Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50%
afsláttur
Það hefur lengi legið fyrir aðveiðigjöld sem lögð eru á ís-
lensku útgerðina eru allt of há. Þau
hafa valdið fjölda útgerða miklum
erfiðleikum og jafnvel ýtt sumum
til að hætta útgerð alfarið vegna
sligandi skatt-
heimtu.
Vinstri flokkarnirhafa í gegnum
tíðina reynt að slá
sér upp með því að
krefjast aukinnar
skattheimtu á sjáv-
arútveginn, en það
sýnir vel út í hví-
líkar ógöngur þeir
voru komnir með
þeim málflutningi
að Lilja Rafney
Magnúsdóttir, for-
maður atvinnuvega-
nefndar og þing-
maður VG, greindi frá því í
Morgunblaðinu í gær að ætlunin
væri að lækka veiðigjöld á lítil og
meðalstór fyrirtæki.
Þetta var skref í rétta átt, því aðeins og Heiðrún Lind Mar-
teinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS,
benti á, þá greiða útgerðir í raun
allt að 60% tekjuskatt, sem er auð-
vitað fjarri öllu því sem eðlilegt get-
ur talist eða sanngjarnt.
En Katrín Jakobsdóttir forsætis-ráðherra gat illa unað við að
landsmenn teldu að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að lækka einhverja
skatta. Hún sagði í viðtali í gær-
morgun að það kynni að vera að
breytingar yrðu gerðar sem yrðu
til að lækka veiðigjöldin á litlar og
meðalstórar útgerðir, en að ekki
væri útilokað að skattar yrðu
hækkaðir á þær stærri í staðinn!
Þá má sem sagt gera ráð fyrir aðraunverulegur tekjuskattur
þeirra fyrirtækja verði ekki allt að
60%, heldur væntanlega eitthvað
nær 100%.
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
100% skattur?
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Veður víða um heim 2.1., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík -1 léttskýjað
Akureyri -2 skýjað
Nuuk -13 heiðskírt
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló -1 þoka
Kaupmannahöfn 4 skýjað
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 4 súld
Lúxemborg 4 skýjað
Brussel 6 rigning
Dublin 8 rigning
Glasgow 5 skúrir
London 10 skúrir
París 8 súld
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 5 skýjað
Berlín 4 skúrir
Vín 6 léttskýjað
Moskva 1 alskýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -16 skýjað
Montreal -21 snjókoma
New York -7 heiðskírt
Chicago -21 þoka
Orlando 10 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:17 15:48
ÍSAFJÖRÐUR 11:58 15:17
SIGLUFJÖRÐUR 11:43 14:58
DJÚPIVOGUR 10:55 15:09
Veiði
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Mig rekur ekki minni til þess að for-
seti hafi áður sent starfsfólki Land-
spítala svona kveðju, en hann hefur
sýnt spítalanum
mikinn áhuga og
velvild,“ segir
Anna Sigrún
Baldursdóttir, að-
stoðarmaður for-
stjóra Landspít-
ala, í samtali við
Morgunblaðið.
Vísar hún í máli
sínu til þess að
Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands, sendi
henni SMS-skeyti að kvöldi 27. des-
ember sl., og bað fyrir kveðju til
starfsfólks spítalans.
Tilefni skeytasendingarinnar
var alvarlegt umferðarslys sem átti
sér stað vestan við Kirkjubæjar-
klaustur fyrrgreindan dag. Kínversk
kona á þrítugsaldri lést í slysinu en
alls voru 22 fluttir með þyrlum Land-
helgisgæslu Íslands á sjúkrahús, þar
af 12 á Landspítala. Af þeim er einn
enn á gjörgæsludeild og fjórir eru á
almennum legudeildum.
Kveðja, Guðni (forseti)
Með skeytasendingunni vildi
forseti skila kærum þökkum til allra
þeirra sem veittu aðstoð eftir slysið.
„Sæl Anna Sigrún. Bið þig að
koma til skila kærum þökkum til allra
sem nú reynir á og standa sig svo vel
undir miklu álagi. Bestu kveðjur,
Guðni (forseti),“ segir í SMS-skeyti
forseta Íslands.
Anna Sigrún segir skilaboðin
hafa verið lesin upp á fjölmennu jóla-
boði spítalans, sem haldið var daginn
eftir slysið. Aðspurð segir hún starfs-
fólk hafa brugðist mjög vel við.
„Þessu var afskaplega vel tekið og
allir mjög glaðir með þetta.“
Fengu
SMS frá
forseta
Einn liggur enn
á gjörgæsludeild
Guðni Th.
Jóhannesson