Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 björg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ásamt embættismönnum. Þar greindi Davíð frá samtölum sínum við erlenda fjármálamenn sem hann kvað afar tortryggna á íslensku bankana. Erfitt yrði fyrir þá að öðru óbreyttu að endurnýja þau erlendu lán sem falla myndu í gjalddaga haustið 2008 og á öndverðu ári 2009. Davíð var ómyrkur í máli og þegar hann gekk út af fundinum sagði hann við félaga sína: „Ef þetta hreyfir ekki við þessu fólki þá er ekkert sem gerir það.“ Honum tókst þó ekki að sannfæra Ingibjörgu Sólrúnu um að alvara væri á ferðum. Hún skrifaði hjá sér á minnisblaði að fundurinn hefði verið „eins manns útaustur“. Vandinn var sá að Seðlabankinn gat prentað krónur en ekki pund, dali, evrur eða danskar, norskar og sænskar krónur. Næstu mánuði leituðu Davíð og félagar hans fyrir sér um gjaldeyrisskiptasamninga við aðra seðlabanka sem hefði endurvakið trú á mætti íslenska rík- isins til að aðstoða bankana. Í fyrstu var Ís- lendingum vel tekið en eftir nokkra skoðun hafnaði Englandsbanki þó málaleitan þeirra. Skrifaði Mervyn King Davíð í apríl að ástæðan væri að íslenska bankakerfið væri of stórt. Davíð var raunar sammála King um þetta og hafði hreyft því við bankamenn að heppilegt væri að flytja Kaupþing úr landi, selja traust- an norskan banka í eigu Glitnis og færa Ice- save-reikninga Landsbankans úr útbúi bank- ans í Lundúnum í dótturfélag hans breskt, Heritable banka. Hann hafði þó ekkert vald til að fylgja slíkum hugmyndum eftir. Ef eitt- hvert slíkt vald var til þá var það hjá Fjár- málaeftirlitinu og viðskiptaráðherra. Hitt var annað mál, eins og bankamenn bentu á, að sala eigna var lítt framkvæmanleg í miðri kreppu þegar aðeins fékkst fyrir þær lágt verð. Davíð og félagar hans héldu nokkra aðra fundi með forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar, þar á meðal 1. og 16. apríl og 7. og 15. maí, þar sem þeir endurtóku viðvaranir sínar frá 7. febrúar. Davíð hitti einnig Steingrím J. Sigfússon, leið- toga Vinstri grænna, á tveimur fundum sum- arið og haustið 2008 þar sem hann gerði hon- um í trúnaði grein fyrir áhyggjum sínum af bönkunum. Svo virðist sem sammæli hafi orðið um það á kvöldverðarfundi seðlabankastjóra G-10 ríkjanna (öflugustu iðnríkjanna) í Basel 4. maí 2008 að neita Íslandi um alla fyrirgreiðslu. Hollenski seðlabankastjórinn var Landsbank- anum reiður fyrir að hefja innlánasöfnun í Hollandi og bankastjóri Evrópska seðlabank- ans kvartaði undan skuldabréfasölu íslensku bankanna til seðlabanka Lúxemborgar. Eftir fundinn náði Davíð Oddsson tali af sænska seðlabankastjóranum, Stefan Ingves, sem hafði áður verið hinn vinsamlegasti en var nú eins og snúið roð í hund. Ingves sagði Davíð að Ísland gæti ekki vænst neinnar aðstoðar nema bankarnir minnkuðu. Davíð tókst þó fyrir harðfylgi að gera gjaldeyrisskiptasamninga síðar í mánuðinum við seðlabanka Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar. Var Ingves afar tregur til þess að samþykkja samningana. Varð Davíð að hringja af fundinum með nor- rænum starfsbræðrum sínum í forsætisráð- herra, sem þá var staddur á Vestfjörðum, og fá hann til að lofa því að ríkisstjórnin myndi beita sér eftir megni fyrir minnkun bankanna, hóflegum kjarasamningum og endurskoðun húsnæðislánakerfisins. Skrifuðu nokkrir ráð- herrar síðan undir skriflega yfirlýsingu því til staðfestingar. Ingves þótti hins vegar lítt til um efndirnar og á seðlabankastjórafundi í Ba- sel í júní virti hann íslensku seðlabankastjór- ana ekki viðlits. Þegar hann neyddist til að heilsa Eiríki Guðnasyni, af því að þeir tóku af tilviljun sömu lyftuna, rétti hann fram vinstri hönd. Spáin sem rættist Nú var nýtt áhyggjuefni komið til sögu. Þar eð Landsbankinn hafði safnað innlánum í Bretlandi í útbúi, en ekki dótturfélagi, voru þau tryggð í hinum íslenska Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta, ekki hlið- stæðum breskum sjóði. Ljóst var að íslenski sjóðurinn hafði enga burði til að greiða inn- stæðueigendum út eignir sínar kæmi til þess að Landsbankinn félli. Eftir að athygli var vakin á þessu í breska þinginu lagði breska fjármálaeftirlitið til að innstæðurnar yrðu færðar í breska lögsögu en jafnmikið af eigum Landsbankans á móti. Davíð Oddsson var frá upphafi þeirrar skoðunar að engin ríkisábyrgð væri á Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta en æskilegt væri engu að síður að færa Icesave-reikningana í breska lögsögu. Hann sagði við bankastjóra Landsbankans á fundi í Seðlabankanum 31. júlí 2008: „Þið getið út af fyrir sig sett Björgólf Guðmundsson á hausinn og eruð sjálfsagt komnir langleiðina með það. En þið hafið ekkert leyfi til þess að gera íslensku þjóðina gjaldþrota.“ Vandi Landsbankans var hins vegar að breska Fjár- málaeftirlitið vildi ekki leyfa honum að flytja eignir í áföngum á móti innstæðunum svo að lánalínur yrðu ekki lausar. Sama dag og Davíð mælti þessi orð við bankastjóra Landsbankans var staddur hér á landi kanadíski hagfræðingurinn William White, sem verið hafði einn af yfirmönnum BIS, Alþjóðagreiðslumiðlunarbankans, í Basel. Davíð bauð honum til kvöldverðar í Perlunni. Þeir röbbuðu saman um ástandið á fjár- málamörkuðum. White taldi mikla andstöðu við að bjarga bönkum með almannafé en það yrði samt að lokum gert: „Það er búið að ákveða að einn stór banki verður látinn fara á hausinn, það verða Lehman-bræður, og síðan eitt land og það verðið þið.“ Davíð spurði hissa: „Hvað ert þú búinn að fá þér marga gin og to- nic?“ White svaraði: „Aðeins einn.“ Þótt þeir Geir H. Haarde forsætisráð- herra og Árni Mathie- sen fjármálaráðherra tækju viðvaranir Dav- íðs alvarlega gegndi öðru máli um for- ystumenn Samfylking- arinnar. Í Frétta- blaðinu 4. september lagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir til að bank- arnir héldu áfram inn- lánasöfnun sinni er- lendis. Spá Whites gekk hins vegar eftir. Lehman-bræður urðu gjaldþrota 15. sept- ember. Nú hertist hin alþjóðlega láns- fjárkreppa um allan helming. Bankar þorðu alls ekki að lána hver öðrum. Skuldatrygg- ingaálagið á íslensku bankana, sem hafði lækk- að eftir gjaldeyrisskiptasamningana við seðla- banka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur, rauk upp. Það jók ekki traustið á Íslandi þegar bandaríski seðlabankinn gerði gjaldeyr- isskiptasamninga við seðlabanka Svíþjóðar, Danmerkur og Noregs 24. september. Allir tóku eftir því að íslenska seðlabankann vant- aði. Davíð Oddsson hringdi strax í Tim Geit- hner, bankastjóra Seðlabankans í New York, og bað um sams konar gjaldeyrisskiptasamn- ing. Geithner sagði að íslensku bankarnir rækju ekki eins víðtæka starfsemi í Banda- ríkjunum og norrænu bankarnir svo að þeir hefðu ekki sömu þörf á bandaríkjadölum. Hann skyldi hins vegar skoða málið. Málaleit- an Davíðs var fljótlega synjað. Stór lán féllu í gjalddaga hjá Glitni 15. októ- ber. Bankanum tókst ekki að endurnýja þau eða afla fjár til að greiða þau svo að hann leitaði til Seðlabankans um neyðarlán í evrum. Að ráði Seðlabankans og höfðu samráði við stjórnarandstöðuna ákvað ríkisstjórnin sunnudaginn 28. sept- ember að kaupa 75% í Glitni fyrir 600 milljónir evra. Þegar Davíð var sagt að ekki ætti að boða Björgvin G. Sig- urðsson viðskiptaráðherra sem fór með banka- mál á fundinn þar sem þetta ætti að ákveða krafðist hann þess að heyra þetta af munni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem stödd var í Bandaríkjunum. Geir H. Haarde hringdi í hana úr fjármálaráðuneytinu, þar sem nokkr- ir fleiri voru viðstaddir, og staðfesti hún þetta við Davíð. Vonir stóðu til þess að kaupin á Glitni myndu endurvekja traust á bankanum. En tímasetningin gat ekki verið verri. Mánu- daginn 29. september náði hin alþjóðlega láns- fjárkreppa einmitt hámarki. Seðlabankar um allan heim prentuðu peninga í gríð og erg og tóku á móti við alls konar skuldabréfum frá bönkum, jafnvel hlutabréfum í fyrirtækjum. Matsfyrirtæki lækkuðu matið á íslenska bönk- unum og líka á íslenska ríkinu. Davíð varð ljóst að bankarnir væru að falla. Hann kallaði saman viðbúnaðarhóp, sem skyldi vera starfs- liði Seðlabankans til aðstoðar, og bað um fund með ríkisstjórninni þriðjudaginn 30. sept- ember. Sögulegur ríkisstjórnarfundur Þegar Davíð Oddsson kom inn í Stjórn- arráðið þennan þriðjudagsmorgun, var þar fjöldi blaðamanna fyrir framan fundaherbergi ríkisstjórnarinnar. Þar var líka Sævar Cie- sielski, sem sloppið hafði inn í húsið og var mjög órólegur. Um leið og hann sá Davíð gekk hann til hans. Davíð tók í hönd hans og sagði: „Ja, þetta hlýtur að vera mikilvægt fyrst við erum báðir kallaðir til skrafs og ráðagerða.“ Sævar róaðist mjög við að sjá og heyra Davíð. Hið sama átti ekki við um alla ráðherrana eftir að Davíð kom inn á ríkisstjórnarfundinn og sagði að líklega myndi allt bankakerfið hrynja á næstu tíu til fimmtán dögum. Þau Össur Skarphéðinsson og Þorgerður K. Gunn- arsdóttir brugðust ókvæða við þegar Davíð bætti við að hann væri að vísu andvígur þjóð- stjórnum en að skilyrði fyrir henni gætu nú verið að myndast. Íslendingar yrðu að samein- ast gegn yfirvofandi hættu. Skilja yrði að er- lendan og innlendan hluta bankakerfisins og reisa varnarvegg um hinn innlenda. Eftir fundinn skundaði Davíð í Seðlabank- ann og hitti viðbúnaðarhópinn. Hann sagði Davíð Oddsson kemur inn í Stjórnarráðið 30. september 2008. Tilefnið var að segja ríkisstjórninni, að bankakerfið yrði fallið eftir 10–15 daga. Ráðherrar tóku þessum boðskap misjafnlega. Þegar Davíð Oddsson fór á ríkisstjórnarfundinn 30. september 2008, rakst hann á Sævar Ciesielski í anddyrinu og sagði við hann: „Ja, þetta hlýtur að vera mikilvægt, fyrst við erum báðir kallaðir til skrafs og ráðagerða.“ »Eftir fundinn skundaði Davíð í Seðlabankann og hitti viðbúnaðarhópinn. Hann sagði honum, að mestu máli skipti nú að girða Ísland af, vernda þjóðina fyrir skakkaföllum vegna yfirvofandi bankahruns. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.