar, móðirin býður fram vinnufúsar hendur og stúlkan eltir. Móðirin leitar til kaupmannsins þar sem sonurinn á heimilinu er svo hrokafullur og dónalegur að þær mæðgur forða sér út undir blótsyrða- flaumi úr munni drengsins, fara til prófastsins sem hefur miklu meiri áhyggj- ur af syndum móðurinnar og því hvernig henni reiði af eftir dauðann en frost- inu úti sem getur orsakað dauða þeirra og loks til læknisins sem eftir mikið smjaður og blaður um að þær hafi heiðrað hann með heimsókn sinni þakkar þeim fyrir komuna; Síðan opnaði hann apóteksdyrnar og hleypti gestum sínum útá gaddinn. Þar stóðu þessar tvær stúlkur varnarlausar í frostinu og eina húsaskjólið hjá Hjálpræðis- hernum þar sem þær fá að kúldrast aðeins eina nótt. Bjargvætturinn í lífi mæðgnanna bíður á kaffistofu hersins og veit sem er að hvorki kirkja, kaupmaður né læknir muni aðstoða þessar tvær kvensniftir sem öllum er sama um. Þær eru nýjar í þorpinu, sú eldri með vafasama fortíð og barnið yfirgengilega roggið og svarar fullum hálsi. Hann býður þeim húsaskjól þar sem er lítið og lágt til lofts en hlýtt og gott rúm þar sem hann sjálfur býr hjá græskulausri föður- systur og blindum manni hennar sem sér í gegnum kauða. Bjargvætt- urinn rukkar björgunarlaunin í þeim eina gjaldmiðli sem móðirin hefur og fljótlega er hann líka kominn með hendurnar í klofið á stúlkunni sem er bara ellefu ára en svo skynsöm að hún telur eðlilegast að drepa karl- inn fyrir káfið. Fyrstu dagana í þorpinu hafa þær það sæmilegt meðan húsmæðurnar eru að veiða sögur upp úr krakkanum um trúlofun móðurinnar og bjarg- vættsins, sem gjaldfellir mannorð hennar en er fjöður í hatt hans sem er sigldur kvennamaður, og krakkakvikindin í þorpinu eru enn að koma sér saman um hvernig best sé að kvelja þessa nýju stúlku sem er ókunnug og heldur að hún sé eitthvað. Eftir það er lífið helvíti, einelti og mann- vonska í hverju horni, en líka paradís þar sem ástin og þráin eftir betra lífi halda lífinu í Sölku Völku, eins og öðrum litlum stúlkum og drengj- um sem fæðast inn í þennan heim, en eiga hvergi heima. Salka Valka lifir Tungutak Lilja Magnúsdóttir liljam@simnet.is Samfélagsmál Bókmenntir geta varpað ljósi á samfélagið. Sl. miðvikudag gerðust þau tíðindi, að úrskurðirKjararáðs síðustu misseri komust á dagskráþjóðfélagsumræðna með afgerandi hætti. Alltþetta ár hefur ríkt nánast þögn um þá óþægi- legu staðreynd að á síðasta ári úrskurðaði Kjararáð launahækkanir til æðstu embættismanna, þingmanna og ráðherra, sem voru ekki í nokkrum tengslum við launa- hækkanir annarra hópa launþega og augljóslega til þess fallnar að hleypa öllum kjarasamningum, sem fram- undan voru og eru í uppnám. Það er nú að gerast eins og augljóst var að yrði en þingmenn í öllum flokkum hafa kosið að þegja nema Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, sem ítrekað hefur tekið málið til umræðu. Sl. miðvikudagsmorgun gerðist það hins vegar að einn af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjallaði um úrskurði Kjararáðs í tengslum við verkfall flugvirkja hjá Icelandair á Morg- unvakt RÚV. Til þess þarf umtalsverðan pólitískan kjark við núverandi aðstæður, sem ber að meta. Þórdís Kolbrún sagði: „Ég átta mig fullkomlega á því að það er ótrúlega erfitt að stíga inn í þessa umræðu og ætla að sigra hana.“ Eftir hádegi á miðvikudag sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra í samtali við mbl.is, netútgáfu Morgun- blaðsins: „...það liggur fyrir að mikil reiði er enn vegna þeirra úrskurða, sem fallið hafa undanfarin misseri...“ Sama dag sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við RÚV: „Heilt yfir hafa ákvarðanir Kjararáðs ekki verið í nokkru samhengi við almenna þróun á vinnumarkaði og það er alveg sama hvort við lítum til skemmri eða lengri tíma...Kjararáð er að setja vinnumarkaðinn í uppnám með tilheyrandi tjóni fyrir almenning og atvinnulíf og við það getum við ekki unað.“ Um fundi aðila vinnumarkaðar með ríkisstjórnar- flokkunum sagði Sigurður Bessason, formaður Eflingar í samtali við RÚV: „Við bentum bara á þessa augljósu staðreynd að kjararáð og úrskurðir þess væru eins og fíllinn í her- berginu. Hann væri bara á miðju borðinu á milli okkar.“ Í samtali við Morgunblaðið degi síðar, sl. fimmtudag sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ: „Geta okkar til að láta þetta hjá líða þverr með því að kjararáð heldur uppteknum hætti og skenkir æðstu embættismönnum okkar miklu meiri hækkanir en öðr- um.“ Eins og af þessum tilvitnunum má sjá er samhljómur í ummælum talsmanna atvinnurekenda og verkalýðs- hreyfingar um þessi mál og tvær konur í ríkisstjórn eru bersýnilega reiðubúnar til að viðurkenna og horfast í augu við þennan vanda. Í nýrri bók minni, Uppreisnarmenn frjálshyggjunnar – byltingin sem aldrei varð, sem út kom hjá bókaforlag- inu Veröld fyrir nokkrum vikum segir um þetta mál: „Þeir sem eru inni í valdahringnum notfæra sér að- stöðu sína út í yztu æsar. Nýleg dæmi um það eru launa- ákvarðanir Kjararáðs, sem snúa að fámennum hópi æðstu embættismanna, þingmönnum og ráðherrum og eldri dæmi eru eftirlaunaréttindi opinberra starfsmanna og þingmanna og ráðherra. Í öllum tilvikum er byggt á lögum sem Alþingi hefur sett. Upphaflega eru drög að lögunum samin í ráðuneytum þar sem sömu æðstu emb- ættismenn og ráðherrar koma við sögu og þeir setja inn í lagadrögin forsendur sem Kjararáð á að byggja á ákvarðanir um launakjör höfundanna sjálfra. Þessi lög eru svo samþykkt á Alþingi af þingmönnum sem eiga sömu hagsmuna að gæta vegna þess að Kjararáð ákveður líka launakjör þeirra svo og ráðherra. Kjararáð út- skýrir svo ákvarðanir sínar með því að því beri að úrskurða á þennan veg vegna þess að lögin gefi fyrirmæli um það. Bjarni Benediktsson, þá fjár- málaráðherra, lýsti fyrirhuguðum bónusgreiðslum til starfsmanna Kaupþings sem „sjálftöku“ sumarið 2016. En hvaða orð á að nota um það fyrirkomulag, sem hér er lýst?“. Jón Þór Ólafsson, alþingismaður Pírata, getur verið ánægður með að hann er ekki lengur hrópandinn í eyði- mörkinni á Alþingi um þessi mál. Tveir ráðherrar taka nú undir með honum um alvöru málsins og forystumenn aðila vinnumarkaðar hafa nú ítrekað rækilega sjónarmið sem báðir aðilar settu vissulega fram fyrir ári. Þögnin sem ríkt hefur um þessi mál fram að þessu hefur verið vísbending um að þeir sem hlut eiga að máli hafi gert sér vonir um að þeir mundu komast upp með að nýta sér aðstöðu sína með þessum hætti. En nú er svo komið í þróun samfélagsins að það sem menn áður komust upp með gengur ekki lengur. Eitt af því er að æðstu stjórnendur ríkisins verði sér út um kjarabætur á kostnað skattgreiðenda og það jafnvel mánuði og misseri aftur í tímann á sama tíma og stórum hópum aldraðra og öryrkja er neitað um kjarabætur á þeirri forsendu að samfélagið hafi ekki efni á þeim. Eftir stendur svo spurningin hvernig núverandi rík- isstjórn ætlar að komast út úr þeirri sjálfheldu, sem hún og raunar þingið allt er í. Það eru fordæmi fyrir því á síðasta aldarfjórðungi að slíkar hækkanir hafi verið af- numdar með lögum en það var gert strax. Hvers vegna var það ekki gert fyrir ári? Það er ekki nóg að breyta enn einu sinni fyrir- komulagi á ákvörðun kjara þeirra hópa, sem hér eru til umræðu. Það eitt og sér leysir ekki aðkallandi vanda á vinnu- markaði eins og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, gerir sér áreiðanlega grein fyrir. Þögnin um Kjararáð rækilega rofin Hvað ætlar ríkis- stjórnin að gera? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Ensk-ungverski rithöfundurinnArthur Koestler varð heims- frægur fyrir skáldsöguna Darkness at Noon eða Myrkur um miðjan dag, sem kom út á ensku 1941 og íslensku 1947. Þar reyndi hann að skýra hin- ar furðulegu játningar sakborning- anna í sýndarréttarhöldum Stalíns á fjórða áratug. Skýringin var í fæst- um orðum, að í huga sanntrúaðra kommúnista hefði aðeins verið til sannleikur flokksins. Ef flokkurinn skipaði félaga að vera sekur, þá var hann það, líka í eigin augum. Koestl- er þekkti slíkt sálarlíf af eigin raun, því að hann hafði um skeið verið ein- dreginn kommúnisti. Skáldsaga hans kom út á frönsku 1945 og átti nokkurn þátt í því, að í maí 1946 töp- uðu franskir kommúnistar í þjóðar- atkvæðagreiðslu um stjórnarskrár- breytingar. Hitt vita færri, að Koestler skipti líka nokkru máli í kosningum á Ís- landi. Hann hafði 1945 gefið út rit- gerðasafnið The Yogi and the Commissar, Skýjaglópinn og flokks- jálkinn. Þar er löng ritgerð um Ráð- stjórnarríki Stalíns. Lýsti Koestler meðal annars hungursneyðinni í Úkraínu 1932-1933, fjöldabrottflutn- ingum frá Eystrasaltslöndunum 1941 og hinu víðtæka þrælabúðaneti Stalíns, Gúlageyjunum. Valtýr Stef- ánsson, ritstjóri Morgunblaðsins, fékk Jens Benediktsson blaðamann til að þýða ritgerðina, og fyllti hún fjörutíu blaðsíður í Lesbók Morgun- blaðsins 29. desember 1945, nokkr- um vikum fyrir bæjarstjórnarkosn- ingar. Íslenskir kommúnistar brugðust við hart og gáfu út sérstakt blað, Nýja menningu, til höfuðs Koestler, og dreifðu í hús bæjarins. Ungur hagfræðingur, nýkominn frá Sví- þjóð, Jónas H. Haralz, skrifaði einn- ig í Þjóðviljann, málgagn komm- únista, að „falsspámaðurinn Koestler“ hefði verið „afhjúpaður“. Skipaði Jónas sjötta sæti á lista Sósíalistaflokksins í bæjarstjórnar- kosningunum, og gerðu komm- únistar sér vonir um, að hann næði kjöri. Valtýr Stefánsson svaraði Jón- asi fullum hálsi og varði Koestler. Úrslit kosninganna urðu kommún- istum vonbrigði. Þeir fengu aðeins fjóra bæjarfulltrúa kjörna. Sigur- ganga þeirra á Íslandi var stöðvuð, ef til vill að einhverju leyti með að- stoð Koestler. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Koestler í bæjar- stjórnarkosningum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.