Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Eitt gott ráð til að fara með inn í
nýja árið er að búa til heimagerðar
snyrtivörur úr því sem eftir verður
um hátíðina. Við mælum með að
frysta kjötafganga og kartöflur og
hita upp þegar hentar á nýju ári.
En í þessari grein ætlum við að
rifja upp hvernig einfaldar mat-
vörur geta frískað upp á útlitið.
Rósir úr jólaskreytingum geta jafn-
vel fengið nýtt hlutverk í dýrindis
rósavatni.
Rósavatn
Andlitsvatn úr rósablöðum er
löngu þekkt fyrir töfrandi áhrif á
húðina. Hugmyndin er runnin frá
Eygptalandi hinu forna. Konur um
víða veröld hafa tekið upp aðferðina
og hefur rósavatnið þótt svo öflugt
að það hefur fengið orð á sig fyrir
að vera leynivopn fallegra kvenna
víðs vegar um heim.
Rósavatn hentar öllum húðteg-
undum og er nærandi, yngir húðina
og styrkir. Það hjálpar húðinni að
viðhalda réttu rakastigi og dregur
úr bólgum og roða. Vatnið er einnig
græðandi og hjálpar til við að jafna
áferð húðarinnar. Hægt er að úða
rósavatni yfir farðann til að auka á
ljómann í skammdeginu. Sumir
spreyja rósavatni á koddann til að
fá betri slökun og minnka streitu en
rósablöð þykja áhrifarík á andlega
líðan. Rósavatn má einnig nota sem
næringu eftir hárþvott. Og svo slær
fátt það út að væta bómull með
rósavatni, kæla í ísskáp og leyfa svo
köldu rósavatninu að liggja á aug-
um í 10 mínútur til að minnka augn-
poka og yngja upp augnsvæðið.
Rósavatnið helst ferskt í allt að
viku í ísskáp.
1 bolli af rósablöðum
1 bolli af vatni
magn eftir þörfum
Hitið vatn í potti. Setjið jafnt
hlutfall af rósablöðum og vatni í
pottinn.
Látið malla í 5 mín. á mjög léttri
suðu. Gott er að hafa glæra skál
sem þolir hita í miðjunni til að
halda rósablöðunum niðri.
Sigtið rósavatnið í skál og kælið
vatnið við stofuhita. Setjið í viðeig-
andi sótthreinsuð ílát.
Sykurskrúbb
Að örva húðfrumur með grófum
skrúbb hjálpar til við að fjarlægja
dauðar húðfrumur og örva blóðrás-
ina í efsta lagi húðarinnar. Þessi að-
ferð er einnig talin auka brennslu
og minnka appelsínuhúð. Best er að
bera skrúbbinn á þurra húðina með
hringlaga strokum. Eftir meðferð-
ina verður húðin silkimjúk, slétt og
hraustleg.
1 bolli af brúnum sykri
1 bolli af grófu haframjöli
1 bolli af ólífuolíu
Blandið innihaldsefnum saman í
skál.
Avókadómaski
Flestir þekkja hvaða áhrif avó-
kadó hefur á heilsuna, enda er
ávöxturinn kallaður smjör Miðjarð-
arhafsins. En ávöxturinn er einnig
góður sem maski á húðina þar sem
hann er ríkur að ómega 3-fitusýrum
og öðrum andoxunarefnum. Hann
er einnig ríkur að steinefnum og A-,
B-, K- og E-vítamíni, sem allt hefur
jákvæð áhrif á uppbyggingu húðar-
innar. Avókadó er talið yngja húð-
ina og minnka bólgur og hrukkur
svo eitthvað sé nefnt. Uppskriftin
að þessum maska er afar einföld, en
mælt er með því að bera hann strax
á húðina en ekki geyma í ísskáp
nema þá aðeins til að kæla fyrir
notkun. Berið ríkulega á andlit, háls
og bringu og látið ávöxtinn sjá um
að næra húðina í allt að 30 mín. í
senn. Einnig er mælt með að setja
þessa uppskrift í hárið 15 mín. fyrir
þvott til að fá fallega glansandi hár
og betri hársvörð. Maskann má
bera á allan líkamann áður en farið
er í sturtu, en það er fátt sem nærir
húðina betur en avókadó.
½ avókadó
2 tsk heitt vatn
1 tsk hunang
Pressið avókadóávöxtinn með
gaffli og blandið heitu vatni og hun-
angi hægt og rólega saman við.
Epson-sjávarsalt
Epson-sjávarsalt er himeskt til
að losa um eiturefni, streitu og
bólgur í líkamanum. Best er að
setja saltið í bað og liggja í baðinu í
allt að 30 mín. Einnig er hægt að
búa til andlitsmaska og skrúbb úr
saltinu. Þeir sem stunda sjóböð vita
að salt er ein magnaðasta næring
sem líkaminn fær. Epsonsalt
minnkar bólgur, hreinsar og róar
líkamann. Saltið mýkir húðina og
gerir hana stinna. Þeir sem eru
lengra komnir í heimagerðu snyrti-
vörunum eru sólgnir í að gera sínar
eigin sápur úr meðal annars ólífu-
olíu og rósavatni og nota þær í
bland við Epsonsaltið í sturtu.
¾ bolli Epsonsalt út í bað
Uppskrift Epsonsaltsskrúbbur:
1 lítill bolli Epsonsalt
½ bolli af kókósolíu (eftir smekk)
Mælt er með að blanda uppskrift-
ina með rósavatni eða ilmkjarna-
olíu.
Agúrku-augngel
Besta ráðið við augnpokum er
kalt agúrku-augngel. Agúrkur eru
bólgueyðandi og ríkar að andox-
unarefnum. Þær eru sagðar taka
dökka bauga undir augum sem og
slétta og næra húðina. Það besta
við þessa aðferð er að uppskriftin
er mjög einföld. Svo mælum við
með því að kæla vatn í ísskápnum
með nokkrum sneiðum af agúrku í
til að fá meðferðina sem áhrifarík-
ast í gegnum meltingarfærin á
sama tíma og gelið er haft undir
augum.
1 agúrka
Notið blandara til að búa til gel
úr agúrkunni.
Kælið gelið í ísskáp fyrir notkun
undir augun.
Kaffi-andlitsmaski
Þessi kaffi-andlitsmaski er bland-
aður súkkulaði og kókosolíu en
maskinn hefur löngum verið þekkt-
ur fyrir nærandi áhrif á húðina.
Best er að búa hann til og nota um
leið og hann er tilbúinn. Uppskriftin
er einföld og fljótleg. Maskann má
einnig bera á allan líkamann og er
mælt með að gera það í gufu til að
fá sem mest áhrif. Bæði kaffið og
súkkulaðið er ríkt að andoxunar-
efnum og kornin í kaffinu henta vel
til að ná dauðum húðfrumum í
burtu. Gott er að leyfa maskanum
að sitja í 15 mín. á húðinni.
1 tsk kaffiduft
1 tsk kakóduft
1 tsk kókosolía
Blandið hráefnum í skál og hrær-
ið vel saman. Við mælum með að
bragðbæta maskann með myntu
eða sítrónu eins og hentar hverjum
og einum.
Hver kannast ekki við
þær aðstæður að vilja
hreinsa allan óþarfa út
úr húsinu eftir hátíð-
irnar og byrja nýtt ár á
heilbrigðari lífsstíl? Jól-
in, sem einkennast af
matarboðum og ljúfum
stundum, hafa það
stundum í för með sér
að matur safnast upp
og skreytingar á borð-
unum eiga ekki lengur
heima í hugarheimi þess
sem er að hefja árið
með nýjum venjum.
Heimaspa
breyttu bað-
herberginu í
heimaspa.
Afgangarnir úr eldhúsinu notaðir til fegrunar
Avodaco
Maskinn er
nærandi
fyrir húðina.
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR