Morgunblaðið - 17.01.2018, Síða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018
TRÉSMÍÐAVÉLARNAR
FÁST Í BRYNJU
Hefill HMS 850
hefilbreidd 210 mm
kr. 57.500
Hefill HMS 1070
hefilbreidd 254 mm
kr. 82.140
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Ný
vefverslun
brynja.is
L
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Bandsög
Basa 3
kr. 99.600
Bandsög
Basa 1
kr. 45.115
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
laugardaga
11-15
VIGO
Fást sem 3ja sæta, 2ja sæta og stóll,
margir litir af áklæði eða leðri.
Opið virka daga
11-18
Í tilefni af komu bandaríska kvik-
myndaleikarans og grínistans Bill
Murray á Listahátíð í Reykjavík í
júní mun Bíó Paradís og hátíðin
sýna eina af hans þekktustu og
vinsælustu gamanmyndum,
Groundhog Day, föstudaginn 2.
febrúar, í samstarfi við Hugleik
Dagsson, teiknara og grínista.
Kvikmyndin verður sýnd frá
morgni til kvölds þennan dag sem
er einmitt dagurinn sem kvik-
myndin er kennd við, Groundhog
Day eða Dagur múrmeldýrsins.
Endalaust kaffi verður í boði og
Hugleikur mun bjóða upp á atriði
aftur og aftur. „Hver veit nema að
það sé von á leynilegu dagskrár-
atriði. Og þó,“ segir í tilkynningu
um viðburðinn.
Fyrir þá sem ekki þekkja til
fjallar kvikmyndin Groundhog
Day, frá árinu 1993, um hroka-
fullan veðurfréttamann sem send-
ur er til bæjarins Punxsutawnay
til að fjalla um hinn svokallaða
dag múrmeldýrsins. Þar í bæ er
til siðs að múrmeldýr spái fyrir
um hvort vetri sé tekið að halla
eða ekki og sjái múrmeldýrið
skugga sinn þýðir það áframhald-
andi vetur og kulda en ef dýrið
skríður út úr dvalarstað sínum er
vorið á næsta leyti. Í kvikmynd-
inni upplifir veðurfréttamaðurinn
sama daginn aftur og aftur og
virðist svo ætla að verða um alla
eilífð.
Dagur múrmeldýrsins
á degi múrmeldýrsins
Sprenghlægileg Úr gamanmynd-
inni sígildu Groundhog Day.
Louise Wolthers, sýningarstjóri við
Hasselblad Center í Gautaborg,
flytur á morgun, fimmtudag,
hádegisfyrirlestur í Þjóðminjasafn-
inu um rannsóknarverkefni sitt
„Áhorf! Eftirlit, list og ljósmyndun
(2016-2017)“, sem og nokkur lyk-
ilverk sem voru á samnefndri sýn-
ingu sem hún setti saman og var
sett upp í Hasselblad Center í
Gautaborg, í Kunsthall Aarhus og
C/O í Berlín. Fyrirlestur hennar
hefst kl. 12.
Wolthers mun auk þess fjalla um
væntanlega sýningu, sem líta má á
sem framhald af þeirri fyrri, og hún
kallar „Sjónsvið dróna: hernaður,
eftirlit, mótmæli (2018)“. Í tilkynn-
ingu segir að bæði þessi sýning-
arverkefni veki spurningar um hlut-
verk ljósmyndunar í fjölsæis-
samfélagi – og varpi ljósi á hvernig
beita megi fjölsæinu sjálfu til að
vinna gegn auknu eftirliti og alsæi.
Fyrirlesturinn er fyrsti viðburður
Ljósmyndahátíðar Íslands sem
haldin er á tveggja ára fresti og
stendur út helgina.
Louise Wolthers lauk doktors-
prófi frá Kaupmannahafnarháskóla
árið 2008 og fjallaði doktorsritgerð
hennar um ljósmyndir og söguritun.
Hún vinnur nú að rannsóknarverk-
efni um millistríðsárin, ljósmyndun
og mannréttindi. Wolthers er eft-
irsóttur fyrirlesari og sýningarstjóri
og hafa bæði skrif hennar í fræðirit
og sýningar við Hasselblad-
stofnunina og önnur listasöfn vakið
athygli, bæði fyrrnefnd sýning
„Áhorf! Eftirlit, list og ljósmyndun“
og sýningar með verkum sænska
ljósmyndarans Kent Klich með ljós-
myndum frá Gaza-svæðinu og hol-
lensku listakonunnar Rineke
Dijkstra sem hlaut Hasselblad-
verðlaunin árið 2017.
Aðrir viðburðir í Þjóðminjasafni
Íslands á Ljósmyndahátíð eru opn-
un á sýningum Davids Barreiro,
„Langa blokkin í Efra Breiðholti“,
og Karls Jeppesen, „Fornar ver-
stöðvar“, kl. 14 á laugardag.
Fyrirlesari Louise Wolthers.
Fjallar um eftirlit,
list og ljósmyndun
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Þetta gæti orðið í síðasta skipti sem
við gefum út tónlist á diski. Fólk er
mikið til hætt að kaupa þá á Íslandi.
Við þurfum að finna nýtt form,“ segir
Hilmar Örn Agnarsson, stofnandi og
stjórnandi Kammerkórs Suðurlands.
Kórinn gaf á dögunum út sinn
fimmta disk í tilefni 20 ára afmælis
kórsins í fyrra. Diskurinn, Kom skap-
ari, inniheldur 13 kórlög eftir ýmsa
tónlistarmenn sem allir utan Páls Guð-
mundssonar á Húsafelli eru þekkt tón-
skáld.
„Við Palli erum fóstbræður og mikl-
ir vinir. Palli notar tónlist sem annað
tjáningarform listar sinnar sem er
þekkt meðal listamanna. Verkin hans
eru „júník“ enda má segja að Páll á
Húsafelli sé merkilegt náttúruundur.“
Samstarf við Smekkleysu
Kom skapari var gefin út í góðu
samstarfi við Smekkleysu sem gefið
hefur út alla diska kórsins og dreift
þeim erlendis. Kammerkór Suður-
lands var stofnaður í Skálholti 1997.
Hilmar Örn segir að í kórnum sé ein-
vala gæðafólk með ólíkan tónlistar-
bakgrunn. Í upphafi voru félagsmenn
eingöngu Sunnlendingar en í dag dug-
ar að vera ættaður að sunnan svo kór-
inn standi undir nafni.
„Undirbúningur disksins var harla
óvenjulegur. Hann hófst á Myrkum
músíkdögum fimm árum áður en disk-
urinn kom út. Höfundar verkanna
hafa verið með í öllu ferlinu,“ segir
hann.
„Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós
var listrænn stjórnandi og upptöku-
stjóri disksins sem tekinn var upp í
Sundlauginni,“ segir Hilmar Örn og
bætir við að eftir að Kjartan hætti í
Sigur Rós hafi hann fikrað sig meira
yfir í klassíska geirann.
„Við upptökuferlið á diskinum var
notuð sama aðferð og í popptónlist þar
sem við notuðum þá tækni sem stúd-
íóið býður upp á, s.s. að bæta inn fleiri
röddum, hljóðfærum og hljóðeffektum
eftir á,“ segir Hilmar Örn og bætir við
að tónskáldin séu flest þekkt úr popp-
heiminum en fáist hér við klassíska
formið á sínum forsendum. Þetta hafi
verið kallað „crossover“, þar sem popp
og klassík krossa mörk hvorrar teg-
undar fyrir sig.
„Ég er gamall Þeysari, var í hljóm-
sveitinni Þeyr sem spilaði m.a. stórt
hlutverk í kvikmyndinni Rokk í
Reykjavík. Ég söðlaði um og fór að
læra á kirkjuorgel í Hamborg og starf-
aði sem organisti í Skálholti í 17 ár. Í
mér tengjast því þessar tegundir tón-
listar saman.“
Þekkt og ólík tónskáld
Hilmar Örn segir aðkomu lagahöf-
unda að diskinum mjög persónu-
bundna. Á honum bræðist saman
sköpun ungra hæfileikaríkra tón-
skálda og hljóðfæraleikara frá bæði
FÍH og Listaháskólanum og eldri út-
lærðra snillinga.
„Unga fólkið í dag er svo klárt og
með góða menntun í músík. Þau eru
sjálfbærari en við vorum og setja mús-
íkina ekki í kassa.
Á diskinum eru tvö lög eftir Kjartan
Sveinsson, „Stríð“ og „Sumarmorg-
unn“. Hilmar Örn segir að til hafi stað-
ið að lag Kjartans „Sumarmorgunn á
Heimaey“ yrði titillag myndarinnar
Eldfjallsins en úr því varð ekki.
Benedikt Hermannsson – Benni
Hemm Hemm – á lagið „Norður“.
„Benni hefur verið að kljást við ým-
islegt og lagið er frábært,“ segir Hilm-
ar Örn. Og að hans mati er lag Ragn-
hildar Gísladóttur, „Skugginn minn“,
eitt flottasta verk sem hún hefur gert.
„Ragga skrifar alla sína músík sjálf.
Páll Ragnar Pálsson er frábær tón-
smiður, nýkominn úr námi. Hann er
Mausari og samdi titillag disksins,
„Kom skapari“.“
Georg Kári, sonur Hilmars Arnar,
er tónskáld og meðlimur í kórnum.
Hann samdi lagið „Nótt“ og Snorri
Hallgrímsson bekkjarbróðir hans
samdi lagið „Stjörnuhrap“. Báðir voru
þá nýútskrifaðir úr LHÍ.
Sköpun og snilli
bæði yngri og eldri
Verk íslenskra tónskálda á diski Kammerkórs Suðurlands
Innblásinn Hilmar Örn Agnarsson stjórnar kórnum á tónleikum.