Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018 3. janúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 104.17 104.67 104.42 Sterlingspund 140.64 141.32 140.98 Kanadadalur 83.08 83.56 83.32 Dönsk króna 16.747 16.845 16.796 Norsk króna 12.691 12.765 12.728 Sænsk króna 12.675 12.749 12.712 Svissn. franki 106.77 107.37 107.07 Japanskt jen 0.9251 0.9305 0.9278 SDR 148.23 149.11 148.67 Evra 124.7 125.4 125.05 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.7383 Hrávöruverð Gull 1285.4 ($/únsa) Ál 2241.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.43 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Aðalheiður Magnúsdóttir hefur keypt hlut í jóga- og heilsusetrinu Sólum á Fiskislóð á Granda, á móti stofnanda fyrirtækisins, Sólveigu Þórarinsdóttur, viðskiptafræðingi og jógakennara. Aðal- heiður er ásamt eiginmanni sínum, Sig- urbirni Þorkelssyni, aðaleigandi Fossa markaða en hún á jafnframt og rekur Ásmundarsal í Reykjavík. Kaupir hlut í Sólum BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hlutfall erlendra fjárfestinga í sprotafyrirtækjum fór vaxandi á árinu 2017 samanborið við árið áður. Aftur á móti lækkaði heildarfjárhæð fjárfestinga í nýsköpun á milli ára í 3 milljarða, úr 5 milljörðum. Þetta seg- ir Salóme Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Icelandic Startups. „Það er áhugavert,“ segir Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmað- ur frumkvöðlamála hjá Arion banka, „að þrjú íslensk fyrirtæki fengu hreina erlenda fjárfestingu á árinu.“ WuXi NextCODE, þar sem Hannes Smárason er forstjóri og er m.a. með skrifstofur á Íslandi, fékk jafnvirði 25 milljarða króna í fjármögnun sem leidd var af Sequoia Capital í Kína. Íslensk erfðagreining kom Next- Code á laggirnar til að selja sjúk- dómsgreiningar til lækna og sjúkra- húsa í Bandaríkjunum. WuXi PharmaTech keypt NextCode á 8,5 milljarða árið 2015. TeaTime, nýtt sprotafyrirtæki á vegum þeirra sem ýttu Plain Vanilla úr vör, safnaði 165 milljónum króna frá erlendum fjárfestum. Fjárfest- ingin var leidd af Index Ventures, einum stærsta sprotasjóði í Evrópu. Authenteq fékk 135 milljónir króna frá erlendum fjárfestum. Þeirra á meðal er Draper Associates sem var meðal fyrstu fjárfesta í Tesla, Skype og Hotmail. Efla tengslin við útlönd Salóme segir mikilvægt að efla tengslin við erlenda fjárfestingasjóði því hérlendis vanti fjárfesta í ný- sköpun sem geti stutt við vöxt fyrir- tækja eftir að þau hafi náð tiltekinni stærð. „Sjóðir hér á landi hafa ekki burði til að fylgja þeim eftir.“ Minna var fjárfest í sprotum í fyrra en árið áður. Það er rakið til þess að þrír nýir fjárfestingasjóðir litu dagsins ljós árið 2015, þ.e. Frum- tak 2, Brunnur og Eyrir sprotar. Þeir eru, að fráskildum Brunni, full- fjárfestir í nýfjárfestingum. Þess vegna voru hendur þeirra bundnar árið 2017. Það sem eftir er í sjóð- unum á að nýta til að styðja við bakið á núverandi fjárfestingum. „Af þeim sökum er mikilvægt að Crowberry hafi verið stofnaður á síðastliðnu ári,“ segir Einar Gunnar. Salóme segir að Crowberry sjóð- urinn, sem leiddur er af Helgu Val- fells og tveimur öðrum fyrrverandi starfsmönnum Nýsköpunarsjóðs, fjárfesti í ungum fyrirtækjum. Sjóð- urinn er fjórir milljarðar króna að stærð. Upplýst var um fyrstu fjár- festingu sjóðsins í Travelade fyrir viku. Stærstu tíðindin „Stærstu og jákvæðustu tíðindin á árinu voru kaup bandaríska fyrir- tækisins NetApp á Greenqloud,“ segir Einar Gunnar. Fram hefur komið í fjölmiðlum að fyrirtækið hafi verið keypt fyrir rúmlega 5 milljarða króna. „Það er algjörlega meirihátt- ar. Maður vill gjarnan sjá sölur af þessari stærðargráðu eða stærri,“ segir hann og vonar að það leiði til þess að frumkvöðlarnir og aðrir hlut- hafar muni fjárfesta aftur í nýsköp- un hér á landi. Að sögn Einars var Nýsköpunar- sjóður á meðal hluthafa og því fái sjóðurinn fjármagn við söluna til að halda áfram að leggja sprotum lið. Hann er svokallaður sígrænn sjóður, sem þýðir að hann fjármagnar fjár- festingar með sölu á eignarhlutum en fær ekki fjármagn frá ríkissjóði. Salóme segir að það hafi verið dapurlegt að CCP hafi hætt þróun á sýndarveruleikaleikjum á liðnu ári og margir misst vinnuna. „Við vorum búin að stimpla okkur inn sem vagga sýndarveruleika. Fjárfestar beindu hingað sjónum en við misstum tæki- færið til að verða best á þessu sviði,“ segir hún og nefnir að það sé mik- ilvægt að nýta tækifærin áður en aðrir grípa þau. Auknar erlendar fjárfestingar Morgunblaðið/Sverrir DeCode WuXi NextCODE á rætur að rekja til Íslenskrar erfðagreiningar.  Erlendir fjárfestar litu í meiri mæli til sprotafyrirtækja í fyrra en áður  Minna var þó fjárfest í sprotum Raforkudreifingarfyrirtækið Lands- net gerði tvær breytingar á gjald- skrá sinni nú um áramótin, en í báð- um tilvikum er um verðlækkun að ræða. Frá þessu segir í tilkynningu á heimasíðu félagsins. Annarsvegar lækkar gjald sem innheimt er vegna útgáfu uppruna- ábyrgða, inn- og útflutnings, úr 3,75 kr./MWst niður í 3,25 kr./MWst, og hinvegar er um að ræða 20% verð- lækkun á gjaldskrá vegna flutnings- tapa. Samið á þriggja mánaða fresti Í tilkynningunni segir að Lands- net semji um kaup á raforku vegna flutningstapa á þriggja mánaða fresti og ákvarðast gjaldið af kostn- aði við útboð Landsnets. Hvað upprunaábyrgðirnar varðar þá segir á heimasíðunni að það sé hlutverk Landsnets að gefa út slíkar ábyrgðir (græn skírteini) sem eru þá staðfesting á að raforka sé framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum. Innheimt er gjald á hverja mega- wattstund (MWst) af viðkomandi framleiðanda. tobj@mbl.is Raforka Ný gjaldskrá Landsnets tók gildi nú um áramótin. Tvær verðlækk- anir Landsnets  Tengjast upp- runaábyrgðum og flutningstöpum Tjarnargötu 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | investis.is Fyrirtæki til sölu Verslun, innflutningur og þjónusta Lýsing Íþróttavöruverslun og innflutningur Fyrirtækið er með umboð fyrir heimsfræg merki, veltir um 170 milljónum. Hestavöruverslun Sérhæft fyrirtæki með vörur fyrir hesta og hestamann í Reykjavík. Innflutningsfyrirtæki Sérhæft fyrirtæki sem selur inn á trésmiðjur og skildan iðnað. Góður hagnaður. Ísbúðir Tvær arðbærar ísbúðir í Reykjavík og Kópavogi. Innflutningur Sérhæft og arðbært fyrirtæki sem veltir tæpum 200 milljónum, mjög góð ebitda. Heildverslun með sælgæti Dreifingarfyrirtæki sem er sérhæft í sælgæti og skildar vörur, velta um 60 milljónir. Heildversun með (non food) Dreifing í verslanir og stórmarkaði, velta um 350 milljónir. Sérverslun í Reykjavík Verslun sem sérhæfir sig í meðgönguvörum. Sérverslun í Reykjavík Verslun í austurbæ sem veltir um 600 milljónum, ebitda um 60 til 65 milljónir. Veitingahús og ferðaþjónusta Veitingahús Veitingahús sem rekur tvo veitingastaði í Reykjavík, mikill vöxtur og sérstaða. Veitingahús í Kringlunni Rótgróinn veitingastaður í Kringlunni, mjög góð staðsetning. Veitingahús á Laugaveginum 50% hlutur í góðu veitingahúsi sem er hluti af alþjóðlegri keðju veitingahúsa. Kaffihús í 101 Reykjavík. Mjög arðbært kaffihús í Kvosinni í 101 Reykjavík. Sérhæfð bílaleiga Bílaleiga sem er leigir út pallbíla með camperum, mjög góður hagnaður, góður búnaður. Afþreyingafyrirtæki Mjög vel tækjum búið fyrirtæki í dagsferðum og lengri ferðum, mikil vöruþróun, góður hagnaður. Keðja veitingahúsa Arðbær keðja veitingahúsa með langa og góða rekstrarsögu. Veitingahús í Kvosinni Bistro staður í Kvosinni sem veltir um 150 milljónum, góður hagnaður og stöðug velta. Gistiheimili í 101 Reykjavík Mjög vel staðsett gistiheimili í Reykjavík. Miklir möguleikar. Bar í 101 Reykjavík Mjög arðbær bar í 101 Reykjavík. Smart innréttingar og góður kúnnahópur, góður hagnaður. Framleiðsla, iðnaður, þjónusta, verktaka Framleiðslu- og þjónustuverkstæði Arðbært en lítið fyrirtæki með smiðju og reglubundna þjónustu fyrir stórfyrirtæki, velta um 60 milljónir. Málmiðnaðarfyrirtæki með umfangsmikinn innflutning Landsfrægt iðnfyrirtæki með um 500 milljón króna veltu. Leiðandi fyrirtæki í þjónustu fyrir laxeldi Sérhæft fyrirtæki sem þjónustar eldisfyrirtæki. Mikill vöxtur og góð afkoma. Verktakafyrirtæki á Suðurnesjum Gamalgróið verktakafyrirtæki á Suðurnesjum, vel tækjum búið. Arðbært fyrirtæki Heilsuvöruframleiðandi Frumkvöðlafyrirtæki sem hefur þróað og framleiðir heilsuvörur, fyrirtækið er arðbært. Kjúklingaframleiðsla Sérhæfð kjúklingaframleiðsa sem byggir á lífrænni framleiðslu og dýravelferð. Framleiðslubúnaður til glavanhúðunar Viðskiptasambönd fylgja. Fyrsta sprotafyrirtækið var skráð á First North-hliðarmarkaðinn í fyrra, Klappir – grænar lausnir. „Klappir gætu orðið öðrum sprotum góð fyr- irmynd. Mögulega er þetta merki um að fleiri sprotafyrirtæki hyggi á skráningu,“ segir Salóme. Einar Gunnar segir að um helmingur fyrirtækja skráðra á minni hluta- bréfamarkaði eins og First North sé rekinn með neikvæðu sjóðstreymi. Það merki að fyrirtækin stundi þróun af margvíslegum toga og séu ekki endilega byrjuð að skapa tekjur eða séu að stíga sín fyrstu skref. Rík hefð sé fyrir því í Svíþjóð. Skráning á First North KLAPPIR – GRÆNAR LAUSNIR Salóme Guðmundsdóttir Einar Gunnar Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.