Morgunblaðið - 03.01.2018, Page 7
Nánari upplýsingar á rsk.is
Staðgreiðsla
Staðgreiðsla skatta 2018 er reiknuð í tveimur þrepum.
Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
Af fyrstu 893.713 kr. ............................ 36,94%
Af fjárhæð umfram 893.713 kr. ........ 46,24%
Frádráttur vegna lífeyrisréttinda
Heimill frádráttur vegna greiðslu launamanna
til almennra lífeyrisréttinda er 4% af iðgjaldsstofni.
Frádráttur vegna séreignarsparnaðar er 4%.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 53.895 kr. á mánuði.
Skattlagning barna
Börn fædd 2003 og síðar greiða 6% af tekjum yfir 180.000 kr.
Laun frá fleiri en einum launagreiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa
að gæta þess að rétt hlutfall sé notað við útreikning
á staðgreiðslu. Fari laun yfir 893.713 kr. hjá einum
launagreiðanda þarf að reikna 46,24% staðgreiðslu
af launum hjá öðrum launagreiðendum.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 6,85%.
Fjársýsluskattur
Fjársýsluskattur er 5,5%.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 22%.
Framtal og álagning
Barnabætur
Barnabætur með fyrsta barni hjóna eru 223.300 kr. og
með hverju barni umfram eitt 265.900 kr. Með fyrsta barni
einstæðs foreldris eru þær 372.100 kr. og með hverju barni
umfram eitt 381.700 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna eru 5.800.000 kr. hjá hjónum
og 2.900.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Bæturnar skerðast
um 4% af tekjum umfram þessi mörk fyrir eitt barn, 6%
fyrir tvö börn og 8% ef börnin eru þrjú eða fleiri.
Viðbótargreiðsla með hverju barni yngra en 7 ára er 133.300 kr.
og skerðist um 4% af tekjum umfram ofangreindmörk.
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta er 400.000 kr. fyrir einhleyping, 500.000 kr.
fyrir einstætt foreldri og 600.000 kr. fyrir hjón/sambúðarfólk.
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri en
7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðarkaupa og að hámarki
800.000 kr. hjá einhleypingi, 1.000.000 kr. hjá einstæðu foreldri
og 1.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki.
Skerðing vegna tekna er 8,5% af tekjustofni.
Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að
skerðast við nettóeign 4.500.000 kr. og falla niður þegar hún
nær 7.200.000 kr.
Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast við
nettóeign 7.300.000 kr. og falla niður þegar hún nær
11.680.000 kr.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Frítekjumark vegna vaxtatekna er 150.000 kr. á einstakling.
Frádráttur vegna leigutekna manna af íbúðarhúsnæði til
búsetu leigjanda er 50% af leigutekjum.
Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur
af öðru en íbúðarhúsnæði sem leigt er til búsetu leigjanda.
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra er 11.175 kr. á einstaklinga
sem fæddir eru 1948 og síðar og eru með tekjur yfir
1.718.678 kr. á ári. Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Útvarpsgjald
Útvarpsgjald er 17.100 kr. á einstaklinga sem fæddir eru
1948 og síðar og eru með tekjur yfir 1.718.678 kr. á ári.
Undanþegin eru börn innan 16 ára aldurs.
Skattlagning lögaðila
Tekjuskattur hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnufélaga
er 20% við álagningu 2018.
Tekjuskattur annarra lögaðila er 36% og gildir það m.a. um
sameignar- og samlagsfélög, þrotabú og dánarbú.
Álagning einstaklinga
Álagning opinberra gjalda einstaklinga fer fram
31. maí 2017.
Skattar, gjöld og
bætur árið 2018
442 1000
Þjónustuver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
rsk@rsk.is