Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 23
honum að mestu máli skipti nú að girða Ísland af, vernda þjóðina fyrir skakkaföllum vegna yfirvofandi bankahruns. Fyrsta markmiðið væri að forðast greiðslufall ríkissjóðs, síðan að halda uppi greiðslumiðlunarkerfi, þá að gæta hags innstæðueigenda og annarra kröfuhafa bankanna en loks hlutafjáreigenda í bönk- unum. Næstu sólarhringa lagði viðbún- aðarhópurinn nótt við dag og stakk Ragnar Önundarson upp á því að veita innstæðu- eigendum forgang fram yfir aðra kröfuhafa bankanna. Eftir nokkurt hik tóku aðrir nefnd- armenn undir þetta. Á sama tíma sóttu Bretar mjög fast að íslenska ríkið ábyrgðist skriflega skuldbindingar Tryggingasjóðs innstæðueig- enda og beitti Davíð sér hart gegn því. Voru Geir H. Haarde og Árni M. Mathiesen sam- mála honum um þetta. Aðrir vildu ganga til móts við Breta. Næstu daga gekk á ýmsu. Látlausir fundir voru í Ráðherrabústaðnum. Breskir ráðherrar hringdu í Geir H. Haarde og kváðu Kaupþing hafa fært mikið fé frá dótturfélagi sínu í Bret- landi til Íslands en Kaupþingsmenn vísuðu þessum ásökunum á bug. Þegar Geir stakk upp á því laugardaginn 4. október að skipaður yrði neyðarhópur, sem stjórnaði aðgerðum í bankahruninu og Davíð yrði formaður hans, tóku Samfylkingarmenn því svo illa að stjórn- arslit virtust vera í sjónmáli. Davíð vildi ekki láta brjóta á persónu sinni, lagði til við Geir að hann yrði sjálfur formaður slíks neyðarhóps og yfirgaf Ráðherrabústaðinn. Hann fékk Englandsbanka til að senda sérfræðing í fjár- málaáföllum, Marc Dobler, til Íslands til að að- stoða starfsfólk Seðlabankans og viðbún- aðarhópinn við að móta tillögur um úrlausn vandans. Dobler lagði til, eins og Davíð hafði gert, að skilja að innlendan og erlendan hluta bankakerfisins, færa innlendar innstæður í nýja banka og eignir á móti. Þegar Davíð taldi útséð að sér tækist að sannfæra ráðherra Samfylkingarinnar um slíkar aðgerðir sendi hann einkaþotu eftir nokkrum ráðgjöfum Seðlabankans hjá fjármálafyrirtækinu JP Morgan og hittu þeir fjóra ráðherra aðfara- nótt 6. október. Þeir Geir H. Haarde og Árni M. Mathiesen voru í meginatriðum sammála Davíð um það sem gera þyrfti en allt strandaði á Samfylk- ingunni. Ráðgjafarnir með Michael Ridley í broddi fylkingar gátu hins vegar sannfært ráðherra Samfylkingarinnar um varnarveggs- hugmyndina, aðskilnað innlendrar og erlendr- ar starfsemi bankanna. Eins og Össur Skarp- héðinsson sagði síðar við Rannsóknarnefnd Alþingis voru tillögur þeirra svipaðar og Davíð hafði reifað á fundi ríkisstjórnarinnar 30. sept- ember. Mánudaginn 6. október voru síðan neyðarlögin samþykkt á Alþingi með atkvæð- um allra flokka nema Vinstri grænna sem sátu hjá: Innstæðueigendur, erlendir jafnt og inn- lendir, fengu forgangskröfur í bú bankanna og nýir bankar voru stofnaðir í eigu ríkisins, inn- lendar innstæður fluttar í þá og eignir á móti en aðrar skuldir og eignir færðar í þrotabú þeirra sem sett voru í slitameðferð. Umsátrið um Ísland Geir H. Haarde og Davíð Oddsson vildu reyna til þrautar að bjarga leifunum af banka- kerfinu. Þess vegna veitti Seðlabankinn Kaup- þingi 500 milljóna evra lán þennan sama mánu- dag, 6. október, gegn veði í FIH banka í Danmörku sem var í eigu Kaupþings. Höfðu danskir embættismenn fullvissað Davíð um að bankinn væri miklu meira virði. Seðlabankinn gætti þess að taka allsherjarveð fyrir öllum skuldum Kaupþings við bankann. Einnig var reynt að útvega stórt lán á hagstæðum kjörum frá Rússum. Hringdi sendiherra Rússa á Ís- landi, Víktor Tataríntsev, í Davíð snemma morguns þriðjudaginn 7. október og sagði slíkt lán standa til boða. Gaf hann Davíð leyfi til að segja frá því opinberlega sem Davíð gerði að höfðu samráði við forsætisráðherra. En nokkr- um klukkutímum síðar hringdi sendiherrann aftur og kvað snurðu hlaupna á þráðinn. Höfðu Rússar eflaust haft spurnir af því að einhverjir íslenskir ráðamenn væru að ræða við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn um fyrirgreiðslu og áhugi þeirra dofnað. Annar möguleiki er að vestrænir ráðamenn hafi haft samband við Pútín, for- sætisráðherra Rússlands, og gert honum grein fyrir að Ísland væri á vestrænu áhrifasvæði. Á sama tíma gekk breska ríkisstjórnin mjög hart fram gegn Íslendingum. Hún lokaði dótt- urfélagi Kaupþings í Bretlandi og olli með því falli Kaupþings á Íslandi. Jafnframt beitti breska stjórnin að nauðsynjalausu hryðju- verkalögum á Landsbankann, Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið. Ísland stóð uppi einangrað. Næstu vikur unnu starfsfólk Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins með aðstoð ýmissa starfs- manna hinna föllnu banka sannkallað krafta- verk við að halda uppi greiðslumiðlunarkerfi innan lands og utan. Davíð var ekki hrifinn af því að Ísland skyldi í þessum hremmingum leita til Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins um lán. Hvað hafði það að gera við lán sem stæði óhreyft á bankareikningi í New York og bæri háa vexti? Hann undi samt ákvörðun ríkisstjórn- arinnar. Hitt sætti hann sig ekki við að Ís- land viðurkenndi rík- isábyrgð á skuldbind- ingum Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta í tengslum við Icesave-reikninga Landsbankans. Hann mótmælti því í harðorðu bréfi til forsætisráðherra 22. október 2008: „Er það virkilega svo að íslensk stjórnvöld ætli án lagaheimildar að taka á sig stórkostlegar er- lendar skuldbindingar að kröfu Breta o.fl. Slík- ar byrðar myndu sliga íslenskan almenning sem ekkert hefur til saka unnið.“ Taldi hann dómstóla eina bæra til að skera úr um það hvort Íslendingar bæru sem þjóð og ríki ábyrgð á Icesave-reikningum Landsbankans. Nú tók að gæta ókyrrðar á Íslandi. Þótt bankastjórar Seðlabankans hefðu einir áhrifa- manna varað við hröðum vexti bankanna og undirbúið í kyrrþey og með aðstoð erlendra sérfræðinga ráðstafanir til að minnka tjónið af hugsanlegu hruni þeirra var mótmælaaðgerð- um vegna bankahrunsins aðallega beint að Seðlabankanum en miklu síður að stærsta skuldunaut bankanna, Jóni Ásgeiri Jóhann- essyni, en hann og hópur hans skuldaði þeim um þúsund milljarða króna þegar yfir lauk. Sú tortryggni, sem vaknað hafði erlendis í garð bankanna, hafði ekki síst verið hans vegna. Hvað sem því leið mátti heita samfellt umsátur um Seðlabankann í árslok 2008 og ársbyrjun 2009. Samfylkingin þoldi ekki álagið og gekk úr stjórn Geirs H. Haarde í janúarlok 2009. Ný vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttur braut viðtekna venju um sjálfstæði seðlabanka og hrakti seðlabankastjórana þrjá úr starfi. Fjallið tók jóðsótt Alþingi skipaði í árslok 2008 rannsókn- arnefnd um bankahrunið og skilaði hún skýrslu í apríl 2010. Þar var niðurstaðan um seðla- bankastjórana þrjá að þeir hefðu gerst sekir um vanrækslu í tveimur málum. Hið fyrra sneri að Landsbankanum. Seðlabankastjór- arnir hefðu ekki átt að hafna strax hug- myndum frá Landsbankanum í ágúst 2008 um flókna fjármálagerninga, þar á meðal fyr- irgreiðslu Seðlabankans, sem hefðu það að markmiði að auðvelda færslu Icesave- reikninganna úr útbúinu í Lundúnum í dótt- urfélag. Þess í stað hefðu þeir átt að rannsaka fjárhag Landsbankans og skoða betur at- hugasemdir breska Fjármálaeftirlitsins. Bankastjórarnir bentu á það sér til varnar að Landsbankinn hefði ætlast til þess að fyr- irgreiðsla Seðlabankans við hann yrði leynileg og það hefði aldrei staðist. Það hefði líka verið mjög hæpið hvort bankinn hefði haft lagaheim- ild til að veita þá fyrirgreiðslu sem Landsbank- inn leitaði eftir. Enn fremur hefði Seðlabank- inn ekki haft sama aðgang að upplýsingum um fjármálafyrirtæki og Fjármálaeftirlitið. Hitt málið sem nefnd- in taldi fela í sér van- rækslu sneri að Glitni. Seðlabankastjórarnir hefðu átt að leita til sér- fræðinga um verðmat á Glitni þegar bankinn hafnaði í september 2008 ósk Glitnis um neyðarlán en lagði þess í stað til við ríkisstjórn- ina að ríkið keypti 75% í bankanum fyrir 600 milljónir evra. En þessi ásökun var jafnhæpin og hin fyrri. Það var ríkisstjórnin sem ákvað að kaupa hlut í Glitni ekki Seðlabankinn. Hafa þurfti snör handtök því að afgreiða varð málið um helgi áður en markaðir yrðu opnaðir á mánudag. Í miðri fjármálakreppu er erfitt að verðmeta banka: Þeir geta verið einskis virði á einni stund og mikils virði á annarri. Engir sér- fræðingar geta reiknað út neitt „eðlilegt verð“ við þær aðstæður. Tillaga Seðlabankans mið- aðist við þær tvær forsendur að bankann vant- aði 600 milljónir evra til að standa skil á af- borgunum lána og að ríkið vildi eiga ráðandi hlut án þess að færa hlutafé eigendanna niður of mikið. Við þessar aðstæður var verðmatið eðlilegt. Rannsóknarnefnd Alþingis gerði hins vegar ekki ágreining við seðlabankastjórana um sjálfar ákvarðanirnar, að hafna beiðni Lands- bankans í ágúst um fyrirgreiðslu og beiðni Glitnis í september um þrautavaralán. Taldi hún þær báðar eðlilegar. En báðar ásak- anirnar um vanrækslu í tengslum við þær voru í raun um að Seðlabankinn hefði átt að láta gera fleiri skýrslur, panta fleiri sérfræðiálit eða semja fleiri minnisblöð á ögurstund þegar taka þurfti snöggar ákvarðanir. Á sama tíma voru Hank Poulson, fjármálaráðherra Banda- ríkjanna, og Alistair Darling, fjármálaráð- herra Bretlands, að taka ákvarðanir í síma eða á skyndifundum um hundruð milljarða lán eða kaup nánast fyrirvaralaust. Til dæmis fékk Bear Sterns 30 milljarða dala neyðarlán frá Seðlabankanum í New York svo að JP Morgan Chase gæti keypt fyrirtækið fyrir 2 dali á hlut. Þegar hluthafar létu í ljós óánægju sína var verðið hækkað hið snarasta í 10 dali á hlut. Eftir að fjöldi íslenskra lögfræðinga og hag- fræðinga hafði rannsakað Seðlabankann hátt og lágt í eitt og hálft ár með rúm fjárráð og ótakmarkaðan aðgang að upplýsingum fundu þeir þær tvær hugsanlegu vanrækslusyndir, að vantað hefði skjalavinnu að baki tveimur ákvörðunum sem þó hefðu sjálfar verið eðli- legar. Hvorug hin hugsanlega vanrækslusynd breytti þó neinu um bankahrunið. Hér hafði fjallið tekið jóðsótt og fæðst lítil mús. Hrun og endurreisn Meginskýring Rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu er ekki beinlínis röng, heldur ófullkomin. Nefndin taldi bankahrunið hafa orðið vegna þess að bankarnir hefðu vaxið of hratt og orðið of stórir í hlutfalli við seðla- banka og ríkissjóð. Þetta var vissulega nauð- synlegt skilyrði bankahrunsins en ekki nægi- legt. Gler brotnar ekki aðeins af því að það sé brothætt, heldur af því að eitthvað gerist. Vissulega höfðu bankarnir vaxið of hratt og stjórnendur þeirra og eigendur farið langt fram úr sjálfum sér svo að hér myndaðist kerfi sem var viðkvæmt eða „brothætt“. En ástæð- an til þess, að íslenska bankakerfið féll á með- an hið svissneska (sem var hlutfallslega jafn- stórt) hélt velli var að svissneski seðlabankinn fékk lausafjárfyrirgreiðslu frá Bandaríkjunum en íslenska seðlabankanum var neitað um slíka fyrirgreiðslu bæði í Evrópu og Banda- ríkjunum, jafnframt því sem breska Verka- mannaflokksstjórnin olli falli Kaupþings með því að loka dótturfélagi þess í Lundúnum og setja hryðjuverkalög á Landsbankann, Seðla- bankann og Fjármálaeftirlitið. Þarfnast hin harkalega og jafnvel fólskulega framkoma þeirra Alistairs Darlings og Gordons Browns skýringa en á daginn hefur komið að ásakanir þeirra um ólöglegar millifærslur til Íslands voru tilhæfulausar, jafnframt því sem bresku bankarnir í eigu Íslendinga reyndust við upp- gjör eiga fyrir skuldum þótt þeir væru einu bresku bankarnir sem Verkamannaflokks- stjórnin bjargaði ekki. Davíð Oddsson og félagar hans tveir í Seðla- bankanum sáu hætturnar fyrr og skýrar en aðrir og vöruðu við þeim hvað eftir annað í trúnaði í fárra manna hópi en töluðu fyrir daufum eyrum fram eftir árinu 2008. Fjöl- miðlar veittu bönkunum ekkert aðhald nema helst Morgunblaðið. Kaupþing fluttist ekki úr landi, Glitnir seldi ekki hinn norska banka sinn og Landsbankinn færði Icesave-reikningana ekki úr útbúi í dótturfélag. Hitt er annað mál að neyðarlögin sem viðbúnaðarhópur Seðla- bankans og starfsfólk bankans, viðskiptaráðu- neytisins og Fjármálaeftirlitsins undirbjuggu saman með aðstoð erlendra sérfræðinga, reyndust hið besta. Sparifjáreigendur róuðust og ekki kom til áhlaups á bankana. Breytingin úr gömlu bönkunum í nýja banka tókst vonum framar og greiðslumiðlun við útlönd raskaðist lítt. Með neyðarlögunum var tryggt að rík- issjóður tæki ekki á sig risastórar skuldbind- ingar vegna bankahrunsins en það auðveldaði leikinn að ríkissjóður var nánast skuldlaus. Barátta Davíðs gegn Icesave-samningunum tveimur átti líka sinn þátt í því að þjóðin hafn- aði þeim í tveimur atkvæðagreiðslum og mál- staður hans vann fullnaðarsigur með úrskurði EFTA-dómstólsins í janúar 2013. Þjóðin losn- aði við risaskuldir. Eins og Hannes Finnsson biskup skrifaði eftir móðuharðindin, dynja oft á Íslendingum erfiðleikar en þeir eru furðu- fljótir að jafna sig eftir þá. Ein meginástæðan til þess hversu vel hefur gengið er að á örfáum haustdögum árið 2008 var reistur varnar- veggur um Ísland. Því var bjargað sem bjarg- að varð. Þótt ráðamenn Seðlabankans hefðu varað við útþenslu bankanna og undirbúið í kyrrþey áætlun um varnarvegg umhverfis Ísland, var mótmælunum eftir bankahrunið beint að Seðlabankanum. Niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu voru ekki beinlínis rangar, en ófull- komnar. Hún taldi upp ýmis atriði, sem gerði bankakerfið viðkvæmt, en horfði fram hjá því, hvers vegna það féll. Gler brotnar ekki, af því að það sé brothætt. Eitthvað þarf að gerast. »Davíð Oddsson og félagar hans tveir í Seðlabank- anum sáu hætturnar fyrr og skýrar en aðrir og vöruðu við þeim hvað eftir annað í trúnaði í fárra manna hópi, en töluðu fyrir daufum eyrum fram eftir árinu 2008. Höfundur er prófessor í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands. Hann sat í bankaráði Seðlabankans 2001–2009. Davíð Oddsson og Lárus Welding á blaða- mannafundi 29. september 2008. Hafa varð hröð handtök, eftir að Glitnir bar fram ósk um þrautavaralán til Seðlabankans. Seðlabankinn synjaði um lánið, því að veð væru ekki nógu góð, en ríkisstjórnin ákvað að kaupa 75% hlut í Glitni fyrir 600 milljónir evra. Morgunblaðið/Kristinn Morgunblaðið/Ernir Morgunblaðið/RAX UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.