Morgunblaðið - 03.01.2018, Síða 58

Morgunblaðið - 03.01.2018, Síða 58
Heilbrigði og heilsa MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2018 Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. E F L IR / H N O T S K Ó G U R Rétta þjálfunin sem veitir vellíðan! Vetrarkortið er komið í sölu - Innritun hafin á öll námskeið! Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Á þessum tíma árs fyllast líkams- ræktarstöðvarnar af vongóðu fólki sem hefur einsett sér að tileinka sér heilbrigðari lifnaðarhætti á nýju ári, stæla kroppinn, brenna burtu spikið og verða bæði hraustari og sterkari. Á nokkrum vikum og mán- uðum gengur þessi bylgja yfir og í mars hafa margir gefist upp og leyfa íþrótta- skónum að safna ryki inni í skáp. Sóley Jóhannsdóttir er einka- þjálfari hjá Reebok Fitness og seg- ir hún að þennan vanda megi eink- um rekja til þess að fólk setti sér ekki nægilega skýr og viðráðanleg markmið og fer því fljótlega að vanta bæði innblástur og aðhald. Að mati Sóleyjar er mikilvægt að fólk hugleiði vandlega þau markmið sem á að ná með líkamsræktinni. „En markmiðasetning getur verið flókin og margir átta sig ekki á því hvað það felur í sér að setja sér markmið. Margir koma til mín og segjast vilja líta út eins og grískur guð, en vita svo ekki hvaða skref þarf að taka til að ná því markmiði smám saman.“ Viðráðanleg markmið Lausnin er að setja mörg skammtímamarkmið sem stefna öll að sama langtímamarkmiðinu. „Það getur tekið hálft ár, heilt ár eða jafnvel lengri tíma að ná þeim ár- angri sem fólk dreymir um, en það má skipta leiðinni þangað í mörg smærri markmið,“ segir Sóley. „Í fræðunum er talað um að þessi markmið þurfi að vera „SMART“, þ.e.a.s. skýr (e. specific), mælanleg (e. measurable), viðráðanleg (e. att- ainable), viðeigandi (e. relevant) og sett fyrir ákveðinn tíma (e. time bound). Sóley bendir líka á að oftast sé ekki nóg að stunda styrktar- og þolæfingar heldur verði líkams- ræktin að haldast í hendur við breytingar á mataræði. „Það hvort bumban er farin eða ekki eftir þrjá mánuði veltur að stórum hluta á því hvernig fólk borðar. Næringin skiptir líka máli fyrir vöxt vöðva, og ef próteinin vantar þá gætu æfing- arnar leitt til þess að vöðvamassinn rýrnar rétt eins og fitumassinn.“ Vöðvaójafnvægið lagað Að stunda líkamsrækt í líkams- ræktarstöð kallar líka á vissa kunn- áttu, og gott að fá leiðsögn þjálfara til að gera æfingarnar rétt. Sóley segir að ef markmiðið er að stækka vöðvana þá sé þumalputtareglan sú að lyfta þyngri lóðum, gera 5-10 endurtekningar og allt að 6 sett. Hún setur þann fyrirvara á þessi ráð að æfingarnar verði að vera fjölbreytilegar, og álagið mismikið á milli daga. „Fyrir byrjendur þarf fyrst af öllu að eiga sér stað leið- réttingarferli því flestir glíma við vöðvaójafnvægi og þurfa bæði að leiðrétta líkamsstöðuna og þjálfa sig í réttum hreyfiferlum. Fyrstu vikurnar og mánuðina má því reikna með að þjálfarinn setji fólki fyrir að lyfta minni þyngdum og gera fleiri endurtekningar en færri sett.“ Sóley segir líka gott að hafa það hugfast að það á ekki við alla að þjálfa sig í líkamsræktarstöðvunum. Það virkar vissulega hvetjandi að takast að ná hverju markmiðinu á fætur öðru en ef það dugar ekki til og tilhugsunin um að hlaupa á bretti eða lyfta lóðum dugar ekki lengur til að draga fólk í ræktina geti verið gott að skoða hvort ann- ars konar hreyfing hittir í mark: „Það er um að gera að prófa sem flest, og gera fleira en að mæta í líkamsræktarstöðina, og brjóta hreyfinguna upp með því t.d. að fara vikulega í sund, taka góða hjól- reiðatúra eða prufa æfingatíma eins og dans-fitness eða crossfit.“ Til að halda dampi í líkamsræktinni ætti að setja mörg, smá og viðráðanleg markmið sem stefna öll í sömu átt. Þeir sem eru að byrja að hreyfa sig þurfa að leiðrétta líkamsstöðu og hreyfiferla áður en ráðist er í að lyfta miklum þyngdum. Morgunblaðið/Ómar Fræði Góð leiðsögn frá flinkum þjálfara getur stytt leiðina að markmiðunum. Mikil vísindi eru að baki því hvernig þjálfa má og stæla líkamann á skilvirkan og skemmtilegan hátt. Morgunblaðið/Ernir Stórsigrunum skipt upp í smærri skref Sóley Jóhannsdóttir Leitin að rétta einkaþjálfaranum Vönduð leiðsögn einkaþjálfara getur veitt fólki hvatningu og stuðn- ing og gert æfingarnar markvissari og árangursríkari. Sóley segir ráðlegt að vanda valið á einkaþjálfara enda ekki um að ræða lög- verndað starfsheiti og geti sérhæfing þeirra, reynsla og menntun ver- ið mjög mismunandi. Stundum kemur líka í ljós að viðskiptavinur og einkaþjálfari eiga ekki samleið. „Það má finna það strax í fyrstu tímunum hvernig fólk nær saman. Einkaþjálfarar hafa mismunandi áherslur og fara ólíkar leiðir í samskiptum og hvatningu, og viðskiptavinurinn ætti líka að gera þjálfaranum sínum ljóst hvort hann vill meira aðhald eða minna.“ Morgunblaðið/Ernir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.