Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.01.2018, Blaðsíða 27
andi minningar munu lýsa um ókomna tíð. Guðmundur Árni Stefánsson og Ingvar Viktorsson. Það er guðdómlegt veður í garðinum mínum og gullregnið breytist í sól og vorið kyssir syngjandi svörðinn í sólhvítum kjól. Ljóðlínur Matthíasar Johann- essen eiga vel við þegar okkar kæra vinkona er kvödd hinstu kveðju. Garðurinn hennar Gús- sýjar var fjölbreyttur, í hann sáði hún og ræktaði ást og umhyggju fyrir sína nánustu og stóran vina- hóp, virðingu fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu, ásamt réttsýni, dugnaði og þori til handa þeim sem landið eiga að erfa. Það hefur verið sagt að þeir sem láta sér annt um dýr, gróður og gamalt fólk séu góðar mann- verur, hún vinkona okkar fyllti svo sannarlega þann hóp. Kynni okkar hófust árið 1984 þegar Þuríður réði Gússý til að veita vinnustofunni á Sólvangi forstöðu. Gússý hafði unnið á vinnustofu fyrir fatlað fólk og þar hafði öllum starfsmönnum verið sagt upp í hagræðingarskyni. Með því að komast í sambærilega vinnu á Sólvangi sagði Gússý að Þuríður hefði bjargað lífi sínu. Reyndist það gæfuspor á báða bóga. Með sínu ljúfa viðmóti, list- rænu hæfileikum og hugmynda- auðgi tókst Gússý að fá heimilis- fólk til samstarfs sem varð því til mikillar ánægju og dægrastytt- ingar. Húsnæði og aðstæður voru ekki hin ákjósanlegustu á Sól- vangi, engu að síður óx þar og blómstraði einstakt starf fyrir heimilisfólkið. Síðar flutti vinnu- stofan í prýðishúsnæði á fyrstu hæðinni. Gússý var ekki ein um að sinna þessu starfi, Elín Traustadóttir studdi hana dyggi- lega í byrjun en 1988 hóf Mar- grét Bjarnadóttir störf á vinnu- stofunni. Þær áttu margra ára farsælt samstarf þar til Gússý lét af störfum árið 1999. Allt árið um kring var ötullega unnið að verkum á vinnustofunni sem síðan voru seld fyrsta laug- ardaginn í nóvember ár hvert á Sólvangsdeginum. Húsið ljómaði þann dag, vinnustofan smekkfull af fallegum vörum eftir heimilis- fólkið, og allir hjálpuðust að. Starfsfólk sem var hætt að vinna kom og aðstoðaði, konur úr Bandalagi kvenna mættu í vöfflu- bakstur og dætur Gússýar létu ekki sitt eftir liggja með að hjálpa til. Það var alltaf jafn gaman hjá okkur sem sátum og hvíldum lúin bein í lok dagsins og biðum spennt eftir „nýjustu töl- um“ eins og við kölluðum það; þegar Gússý og Erna Fríða skrifstofustjóri höfðu talið og sögðu okkur hver afrakstur dagsins hefði verið. Til margra ára höfum við nokkrar samstarfskonur ásamt Gússý komið saman og átt ómet- anlega stund í aðdraganda jóla. Einnig höfum við fyrrverandi starfsmenn Sólvangs verið dug- legir að hittast í hverjum mánuði. Aðdáunarvert var þegar Gússý, rígfullorðin, fór í ökutíma til að þjálfa sig upp á nýtt þegar Steini, eða guðsgjöfin hennar eins og hún kallaði eiginmann sinn jafn- an, gat ekki keyrt lengur. Nú var það hún sem sat undir stýri þeg- ar ekið var í sumarbústaðinn. Þau hjón höfðu mikla ánægju af að ferðast og þar var Spánn í uppáhaldi. Gússý hafði sagt okkur vin- konum sínum hversu mjög hana langaði til að klæðast flugfreyju- búningi, enda kímnigáfan aldrei langt undan. Það tókst þó ekki. En í sinni hinstu flugferð er það von okkar að hún svífi um loftin blá í búningnum og beri fram dýrindis veitingar fyrir Steina sinn og Millu sína. Við minnumst með þakklæti og hlýju merkrar og mikillar konu. Blessuð sé hennar minn- ing. Innilegar samúðarkveðjur sendum við dætrum og fjölskyld- unni allri. Þuríður G. Ingimundardóttir Erla M. Helgadóttir Sigþrúður Ingimundardóttir. Gússý lést 30. desember og síðan hafa margar góðar minn- ingar komið upp í hugann. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna með henni frá 1988 til árs- ins 1999 á handavinnustofunni á Sólvangi í Hafnarfirði. Gússý var skipulögð, hugmyndarík, góður hlustandi og fékk alla til að vinna af mikilli gleði. Oft var kátt á hjalla; sungið, hlegið og tónlist spiluð. Gússý var mjög listræn enda búin að afla sér menntunar á því sviði sem nýttist vel í þess- ari vinnu. Við Gússý vorum líka ná- grannar því við bjuggum báðar í Fögrukinn. Gússý og Steini voru mjög samrýnd og Gússý talaði oft um Steina sem guðsgjöfina sína. Gússý þráði að eignast heimili þar sem allt var í föstum skorðum, því hún ólst upp hjá einstæðri móður sem vann óreglulegan vinnutíma sem leik- kona. Draumur hennar rættist því heimili þeirra Steina og dætra þeirra þriggja, Millu, Heiðdísar og Hafdísar, var svo sannarlega hamingjuríkt og fal- legt. Heimili þeirra bar merki um listrænt auga húsmóðurinn- ar. Ég dáðist að þeim hjónum hvað þau voru dugleg að njóta lífsins. Þau áttu sumarbústað í Langholti í Flóa sem þau fóru í um hverja helgi. Þarna slöppuðu þau af og gátu sinnt sínum áhugamálum. Steini gekk um landið sitt, skoðaði fuglalífið og gróðursetti tré á meðan Gússý sat við að mála og gera handa- vinnu. Á vorin og haustin fóru Gússý og Steini gjarnan til Costa del Sol á Spáni og voru í 2-3 vikur. Lífið á Spáni átti vel við hana og hún talaði oft um að vera að fara heim til Spánar enda talaði hún spænsku og söng. Gússý fór 60- 70 sinnum til Spánar og alltaf á sama hótel og oftast í sömu íbúð. Gússý gaf sig alla í það sem hún hafði áhuga á. Hún var alla tíð mikill dýravinur og átti marga hunda sem hún annaðist eins og börnin sín. Svo hafði hún mikinn áhuga á pólitík og var stoltur krati. Gússý var mjög gjafmild kona og henni fannst allir vera „yndislegir“. Börnin mín tengd- ust henni mjög sterkum böndum og kölluðu hana „ömmu Gússý“ og svo kallaði hún manninn minn „drenginn sinn“. Hún var mikill húmoristi og gat verið skemmti- lega kaldhæðin. Minnisstætt er þegar fólk sagði henni frá veik- indum sínum en þá sagði hún grafalvarleg: „Þetta er ekki gott á þig.“ Hún hafði gaman af að kaupa fallega hluti fyrir sjálfa sig og aðra og gantaðist gjarnan með að segja að hlutirnir væru keyptir í Harrod’s þegar þeir voru keyptir í Rúmfatalagernum. Gússý var mjög vel að sér í tónlist og fylgdist vel með nýj- ustu straumum og stefnum. Ég er þakklát fyrir vináttu og tryggð okkar sem aldrei bar skugga á. Gússý endaði sína ævi- daga á Sólvangi, sátt og sæl. Ég heimsótti hana nokkru fyrir jól en þá var hún orðin ansi veik. Þá sagðist hún vera að bíða eftir „miðanum“. Þegar ég kom til hennar milli jóla og nýárs sagðist hún vera búin að fá „miðann“ en væri að bíða eftir „go to gate“. Hún vissi alveg í hvað stefndi og var tilbú- in. Það er mín einlæg trú að Steini, Milla og hundarnir þeirra taki á móti henni opnum örmum og hún sé á öruggum stað. Guð blessi þig, elsku Gússý, þín Margrét (Magga). MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 Ég kynntist Sig- urði Lárussyni ung- ur að árum, þegar ég fór að vera með syst- ur hans, þá var hann á kafi í fót- bolta öll sumur. Hann byrjaði að spila með Þór en ég var harður KA-maður. Við vorum ekki alltaf sammála í íþróttum, en það fór vel á með okkur. Við eignuðumst báðir börn á sama árinu, 1973, og það leiddi okkur saman, þá hitt- umst við alltaf í jólaboðunum á jóladag heima hjá foreldrum hans. Við Ragnheiður komum oft við hjá þeim á Akranesi þegar við vorum á ferð um landið. Sigurður var ánægður á Akranesi og við fundum að þar líkaði honum vel, hann hafði góða vinnu þar og það gekk líka mjög vel í fótboltanum enda lagði hann sitt af mörkum til að það gengi upp. Árið 1990 fluttist fjölskyldan aftur til Akureyrar og settist að í Ránargötunni, þá var faðir hans mjög ánægður að sonurinn væri komin aftur norður því hann fylgdist alltaf vel með honum, þeir voru mjög samrýndir. Það var því mikið áfall fyrir Sigurð þegar faðir hans lést mjög snögg- lega 6. janúar 1992, 60 ára gam- all. Sigurður átti mjög erfitt með að jafna sig á þessum missi, því hann var ekki vanur að bera til- finningar sínar á torg. Eitt sinn sem við hittum Sig- urð og Valdísi voru þau að hugsa um að kaupa húsbíl. Þau voru bú- in að skoða marga bíla, en svo var eins og hendi væri veifað, nei við kaupum engan húsbíl, við byggj- um okkur sumarbústað. Svona var Sigurður, velti hlutunum fyr- ir sér en var samt fljótur að taka ákvarðanir og þar við sat. Þau skoðuðu marga staði hér við Eyjafjörðinn, en svo komu þau í heimsókn. Við erum búin að finna lóð vestur á Þelamörk í landi Steðja, og þar er líka laus lóð handa ykkur. Þá fóru hjólin að snúast fyrir alvöru og við festum okkur lóð við hliðina á þeim. Það var gaman að fylgjast með Sigurði þegar hann var að byrja á húsinu sínu. Það voru grafnar djúpar holur fyrir svera staura sem hann steypti niður, síðan voru burðarbitarnir lagðir ofan á og festir tryggilega, þeir voru hafðir tveimur tommum sverari en teikningin sagði til um. Einnig var gólfbitunum fjölgað og þeir hafðir tveimur tommum hærri en teikning sagði til um. Ívar minn, þegar þú byggir hús þá þarft þú að hafa undirstöð- una mjög góða. Það má ekkert klikka, hún þarf að vera mjög rétt og það má ekkert síga, svo er mjög mikilvægt að hafa góða ein- angrun í gólfinu. Það er svo auð- velt að byggja húsið ef grunnur- inn er góður. Þetta er mjög góð lýsing á Sigurði, enda er húsið allt mjög vandað og allur frá- gangur fullkominn. En hann var nú aldeilis ekki einn um það að byggja húsið, Valdís var með honum öllum stundum,alveg sama hvernig veðrið var. Þau byggðu þetta hús saman af mikl- um myndarskap. Þau voru ákaf- lega samrýnd og gekk einstak- lega vel að vinna saman. Við eigum góðar minningar um margar samverustundir í sveit- inni okkar. Elsku Valdís, Orri, Lína, Krissi og Aldís, við sendum ykk- ur og fjölskyldum ykkar okkar dýpstu samúðarkveðjur, einnig viljum við biðja góðan Guð að varðveita aldraða móður sem Sigurður Kristján Lárusson ✝ Sigurður Krist-ján Lárusson fæddist 26. júní 1954. Hann lést 3. janúar 2018. Útför Sigurðar fór fram 15. janúar 2018. syrgir nú son sinn. Geymum minn- inguna um góðan dreng. Ragnheiður, Ívar og fjölskylda. Kveðja frá Knatt- spyrnusambandi Íslands Það er ákveðin ára sem stafar frá sumum leik- mönnum í fótboltanum. Sigurður Lárusson, eða Siggi Lár. eins og hann var gjarnan kallaður, var einn af þeim. Siggi var einn af þessum óbil- andi baráttujöxlum sem leiddu sitt lið með því að gefast aldrei upp og gáfu allt sitt til heilla liðs- ins. Hann var sannur leiðtogi og fyrirliði. Siggi var uppalinn á Akureyri og lék bæði fyrir Akureyri og Þór. Hann var þó best þekktur fyrir tímann sinn hjá ÍA og lék með þeim á árunum 1979-1988. Á Skaganum var hann fyrirliði lengst af og vann sem slíkur m.a. tvöfalt bæði Íslands- og bikar- meistaratitla árin 1983-4. Undir- ritaður lék á móti þessu firna- sterka liði Skagans á sínum tíma og man vel eftir þessu frábæra liði sem stóð svo þétt saman og hafði svo hæfileikana í ofanálag til þess að skila svo mörgum sigrum. Þar fremstur á meðal jafningja var Siggi Lár. Hann þjálfaði síðar lið Skagamanna árin 1988-90. Á þess- um árum var hann einnig í lands- liðinu og spilaði 11 landsleiki á ár- unum 1981-1984. Hann var síðar sæmdur silfurmerki KSÍ fyrir framlag sitt til knattspyrnunnar. Fyrir hönd Knattspyrnusam- bands Ísland og sem gamall fót- boltafélagi vil ég votta fjölskyldu Sigurðar, Valdísi konu hans, Lár- usi Orra, Sigurlínu, Kristjáni, Al- dísi, barnabörnum og aðstandend- um öllum okkar innilegustu samúð. Missir þeirra er mikill. Blessuð sé minning Sigga Lár. Guðni Bergsson, formaður KSÍ. Þegar fréttist af ótímabæru andláti Sigurðar Lárussonar, þessa stóra og sterka félaga okkar Skagamanna, var öllum brugðið. Hann sem var enn á góðum aldri og hreystin uppmáluð. Með Sig- urði er genginn mikill sómamaður sem markaði djúp spor í knatt- spyrnuna á Akranesi. Mig langar að minnast hans með nokkrum orðum, en það verða aðrir sem þekkja betur til sem rekja ævi- skeið hans. Þegar Sigurður Lárusson er kvaddur, eða Siggi Lár. eins og hann var oftast nefndur, kemur margt upp í hugann eftir þau tíu ár sem hann og fjölskyldan bjuggu á Akranesi. Siggi Lár. lék með ÍA öll þessi ár og var lengst af fyrirliði liðsins og lykilleikmaður. Betri fyrirliða var vart hægt að hugsa sér, hvort sem var utan vallar eða innan, enda var árang- urinn með því besta sem gerst hefur í íslenskri knattspyrnu. Á þeim tíma leiddi hann liðið til tveggja Íslandsmeistaratitla 1983 og 1984 og fjögurra bikarmeist- aratitla 1982, 1983, 1984, 1986. Þessi tími er einn sá sigursælasti í sögu ÍA og á þessum tíma náðist sá einstæði árangur að vinna deild og bikar tvö ár í röð. Það er eina skiptið sem slíkt hefur tekist í ís- lenskri knattspyrnu. Sigurður var um árabil leikmaður íslenska landsliðsins. Í lok ferils síns þjálf- aði hann ÍA-liðið um tveggja ára skeið, sem sýndi vel hvaða traust var borið til hans. Siggi Lár. og Valdís kona hans og þeirra börn tóku virkan þátt í knattspyrnustarfinu sem og félagsstarfi okkar og áttu sinn þátt í því hve samheldni stjórnar félagsins, leikmanna, starfsfólks og eiginkvenna var mikil. Siggi var metnaðarfullur knattspyrnu- maður og smitaði út frá sér á hverju sem gekk. Hann bjó yfir mörgum af bestu kostum góðs leikmanns og féll vel inn í leikstíl Akranesliðsins. Hann var metnað- arfullur og áræðinn leikmaður og dugnaðarforkur með gott keppn- isskap og gaf yfirleitt allt sitt í leikina og uppskar eftir því. Nú að leiðarlokum vil ég þakka fyrir hönd okkar knattspyrnu- áhugafólks á Akranesi fyrir allt sem hann gerði á vellinum. Við minnumst Sigurðar Lárussonar með virðingu og söknuði. Ég votta Valdísi og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minnig Sigurðar Lárussonar. Gunnar Sigurðsson, fyrrverandi formaður knattspyrnuráðs og Knattspyrnufélags ÍA. Þegar Sigurður Lárusson gekk til liðs við knattspyrnulið ÍA og flutti til Akraness með fjölskyldu sína 1979 hóf hann störf sem smið- ur hjá Þorgeiri & Ellert hf. og starfaði þar árum saman, eða þar til hann tók að sér að stýra nýju útibúi Henson á Akranesi. Sigurð- ur var góður starfsmaður, harð- duglegur og útsjónarsamur, vin- sæll meðal starfsmanna, alltaf hress og kátur og hafði einstak- lega góða nærveru. Sigurður var frábær liðsauki fyrir ÍA-liðið sem hann lék með í áratug. Liðið var mjög sterkt á þessum árum, varð tvisvar Ís- landsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari. Þá lék liðið fjöl- marga leiki í Evrópukeppni, m.a. við Aberdeen sem þá var Evrópu- meistari og sjálft stórveldið Barcelona og stóð sig ótrúlega vel. En það voru ekki bara Evrópu- leikir sem þurfti að sinna á er- lendri grund. Árið 1979 fóru Skagamenn í ógleymanlega ævin- týraferð til Indónesíu þar sem lið- ið tók þátt í „Marah Halim Cup“, mjög sterku 10 liða móti þar sem ÍA komst í úrslit en tapaði úrslita- leiknum fyrir landsliði Búrma eft- ir vítaspyrnukeppni. Sigurður var árum saman fyr- irliði ÍA og leysti það hlutverk vel af hendi, baráttujaxl sem hreif aðra með sér. Hann var kosinn íþróttamaður Akraness árið 1983. Ég starfaði hjá Þ&E öll árin sem Sigurður vann þar og sat jafnframt í knattspyrnuráði fyrstu sex árin hans með ÍA. Ég kynntist honum því mjög vel, hann var vel gerður maður sem mér líkaði mjög vel við, glaðsinna, hreinn og beinn, dugnaðarforkur og drengur góður. Við Guðný sendum Valdísi og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Guðjón Guðmundsson. Í upphafi nýs árs bárust okkur þau sorglegu tíðindi að Sigurður Lárusson, eða Siggi Lár. eins og við kölluðum hann alltaf, væri dá- inn. Það tók langan tíma að átta sig á þessu. Siggi var í okkar huga ímynd hreystimennisins, það átti alls ekki að geta gerst að hann færi svo snemma og skyndilega. Það er sár staðreynd sem erfitt er að sætta sig við. Siggi Lár. fluttist með fjöl- skyldu sinni til Akraness árið 1979, fyrst og fremst til að spila fótbolta, einnig til að kynnast nýj- um stað og nýju fólki. Þau féllu fljótt vel inn í samfélagið hér og eignuðust marga góða vini. Siggi varð strax einn af lykilmönnum ÍA-liðsins sem hann lék með í 10 ár, flest árin var hann fyrirliði. Auk þess þjálfaði hann liðið 1988 og 1989. Hann varð tvívegis Ís- landsmeistari með ÍA og fjórum sinnum bikarmeistari, þar af tvö- faldur meistari tvö ár í röð, sem er einstakt afrek í knattspyrnusögu Íslands. Ég átti því láni að fagna að þjálfa ÍA-liðið í nokkur ár á þess- um tíma. Við Sigrún kynnumst því Sigga og Valdísi konu hans mjög vel. Siggi hafði marga góða kosti sem knattspyrnumaður. Hann var mjög góður varnarmaður; hávax- inn, líkamlega sterkur, fljótur, af- burðagóður skallamaður og með góðan leikskilning. Siggi var mik- ill leiðtogi og baráttujaxl sem gerði alla í kringum sig betri með krafti sínum, áræði og útgeislun. Á þessum árum ríkti sannkölluð fjölskyldustemning hjá ÍA-liðinu. Liðið var sterkt innan vallar, en ekki síður utan vallar þar sem allir stóðu saman og unnu sem ein heild til að ná settu marki; leik- menn, stjórnarmenn, eiginkonur, unnustur og allir aðrir sem stóðu að liðinu. Siggi og Valdís létu ekki sitt eftir liggja á þeim vettvangi með ljúfri og skemmtilegri fram- komu, brosmildi og dillandi hlátri. Við Sigrún áttum margar góðar og ógleymanlegar stundir með þeim og öllum hópnum sem seint verða fullþakkaðar. Með þessum fáu orðum kveðj- um við Sigga Lár. og sendum Val- dísi og fjölskyldu innilegustu sam- úðarkveðjur. Megi minningin um góðan dreng hjálpa ykkur í gegn- um erfiða tíma. Sigrún og Hörður Helgason. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT BJÖRGVINSDÓTTIR, Barðaströnd 12, Seltjarnarnesi, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum föstudaginn 12. janúar. Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 19. janúar klukkan 15. Þráinn Viggósson Viggó Þráinsson Phillipa Mary Griffith Íris M. Þráinsdóttir Jón Þráinsson Hinrik Þráinsson Dóra Kjartansdóttir Welding barnabörn og barnabarnabarn Ástkær bróðir okkar og mágur, SVEINN VIÐARSSON, lést föstudaginn 5. janúar. Minningarathöfn verður haldin í Ríkissal votta Jehóva, Hraunbæ 113, Reykjavík föstudaginn 19. janúar klukkan 14. Bjarney Viðarsdóttir Steinunn Viðarsdóttir Pétur Valsson Jón Þór Viðarsson Erna Friðriksdóttir Hilmar Viðarsson Kerstin Viðarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.