Morgunblaðið - 23.12.2017, Page 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017
Verð 16.995 kr
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Þær gerast
ekki flottari
Þú færð Angelie Split
buxurnar hjá okkur
Jóhann Már Nardeau, trompetleikari í París, á 30 ára afmæli ídag. Hann hefur búið í París í meira en tíu ár og er sjálfstættstarfandi tónlistarmaður og trompetkennari. Hann á ekki langt
að sækja tónlistarhæfileikana, en foreldrar hans eru Guðrún Sigríður
Birgisdóttir og Martial Nardeau, en þau eru bæði flautuleikarar.
Jóhann hefur að undanförnu spilað sem fyrsti trompet í Jólaóra-
toríu Bachs. „Það kom mér í gott jólaskap, þetta er svo falleg tónlist.
Trompet er eiginlega sólistahljóðfæri í þessu verki og því mæðir mik-
ið á okkur. Svo er afskaplega gaman að spila á barokkhljóðfæri, það
eru ýmis tæknileg atriði sem eru allt öðruvísi en á nútímatrompet,
eins og t.d. blásturinn. Þetta var því mikil áskorun en ég er ánægður
með afraksturinn og að hafa lært á hljóðfærið fyrir þrítugsafmælið. “
Jóhann er ekki enn kominn í jólafrí því hann verður að kenna í dag.
„Skólarnir fara rosalega seint í frí þetta árið, en þeir byrja þá seinna
og ég get því skroppið heim á nýja árinu. Svo ætlar konan mín að
koma mér á óvart í dag og það eina sem ég veit er að ég á að fara í
fínu fötin.“ Eiginkona Jóhanns er Aurélia Marchais-Nardeau og er
hún fædd í París.
Jólin eru haldin öðruvísi í Frakklandi en á Íslandi. „Þar er ekki
þessi helgi klukkan sex heldur byrja jólin á miðnætti en þá er farið að
vaka yfir jesúbarninu. Við tökum samt íslenska aðferð á þetta og
fáum okkur risastóran málsverð á aðfangadagskvöld sem stendur yfir
í fjóra, fimm tíma hjá tengdaforeldrum mínum. Ég ætla síðan að
halda stóra afmælisveislu á gamlársdag, okkur vantar hangikjöt í
hlaðborðið og ég lýsi eftir einhverjum sem getur reddað okkur því.
Við erum tilbúin að sækja fólk út á flugvöll ef það kemur með hangi-
kjöt! Ég fer heim til Íslands í rjúpu 2. janúar og verð fram yfir þrett-
ándann. Þannig líta jólin út hjá mér.“
Trompetleikarinn Jóhann blæs í trompetinn sem mörgum finnst vera
jólalegasta og hátíðlegasta hljóðfærið.
Lýsir eftir hangi-
kjöti í París
Jóhann Már Nardeau er þrítugur í dag
H
allgrímur Skaptason
fæddist á heimili for-
eldra sinna, Bjargi á
Grenivík, 23. desem-
ber 1937. Ári síðar
flutti fjölskyldan til Akureyrar þar
sem faðir hans hóf störf við smíðar.
Fimmtán ára hóf Hallgrímur nám í
skipasmíði í Iðnskólanum á Akureyri
og Slippstöðinni hf., sem faðir hans
stofnaði ásamt fleirum árið 1952.
Skapti Áskelsson var fram-
kvæmdastjóri frá upphafi og eftir að
hafa unnið við smíðar í nokkur ár
varð Hallgrímur hægri hönd föður
síns. Gegndi hann starfi fulltrúa
framkvæmdastjóra til 1971 þegar
hann stofnaði Bátasmiðjuna Vör
ásamt fimm öðrum skipasmiðum úr
Slippstöðinni. Þar var hann bæði
smiður og framkvæmdastjóri fyrstu
árin, en snéri sér síðan alfarið að
stjórn fyrirtækisins. Vararmenn
smíðuðu fjölda eikarbáta en sinntu
ýmiskonar byggingastarfsemi og við-
haldsverkefnum eftir að bátasmíði
lagðist af.
Hallgrímur var einn eigenda verk-
takafyrirtækisins Norðurverks og sat
í stjórn frá stofnun þar til fyrirtækið
hætti starfsemi. Vann það m.a. að
virkjanaframkvæmdum við Laxá,
Smyrlabjargará og Lagarfoss.
Hallgrímur var varabæjarfulltrúi
fyrir Framsóknarflokkinn eitt kjör-
tímabil fyrir margt löngu en gaf ekki
kost á sér áfram. Sat hins vegar um
árabil í hafnarstjórn og bygginga-
nefnd Akureyrar fyrir Framsókn. Þá
var Hallgrímur í bygginganefndum
framhaldsskólanna á Akureyri, MA
og VMA.
Hallgrímur bjó frá barnsaldi á
Oddeyri; er svokallaður Eyrarpúki
og segist stoltur af. Eins og flestir á
Eyrinni gekk hann í Íþróttafélagið
Þór á unga aldri og varð í fyllingu
tímans einn forkólfa þess; sat lengi í
stjórn knattspyrnudeildar, lengst
sem gjaldkeri en var einnig formaður
um tíma og fulltrúi Þórs í stjórn
Íþróttabandalags Akureyrar í nokk-
ur ár. Þá var Hallgrímur gjaldkeri
bygginganefndar Hamars, félags-
heimilis Þórs. Hallgrímur hefur hlot-
Hallgrímur Skaptason, skipasmiður og framkvæmdastjóri – 80 ára
Barnabörnin Hallgrímur, Heba og barnabörn í gullbrúðkaupinu 2011. Frá vinstri: Sara Skaptadóttir, Heba Þórhild-
ur Stefánsdóttir, Hallgrímur, Lilja Stefánsdóttir, Alma Skaptadóttir, Unnar Þór Sæmundsson, Birgir Orri Ásgríms-
son, Heba, Heba Karitas Ásgrímsdóttir, Bára Stefánsdóttir, Arna Skaptadóttir og Sigríður Kristín Stefánsdóttir.
Eyrarpúki og Þórsari
Börnin Sólveig Hallgrímsdóttir, Heba Ásgrímsdóttir, Ásgrímur Örn Hall-
grímsson, Hallgrímur Skaptason, Skapti Hallgrímsson og Guðfinna Þóra
Hallgrímsdóttir. Mynd frá 1985 sem birtist í ævisögu föður Hallgríms.
Guðmundur Birgir Haraldsson og Margrét Jóhannsdóttir eiga 50 ára gullbrúð-
kaupsafmæli á morgun, aðfangadag. Þau voru gefin saman 24. desember 1967 í
Mosfellskirkju í Mosfellsdal. Börn þeirra eru Unnur Linda og Jóhann Birnir.
Jóhann Birnir er giftur Bryndísi Jónu Magnúsdóttur. Barnabörn eru Krista María,
Davíð Snær og Margrét Júlía.
Guðmundur og Margrét eru búsett í Heiðarhvammi 6 í Keflavík.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is