Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 81

Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 81
MENNING 81 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018 Huldumiðillinn Bergrún ogdóttir hennar Brá komaaftur við sögu í nýrriskáldsögu Emils Hjörv- ars Petersen, Sólhvörf, en hann kynnti þær mæðgur fyrir okkur í bókinni Víghólar er kom út árið 2016. Það er alltaf eitthvað sérkennilegt við það að lesa um álfa og tröll í íslensku nútímasamfélagi en Emil tekst lista- vel að samtvinna sagnaheim ævin- týrabókmennta og glæpasagna. Ís- lendingar á öllum aldri trúa á álfasögur og á því byggir Emil sög- una Víghóla en nú leitar hann á nýjar slóðir og heldur óvenjulegar. Í Sólhvörfum fara jólasveinar á kreik. Ekki þó eins og við eigum að venjast eða teljum okkur þekkja þá, heldur sem stórhættu- legir vættir. Fjögur barnsrán eru framin á aðventunni og vaknar því eðlilega sú spurning hver sé ábyrgur. Mér þótti höfundurinn lunkinn að halda uppi áhugaverðum en samt hversdagslegum samtölum milli sögupersóna í fyrri bók sinni um þær mæðgur og ekki bregst hann í þeirri nýju. Samskipti þeirra Bergrúnar og Brár eru skemmtilega hversdagsleg og auðvelt er að sjá vinnualkann í sjálfum sér í gegnum rannsóknarlög- reglumanninn Ólaf. Hann er við- kunnanlegur vinnualki sem virðist í eilífum átökum við yfirmann sinn og almenn viðhorf samfélagsins til hulduheima. Sögupersónur fá örlítið meiri dýpt í nýju bókinni og við kynn- umst fjölskyldu þeirra mæðgna bet- ur. Tvennt stendur upp úr eftir lest- urinn. Annars vegar hröð og spenn- andi atburðarásin, sem er bæði myndræn og skemmtileg. Lesandi getur séð fyrir sér atburðarásina eins og hún myndi birtast þeim í Holly- wood-myndum enda frásögnin engu lakari en í bestu ævintýrabókmennt- um. Hins vegar er sagan sjálf spenn- andi líkt og góð glæpasaga á að vera. Sums staðar dettur sagan örlítið nið- ur og áhugi lesandans dofnar en heilt á litið er hún spennandi og skemmti- leg. Hér hefur höfundi tekist enn og aftur að fanga athygli lesanda sem al- mennt hefur lítinn áhuga á glæpasög- um en þeim mun meiri á ævintýrum. Það verður því ekki hjá því komist að spyrja sig hvort bókin höfði ekki einnig til þeirra sem lítinn áhuga hafa á ævintýrum en heillast af glæpasög- um? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundurinn Gagnrýnandi segir Emil Hjörvari Petersen takast „listavel að samtvinna sagnaheim ævintýra- bókmennta og glæpasagna“ í skáldsögunni Sólhvörf sem sprettur úr sama söguheimi og bókin Víghólar. Yfirnáttúruleg glæpasaga Skáldsaga Sólhvörf bbbbn Eftir Emil Hjörvar Petersen. Veröld, 2017. Innb., 354 bls. VILHJÁLMUR A. KJARTANSSON BÆKUR Í fyrsta skipti frá árinu 1958 hafa kvikmyndir með konur í aðal- hlutverkum hlotið mesta aðsókn í bandarískum kvikmyndahúsum yf- ir árið, en á nýliðnu ári voru The Last Jedi, Beauty and the Beast og Wonder Woman þær vinsælustu þar í landi. Í umfjöllun í The Guardian um vinsælustu kvikmyndinar vestan- hafs segir að það sé við hæfi, í ljósi ásakana um áreitni og ofbeldi karla í kvikmyndaheiminum, að konur séu mest áberandi í vinsælustu myndunum. Nýjasta Stars Wars- kvikmyndin, The Last Jedi, stakk aðrar vinsælar myndir af á síðustu vikum ársins og hefur aflað 533 milljóna dala í tekjur í Bandaríkj- unum og Kanada – um 55 milljarða kr. Beauty and the Beast, Fríða og dýrið, með Emmu Watson í aðal- hlutverki, halaði inn 504 milljónir dala og ofurhetjumyndin Wonder Woman 416 milljónir dala. Kvikmyndir með konum á toppnum Vinsæl Emma Watson fer með hlutverk stúlkunnar í Beauty and the Beast. Hópur 300 þekktra kvenna í banda- ríska skemmtanaiðnaðinum birti undir heitinu Time’s Up auglýsingu í stórblaðinu The New York Times á mánudag, þar sem heitið er stuðn- ingi við konur sem berjast við of- beldi og yfirgang karla. Í frétt blaðs- ins segir að konurnar ætli sér að vinna gegn valdaójafnvægi milli kynjanna og taka á kynferðislegri misbeitingu og ofbeldi, jafnt í Holly- wood sem í atvinnulífinu. Meðal markmiða Time’s Up- hópsins er að stofna sjóð til að styðja konur úti á hinum almenna vinnu- markaði við að kæra og takast á við ofbeldi; að stuðla að lagasetningu sem refsar fyrirtækjum þar sem áreitni viðgengst; og beita sér fyrir því að kynjajafnrétti verði náð innan kvikmyndaveranna og umboðs- skrifstofa listamanna. Meðal þátttakenda í hópnum má nefna leikkonurnar Ashley Judd, Eva Longoria, America Ferrera, Natalie Portman, Rashida Jones, Emma Stone, Kerry Washington, Meryl Streep, Jennifer Lawrence, Emma Thompson, Cate Blanchett og Reese Witherspoon. Konur sem verða viðstaddar Gold- en Globe-afhendinguna um næstu helgi eru hvattar til að klæðast svörtu í stuðningi við málstaðinn. AFP Samstaða Leikkonan Jennifer Lawrence, sem ræðir hér við verðlaunaaf- hendingu árið 2013 við framleiðandann Harvey Weinstein sem sakaður er um áreitni og ofbeldi, er ein 300 kvenna sem mynda Time’s Up-hópinn. 300 konur taka höndum saman í baráttunni Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRA RUSLAGÁMUR STEYPU SÍLÓ GEYMSLUBOX Galvaniseraðir ruslagámar Til á lager Auðveldar steypuvinnu. Til í ýmsum stærðum Frábær lausn til að halda öllu til haga á byggingarsvæði. Aukahlutir fyrir byggingakrana Kvarna-tengi 70 kr stk m/vsk. ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 5.45, 8, 10 Sýnd kl. 5.45 Sýnd kl. 10.25 Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.