Morgunblaðið - 17.01.2018, Page 37

Morgunblaðið - 17.01.2018, Page 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt þúi hafir ekki græna glóru um hvað það er sem gengur á, skaltu umfram allt ekki fara á taugum. Reyndu að halda ákveðinni fjarlægð og yfirsýn. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú munt njóta þess að taka þátt í hópíþróttum með vinum þínum næstu dag- ana. Mundu bara að aðstoð er eitt og að taka alla stjórn er annað og það átt þú að varast. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Skilin á milli vináttu og ástar geta stundum vafist fyrir fólki. Taktu samt vel á móti ráðum ættingja þíns því þau munu reynast þér gott veganesti. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta er góður dagur til þess að hugsa um vináttuna. Settu þig í samband við konurnar í fjölskyldunni, ekki síst ömmu eða gamla frænku. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Treystu innsæi þínu í samskiptum við aðra í dag. Hlustaðu vel á þá sem til þín leita og þegar þú heyrir rétta tóninn skaltu bregðast við án tafar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Allt varðandi frama þinn og orðstír í þjóðfélaginu lofar góðu í dag. Spýttu því í lófana og haltu áfram. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það getur verið erfitt að halda haus, þegar að manni er sótt úr öllum áttum. Mundu að vinur er sá er til vamms segir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Tímabundið peningaleysi gæti verið það besta sem gerst hefur í fjár- málum þínum í langan tíma. Gefðu þér góð- an tíma til þess að reifa sjónarmið þín. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Farðu þér hægt og taktu and- mæli annarra ekki of nærri þér því þú ert á réttri leið eins og koma mun í ljós. Láttu það þó ekki hindra þig í að þjóna sannleik- anum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Treystu á sjálfan þig, varðandi framtíð þína. Láttu allar óþarfa áhyggjur lönd og leið og einbeittu þér að augnablik- inu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er komið að því að finna nýj- ar leiðir til þess að koma skoðunum þínum á framfæri. Svaraðu rökstuddri gagnrýni af hógværð og tillitssemi. Mundu samt að að- gát skal höfð í nærveru sálar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gefstu ekki upp þótt á móti blási því öll él birtir upp um síðir. Stífni getur spillt fyrir möguleikum þínum í ástarsam- bandi. Mér barst á mánudag enn einvísan um Bjarna Har. kaup- mann og nú eftir Jónas Frímanns- son: Ekki bregst oss Bjarni Har. bensín stýrir dælum á Sauðárkróki við saltan mar sómamanni hælum. Birni Ingólfssyni dettur margt í hug. Nú segir hann: „Morgun- stund gefur gull í mund og stund- um skrýtilegar hugsanir í þokka- bót.“ Morgunstund fína á mánann að rýna er merkilegt spé það undrar mig hve hann endist að skína þótt skarður sé á leiðina mína ljósgeisla sína lét hann í té búinn að blína á bónda í Kína Si Sing Que. Nú glaðnar í lofti ef rétt er sem Magnús Halldórsson segir á Boðn- armiði: „Þegar upp er staðið gætu hægar framfarir grasbíta á and- lega sviðinu, verið farsælar varð- andi framhaldslíf á jörðinni“: Vegan dafnar víða um land og væri nokkuð gaman, ef gáfnafar og grænkustand, gætu farið saman. Benedikt Jóhannsson skýtur inn orði um mál málanna: Hlý og einlæg ástleitni getur orðið áreitni, ef sannarlega sagt er til: Ég svona lagað síður vil. Ólafur Stefánsson yrkir og kall- ar „ruglvisku“: Til að bæta möli í mokku, margar lægðir þeysa um land. Síðan breyttist Sokki í Sokku, og sokku- kallast núna band. Sigmundur Benediktsson tekur undir og segir að það sé rétt hjá Ólafi að það sé víst einhver leikur í lægðunum!: Nú frekar veðrið fárlegt er með frussi og mási grófu og lægðagreyin leika sér í langri halaróu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Si Sing Que og andlegum grasbítum „TIL AÐ RÆÐA LAUSN Á GÍSLATÖKU, ÝTTU Á SJÖ…“ „ÞÚ SEGIR AÐ ÞÚ HAFIR VERIÐ Á BJARNARVEIÐUM ÞEGAR BYSSAN FÓR Í BAKLÁS?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann var þarna í draumum þínum. LÍFIÐ ER FYNDIÐ, ÞÚ VEIST ALDREI HVAÐ MUN GERAST ÞAR TIL ÞAÐ GERIST EF ÞAÐ GERIST AF HVERJU? GAFSTU HONUM EITTHVAÐ AÐ BORÐA?!SNERTUR HEFUR VERIÐ AÐ BETLA MAT! MÉR LÍÐUR EINS OG ÉG SÉ SVO GRIMMUR! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HJÁLPAR- LÍNA Tindastóll vann glæsilegan og sér-lega sannfærandi sigur á KR í úrslitum í bikarkeppni karla í körfu- bolta í Laugardalshöll um helgina. Þetta er fyrsti stóri titill liðsins frá Sauðárkróki og full ástæða til að óska því til hamingju. Eftir leikinn sagði Axel Kárason að sigurinn gegn Haukum í Höllinni þremur dögum áður hefði komið þeim á bragðið. „Við vorum óhræddir og allir búnir að fá smjörþefinn af því að spila stóran leik í Höllinni,“ sagði hann. Í orðabók er orðtakið að finna smjör- þefinn af einhverju skýrt þannig: kenna á einhverju, þola óþægilegar afleiðingar einhvers. Haukar og KR fengu að finna smjörþefinn af því hvernig er að spila við Tindastól. Víkverji leyfir sér að efast um að Stólarnir hafi fundið nokkurn smjör- þef í leikjum sínum í Höllinni. Um leið vonar hann að Axel fyrirgefi honum smásmyglina. Því má bæta við að orðasambandið að fá nasaþef af einhverju, sem merkir að kynnast einhverju lauslega, býður upp á rugling. x x x Sýnt var beint frá leikjum í undan-úrslitum og úrslitum í meist- araflokki í bikarnum og úrslita- leikjum yngri flokka. Sjónvarps- áhorfendur njóta þess að geta fylgst með því hvað þjálfarar hafa að segja í leikhléum. Víkverji hjó eftir því að í leikjum meistaraflokksliða töluðu þjálfarar ensku við leikmenn. Hann hugsaði með sér að þetta yrði að skrifast á það að öll hafa þessi lið er- lenda leikmenn í sínum röðum og því sé þetta óhjákvæmilegt. En er það svo? x x x Kunningi Víkverja hefur fylgstmeð viðureignum í evrópska körfuboltanum og segir að þar sé reglan sú að þjálfarinn tali við leik- menn á sínu móðurmáli. Erlendu leikmennirnir verði einfaldlega að átta sig á því hvað þjálfarinn vill og virðist yfirleitt gera það. Í það minnsta séu þeir yfirleitt ekki úti á þekju þótt fyrirmælin séu á öðru tungumáli en ensku. Íslenskir þjálf- arar mættu að ósekju velta fyrir sér hvort þetta sé ekki fordæmi til eftir- breytni. vikverji@mbl.is Víkverji Því að ég, Drottinn, er Guð þinn, ég held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast eigi, ég bjarga þér (Jesaja 41:13)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.