Morgunblaðið - 03.01.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALAN ER HAFIN
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Áeinu augnabliki varpartæknin okkur frá einumstað á annan. Ekki efnis-lega en alveg án nokkurs
vafa andlega. Þannig tók Tristan
Elizabeth Gribbin, frumkvöðull og
hugleiðslukennari, blaðamann
Morgunblaðsins úr vinnuherbergi
Sjávarklasans yfir í iðjagræna
náttúru við rætur Snæfellsjökuls.
Kyrrðin var aðeins rofin með ein-
staka náttúruhljóði og upplifunin
var eins og að vera út í guðs-
grænni náttúrunni á fallegum
sumardegi.
„Margir bögglast með byrðar
fortíðarinnar á bakinu á sama
tíma og óráðin framtíðin veldur
fólki áhyggjum og kvíða. Augna-
blikið, þessi stund, þetta einstaka
andartak, verður uppfylling að
áfangastað sem alltaf er á næsta
leiti,“ segir Tristan en sprotafyr-
irtækið hennar Flow hefur skapað
einstakan sýndarheim með per-
sónusniðnum hugleiðsluæfingum
til að bæta andlega líðan notand-
ans og núvitund hans.
„Hugleiðsla hjálpar okkur að
takast á við hraða og spennu nú-
tímaþjóðfélags. Á sama tíma
hjálpar hún okkur að ná einbeit-
ingu og opnar á sköpunarkraft og
hugmyndaflug. Hugmyndin á bak-
við Flow er að gera öllum mögu-
legt að hugleiða, hvort sem er
heima fyrir, í vinnu eða í raun
hvar sem er, enda tekur sýnd-
arveruleikinn þig í nýtt umhverfi
sem hjálpar þér að slaka á og ná
djúpri hugleiðslu.“
Hugleiðsla og vísindin
Margs konar ábata er lofað
með reglulegri hugleiðslu en er
eitthvað meira á bakvið þessa
mörg þúsund ára tækni, annað en
menningararfur frá fornri tíð?
„Ég lærði sjálf mjög ung að
hugleiða og enduruppgötvaði hug-
leiðslu svo aftur um aldamótin en
þá sótti ég hugleiðslunámskeið í
Skálholti. Ávinningurinn hefur því
aldrei verið mér dulinn en nú hafa
vísindin sýnt fram á virkni og
ábata hugleiðslu,“ segir Tristan og
bendir á að sífellt fjölgi rann-
sóknum sem sýni fram á jákvæð
áhrif hugleiðslu á t.d. kvíða, þung-
lyndi og hvers konar streitu-
tengda sjúkdóma.
„Hætt er við að stress og
kvíði verði helsti sjúkdómsvaldur
21. aldarinnar en við höfum verk-
færi í okkar eigin höndum til að
takast á við streituna, kvíðann og
stressið, þ.e. hugleiðsluna. Með
Flow-appinu erum við að hjálpa
fólki að taka skrefið að hugleiða
og hjálpa fólki að skapa aðstæður
þar sem það getur hugleitt.“
Tækni og vísindi hafa því tek-
ið höndum saman við margra alda
hefðir til að hjálpa streituþjáðri
þjóðinni og þjóðum að vinna á
stressi og kvíða.
Veruleiki í sýndarveruleika
Tristan segir að hugleiðsla
geti verið erfið þó hún sé í eðli
sínu ekki flókin. „Hugurinn fer
stundum að reika og við erum
komin um víðan völl í miðri hug-
leiðslu. Þess vegna hafa milljónir
einstaklinga um allan heim leitað
að hugleiðslumyndböndum og leið-
beiningum á netinu eða sækja sér
smáforrit sem leiðir þá í gegnum
hugleiðslur. Ég held að það sé já-
kvætt en ég verð að viðurkenna að
ég var efins um að sýndarveruleiki
gæti hjálpað fólki að hugleiða.“
Fjallganga á Mount Everest
breytti sýn hennar á sýndarveru-
leika. Sjálf hefur hún aldrei geng-
ið á topp þessa hæsta fjalls
jarðarinnar en hún hefur engu að
síður farið leiðina.
„Ég gekk leiðina í sýndar-
veruleika og áttaði mig þá á því
hvaða möguleika þessi nýja tækni
gæti haft í för með sér. Þetta var
ekki lengur bara eitthvert nýtt
leikfang heldur tæki sem hægt
væri að nota til lækninga, t.d. með
hugleiðslu,“ segir Tristan og lýsir
því hvernig upplifunin hafi verið
að standa á toppi Mount Everest
án þess að hafa nokkurn tíma lagt
á sig margra mánaða þjálfun og
hættuför.
„Á hæsta fjalli heims stóð ég
og hugsaði með mér að hér væri
tilvalið að hugleiða. Þannig hófst
vegferðin sem við erum núna á hjá
Flow, en nýlega kom appið okkar
út og geta áhugasamir hlaðið því
niður í snjallsíma og nýtt Google
Náttúra og hugleiðsla í símanum
Hvernig væri að skjótast í nokkrar mínútur frá vinnu
út í iðjagræna náttúruna til að hugleiða? Hvað ef við
gætum gert það án þess að fara nokkurn tíma út úr
húsi? Upp á þetta býður frumkvöðullinn og hugleiðslu-
kennarinn Tristan Elizabeth Gribbin en sprotafyrir-
tækið hennar Flow hefur skapað einstakan sýndarheim
með persónusniðnum hugleiðsluæfingum.
Morgunblaðið/Hari
Tristan Gribbin „Hugleiðsla hjálpar okkur að takast á við hraða og spennu nútímaþjóðfélags.
Sýndarheimur Íslensk náttúra leikur stórt hlutverk í Flow-smáforritinu.
VR-tæknina til að njóta,“ segir
Tristan og bætir við að fólk hafi
fengið að prófa forritið hjá þeim á
nýafstaðinni tónlistarhátíð Sigur
Rósar, Norður og niður.
Heilsutækni og atvinnulífið
Orðið hefur vitundarvakning í
atvinnulífinu að sögn Tristan sem
bendir á að fjöldi fyrirtækja um
allan heim sjái ávinning af hug-
leiðslu starfsmanna og gefi and-
legri heilsu og vellíðan fólks meiri
gaum. Jafnframt séu heilbrigðis-
stofnanir að átta sig á nauðsyn
þessarar aldagömlu tækni og víða
skoði menn möguleika sýndar-
veruleikans.
„Við erum nýlega búin að
kynna Flow í Noregi en þar er
fjárfest töluvert í hvers konar
heilsutækni. Okkar markmið er að
heilbrigðisstofnanir nýti sér
tæknina til að hjálpa sjúklingum
eða heilbrigðisstarfsfólki sjálfu
sem er undir miklu álagi. Sjúk-
lingar og starfsfólk geta komist út
úr sterílu spítalaumhverfi á frið-
sælan og rólegan stað í náttúru
landsins. Þar getur það hugleitt
eða bara látið hugann reika og
slakað á,“ segir Tristan.
Ljóst er að Flow er svo miklu
meira en bara viðskiptahugmynd í
huga Tristan sem geislar af áhuga
og ástríðu fyrir verkefninu enda
segir hún sjálf að markmið Flow
sé að hjálpa fólki að hugleiða,
draga úr streitu og finna sinn
innri frið og ró.
Það er því kannski ekki svo
vitlaus hugmynd og í anda hug-
leiðslu og heimspeki Tristan að
leggja frá sér Morgunblaðið í ör-
litla stund, anda inn með nefinu
og út með munninum og njóta
augnabliksins.
Náttúrufegurð Einn af mörgum stöðum í appinu sem hægt er að dvelja á.