Morgunblaðið - 03.01.2018, Page 84
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 3. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. „Algjör viðbjóður í lokin“
2. Dagatölin „… beint í ruslið“
3. Lampard trúir ekki Eiði Smára
4. Mamma er best klædda kona …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Þrjár leiksýningar ætlaðar börnum
á ýmsum aldri verða frumsýndar um
komandi helgi. Þetta eru Skúmaskot
eftir Sölku Guðmundsdóttur í leik-
stjórn Grétu Kristínar Ómarsdóttur í
Borgarleikhúsinu, Ég get eftir Peter
Engkvist í leikstjórn Björns Inga
Hilmarssonar í Þjóðleikhúsinu og
Galdrakarlinn í Oz í leikgerð Ármanns
Guðmundssonar og leikstjórn Ágústu
Skúladóttur sem Leikhópurinn Lotta
setur upp í Tjarnarbíói. Í næstu viku
frumsýnir Borgarleikhúsið Himnaríki
og helvíti eftir skáldsögum Jóns Kal-
mans Stefánssonar í leikstjórn Egils
Heiðars Antons Pálssonar. Aðra
helgina í janúar frumsýnir Þjóðleik-
húsið Efa eftir John Patrick Shanley í
leikstjórn Stefáns Baldurssonar og
Borgarleikhúsið Medeu eftir Evrípíd-
es í leikstjórn Hörpu Arnardóttur.
Sjöunda frumsýningin í janúar verður
síðan uppfærsla Sokkabandsins á
Lóaboratoríum eftir Lóu Hlín Hjálm-
týsdóttur í leikstjórn Kolfinnu Niku-
lásdóttur í Borgarleikhúsinu.
Morgunblaðið/Golli
Sjö leiksýningar
frumsýndar í janúar
Árlegir stórtónleikar Rótarý á Ís-
landi verða haldnir í Norðurljósasal
Hörpu á sunnudaginn kemur og að
vanda verða veglegir styrkir veittir
framúrskarandi tónlistarfólki sem er
við það að ljúka háskólanámi. Aðal-
gestir á tónleikunum eru
þau Ólafur Kjartan Sig-
urðarson barítón-
söngvari og Helga
Bryndís Magn-
úsdóttir píanó-
leikari og flytja
þau fjöl-
breytta
efnisskrá.
Árlegir stórtónleikar
Rótarý í Hörpu
Á fimmtudag Austan 8-15 m/s en 15-23 syðst á landinu og við
Öræfajökul. Él um landið austanvert en bjartviðri vestantil. Frost 0
til 7 stig en rétt ofan frostmarks við suðurströndina.
VEÐUR
Íþróttamaður ársins 2017,
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
úr Golfklúbbi Reykjavíkur,
mun hefja keppnistímabilið
á bandarísku LPGA-
mótaröðinni á sama stað og
í fyrra eða á Bahamaeyjum.
Pure Silk-mótið verður eins
og í fyrra fyrsta mótið á
keppnistímabilinu. Mótið
stendur frá 25. til 28. jan-
úar. Óvíst er á hvaða mót
Ólafía Þórunn fer eftir Pure
Silk-mótið. »1
Byrjar árið á Ba-
hamaeyjum
Undirbúningur Argentínumanna fyrir
heimsmeistarakeppnina í knatt-
spyrnu þar sem þeir mæta Íslend-
ingum í fyrsta leik hófst í gær þegar
þjálfarinn Jorge Sampaoli hélt til
Barcelona til að ræða við Lionel
Messi. Hann verður síðan í Evrópu
allan jan-
úarmánuð til
að fylgjast
með sínum
mönnum á
Spáni, Eng-
landi, Ítalíu
og Frakk-
landi og
ræða við
þá um
verk-
efnið
fram-
undan. »1
Argentínski þjálfarinn
af stað í leiðangur
„Mér þykir afar skemmtilegt að fá
að taka þátt í þessu verkefni og sjá
yngri leikmenn vaxa og dafna,“
segir Guðjón Valur Sigurðsson, fyr-
irliði íslenska landsliðsins í hand-
knattleik og leikreyndasti leik-
maður þess um þessar mundir.
Íslenska landsliðið hefur leik á EM í
Króatíu eftir níu daga og þar verð-
ur Guðjón Valur í eldlínunni. »3
Gaman að sjá þá yngri
vaxa og dafna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Víða má finna Íslendinga og á Jamaíku heldur
Ingibjörg Lára Hjartardóttir merkinu á lofti. „Ég
er eini Íslendingurinn sem býr hérna, eftir því
sem ræðismaðurinn segir,“ segir hún.
Ingibjörg sér um innri endurskoðun og verk-
ferla hjá lúxushótelkeðju, sem rekur 19 hótel með
um 5.700 hótelherbergjum á sjö eyjum í Kar-
íbahafinu með höfuðstöðvar í Montego Bay á
Jamaíku. Annars vegar eru það Sandals-hótelin,
sem eru eingöngu fyrir pör, og hins vegar
Beaches-hótelin fyrir fjölskyldur. Hún hefur unn-
ið hjá fyrirtækinu í þrjú og hálft ár og er ekki viss
um hvert hún fer næst. „Ég hef búið á Íslandi, í
Svíþjóð, Kanada, Sviss, á Englandi og Jamaíku
og mig langar aftur til Evrópu, sérstaklega til
Sviss, en Kanada, Hong Kong og Singapúr eru
líka spennandi kostir til skemmri tíma, því þaðan
er hægt að ferðast til nálægra áhugaverðra
staða.“
Víðtæk reynsla
Reynsla Ingibjargar í hótelgeiranum er víðtæk.
Hún lærði til þjóns á Hótel Óðinsvéum og vann
þar m.a. líka í gestamóttökunni, í uppvaskinu og
við herbergisþrif. „Bjarni í Brauðbæ átti staðinn
og því fékk ég tækifæri til að vinna á öðrum stöð-
um hans; í Perlunni, úti í Viðey, í opinberum
veislum og víðar.“ Hún ferðaðist um Frakkland
og Ástralíu í þeim tilgangi að læra um vín en varð
ástfangin af breskum manni og flutti til Englands
til að búa með honum. „Þá hætti ég í hótel- og
veitingabransanum og vann fyrst hjá BBC og svo
í um átta ár hjá arkitektafyrirtæki sem sérhæfir
sig í hönnun lúxushótela úti um allan heim. Fór
víða og vann að viðskiptum við helstu hótelkeðjur
í heimi ásamt því að læra viðskiptafræði.“ Þaðan
lá leiðin í MBA-nám í hótelskóla í Sviss og að því
loknu réðst hún til bandarískrar hótelkeðju og
var hluti af opnunarteymi fyrsta hótels keðjunnar
í London. Síðan flaug hún til Jamaíku. „Ásamt því
að stýra innri endurskoðunarteyminu sé ég um
alla þjónustusamninga, vinn mikið með innkaupa-
deildinni og lögfræðideildinni og er með um 30
samninga á borðinu hverju sinni. Ég hef því nóg
að lesa og er komin með fleiri en ein lesgleraugu.“
Hún er ekki aðeins á ferð og flugi í vinnunni
heldur hleypur mikið í frítímanum, m.a. 1.300 km
í fyrra. Þá tók hún þátt í New York-maraþoninu
og fjórum hálfmaraþonum í jafnmörgum borgum.
„Ég meiddist og hef því aðeins hlaupið 130 kíló-
metra í ár en verð vonandi með í nokkrum hálf-
maraþonum á nýju ári, held áfram að ferðast og
hlaupa.“
Ingibjörg er einhleyp og barnlaus og segir
starfið varla bjóða upp á annað. Auk þess bendir
hún á að ekki sé gott að ala upp börn á Jamaíku.
Vísar meðal annars á menntakerfið, heilbrigðis-
kerfið, matarúrvalið, öryggisaðstæður og ýmsa
þjónustu í því sambandi. „Eftir að hafa búið á
svona stað lengi lærir maður að meta hvað það er
gott að alast upp í hinum vestræna heimi,“ segir
hún.
Íslensk ævintýrakona á
ferð og flugi um heiminn
Langhlaupari Ingibjörg Lára Hjartardóttir fagn-
ar við marklínuna í New York-maraþoninu.
Ingibjörg Lára Hjartar-
dóttir er eini starfandi
Íslendingurinn á Jamaíku
Kafari Ingibjörg er mikill útivistarunnandi og
lætur sér ekkert óviðkomandi.
Náttúran Í Black River á Jamaíku eru friðaðir
krókódílar og Ingibjörg hefur yndi af þeim.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 5-13 m/s, en 10-18
m/s við SA-ströndina. Lítilsháttar él um landið austanvert en bjart-
viðri vestantil. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum N-lands.