Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 41
Í kjölfar háværrar umræðu um að leikarinn Mark Wahlberg hafi feng- ið margfalt hærri greiðslu en mót- leikkona hans, Michelle Williams, fyrir að taka þátt í endurtöku hluta atriða í kvikmyndina All the Money in the World, hefur hann ákveðið að gefa féð, 1,5 milljónir dala, um 160 milljónir króna, í málsvarnarsjóð hinna nýstofnuðu samtaka Time’s Up, sem berjast fyrir jafnrétti á vinnumarkaðinum. Michelle Williams féllst á að taka þátt í endurtöku atriðanna, eftir að Christopher Plummer tók að sér að leika í þeim atriðum sem Kevin Spacey hafi þegar leikið en hann var þurrkaður út úr kvikmyndinni vegna ásakana um kynferðislega misnotkun. Williams fékk 800 dali í laun fyrir tíu daga en Wahlberg fékk 800 dalina og krafðist 1,5 milljóna dala að auki. Umboðsskrif- stofa hans, William Morris Endea- vor, gefur jafnframt hálfa milljón dala til Time’s Up. Wahlberg gefur Time’s Up umdeild laun AFP Mismunun Wahlberg var gagnrýndur fyrir að fara fram á margfalt hærri greiðslur en Michelle Williams fékk. MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 Háskólasöngsveitin Bard-en-bellurnar hefur unniðallt sem hægt er aðvinna í heimi acapella- söngsveita. Frægðarsól þeirra er hins vegar nokkuð gengin til viðar, sér í lagi þar sem þær eru nær allar löngu útskrifaðar úr háskóla og komnar út á hinn grimma vinnu- markað. Beca (Anna Kendrick) virðist hafa komið sinni ár vel fyrir borð sem upptökustjóri en kemst að því fljót- lega að starf hennar felst einkum í því að kasta lagaperlum fyrir rappsvín og segir því upp starfi sínu án þess að hafa nokkra hugmynd um hvernig hún eigi að eiga fyrir leig- unni. Sem betur fer vill svo til að faðir Aubrey (Anna Camp) er hershöfð- ingi og getur reddað Bellunum giggi við að syngja á söngskemmtunum Bandaríkjahers. Hinar sjálfskipuðu „söngskríkjur“ skella sér að sjálf- sögðu á það tækifæri en þegar á fyrstu herstöðina er komið kemur í ljós að þrjár aðrar hljómsveitir eru fyrir á fleti. Til að bæta gráu ofan á svart kemur í ljós að tónleikarnir eru að sjálfsögðu hæfileikakeppni líka, þar sem fyrstu verðlaun eru að fá að hita upp fyrir engan annan en „stórstjörnuna“ DJ Khaled. Geta Bellurnar skotið hinum hljómsveit- unum ref fyrir rass eða verða þær dæmdar úr leik? Ef þessi lýsing hljómar langsótt, þá er það líklega vegna þess að myndin nær varla að halda þræði, sér í lagi miðað við fyrri tvær mynd- irnar. Fyrir utan „samkeppnina“ um hylli og aðdáun DJ Khaled, af öllum mönnum, er mestu púðri mynd- arinnar eytt í samband „Fat Amy“ (Rebel Wilson) við Fergus, föður sinn (John Lithgow), en hann er fremur vafasamur fýr. Hjálpar þar ekki til að Fergus á að vera ástralsk- ur, en Lithgow, sem hefur oftast staðið sig betur en hér, nær að tala með þeim versta hreim sem heyrst hefur síðan Dick van Dyke sann- færði engan um að hann væri enskur í Mary Poppins. Miðað við að myndin á að vera söngvamynd eru tiltölulega fá lög í henni og einungis tvö þeirra sem standa upp úr í minningunni. Hin mikla samkeppni er nánast leyst með einu „montage“-atriði. Helstu keppinautar Bellanna reynast vera stúlknasveitin „Sírakar“ (e. Ever- moist) en fátt við þær er til þess fall- ið að lyfta myndinni á æðra plan. Myndin er þó ekki alslæm og inn á milli leynast góð atriði og ágætir brandarar. Þá er sjarmatröllið Anna Kendrick sérdeilis prýðileg í hlut- verki sínu. Það er hins vegar erfitt að ætla henni og Rebel Wilson að bera uppi myndina þegar svo fátt annað er fyrir hendi. Það verður því að segjast að mið- að við fyrri tvær myndirnar í þrí- leiknum er síðasta myndin nokkur vonbrigði og óskandi að Barden- bellurnar hefðu getað kvatt okkur á betri nótum. Svanasöngur Barden-bellurnar mæta til leiks í þriðja og síðasta sinn. Beca (Anna Kendrick) tekur hér einsöng. Tónafljóð missa flugið Laugarásbíó, Smárabíó og Borgarbíó Akureyri Pitch Perfect 3 bbnnn Leikstjóri: Trish Sie. Handrit: Kay Can- non og Mike White. Aðalhlutverk: Anna Kendrick, Rebel Wilson, Anna Camp, Brittany Snow, Hailee Steinfeld, Ester Dean, Hana Mae Lee, Chrissie Fit, Kelley Jakle, Shelley Regner, Alexis Knapp, John Michael Higgins og Elizabeth Banks. Bandaríkin 2017, 93 mínútur. STEFÁN GUNNAR SVEINSSON KVIKMYNDIR Leikarinn og kvikmyndaframleið- andinn Steven Seagal neitar því að hafa áreitt ensku leikkonuna Rachel Grant kynferðislega við æfingar á tökustað fyrir kvikmyndina Out for a Kill árið 2002 í Sofiu í Búlgaríu. Grant segir Seagal hafa bæði reynt að bera sig fyrir henni og þvinga hana til kynferðislegra athafna. Hún greindi frá þessu í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, en hún missti hlutverkið í fyrrnefndri kvikmynd. Í viðtalinu sagðist hún vilja segja frá því sem komið hefði fyrir hana í þeim tilgangi að hvetja konur til að koma fram og segja frá slíkum brot- um og áreitni. Grant er ekki eina konan sem sak- að hefur Seagal um kynferðislega áreitni og ofbeldi því um síðustu helgi fjallaði bandaríska fréttastöðin CBS News um rannsókn sem hafin er á hendur Seagal vegna ákæru um nauðgun. Ragina Simons, leikkona sem var í aukahlutverki í kvikmynd- inni On Deadly Ground, segir Seagal hafa nauðgað sér í teiti sem hann hélt að loknum tökum á kvikmynd- inni. Hún var þá 18 ára. Önnur kona, Faviola Davis, segir leikarann hafa klipið hana í geirvörturnar og gripið í klofið á henni í leikprufu árið 2002. Hún hafði þá verið beðin um að mæta í bikiníi svo Seagal gæti metið vaxtarlag hennar. Fleiri konur hafa ásakað leik- arann um kynferðisbrot, m.a. leik- konurnar Julianna Margulies, Portia de Rossi, Katherine Heigl og Eva LaRue. Seagal hefur tjáð sig um þessar ákærur í gegnum lög- fræðinga sína og neitað sök. Hann er þekktastur fyrir leik sinn í hasar- myndum og var fyrir tveimur árum veittur rússneskur ríkisborgara- réttur af forseta Rússlands, Vladím- ír Pútín. Seagal neitar sök AFP Ákærur Steven Seagal hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni, kynferðisbrot og nauðgun. Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Jensen JN8846 umgjörð kr. 18.900,- ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 8, 10.15 Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 5.30, 10 Sýnd kl. 5.15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.