Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 54
Önnur lög sem voru nálægt því að komast á lista voru
B.O.B.A. með Jóa Pé og Króla, sem áttu vægast sagt
magnaða innkomu á tónlistarsviðið í ár. Ég vil það með
Chase og Jóa Pé naut einnig mikilla vinsælda. Þá
sendi Nýdönsk frá sér nýja plötu á árinu og hef-
ur smáskífan Stundum notið mikilla vinsælda á
stöðinni. Védís Hervör með lagið Blow My
Mind var einnig ofarlega á lista. Lag Júníusar
Meyvants, Mr. Minister Great, naut sömu-
leiðis mikilla vinsælda.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Morgunblaðið/Ófeigur
Mögnuð inn-
koma Jói Pé og
Króli áttu sterka
innkomu á tón-
listarsviðið í ár.
Vinsælustu íslensku
lögin á K100
Íslensk tónlist var sem fyrr í miklum blóma á árinu. Íslendingar héldu
áfram að slá í gegn á erlendri grundu og varð hljómsveitin Kaleo t.d.
endanlega heimsfræg á árinu og söngkonan Glowie skrifaði undir samn-
ing við erlenda útgáfurisann Columbia. Rappið hélt áfram að tröllríða
landanum og litu nokkrar nýjar rappstjörnur dagsins ljós á árinu.
Einn dans Páll Óskar
hélt stórtónleika í
Laugardalshöll á árinu
og átti einnig eitt vin-
sælasta lag ársins.
Sigurvegari Svala
Björgvins var sigur-
vegari Söngvakeppni
Sjónvarpsins í ár.
Vinsælastur Friðrik Dór hélt á árinu tónleika
ásamt hljómsveit í Eldborg í Hörpu sem mæltust
vel fyrir. Hann á vinsælasta lagið á K100 í ár.
Morgunblaðið/Eggert
1. Hringdu í mig – Friðrik Dór
Samstarf Friðrik Dórs og tónlistargengisins StopWait-
Go ætlar að reynast farsælt. Árið 2016 gerðu þeir lagið
Dönsum eins og hálfvitar, sem varð eitt vinsælasta lag
þess árs, og í ár var það smellurinn Hringdu í mig sem
leit dagsins ljós. Landsmenn voru duglegir að syngja
með þessu grípandi lagi sem trónir efst á lista yfir þau ís-
lensku lög sem fengu mesta spilun á árinu.
2. Einn dans – Páll Óskar
Árið 2017 var annasamt hjá poppstjörnu Íslands. Palli
sendi m.a. frá sér nýja plötu og hélt eina stærstu tónleika
sem hafa verið haldnir hér á landi í Laugardalshöllinni í
september og desember. Lagið Einn dans kom út á vor-
mánuðum og sló strax í gegn en með Palla í laginu eru
áðurnefnd tónlistarséní í StopWaitGo.
3. Paper – Svala
Svala naut mikilla vinsælda á árinu eftir þátttöku sína í
Söngvakeppni Sjónvarpsins sem hún vann með miklum
glæsibrag. Hún hefur verið mikið hér á landi á árinu en
hún er ennþá búsett í Los Angeles ásamt manni sínum,
Einari Egilssyni. Svala söng sig inn í hug og hjarta þjóð-
arinnar með lagið Paper og kemur ekki óvart að það sé
ofarlega á lista þegar árið er gert upp.
4. Grenja (ásamt Sölku Sól) – Baggalútur
Baggalútsmenn spruttu fram með óvæntan sumarsmell
ásamt hinni hæfileikaríku Sölku Sól á árinu. Texti lags-
ins er grípandi og smellinn, eins og yfirleitt þegar
Baggalútur er annars vegar, og varð „viltu ekki bara
fara að grenja?“ einn af frösum ársins.
5. Hvað með það – Daði Freyr
Glæný poppstjarna fæddist á árinu í Söngvakeppni Sjón-
varpsins. Hávaxni sjarmörinn Daði Freyr bræddi hjörtu
landsmanna með óvenjulegri sviðsframkomu og ein-
lægni. Lenti Daði í öðru sæti í keppninni og lifði lagið,
Hvað með það, góðu lífi eftir hana.
ÚTSALA
af útsölu-
vörum í
eftirtöldum
verslunum
30-50%
AFSLÁTTUR
2. - 21. JANÚAR
GÍSL
Úlpa
Áður kr. 15.990
I
kr. 7.995.-
50%
kr. 6.650.-
30%VIKTOR/VIGDÍSSoftshell jakki
Áður kr. 9.500
BJARKE
Dúnjakk
m/hettu
Áður kr. 12.990
i
kr. 6.495.-
50%
kr. 6.495.-
50%BJARKEDúnjakkián/hettu
Áður kr. 12.990
BIRGIT
Dúnjakki
m/hettu
Áður kr. 12.990kr. 6.495.-
50%
kr. 6.495.-
50%BIRGITDúnjakkián/hettu
Áður kr. 12.990
kr. 9.995.-
50%ASOLO SHIVERGönguferðir ogdagleg not.
Áður kr. 19.990
Að auki eru fleiri ASOLO skór á 30-50% afslætti
ASOLO Shiver Blu Aster
og Passion litir á 50%
afslætti