Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 17. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Miklar tafir á umferð vegna slyss
2. Ísland tapaði og bíður örlaga sinna
3. Eignuðust 13 börn vegna „vilja Guðs“
4. Hrundi úr lofti Primera-vélar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Ljósmyndahátíð Íslands, sem hald-
in er á tveggja ára fresti í samstarfi
Félags íslenskra samtímaljósmynd-
ara og safna á höfuðborgarsvæðinu,
hefst á morgun með fyrirlestri Louise
Wolthers frá Hasselblad-stofnuninni í
Þjóðminjasafninu og stendur út
helgina. Fjölbreytilegar sýningar
verða opnaðar; á föstudagskvöld í
Gerðarsafni samsýningin Líkamleiki,
með verkum 18 listamanna, og á
laugardag nokkrar, þar á meðal í
Þjóðminjasafni; Langa blokkin í Efra-
Breiðholti, með ljósmyndum Davids
Barreiros, samsýningin Þessi eyja
jörðin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
og sýning á verkum hins þekkta
danska ljósmyndara Astrid Kruse
Jensen í Sverrissal Hafnarborgar.
Ýmislegt fleira er á dagskrá hátíð-
arinnar, svo sem ljósmyndarýni er-
lendra og innlendra sérfræðinga og
uppboð á verkum samtímaljósmynd-
ara til styrktar útgáfu bókar um ljós-
myndasögu.
Fjölbreytileg ljós-
myndahátíð hefst
Aðalheiður Guðmundsdóttir, pró-
fessor í bókmenntum fyrri alda við Há-
skóla Íslands, heldur á morgun,
fimmtudag, kl. 16.30 fyrirlestur í Lög-
bergi um norðurljós í ís-
lenskum heimildum.
Þær eru af ólíku
tagi hvort sem um
er að ræða nátt-
úrulýsingar, þjóð-
trúarsagnir eða
rómantískar
náttúrumyndir í
skáldskap.
Fjallar um norður-
ljósin í heimildum
Á fimmtudag Norðaustan 5-13 m/s og snjókoma eða él norðan-
og austantil á landinu, en bjartviðri að mestu á suðvesturhorninu.
Frost víða 0 til 7 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-18 m/s og snjókoma norðan-
til á Vestfjörðum. Mun hægari vindur annars staðar og stöku él.
Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum.
VEÐUR
Álitsgjafar Morgunblaðsins
voru sammála um að
frammistaða Íslands í loka-
leik sínum á Evrópumótinu í
handknattleik hefði verið
gríðarleg vonbrigði. Það
hefði hreinlega verið erfitt
að horfa upp á það. Þau
fóru um víðan völl í skoð-
unum sínum um framhaldið
hjá liðinu og telja að breyt-
inga gæti verið að vænta úr
herbúðum HSÍ hvað
þjálfaramál varðar. »1
Niðurstaðan gríð-
arleg vonbrigði
Tvær landsliðskonur í knattspyrnu
njóta nú liðsinnis leikmannasamtaka
á Íslandi og Ítalíu við að fá samn-
ingum sínum við ítalska félagið Ver-
ona rift. Verona mun ekki hafa staðið
við gerða samninga við þær Berglindi
Björgu Þorvaldsdóttur og Örnu Sif
Ásgrímsdóttur, sem gengu í
raðir félagsins síðastliðið
haust. »4
Landsliðskonur reyna
að fá samningum rift
Gróttukonur eru loksins komnar með
sinn fyrsta sigur í Olísdeild kvenna í
handbolta. Þær höfðu betur á heima-
velli gegn Fjölni í 13. umferðinni í
gærkvöldi, 24:22, og tryggðu sér
langþráðan og mikilvægan sigur. Lið-
in eru nú jöfn með fjögur stig í tveim-
ur neðstu sætum deildarinnar, einu
stigi á eftir Selfossi, og stefnir í
spennandi fallbaráttu. »4
Langþráður og mikil-
vægur sigur Gróttu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sveinbjörn Dýrmundsson hefur
sannreynt að lengi lifir í gömlum
glæðum í tónlistarbransanum í
Bretlandi og vill kalla saman eldri
tónlistarmenn hérlendis með sama
hætti og gert er í Stockport og víð-
ar.
Mikil gróska var í alþjóðlegu
tónlistarlífi á sjöunda áratug nýlið-
innar aldar og hljómsveitir í anda
hinna einu og sönnu Bítla, The
Beatles, spruttu upp eins og gor-
kúlur. Á þessum tíma fékk Svein-
björn bassagítar í fermingargjöf
og þá varð ekki aftur snúið.
„Ég hef verið í þessum bransa
síðan, í yfir hálfa öld, spilað í fjölda
hljómsveita víða um land og kynnt
mér ensku tónlistarsöguna á vett-
vangi undanfarin ár,“ segir hann.
Bætir við að eftir að hafa verið
kennari í 40 ár og kennt meðal
annars samfélagsfræði, þar sem
hann hafi farið inn á tónlistarsög-
una, hafi hann byrjað að velta fyrir
sér hvar gömlu goðin væru, sér-
staklega tónlistarmenn sem voru í
böndum sem komu til Íslands.
„Þetta voru bönd eins og Swinging
Blue Jeans, Hollies, Searchers og
Herman’s Hermits. Í kjölfarið
komst ég í samband við Derek
Quinn, gítarleikara Freddie and
the Dreamers, og það varð til þess
að við hjónin heimsóttum hann í
Manchester. Með okkur tókst góð-
ur kunningsskapur og undanfarin
ár höfum við farið árlega, nú síðast
í október, á tónlistarhátíð í Stock-
port, sem Quinn og Mike Sweeney,
söngvari og útvarpsmaður hjá
BBC, hafa staðið að. Þarna koma
saman gamlir tónlistarmenn og
hugsanlega fæ ég að spila þar á
hátíðinni í haust.“
Frægir tónlistarmenn
Í þessum ferðum hefur Svein-
björn kynnst mörgum tónlistar-
mönnum, sem gerðu garðinn fræg-
an á árum áður. Þar á meðal eru
Eric Haydock, bassaleikari Holl-
ies, Pete Maclaine, sem hafnaði
boði Bítlanna um að semja lög fyr-
ir bandið, John Mepham, fyrrver-
andi bassaleikari Fourtones, Dave
Berry, söngvari The Cruisers, og
Ray Ennis, aðalsöngvari og gítar-
leikari The Swinging Blue Jeans.
„Ray Ennis er 77 ára gamall en
það er ekki að heyra á söngnum og
þessir menn hafa engu gleymt,“
segir hann.
Sveinbjörn segir að það hafi ver-
ið uppbyggjandi að hitta þessa
gömlu kappa. „Ég er ekki með
stjörnur í augunum en hef fengið
söguna beint í æð,“ segir hann og
bætir við að til dæmis sé líklegt að
liðsmenn úr bandinu Dave Dee,
Dozy, Beeky, Mick & Tich spili á
hátíðinni í haust. „Þá hef ég hug á
að vera með og síðan hef ég áhuga
á að efna til sams konar tónleika
hérlendis,“ heldur hann áfram.
Segist ætla að tala við gamla popp-
ara um þetta með það í huga að
kalla saman tónlistarmenn sem
voru áberandi á sjöunda áratugn-
um og blása til hátíðar.
Áður en gítarinn kom til sög-
unnar var Sveinbjörn í harmoniku-
námi hjá Karli Jónatanssyni. „Þeg-
ar bítlaæðið skall á með miklum
þunga varð harmonikan hallæris-
leg og ég sneri mér að bassanum.
Sé reyndar eftir því að hafa hætt
með nikkuna, en gítarinn fylgir
mér.“
Lengi lifir í gömlum glæðum
Popparar verða alltaf popparar Vill koma á hátíð eldri tónlistarmanna
Vinahjón Í heimsókn á Englandi. Frá vinstri: Derek Quinn, María Guð-
brandsdóttir, Jackie, eiginkona Dereks, og Sveinbjörn Dýrmundsson.
Í Stockport Frá vinstri: John Mepham, Sheila, kona hans, Sonja Lind Svein-
björnsdóttir, María og Sveinbjörn á góðri stundu.