Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018
Leitar þú að traustu
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Lífslíkur bílsins margfaldast
ef hugað er reglulega
að smurningu.ENGAR
tímapantanir
MÓTORSTILLING
fylgir fyrirmælum
bílaframleiðanda um
skipti á olíum og síum.
Samningurinn verði endurskoðaður
Kjartan vill átak í samgöngumálum í Reykjavík Enginn samningur er til, segir borgarstjóri
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Meirihluti borgarstjórnar samþykkti
á fundi sínum í gær að vísa til borg-
arráðs tillögu Kjartans Magnússon-
ar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, um að óska eftir endurskoðun á
samgöngusamningi ríkisins og
Reykjavíkurborgar með það að
markmiði að farið verði í stórfram-
kvæmdir í samgöngumálum í
Reykjavík með umferðaröryggi og
arðbærni að leiðarljósi.
Sem kunnugt er samþykkti
Reykjavíkurborg árið 2013 að árlegt
eins milljarðs króna framlag ríkisins
til vegamála í borginni rynni þess
heldur til almenningssamganga og
eflingar þeirra. Samningur um þetta
við ríkið gildir fram til ársins 2022.
Svæft og drepið á dreif
„Líklega fer tillagan til borgarráðs
í þeim tilgangi að svæfa hana þar og
drepa málinu á dreif,“ sagði Kjartan
Magnússon í samtali við Morgun-
blaðið. Ljóst sé að borgarfulltrúar
meirihlutans vilji ekki endurskoða
samninginn með umferðaröryggi og
arðbærni að leiðarljósi. Sem fyrr
styðji Sjálfstæðisflokkurinn að Reyk-
víkingar eigi val um ólíka samgöngu-
kosti um leið og stuðlað er að auknu
umferðaröryggi allra vegfarenda,
hvort sem þeir nota almenningssam-
göngur, bifreiðir, hjól eða fara ferða
sinna gangandi.
Í umræðum í borgarstjórn í gær
sagði Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri um tillögu Kjartans að til væri
samningur um eflingu almennings-
samgagna milli ríkisins og allra sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu, en
aðrir samningar ekki. Þá mætti
minna á að unnið hefði verið gegn
flöskuhálsum í samgöngukerfinu í
samvinnu sveitarfélaga og Vegagerð-
ar. Gerð hefði verið úttekt á 51 gatna-
mótum í borginni svo umferð gæti
orðið greiðari, til dæmis með skilvirk-
ari ljósastýringu eða framkvæmdum
þegar við ætti. Hvað varðar sam-
gönguverkefni og fjármögnun þeirra
sagði borgarstjóri að samningur ríkis
og sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu væri nú í endurskoðun, sbr.
ákvæði um slíkt sem miðaðist við 1.
apríl næstkomandi. Ýmislegt væri
þar í deiglu. Borgarlína væri lykilat-
riði til að bæta samgöngukerfið og af
öðrum framkvæmdum sagðist borg-
arstjóri vera áhugasamur um að
leggja Miklubraut í stokk á 1,5 km
löngum kafla milli Snorrabrautar og
Kringlumýrarbrautar.
Ná samstöðu um stórátak
„Það stendur ekki til að svæfa til-
lögu borgarfulltrúans þótt henni sé
vísað til umfjöllunar í borgarráði
heldur felst í því tækifæri til að ná
breiðri samstöðu um það stórátak í
innviðafjárfestingu sem þarf að verða
að veruleika á næstu árum í þágu
samgöngumála höfuðborgarsvæðis-
ins,“ sagði Dagur í samtali við Morg-
unblaðið.
Dagur B.
Eggertsson
Kjartan
Magnússon
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoð-
armaður Páls Matthíassonar, for-
stjóra Landspít-
ala, segir að mjög
mörg hálkuslys
að undanförnu
hafi orðið til þess
að Landspítali
hafi þurft að
fresta ákveðnum
fjölda aðgerða.
Framkvæma hafi
þurft ótrúlega
margar bráða-
aðgerðir að und-
anförnu vegna hálkuslysa. Á þessum
árstíma sé álagið hvað mest á spít-
alanum.
„Á þessum árstíma þurfum við því
miður stundum að grípa til þeirra
ráðstafana að fresta aðgerðum. Í
gær (mánudag – innskot blm.) var al-
veg geysilegt álag á spítalanum því
sjúklingar streymdu hingað með
hvers kyns vandamál og bráða-
vandamál sem þegar þurfti að
leysa,“ sagði Anna Sigrún í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Ömurlegt að þurfa að fresta
Morgunblaðið hafði fregnir af
manni sem átti að fara í hnjáskipta-
aðgerð í fyrradag. Hann var þaul-
undirbúinn fyrir aðgerðina af hálfu
Landspítala í síðustu viku, en þegar
til átti að taka á mánudag var honum
tilkynnt að aðgerðinni hefði verið
frestað og reynt yrði að gera hana í
næstu viku.
Anna Sigrún var spurð hvort það
kæmi ekki óþægilega við þá sem
lenda í því að aðgerð sem ákveðin
hefur verið er frestað: „Jú vitanlega
er það ömurlegt þegar við þurfum að
fresta aðgerðum, sem hafa verið
ákveðnar. Við reynum í lengstu lög
að fresta ekki en stundum komumst
við því miður ekki hjá því. Við gerum
hvað við getum til þess að minnka
biðina hjá sjúklingum og fækka
frestunum,“ sagði Anna Sigrún.
Verða að fresta aðgerðum
Geysilega mikið álag er á Landspítala á þessum árstíma
Anna Sigrún
Baldursdóttir
Álag Mikið álag er á Landspítala
þessa dagana og aðgerðum frestað.
„Vinnan hefur
gengið vel fram
til þessa og sam-
skiptin við bresk
stjórnvöld eru
góð. Það er mik-
ilvægt að vinna
þetta örugglega
og þétt,“ segir
Guðlaugur Þór
Þórðarson utan-
ríkisráðherra um
vinnu við mat á stöðu Íslands vegna
Brexit, útgöngu Breta úr Evrópu-
sambandinu. Staðan var rædd á
fundi ríkisstjórnarinnar í gær.
„Það eru fimm vinnuhópar að
störfum og þeir munu skila af sér
greiningu á hagsmunum okkar um
miðjan mánuðinn. Í kjölfarið mun
samtal okkar við Breta halda
áfram,“ segir ráðherrann sem segir
algjöra samstöðu um mikilvægi
þessarar vinnu í ríkisstjórninni.
„Við höfum skipt þessu upp í þrjá
hluta. Í fyrsta lagi það sem snýr að
útgöngunni og þar vinnum við bæði
með Bretum og EES-löndunum til
að sjá til þess að það verði ekki nein-
ir hnökrar á ef það skapast millibils-
ástand. Fasi tvö er framtíðarsam-
komulag milli ríkjanna en þar viljum
við tryggja að samskipti okkar á
sviði viðskipta og annarra sviða
verði ekki minni en nú er. Í þriðja
lagi snýr þetta að varúðarráðstöf-
unum ef ekki nást samningar.“
hdm@mbl.is
Brexit
rætt í rík-
isstjórn
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Vinna í gangi
Vegna veðurs varð nokkur röskun á innanlandsflugi í gær. Akureyrarflug
lá niðri fram eftir degi og á Ísafjörð hefur ekki verið flogið síðan á laugar-
dag. Í hraglanda á Reykjavíkurflugvelli setti fólk raunar hausinn undir sig
þegar það fór milli flugvélar og húsa. „Svona er algengt í janúar; þá er
allra veðra von, sem hefur áhrif í fluginu,“ sagði Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Air Iceland Connect, í samtali við Morgunblaðið.
Í dimmum hraglanda á Reykjavíkurflugvelli
Morgunblaðið/Árni Sæberg