Morgunblaðið - 23.12.2017, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2017
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Gleraugnaverslunin Eyesland
býður mikið úrval af
gæðagleraugum á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!
Jensen JN8846 umgjörð
kr. 18.900,-
Við sem unnum með StyrmiGunnarssyni á Morgun-blaðinu vitum að hannsinnti starfi sínu frá
morgni til kvölds í orðsins fyllstu
merkingu. Hann starfaði á blaðinu í
43 ár, þar að 36 sem ritstjóri. Áður
en hann gat fylgst með framvindu
blaðsins á kvöldin í gegnum tölvu
var hann við símann fram undir
miðnætti eða lengur ef þurfti til að
átta sig á lokafrágangi hvers blaðs.
Vorið 2018 verða 10 ár frá því að
Styrmir lét af ritstjórastörfum
enda varð hann
70 ára fyrri hluta
2008. Nú þegar
hann nálgast 80
ára afmælið
sendir hann frá
sér bókina: Upp-
reisnarmenn
frjálshyggjunnar
– byltingin sem
aldrei varð.
Þetta er sjötta bókin sem Styrmir
skrifar frá því að hann hætti sem
ritstjóri. Hinar eru: Umsátrið –
Fall Íslands og endurreisn (2009);
Hrunadans og horfið fé (2010);
Ómunatíð – saga um geðveiki
(2011); Sjálfstæðisflokkurinn Átök
og uppgjör (2012) og Í köldu stríði
(2014).
Fyrir utan ritun þessara bóka
hefur Styrmir látið verulega að sér
kveða í opinberum umræðum, ekki
síst í baráttunni gegn aðild Íslands
að Evrópusambandinu. Þá ritar
hann reglulega greinar í Morgun-
blaðið og er oft kallaður til sem
ræðumaður eða viðmælandi og
álitsgjafi í fjölmiðlum. Hann er með
öðrum orðum í hópi þeirra sem láta
ekki aldurinn aftra sér frá þátttöku
í þjóðmálaumræðunum og skoðanir
hans eiga enn fullt erindi í þær um-
ræður.
Styrmi má kalla „klassískan“
sjálfstæðismann. Hann hóf virka
þátttöku í störfum Sjálfstæðis-
flokksins fyrir um það bil 60 árum
og hefur alla tíð síðan haldið um
púlsinn á flokknum og átt náin
samskipti við forystumenn hans.
Áhrif hans innan flokksins og raun-
ar einnig annarra flokka ná langt
út fyrir það sem ráða má af skrif-
um hans.
Upphafsár bókarinnar sem hér
um ræðir er 1978 eða nánar tiltekið
26. júlí þegar Heimdallur undir for-
ystu Kjartans Gunnarssonar
gekkst fyrir fjölsóttum fundi í Val-
höll til að ræða úrslit borgarstjórn-
arkosninganna vorið 1978 – þá tap-
aði Sjálfstæðisflokkurinn meiri-
hluta sínum í Reykjavíkurborg.
Frummælendur voru Davíð Odds-
son og Friðrik Sophusson en for-
ystumennirnir Geir Hallgrímsson,
Gunnar Thoroddsen, Albert Guð-
mundsson og Ragnhildur Helga-
dóttir tóku þátt í pallborðs-
umræðum. „Með þessum fundi má
segja að ný kynslóð hafi kvatt sér
hljóðs og gefið til kynna að fram
undan væru breyttir tímar,“ segir
Styrmir og vísar auk þess til bók-
arinnar Uppreisn frjálshyggjunnar
sem boðaði þessa breyttu tíma.
Styrmir teflir annars vegar fram
því sem hann kallar „velferðar-
pólitík“ Sjálfstæðisflokksins sem
birtist meðal annars í gagnrýni á
kaupmenn og hins vegar frjáls-
hyggjunni þar sem áhrifa fjár-
magnseigenda gætti sífellt meira.
Styrmir segist ungur hafa hallast
að frjálshyggju en áttað sig á gildi
klassísku sjálfstæðisstefnunnar
þegar hann komst til vits og ára.
Það er sterkur þráður í allri bók
Styrmis að eftir hrunið árið 2008
hafi skort samskonar uppgjör inn-
an Sjálfstæðisflokksins og árið
1978. Í stað þess að ræða málið á
þann veg sem gert var 1978 hafi
flokkurinn spólað í sama farinu og
misst verulegt fylgi.
Þetta má til sanns vegar færa
þegar litið er til þess að ekki fór af
stað nein hreyfing innan flokksins
sjálfs á borð við það sem varð árið
1978 þótt forystuskipti yrðu í mars
2009 þegar Bjarni Benediktsson
tók við af Geir H. Haarde sem
flokksformaður. Geir var þriðji
flokksformaðurinn á eftir Þorsteini
Pálssyni og Davíð Oddssyni sem
átti grein í bókinni Uppreisn frjáls-
hyggjunnar. Bjarni kemur úr ann-
arri átt og Styrmir lítur á grein
sem hann skrifaði með Illuga Gunn-
arssyni 13. desember 2008 sem
einskonar „pólitískt manifesto“
hans. Líklega er það oftúlkun.
Uppreisnin var gerð 1978 en Þor-
steinn tók ekki við af Geir Hall-
grímssyni fyrr en 1983, eftir að
fyrsta tilraunin til að fá kjósendur á
band frjálshyggjunnar misheppn-
aðist í kosningum í desember 1979.
Bjarni Benediktsson stökk beint út
í djúpu laugina í flokki sem þarfn-
aðist fyrst og síðast áfallahjálpar.
Hvað sem öðru líður hefur
Bjarna tekist að halda sjó og tryggt
flokknum aðild að ríkisstjórn frá
árinu 2013 auk þess að kveða niður
ESB-drauginn bæði innan flokksins
og brotsins sem kvarnaðist úr hon-
um vegna þess máls. Nú síðast
tókst honum að láta draum Styrmis
um „sögulegar sættir“ rætast.
Hafi verið ástæða til að efna til
uppreisnarfundar vegna fylgistaps
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík ár-
ið 1978 er ekki síður ástæða til að
gera það núna. Staða flokksins í
borginni er dapurleg og dregur
fylgi hans niður á landsvísu.
Það er til marks um elju Styrmis
Gunnarssonar að hann lætur ekki
við gagnrýni á skort á umræðum
um endurnýjun á stefnu og störfum
Sjálfstæðisflokksins sitja heldur
gerir hann eins manns uppreisn
með bók sinni.
Bókin er ekki aðeins úttekt á
stjórnmálum og stefnu frá sjónar-
hóli hans og Morgunblaðsins á með-
an hann sat þar á ritstjórastóli. Þar
er einnig að finna tillögur Styrmis
um úrbætur til að rétta hlut Sjálf-
stæðisflokksins. Árið 1978 efndu
menn til fundar og gáfu út bók. Nú
gefur reynslumikill höfundur út
bók. Hún er tilefni málþings á veg-
um Sjálfstæðisflokksins.
Efnistök Styrmis vekja spurn-
ingu um hvað gera á mikla kröfu
til Sjálfstæðisflokksins sem upp-
sprettu hugmynda. Hvarvetna í
frjálsum samfélögum starfa hug-
veitur, „sprotafyrirtæki“ nýrra
hugmynda. Hugveiturnar halla sér
til hægri eða vinstri. Hlutverk
flokkanna er að rækta sambandið
við kjósendur í krafti hugmynd-
anna, slípa þær og móta sem
stjórnmálastefnu. Á sínum tíma
starfaði vísir að hugveitu fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að frumkvæði
Ragnars heitins Kjartanssonar.
Styrmir vísar oftar en einu sinni
til uppgjörs innan breska Íhalds-
flokksins árið 1955. Saga þess
flokks undanfarin ár sýnir mikið
bil á milli forystumanna og kjós-
enda. David Cameron boðaði
þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB til
að tryggja betri aðild að ESB en
tapaði; Theresa May rauf þing til
að styrkja stöðu sína enn frekar í
kosningum en tapaði.
Í stjórnmálum er ekki unnt að
treysta á „patentlausnir“ eins og
sannaðist í kosningunum um leift-
ursóknina árið 1979. Liður í því að
kjósendur hrukku frá Sjálfstæðis-
flokknum var stríðsfyrirsögn á
forsíðu Morgunblaðsins þegar
stefnan var kynnt. Til að skapa
flokki heppilegan jarðveg meðal
kjósenda þurfa margir að leggja
hönd á plóginn. Galdur foryst-
unnar felst í að laða sem flesta til
samstarfs.
Styrmir er lipur höfundur sem
setur skoðanir sínar fram á þann
veg að öllum er auðskilið. Frá-
gangur bókarinnar er góður en
hún skiptist í fimm meginkafla
með undirköflum, fyrst eftir árum:
1978-1990; 1991-2008; 2009-2017;
Stakir steinar og Ísland 21. aldar.
Nafnaskrá hefði aukið gildi bók-
arinnar.
Styrmir Gunnarsson ritar bók
sína ekki til að ná sér niðri á nein-
um heldur af þörf fyrir að láta
rödd sína heyrast í þágu mál-
staðar sem er honum kær. Hann
er enn sem fyrr óhræddur við að
viðra skoðanir sínar og færa fyrir
þeim rök með dæmum sem eru til
marks um víðtækt áhugasvið,
mikla reynslu og þekkingu á
mönnum og málefnum.
Uppreisnarmaður sjálfstæðisstefnunnar
Morgunblaðið/RAX
Álitsgjafi Rýnir segir það sterkan þráð í bók Styrmis Gunnarssonar að eftir
hrunið árið 2008 hafi skort uppgjör innan Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnmál
Uppreisnarmenn frjálshyggjunnar
bbbbn
Eftir Styrmi Gunnarsson.
234 bls., innb. Veröld 2017.
BJÖRN
BJARNASON
BÆKUR
Gjöfult samstarf ÁslaugarJónsdóttur, Kalle Güett-ler og Rakelar Helmsdalhefur skilað níu skrímsla-
bókum á síðustu fjórtán árum. Í nýj-
ustu bókinni, Skrímsli í vanda, kem-
ur loðna skrímslið aftur í heimsókn
til litla skrímslisins, en aðdáendur
skrímslabókanna muna vafalítið eft-
ir síðustu heimsókn loðna skrímslis-
ins í bókinni Skrímsli í heimsókn frá
árinu 2009 þar sem mikil átök áttu
sér stað áður en málin leystust loks
farsællega.
Líkt og í fyrri bókinni óttast stóra
skrímslið að gesturinn taki of mikla
athygli frá litla skrímslinu sem hafi
þá ekki tíma til að gera skemmtilega
hluti með sér. Þegar stóra skrímslið
reynir að fá loðna skrímslið til að
fara aftur heim til sín kemur í ljós að
loðna skrímslið á ekki lengur neitt
heimili og er auk þess stórslasað.
Sem fyrr bera stílhreinar, lit-
sterkar og tjáning-
arríkar myndir
Áslaugar söguna
áfram og sumt það
mikilvægasta er
ekki sagt berum
orðum, sem er
snjallt. Þannig svar-
ar bókin því ekki
hvers vegna svona
illa er komið fyrir
loðna skrímslinu, en
nokkrum tillögum er velt upp sem
gefur foreldrum færi á að ræða hlut-
skipti fólks sem lendir í náttúru-
hamförum eða stríðsátökum. Letur-
breytingar í textanum þjóna
hlutverki sínu vel til áhersluauka.
Einfalt form húsa og glugga þjónar
sem leiðarstef í gegnum bókina og
undirstrikar þörf okkar allra fyrir
öruggan íverustað.
Aðal skrímslanna hefur ávallt ver-
ið hversu mannleg þau eru í við-
brögðum sínum og framkomu, sem
gerir það að verkum að lesendur
eiga alltaf auðvelt með að setja sig í
spor þeirra hvort sem þau takast á
við afbrýðisemi, gleði eða sorg.
Margir deila vafalítið þörf skrímsl-
anna til að láta gott af sér leiða og
komast, líkt og skrímslin, að því að
ef allir leggja sitt lóð á vogarskál-
arnar er ekkert óyfirstíganlegt. Með
samkenndina að leiðarljósi verður
heimurinn að betri stað og það eru
mikilvæg skilaboð til ungra lesenda.
Hjálp í viðlögum
Myndabók
Skrímsli í vanda bbbbn
Eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler
og Rakel Helmsdal.
Myndir: Áslaug Jónsdóttir.
Mál og menning 2017. 32 bls.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
BÆKUR