Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.01.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018 Hlaupakettir og talíur Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Skaft- og keðjutalíur úr áli og stáli - lyftigeta allt að 20.000 kg. Rafdrifnar keðjutalíur - lyftigeta allt að 4000 kg. Borgarráð hefur samþykkt að út- hluta Sorpu bs. lóð á Álfsnesi undir nýja gas- og jarðgerðarstöð. Heim- ilt verður að byggja 12.800 fermetra hús á lóðinni. Lóðin sem um ræðir er 82.195 fermetrar að stærð. Sorpa greiðir Reykjavíkurborg 169,6 milljónir króna fyrir byggingarrétt á lóðinni. Verðið byggist á mati tveggja lög- giltra fasteignasala og miðast við 13.250 krónur fyrir hvern heimilað- an byggingarfermetra. Tekið er fram í bréfi skrifstofu eigna og at- vinnuþróunar borgarinnar að lóða- mörk geti færst til vegna fyrirhug- aðrar legu Sundabrautar og veghelgunarsvæðis hennar eftir að nýtt og breytt deiliskipulag hefur tekið gildi. Sorpa á að greiða verð lóðarinnar innan 90 daga frá sam- þykki. Útboð er nú í gangi á Evrópska efnahagssvæðinu í hina nýju gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi. Tilboð verða opnuð nú í janúar. Miðað hef- ur verið við að stöðin kosti um þrjá milljarða króna með tækjum, bún- aði og öðrum kostnaði. Með tilkomu stöðvarinnar verður hætt að urða heimilisúrgang en í staðinn verða gas- og jarðgerðar- efni unnin úr honum. Stefnt er að því að yfir 95% af heimilisúrgangi á samlagssvæði Sorpu verði endur- nýtt þegar stöðin er komin í gagnið. Sorpa er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sex á höfuðborg- arsvæðinu; Reykjavíkur, Hafnar- fjarðar, Kópavogs, Seltjarnarness, Mosfellsbæjar og Garðabæjar. Til- gangur byggðasamlagsins er að annast meðhöndlun úrgangs í sam- ræmi við lög. sisi@mbl.is Kaupir lóð undir gasgerðarstöð  Sorpa borgar 170 milljónir fyrir lóð í Álfsnesi  Tilboð í stöð opnuð fljótlega Morgunblaðið/Frikki Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nú í vikunni verður starfsemi endurhæfingarstöðvarinnar Hæfis í Egilshöll í Reykjavík ýtt úr vör. Þar starfa nú þrír læknar og jafn marg- ir sjúkraþjálfarar, sálfræðingur og félagsráðgjafi – allt fólk sem hefur góða þekkingu á hinum ýmsu þátt- um endurhæfingar. Fagfólk þetta vinnur að verulegu leyti sem þver- faglegt teymi en til Hæfis getur leitað fólk sem þarf þjónustu fag- fólks, ýmist í einstaklings- eða hóp- meðferð. „Við horfum til þess að sinna fólki sem glímir við færni- skerðingu sem getur verið af ýms- um toga. Mikilvægast er að settar séu upp áætlanir fyrir hvern og einn, hvernig sem endurhæfingu og meðferð er annars háttað,“ segir Ása Dóra Konráðsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hæfis. Ása Dóra er sjúkraþjálfari að mennt og á að baki langan starfs- feril, meðal annars á Reykjalundi og hjá Virk – starfsendurhæfing- arsjóði. Alls eru tíu manns nú komnir til starfa hjá Hæfi. Lækn- arnir í þeim hópi eru Guðni Ar- inbjarnar, sérfræðingur í bækl- unarlækningum, Gunnar Kr. Guðmundsson endurhæfingar- læknir og Jósep Ó. Blöndal sem síð- asta aldarfjórðunginn og alveg fram á síðasta ár var yfirlæknir við háls- og bakdeild St. Franciskusspítala í Stykkishólmi. Spilar vel saman Starfsemi Hæfis er í 500 fer- metra plássi í Egilshöll. Þar í hús- inu, sem er alls 32 þúsund fermetr- ar, er margvísleg önnur tengd starfsemi, svo sem líkamsræktar- stöð World Class. Þá er löng inni- göngubraut meðfram stórum yfir- byggðum knattspyrnuvelli í Egilshöll og er hún mikið notuð, ekki síst yfir vetrartímann. Allt ætti þetta að spila vel saman. „Við leggjum mikið upp úr góðu samstarfi við heilsugæsluna og að geta aðstoðað þegar þverfaglegrar nálgunar er þörf. Hér horfum við til þess hóps sem ekki er tilbúinn í starfsendurhæfingu en þarf annars- konar endurhæfingu og utanum- hald. Meðferð þarf að aðlaga að getu einstaklingsins á hverjum tíma. Fólk verður sjálft að ráða ferðinni og vera áfram um samstarf svo vel takist til,“ segir Ása Dóra. Jósep Blöndal segir að starf lækna verði jafnan að byggjast á þverfaglegri nálgun. Góður heim- ilislæknir, svo dæmi sé tekið, þekki sitt fólk, líkamlegt ástand sjúklings, fyrri sjúkdóma og slysfarir, jafnvel ættarsögu, greiningar, meðhöndlun, lyfjanotkun, aðgerðir og svo fram- vegis. Einnig félagslegar aðstæður; hjúskaparstöðu, skólagöngu, fé- lagslíf og fleira – það er hina fjöl- mörgu þætti sem geta gefið vís- bendingar um getu viðkomandi til að takast á við vandamál. „Læknir gefur sjúklingi greinar- góðar upplýsingar um hið sjúklega ástand og forðast að sjúkdómsvæða það með til dæmis ónauðsynlegum lyfjagjöfum og rannsóknum. Traust milli fagaðila og skjólstæðings er lykilatriði og virk þátttaka sjúklings í greiningu og meðferð sömuleiðis,“ nefnir Jósep og segir þetta allt skipta máli þegar langvinnt verkja- ástand er meðhöndlað. Þverfaglegri nálgun hafi verið beitt á háls- og bakdeild St. Franciskusspítala í Stykkishólmi allt frá stofnun henn- ar árið 1992. „Þrjár afturvirkar rannsóknir hafa leitt í ljós góðan árangur af starfseminni, en þegar ég lét af störfum þar í júní síðastliðnum voru á áttunda hundrað manns á biðlista eftir meðferð,“ segir Jósep. Sókn í kerfið verður minni Fagteymi háls- og bakdeildar- innar í Stykkishólmi kvartaði löngum yfir því, segir Jósep, að ekki væri til staðar samsvarandi starfsemi á Reykjavíkur- og Eyjafjarðarsvæðinu og þá gjarnan í göngudeildarformi. Starfsemi Hæfis bæti vonandi úr því að einhverju leyti. „Nálgunin í meðferð hér er að gera viðkomandi kleift að fást við og sigrast á hindrununum af eigin rammleik. Sókn sjúklingsins í heil- brigðiskerfið verður minni, sem dregur úr ónauðsynlegum rann- sóknum, meðferð, lyfjanotkun, skurðaðgerðum og þess háttar. Í upphafi setur fagfólk hér upp grein- ingar- og meðferðaráætlun með raunhæfum markmiðum. Sú áætlun er svo endurskoðuð reglulega og meðal annars metið hvort þörf sé á aðkomu annarra sérfræðinga eða inngripum af einhverju tagi. Þetta módel er núorðið það sem opinberar leiðbeiningar um víða veröld mæla með – og í samfélagi nútímans er mikil þörf á svona meðferð,“ segja þau Ása Dóra Konráðsdóttir og Jósep S. Blöndal að lokum. Sigrast á hindrunum af eigin rammleik  Hæfi hefur starfsemi  Þverfagleg endurhæfing í Egilshöll  Læknar, sjúkraþjálfarar, sálfræð- ingar og fleiri á sömu stöðinni  Sinna bakveikum  Traust milli fagfólks og sjúklings er lykilatriði Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjálfun Starfsemi Hæfis er fjölbreytt og í Egilshöll er komin aðstaða til að sinna ólíkum vanda skjólstæðinga. Læknir Jósep Ó. Blöndal hefur mikið sinnt fólki með háls- og bakvanda og er frumkvöðull hér á landi í endurhæfingu og aðstoð við þann stóra hóp. Hæfi Ása Dóra Konráðsdóttir er framkvæmdastjóri stöðvarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.