Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 Útlit er fyrir að samgöngumálverði meðal helstu mála í kom- andi sveitarstjórnarkosningum í Reykjavík. Ekki er vanþörf á þegar til þess er horft hve ferðatími í og úr vinnu hefur aukist í borginni.    Tveir af frambjóð-endum í leið- togaprófkjöri Sjálf- stæðisflokksins hafa þegar tekið þessi mál til umræðu og gagn- rýnt stefnu meiri- hluta borg- arstjórnar.    Eyþór Arnaldsbenti á dög- unum á að samn- ingur við ríkið um að stöðva gatna- gerðarframkvæmdir gegn ríkisframlagi í Strætó hefði þegar kostað 5 milljarða króna án þess að nokkur árangur hefði orðið af fjár- austrinum.    Þá hefur Eyþór gagnrýnt hug-myndir um borgarlínu harðlega og í svipaðan streng tók Kjartan Magnússon, sem í viðtali kallaði þær hugmyndir „villuljós hjá borgarstjór- anum“ og benti á að með vannýtt strætókerfi ættum við ekki að láta okkur dreyma um nýtt kerfi upp á um 100 milljarða.    Kjartan benti líka á að búið væriað eyða 80 milljónum í að skoða borgarlínu og að áfram stefni í út- gjöld vegna undirbúnings, en að eng- in ákvörðun hafi verið tekin.    Í vor verður meðal annars kosið umhvort leysa eigi stíflurnar í gatna- kerfinu eða hvort halda eigi áfram að ausa peningum í að framkvæma ekki og halda áfram að sóa peningum í að undirbúa úreltar hugmyndir um rán- dýra og gagnslausa borgarlínu. Eyþór Arnalds Fjáraustur og framkvæmdastopp STAKSTEINAR Kjartan Magnússon Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson héldu frá Reykjavík í gær til mælinga á loðnu- stofninum. Skipin fóru bæði suður fyrir Reykjanes og munu byrja rannsóknir fyrir austanm en skap- legra veðurútlit er á þeim slóðum en úti fyrir Vest- fjörðum. Verkefn- isstjóri er Birkir Bárðarson, fiski- fræðingur. Ráð- gert er að Polar Amaroq haldi einnig til rannsókna að lokinni löndun og jafnvel einnig Bjarni Ólafsson AK. Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með um 1.000 tonn af loðnu sem fara til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar, að því er segir á heimasíðu SVN. Vinnslu- skipið Vilhelm Þorsteinsson EA land- aði sl. sunnudag úr annarri veiðiferð sinni á vertíðinni. Börkur NK var á loðnumiðunum um 60 mílur norðaustur úr Langanesi í gær og í samtali við heimasíðuna sagði Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri að skipin hefðu fengið ágætis hol á daginn og loðna væri á allstóru svæði, en töluvert dreifð. Lítið væri að fá yf- ir nóttina. Umskipað á Eskifirði Ráðgert var að grænlenska skipið Polar Amaroq kæmi til Neskaup- staðar í gær og skipaði frosinni loðnu beint um borð í flutningaskip. Ekkert pláss var fyrir skipið í Norðfjarðar- höfn og því var gripið til þess ráðs að umskipa á Eskifirði. „Staðreyndin er sú að á annatímum er Norðfjarðar- höfn of lítil þrátt fyrir að hún hafi ver- ið stækkuð mikið á undanförnum ár- um. Umsvifin í höfninni á loðnuvertíð og einnig á makríl- og síldarvertíð eru oft þannig að þar skortir legurými,“ segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. aij@mbl.is Lagt af stað til mælinga á loðnunni  Þröng á þingi í Norðfjarðarhöfn Birkir Bárðarson 70ára Davíð Oddsson Árvakur býður til móttöku í Hádegismóum milli kl. 16 og 18 í dag Davíð Oddsson ritstjóri er sjötugur í dag, 17. janúar. Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins, mbl.is og K100, mun af því tilefni halda afmælishóf honum til heiðurs í húsakynnum félagsins í Hádegismóum. Allir vinir og velunnarar eru boðnir velkomnir Veður víða um heim 16.1., kl. 18.00 Reykjavík -1 snjóél Bolungarvík -2 snjókoma Akureyri -3 snjókoma Nuuk -12 snjókoma Þórshöfn 0 léttskýjað Ósló 0 alskýjað Kaupmannahöfn 2 súld Stokkhólmur 0 snjókoma Helsinki -5 heiðskírt Lúxemborg 4 skúrir Brussel 6 skýjað Dublin 2 slydduél Glasgow 1 snjókoma London 5 léttskýjað París 6 skúrir Amsterdam 5 skúrir Hamborg 2 skúrir Berlín 4 skúrir Vín 0 þoka Moskva -9 snjókoma Algarve 20 heiðskírt Madríd 12 léttskýjað Barcelona 17 heiðskírt Mallorca 15 heiðskírt Róm 12 skýjað Aþena 12 léttskýjað Winnipeg -19 skýjað Montreal -13 snjókoma New York 0 alskýjað Chicago -10 snjókoma Orlando 16 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 17. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:50 16:27 ÍSAFJÖRÐUR 11:20 16:06 SIGLUFJÖRÐUR 11:04 15:48 DJÚPIVOGUR 10:26 15:50

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.