Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 14. tölublað 106. árgangur
SKÖPUN YNGRI
OG ELDRI
SNILLINGA AF HINSEGIN HULDUKONUM
ÍSLENSKUM
DJASSI DREIFT
Í ÞÝSKALANDI
HEIMILDUM SAFNAÐ OG MIÐLAÐ 12 JAZZTHETIK 39KOM SKAPARI 38
Vísindamenn Íslenskrar erfðagrein-
ingar (ÍE) hafa raðað saman erfða-
mengi Hans Jónatans. Hann fæddist
árið 1784 og var fyrsti svarti mað-
urinn sem settist að á Íslandi, svo
vitað sé. Vísindatímaritið Nature
Genetecis birti grein um þetta afrek
vísindamanna ÍE í fyrradag. Þar er
því lýst hvernig tókst að raða saman
erfðamengi Hans Jónatans úr bútum
af litningum 182 afkomenda hans.
„Þetta er í fyrsta skipti sem tekist
hefur að sækja erfðamengi löngu lát-
ins manns,“ sagði í tilkynningu ÍE.
Fréttin vakti mikil viðbrögð víða.
„Munurinn á afríska erfðameng-
inu og því íslenska er svo stór. Ef
maður raðgreinir erfðamengi Ís-
lendings og kemur allt í einu inn í
þessa afrísku búta þá er það svo auð-
sætt. Það er enginn smámunur,“
sagði Kári Stefánsson, forstjóri ÍE.
Gísli Pálsson, prófessor og höf-
undur bókar um Hans Jónatan,
sagði að vinna Íslenskrar erfða-
greiningar við að raða saman erfða-
efni sem Hans Jónatan fékk frá móð-
ur sinni væri afrek. »11
Afrek í erfðarannsókn
Vísindamenn ÍE sóttu í fyrsta sinn erfðamengi látins manns
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Djúpivogur Hans Jónatan var þar
verslunarmaður og fjölskyldufaðir.
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik er á heim-
leið frá Króatíu eftir að það náði ekki að komast í
milliriðil Evrópukeppninnar í lokaumferð A-riðils í
Split í gærkvöld. Ísland missti niður fjögurra marka
forystu gegn Serbum í seinni hálfleik og tapaði fyr-
ir þeim, 26:29, þegar upp var staðið. Örlögin réðust
síðar um kvöldið þegar Svíar unnu öruggan sigur á
Króötum, 35:31, en króatískur sigur hefði tryggt Ís-
landi áframhaldandi þátttöku á mótinu. Svíar, Kró-
atar og Serbar halda áfram úr riðlinum. Íþróttir
Ljósmynd/Uros Hocevar
Allt fór á versta veg í lokaumferðinni
Þátttöku karlalandsliðsins í handbolta á EM í Króatíu er lokið
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Í fyrra fóru 31.000 Íslendingar í rannsókn á
stöðu D-vítamíns í líkamanum. Er það átt-
föld aukning frá árinu 2010 þegar 4.000 ís-
lendingar létu athuga D-vítamínið hjá sér.
Hver rannsókn kostar 2.000-3.000 krónur
þannig að á árinu
2017 var eytt um
70 milljónum í D-
vítamínrannsóknir.
Ari Jóhannesson
læknir segir að það
sé fínt að það sé
vakning í D-víta-
míninu en þessi
fjöldi sem hafi látið
athuga það hjá sér
í fyrra sé sláandi
dæmi um ofrann-
sóknir. „Það er við
hæfi að mæla það
hjá ákveðnum
sjúklingahópi en
hjá almenningi
ætti ekki að þurfa
þess. Ef fólk tekur það eins og á að gera eru
langflestir með eðlilegt gildi í blóðinu og
ættu ekki að þurfa mælingu til að finna það
út. Það gefur síðan augaleið að þeir sem
taka ekki D-vítamín mælast með lág gildi,“
segir Ari sem veltir upp spurningunni
Rannsökum við of mikið? á Læknadögum í
dag.
Ari segir sjúklinga oft hafa óraunhæfar
væntingar um rannsóknir, að þær skipti
meira máli en sjúkrasaga og skoðun læknis.
Þá vinni læknar oft í tímaþröng og hafi ekki
nægan tíma til að vanda sjúkrasögu og
skoðun og þá sé freistandi að panta bara
rannsóknir. „Það er ekki réttur sjúklings að
biðja um hinar og þessar rannsóknir, sem
eru jafnvel mjög dýrar, nema það sé klínísk
ábending fyrir því.“
Ofrann-
sökum
D-vítamín
31.000 manns létu
athuga það í sér í fyrra
Ofrannsókn
» 31.000 Íslend-
ingar létu at-
huga í sér D-
vítamínið í fyrra
sem er um átt-
föld aukning frá
2010.
» Sláandi dæmi
um ofrannsóknir
að sögn læknis.
Rannsökum við
of mikið?
MSjúkrasaga og skoðun … »16
Fjölgun íbúa, gott efnahags-
ástand og eftirspurn eftir leigu-
íbúðum hafa þrýst á fasteignaverð
á Akureyri. Fyrir vikið hefur raun-
verð á fermetra í fjölbýli á Akur-
eyri aldrei verið jafn hátt. Það var
um 330 þúsund á þriðja fjórðungi
2017 sem er um 35 þús. kr. hærra á
föstu verðlagi en 2006 og 2007.
Þetta kemur fram í greiningu
Magnúsar Árna Skúlasonar, fram-
kvæmdastjóra Reykjavík
Economics, fyrir Íslandsbanka.
Magnús Árni segir meginþorra
kaupsamninga á Akureyri hafa ver-
ið undir 35 milljónum króna á tíma-
bilinu frá apríl 2016 til mars 2017,
eða 76% kaupsamninga. Það sé mun
hagstæðara verð en til dæmis á
höfuðborgarsvæðinu. »10
Verð íbúða á Akur-
eyri aldrei hærra
Akureyri Atvinnuástandið er gott nyrðra.
Töluvert aukaálag myndaðist á
Landspítalanum í gær í kjölfar þess
að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
lýsti því yfir að jarðvegsgerla væri
að finna í neysluvatni í Reykjavík.
Starfsfólk Landspítalans stóð í
ströngu í fyrrinótt og gærdag við
það að sjóða vatn fyrir sjúklinga.
„Við þurftum að sjóða mjög mikið
af vatni og kæla það til að hafa það
tilbúið fyrir sjúklingana,“ segir
Bylgja Kjærnested, deildarstjóri
hjartadeildar Landspítalans.
Stjórnskipuð samstarfsnefnd um
sóttvarnir tilkynnti í gær að nið-
urstöður mælinga gæfu ekki tilefni
til að ætla að hætta væri á heilsu-
farslegum afleiðingum við neyslu
vatns á svæðinu. Veitur ohf. munu
taka sýni áfram næstu daga. »6
Stóðu í ströngu á
Landspítalanum
Laxar fiskeldi ehf. hyggst auka
framleiðslu á laxi í Reyðarfirði um
tíu þúsund tonn. Fyrirtækið hefur
nú starfs- og rekstrarleyfi fyrir sex
þúsund tonna framleiðslu á ári
hverju og við aukninguna verður
heildarframleiðslan samtals 16.000
tonn á ári. Hefur fyrirtækið lagt
fram frummatsskýrslu um mat á
umhverfisáhrifum vegna þessa.
Áætlanir fyrirtækisins gera ráð
fyrir því að laxeldið hefjist á þessu
ári. „Mikilla upplýsinga hefur verið
aflað um náttúru og umhverfi í
Reyðarfirði á
undanförnum ár-
um og viðbót-
arrannsóknir
hafa verið gerð-
ar,“ segir í
skýrslunni og
jafnframt að stoð-
ir atvinnulífs í
Fjarðabyggð
muni styrkjast
með tilkomu fjöl-
breyttara atvinnulífs og hærra at-
vinnustigi. »16
Auka framleiðsluna
um tíu þúsund tonn
Lax Stór áform
fyrir austan.