Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Alls voru 24.340 útlendingar á vinnu- markaði hér á landi í fyrra og hafa aldrei verið fleiri. Fjölgaði þeim um- talsvert frá árinu 2016 en þá voru þeir 20.605. Pólverjar eru sem fyrr fjölmennastir útlendinga á vinnu- markaði hér, alls 10.766 í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Vinnu- málastofnunar um vinnuafl 16-69 ára og þróun þess. Alls voru 196.587 á vinnumarkaði í fyrra. Hlutfall út- lendinga á vinnumarkaði var 12,4% en var 10,6% árið 2016. Mun fleiri útlendingar eru við störf á Íslandi nú en á árunum fyrir efnahagshrunið 2008. Það ár voru 18.167 útlendingar á vinnumarkaði á Íslandi eða 9,9% alls vinnuafls. Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, segir að töl- urnar fyrir 2017 séu reiknaðar út frá búferlaflutningum og áætlaðar út frá fyrstu þremur ársfjórðungunum. Hann segir að fjölgun útlendinga hér hafi verið hröð að undanförnu. „Við gerum ráð fyrir því að það hægi svolítið á þessu í ár og á næsta ári enda er þenslan að minnka,“ segir Karl. Í nýju yfirliti Vinnumálastofnunar kemur fram að skráð atvinnuleysi í desember var 2,2% og jókst um 0,1 prósentustig frá því í nóvember. Gert er ráð fyrir auknu atvinnuleysi í janúar og febrúar, á bilinu 2,2- 2,4%, enda gæti þá árstíðasveiflu í greinum á borð við mannvirkjagerð, verslun og flutninga. Sé rýnt í tölur um atvinnuleysi í desember kemur í ljós að atvinnu- leysi minnkar milli ára hjá konum, er 0,4 prósentustigum minna en í desember 2016, en eykst lítið eitt meðal karla, eða um 0,1 prósentu- stig. Aldrei fleiri útlendingar á vinnumarkaði  Ríflega 24 þúsund útlendingar á vinnumarkaði  2,2% atvinnuleysi hér Morgunblaðið/Hari Vinnumarkaður Útlendingum á vinnumarkaði fjölgaði mikið milli ára. Alls voru 24.340 útlendingar á vinnumarkaði í fyrra og hafa aldrei verið fleiri. Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi í gær að veita 10 milljóna framlag vegna afmælisdagskrár á vegum sendiráðanna í Kaupmannahöfn og Berlín í tilefni 100 ára afmælis full- veldis Íslands. Styrkurinn er veitt- ur af ráðstöfunarfé ríkisstjórnar- innar. Sendiráðin í báðum löndum hafa lagt drög að umfangsmikilli dagskrá. „Það skiptir auðvitað máli að við vekjum athygli á þessum merku tímamótum í sögu þjóðarinnar. Það er viðeigandi að gera það í Dan- mörku enda held ég að samskipti Íslands og Danmerkur séu gott dæmi um það hvernig þjóðir eiga að greiða úr sínum málum. Við höf- um átt og munum eiga að vinum frændur okkar Dani og þeir munu taka þátt í því að minnast þessa áfanga,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Dönsk stjórnvöld munu minnast tímamótanna með viðburðum á fræða- og menningarsviðinu, með þátttöku forseta Íslands, auk þess sem Margrét Danadrottning hefur þegið boð forseta Íslands um þátt- töku í hátíðahöldum hér hinn 1. desember. hdm@mbl.is Morgunblaðið/Golli Skál! Forseti Íslands og Dana- drottning munu fagna í desember. Afmælinu líka fagnað úti í heimi  Fullveldishátíð í Köben og Berlín Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Tugir björgunarsveitarmanna fóru á Mosfellsheiði í gær þegar tvær rútur festust þar, þveruðu veginn og lokuðu honum. Rúmlega 50 far- þegar voru í rútunum auk fólks sem var á smábílum. Það var mann- skapur úr björgunarsveitunum á Laugarvatni, úr Grímsnesi og frá Eyrarbakka, Selfossi og úr Reykja- vík sem fór í þetta verkefni sem fólst helst í því að flytja farþegana úr rútunum niður af heiðinni og kanna ástand annarra bifreiða á svæðinu. Undir kvöld var svo búið að losa allmarga bíla svo hægt var að aka þeim niður af heiðinni í lest þar sem bílar björgunarsveita fóru fremstir. Allt í kös „Á Mosfellsheiðinni var lága- renningur og þræsingur og frekar leiðinlegt veður. Aturðarásin var í grófum dráttum sú að fyrst festist smábíll í snjónum. Næst kom svo rúta og ökumaður hennar ætlaði sennilega að krækja framhjá smá- bílnum en festi sig líka og þar með lenti allt í kös,“ segir Kristinn Guð- jónsson jeppabílstjóri, sem þarna átti leið um síðdegis í gær, í samtali við Morgunblaðið. Vegna veðursins var auk Mos- fellsheiðar veginum yfir Lyngdals- heiði, frá Þingvöllum að Laugar- vatni, lokað. Einnig voru Hellis- heiði og Þrengsli lokuð frá síðari hluta dags og fram á kvöld og Reykjavíkurmegin stóðu björg- unarsveitarmenn vaktina á lok- unarpósti við Norðlingaholt. Vestur á fjörðum var veginum um Hvilft- arströnd við Önundarfjörð til Flat- eyrar lokað vegna snjóflóðahættu og leiðindaveður var á Ísafirði í gær; mikil snjókoma og kafalds- bylur svo þungfært var innanbæjar. Opnað með nýjum degi Þá er landleiðin frá Ísafirði og suður á bóginn lokuð vegna snjó- flóðahættu í Súðavíkurhlíð. Súða- víkurþorp er því innilokað, þar sem vegurinn um Steingrímsfjarðar- heiði er einnig lokaður og þar með er engum fært um Ísafjarðardjúpið, þar sem enn er búið á nokkrum bæj- um. „Það væsir ekkert um okkur hér enda er fólkið í þorpinu vant návígi við náttúruna og stormasama veðr- áttu og hagar lífi sínu bara sam- kvæmt því. Það er að minnsta kosti nóg til af öllum nauðsynjum í versl- uninni hér það ég best veit,“ sagði Pétur Georg Markan, sveitarstjóri í Súðavík, í samtali við Morgunblaðið. Hann kvaðst þó búast við að Súða- víkurhlíðin yrði opnuð aftur nú með nýjum degi, ef aðstæður leyfðu. Al- mennt undirstrikuðu aðstæður þessa dagana mikilvægi þess að gera jarðgöng milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar, það er milli Ísa- fjarðarkaupstaðar og Súðavíkur, eins og lengi hefur verið í um- ræðunni. „Svo má bæta því við að 16. jan- úar er dagur þegar margt ýfist upp í vitund og minningum fólks,“ sagði Pétur og vísaði þar til snjóflóðsins í Súðavík umræddan dag árið 1995 þegar fjórtán manns fórust. Bílar fastir og ófært vestra  Vetrarríki á landinu og samgöngur raskast  Margir í vanda á Mosfellsheiði  Björgunarsveitir til aðstoðar  Súðavík innilokuð en nægar nauðsynjar Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg Mosfellsheiði Í kafaldsbyl voru bílar og rútur föst og fóru björgunarmenn á vettvang til að losa um ökutækin og ferja farþega til byggða. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Ísafjörður Fyrir vestan var kafaldsbylur en þegar honum slotaði um stund tók þetta fólk sig til og sópaði snjóinn af bíl sem stóð nærri Silfurtorgi. Morgunblaðið/Eggert Svínahraun Hellisheiði var lokuð og björgunarsveitarmenn beindu umferðinni því beint inn á Þrengslaveginn. Vinnumálastofnun gaf út 1.758 atvinnuleyfi til útlendinga í fyrra. Á árinu 2017 voru 125 er- lend fyrirtæki starfandi á ís- lenskum vinnumarkaði með samtals 1.825 starfsmenn sam- kvæmt skráningu. Alls störfuðu 36 starfs- mannaleigur hér í fyrra með samtals 3.205 starfsmenn. Í janúar voru starfsmenn á veg- um starfsmannaleiga 851, þeim fjölgaði í 2.044 í september en svo tók þeim að fækka. 36 starfs- mannaleigur ERLENT VINNUAFL HÉR Nefndafundir Alþingis hefjast af fullum þunga í dag. Klukkan 15 verður opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd um varðveislu sönnunargagna í sakamálum. Gestir fundarins verða Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, ríkissaksóknari, ríkislögreglustjóri og lögreglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu. Bein útsending verður á vef Al- þingis og alþingisrásinni. Funda um varðveislu sönnunargagna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.