Morgunblaðið - 03.01.2018, Side 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018
VISTVÆNAR
BARNAVÖRUR
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
ÚTSALA
20-80%
PLUSMINUS | OPTIC
afsláttur
af umgjörðum
Ég hef áður birt
greinar í Morg-
unblaðinu um Basslink
sæstrenginn, 9.6.2016
og 19.12.2016. https://
veldi.is/reports/
Hérna er stuðst við
þessar greinar og auk
þess við upplýsingar af
Netinu um nýlega at-
burði sem tengjast
Basslink.
Einnig má hafa í huga að okkar ást-
sæli Jörundur hundadagakonungur
dvaldist á Tasmaníu síðustu 15 ár ævi
sinnar, að vísu í sukki og svínaríi, og
dó þar 1841.
Basslink og Icelink
Basslink sæstrengurinn milli Tas-
maníu og Ástralíu var gangsettur í
ársbyrjun 2006 og hefur því verið í
notkun í 12 ár. Basslink er 290 km að
lengd og var lengsti sæstrengur í
heimi þegar hann var lagður. Streng-
urinn var sagður geta flutt 500 MW af
raforku fram og tilbaka, en allt að 630
MW frá Tasmaníu til Ástralíu. Kap-
alframleiðandinn er Prysmian Group
á Ítalíu. Basslink sæstrengurinn er í
eigu fjárfestingarsjóðs í Singapúr og
er Hydro Tasmania („Landsvirkjun“
Tasmaníu) eini viðskiptavinur þeirra.
Basslink er áhugavert verkefni fyr-
ir Íslendinga vegna frétta af fyrirætl-
unum Landsvirkjunar um að leggja
raforkusæstreng milli Íslands og
Bretlands. Icelink-kapallinn yrði um-
talsvert meiri framkvæmd en Bass-
link, fjórum sinnum lengri og mundi
ná niður á átta sinnum meira dýpi.
Bæði í orkukerfi Íslands og Tas-
maníu er vatnsafl ráðandi.
Bilun í Basslink
Basslink bilaði 20. des. 2015, á 80
metra dýpi. Rifan á varnarkápu kap-
alsins var um 10 cm að lengd og aðrar
skemmdir af völdum ytra hnjasks
ekki sjáanlegar.
Bilunin kom óvænt, á sama tíma og
vatnsmiðlanir í Tasmaníu voru í lág-
stöðu. Þá var þurrkatíð og rennsli
vatnsfalla í lágmarki. Varð af mikil
orkukrísa. Hætt var við að taka niður
stóra gastúrbínu og
fjöldi dísilstöðva í gám-
um var í skyndi fluttur
til Tasmaníu.
Skömmu síðar tókst
að gera gera við Bass-
link með aðstoð kap-
alskips og með gríð-
arlegum tilkostnaði.
Raforkuflutningar hóf-
ust aftur 23. júní 2016
en höfðu þá legið niðri í
sex mánuði.
Af hverju bilaði Basslink og
hver á að borga?
Viðgerðin á Basslink var umfangs-
mikil en kostnaðurinn liggur ekki fyr-
ir opinberlega. Greinargerð sérfræð-
inga frá breska ráðgjafarfyrirtækinu
Cable Consulting International
komst að þeirri niðurstöðu að bilunin
hefði verið óútskýrð og óviðráðanleg
en á tryggingamáli er þetta kallað
,Hönd Guðs!‘ eða á ensku „Act of
God!“. Í framhaldi af því greiddi
tryggingafyrirtækið viðgerðarkostn-
aðinn að fullu auk tekjutaps á bil-
unartímabilinu. Eigandi Basslink
skilaði methagnaði það árið.
Kostnaður Hydro Tasmania vegna
bilunarinnar varð 130 milljónir USD
og til að þurfa ekki að láta almenning
borga þá var reynandi að senda
reikninginn á Basslink-fyrirtækið.
Hydro Tasmania fékk norsk-þýska
ráðgjafarfyrirtækið DNV GL til að
kanna málið og skilaði það grein-
argerð núna rétt fyrir jól eða 20.12.
2017, en 45 mínútum áður fékk Bass-
link-fyrirtækið að sjá drög að grein-
argerðinni.
Niðurstaða DNV GL var að vegna
yfirálags í flutningum frá Tasmaníu
til Ástralíu hefði strengurinn ofhitnað
og brætt af sér hlífðarkápuna. Þetta
er sama skýring og ég stakk upp á í
fyrrnefndum greinum í Morg-
unblaðinu. Eins og við var búist neit-
aði Basslink þessari niðurstöðu greið-
lega. Sagði að DNV GL hefði aðeins
stuðst við fræðilega útreikninga en
hvorki staðfest þá með mælingum né
haft samband við framleiðanda kap-
alsins.
Það er áhugavert að bera saman
ráðgjafarfyrirtækin. Hjá Cable Con-
sulting International á Bretlandi
starfa 2-10 manns en 13000 hjá DNV
GL í yfir 100 löndum. Þarna er því
ólíku saman að jafna, en niðurstaðan
er jafnan verk fáeinna manna.
Búist er við að málaferli muni taka
a.m.k. tvö ár.
Hvað segja menn
í Tasmaníu um Icelink?
Ég hef tekið þátt í spjalli um Ice-
link hjá Tasmanian Times á Netinu.
Hér eru nokkur ummæli, sem þar
komu fram:
„Hljómar eins og hálf aulalegt
skipulag.“ „Ég held að þetta gæti
verið mikið áhættuspil.“ „Í öllum
samningum sem gerðir væru um Ice-
link (ef af framkvæmdum yrði) þyrfti
að koma hlutum þannig fyrir að ís-
lenska ríkið eða fyrirtæki þess bæri
ekki óþarfa ábyrgð ef upp kæmi bilun
í sæstrengnum.“
Niðurstaða
Atburðirnir í Tasmaníu leiða hug-
ann að áhættu, sem er grundvall-
aratriði í rekstri vatnsorkukerfa þar
sem margt getur farið úrskeiðis. Eðli
vatnsorkukerfa er að oftast gerist
ekki neitt, en ef eitthvað kemur upp
á, þá er stutt í stóra áfallið.
Í ljósi reynslunnar af bilun á Bass-
link þá blasir við að ef sams konar bil-
un yrði á Icelink á miklu dýpi úti á
Atlantshafi þá gæti hugsanlega verið
ómögulegt að komast að til viðgerða.
Þá væri eina lausnin að leggja annan
samhliða kapal frá Íslandi til Bret-
lands, en það gæti tekið um þrjú ár og
með gríðarlegum tilkostnaði. Önnur
útfærsla væri þá að leggja tvo kapla
strax í upphafi til vonar og vara.
Þarna þurfa menn að gera sér grein
fyrir bilanalíkum og taka tillit til
þeirra í kostnaðaráætlunum. Reynsl-
an af Basslink-biluninni væri þá gott
veganesti við þá áætlunargerð. Gera
þarf vandaðar áætlanir um kostnað
við verkefnið og birta þær, til að
halda almenningi upplýstum sem
eignar- og ábyrgðaraðila.
Basslink raforku-
sæstrengurinn
Eftir Skúla
Jóhannsson
» Basslink er áhuga-
vert verkefni fyrir
Íslendinga vegna frétta
af fyrirætlunum Lands-
virkjunar um að leggja
raforkusæstreng milli
Íslands og Bretlands.
Skúli Jóhannsson
Höfundur er verkfræðingur.
skuli@veldi.is
Ósló, 28. desember
2017
Herra Davíð
Oddsson,
herra Haraldur
Johannessen,
ritstjórar,
Morgunblaðinu
Reykjavík
Kæru ritstjórar,
ég skrifa ykkur
vegna leiðara sem birtur var í dag-
blaði ykkar hinn 5. desember sl. þar
sem, ásamt öðru, var vísað til
ástandsins í Katalóníu. Í greininni
koma fram fullyrðingar um eðli
dómskerfisins á Spáni sem ég vil
leiðrétta svo að lesendur þínir fái
heildstæðar upplýsingar um ástand-
ið í landi mínu.
Spánn er lýðræðisríki þar sem
enginn er saksóttur vegna stjórn-
málaskoðana sinna, sem allir mega
tjá á hvaða vettvangi sem er. Þeir
aðilar sem fjallað er um í leiðaranum
eru stjórnmálamenn sem hafa haft
fullt frelsi til að verja hugmyndir
sínar um aðskilnaðarstefnu á op-
inberum vettvangi, á landsþingi og
héraðsþingum sem og í fjölmiðlum.
En þessir stjórnmálamenn eru taldir
hafa brotið á stjórnarskránni,
spænskum lögum og með viljandi
hætti óhlýðnast endurteknum skip-
unum stjórnlagadómstólsins. Á
Spáni, eins og í mörgum löndum í
kringum okkur, telst slík hegðun
lögbrot samkvæmt spænskum refsi-
lögum og því er saksótt vegna
þeirra, óháð stöðu sakborningsins.
Eins og í öðrum lýðræðisríkjum er
enginn hafinn yfir lög á Spáni og rík-
isborgarar sem brjóta lög þurfa að
svara fyrir það.
Af þeirri ástæðu hefur valdbær
dómstóll ákveðið að sækja til saka
meðlimi í fráfarandi héraðsstjórn
Katalóníu. Innan valdheimilda rétt-
arins er sá möguleiki að beita var-
úðarráðstöfunum til að málaferli geti
farið fram með viðunandi hætti. Á
meðal slíkra ráðstafanna er – eins og
í flestum lýðræðisríkjum – gæslu-
varðhald fram að réttarhöldum eða
dómsuppkvaðningu. Þessi ráðstöfun
er möguleg þegar ástæða er til að
ætla að sakborningur yfirgefi lög-
söguna, sé líklegur til
frekari brota eða til að
eyða sönnunargögnum.
Valdbær dómstóll telur
að þessar aðstæður séu
fyrir hendi hjá hluta
sakborninga sem er
ástæða þess að þeir eru
enn í gæsluvarðaldi. Sú
staða þeirra kom ekki í
veg fyrir að þeir gætu
boðið sig fram í héraðs-
kosningunum sem fóru
fram þann 21. desem-
ber siðastliðinn. Kosningaréttur
þeirra og kjörgengi eru áfram í fullu
gildi fram að dómsuppkvaðningu.
Ég vil líka benda á að þessum mál-
um er skotið beint til hæstaréttar
vegna friðhelgisstöðu eða „afor-
amiento“ hluta sakborninganna.
Líkt og í mörgum öðrum lýðræð-
isríkjum er „aforamiento“ sérstakt
kerfi sem gildir um háttsett yfirvöld
ríkisins og þingmenn vegna athafna
sem tilkomnar eru vegna starfs-
skyldna þeirra. Markmið með „afor-
amiento“ er einmitt það að veita við-
komandi hámarksvernd með því
viðhalda aðskilnaði valds sem trygg-
ir sjálfstæði dómstóla í skipulagi rík-
isins, og stenst fyllilega samanburð
við önnur Evrópuríki.
Að lokum vil ég minna á að rík-
isstjórn Spánar, með stuðningi 80%
öldungadeildar spænska þingsins,
tók þá ákvörðun að grípa fram fyrir
hendur héraðsstjórnarinnar í Kata-
lóníu í samræmi við spænsku stjórn-
arskrána, sem samþykkt var á sínum
tíma með þjóðaatkvæðagreiðslu með
miklum meirihluta, með það eitt að
markmiði að endurreisa réttarríkið.
Ég vona að þessar upplýsingar
komi lesendum þínum að gagni og ég
yrði þakklát fyrir að þær yrðu birtar
í dagblaði þínu. Með bestu kveðju,
Eftir Maríu Isabel
Vicandi
María Isabel Vicandi
Höfundur er sendiherra Spánar
á Íslandi.
Opið bréf til ritstjóra
Morgunblaðsins
» Spánn er lýðræðisríki
þar sem enginn er
saksóttur vegna stjórn-
málaskoðana sinna, sem
allir mega tjá á hvaða
vettvangi sem er.
Atvinna