Morgunblaðið - 17.01.2018, Side 34

Morgunblaðið - 17.01.2018, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 Skál fyrır hollustu Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsviðs Reykja-víkurborgar, á fimmtíu ára afmæli í dag. Hún er arkitekt aðmennt og varð skipulagsstjóri Reykjavíkur árið 2008 en tók við núverandi starfi þegar þrjú svið voru sameinuð árið 2012. Undir um- hverfis- og skipulagssvið heyra m.a. skipulagsmál, byggingarmál, um- hverfismal, samgöngumál, Grasagarðurinn, vinnuskólinn, sorphirðan og rekstur borgarlandsins en um 450 manns starfa á sviðinu. „Það eru algjör forréttindi að fá að sinna þessu starfi og taka þátt í þeirri jákvæðu þróun sem er að eiga sér stað í Reykjavík. Svo er frábært að vinna með hópi af metnaðarfullu fólki sem vill gera góða borg enn betri.“ Ólöf er núna stödd á skíðum í Ischgl í Austurríki. „Þetta er stórt ár hjá okkur, við hjónin erum bæði fimmtug á árinu, fermingar og út- skriftir verða hjá fjölskyldunni svo okkur fannst tilvalið að gera eitt- hvað skemmtilegt saman. Við erum skíðafólk, helmingurinn er á skíð- um og hinn er á brettum, erum vön að fara norður á skíði næstum árlega en þetta er í fyrsta sinn sem við erum erlendis á skíðum og þetta er alveg stórskemmtilegt svæði.“ Öll fjölskyldan er þar samankomin, Ásgeir Geirsson, eiginmaður Ólafar, en hann hefur yfirumsjón með tölvuöryggismálum hjá Alvogen, og börn Ólafar og Ásgeirs: Tómas Atli 22 ára, Viktor Örn 20 ára og Íris Erla sem er alveg að verða fjórtán, og kærasta Tómasar, Elma Dís. Áhugamál Ólafar eru ferðalög, skíði, að elda góðan mat og eyða tíma með fjölskyldu og vinum sem er auðvitað best. Svo fer töluverður tími í að fylgjast með faginu enda er áhuginn á borgarþróun, skipulagi, arki- tektúr og hönnun almennt ódrepandi. Sviðsstjórinn Ólöf hefur mikinn áhuga á borgarþróun. Stödd á skíðum í Austurríki Ólöf Örvarsdóttir er fimmtug í dag R agnar Heiðar Óskars- son fæddist í Vest- mannaeyjum 17.1. 1948 og ólst þar upp við leik og störf – sprang og bryggjuráp. Hann var í Barnaskóla Vestmannaeyja og Gagnfræðaskól- anum í Vestmannaeyjum og lék í lúðrasveitum „Oddgeir Kristjánsson kunni að koma upp alvöru lúðrasveit. Hann ól okkur upp í Lúðrasveit Barnaskól- ans, síðan í Lúðrasveit Gagnfræða- skólans og ef menn stóðu sig vel fengu þeir inngöngu í Lúðrasveit Vestmannaeyja. Ég spilaði með Lúðrasveitum skólanna en þegar komið var að Lúðrasveit Vestmanna- eyja, fluttum við í land. Ég lék hins vegar með þeirri sveit eftir að ég flutti aftur til Eyja. Eins söng ég með Samkór Vestmannaeyja og syng nú með kirkjukór Landakirkju. Tónlistarlífið í Eyjum hefur því alltaf verið mikilvægur þáttur í mínu lífi.“ Ragnar flutti með foreldrum sín- um til Reykjavíkur 1964. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1969, BA-prófi í sagnfræði, íslensku og heimspeki frá HÍ 1975 og stundaði framhalds- nám í Danmörku í sagnfræði og náms- og kennsluráðgjöf 1996 -97. Ragnar var kennari við Gagn- fræðaskólann í Vestmannaeyjum Ragnar H. Óskarsson, framhaldsskólakennari í Eyjum – 70 ára Fjölskyldan á heimaslóðum Ragnar og Jóhanna með börnunum sínum, þeim Guðbjörgu Vallý, Óskari og Njáli. Bjartar vonir vakna í vorsins ljúfa blæ Kirkjukór Landakirkju Ragnar syngur með kórnum og áður Samkórnum. Magnús Rúnar Dalberg fram- kvæmdastjóri á 70 ára afmæli í dag. Eiginkona hans er Ragnheiður Njálsdóttir. Árnað heilla 70 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.