Morgunblaðið - 17.01.2018, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2018
Djass nýtur mikilla vinsælda í
Þýskalandi og hefur íslenskur
djass nú hlotið þar mikla kynn-
ingu því um áramótin fylgdi
djasstímaritinu Jazzthetik safn-
diskur með lögum eftir 13 ís-
lenska djasstónlistarmenn.
Áskrifendur tímaritsins eru um
7.000 talsins og fengu þeir disk-
inn í kaupbæti.
Að útgáfu þessa disks stóðu
jazzdeild FÍH, Jazzhátíð Reykja-
víkur og Útflutningsmiðstöð ís-
lenskrar tónlistar en píanóleik-
arinn og djassistinn Sunna Gunn-
laugsdóttir átti hugmyndina að
útgáfunni. Í tímaritinu voru einn-
ig birt viðtöl við píanóleikarana
Agnar Má Magnússon og Eyþór
Gunnarsson og er það prentað í
17.000 eintaka upplagi en ein-
ungis áskrifendur fengu diskinn.
„Ég hef verið að sækja djass-
kaupstefnu í Bremen, JazzAhead,
sem er ein sú stærsta í djassgeir-
anum og einnig ársfundi Europe
Jazz Network og alltaf horft
öfundaraugum á safndiska sem
hin Norðurlöndin hafa verið að
gefa út til að koma sínu fólki út í
heim,“ segir Sunna um diskinn.
Hann sé kjörin leið til að kynna
íslenskan djass fyrir áhugasömum
djassgeggjurum. Sunna segist
hafa viðrað
þessa hugmynd
við félaga sína í
jazzdeild FÍH,
ÚTÓN og
Jazzhátíð
Reykjavíkur,
hvort ekki ætti
að reyna að
gefa út svona
disk. „Við hrint-
um þessu í
framkvæmd og fengum þrjá er-
lenda dómara til að velja efni á
diskinn svo þetta væru nú ekki
neinir vinagreiðar,“ segir Sunna.
Dómnefnd þessa hafi skipað
djassspekingur frá BBC, hol-
lenskur bókari og ritstjóri tíma-
ritsins Jazzthetik. Þeir völdu úr
innsendum tillögum og diskurinn
kom svo út fyrir ráðstefnuna
JazzAhead í fyrra. „Hann kom
volgur úr pressunni inn á hót-
elherbergi til mín,“ segir Sunna
kímin og að disknum hafi verið
dreift á aðalfundi Europe Jazz
Network.
Áhugi fyrir íslenska hest-
inum og íslenska djassinum
Sunna segist hafa vitað af því
að Jazzthetik léti stundum hljóm-
diska fylgja tímaritinu, diska
handa áskrifendum. Hún hafi því
haft samband við ritstjórnina og
spurt hvort áhugi væri fyrir því
að fjalla um Jazzhátíð Reykjavík-
ur og dreifa um leið þessum diski.
„Þau tóku svona rosalega vel í
það enda mikill áhugi fyrir bæði
íslenska hestinum og íslenska
djassinum í Þýskalandi,“ segir
Sunna sposk.
Spurð að því hvort Jazzthetik
sé aðaltímaritið í Þýskalandi þeg-
ar kemur að djassumfjöllun segir
Sunna að tímaritin séu þrjú og að
hún viti ekki hversu stór upplögin
séu af hinum tveimur. Eitt er þó
víst: íslenskur djass hefur líklega
aldrei fengið jafngóða kynningu í
þýskum fjölmiðli og í Jazzthetik.
Jazzhátíð Reykjavíkur hefur
boðið erlendum listrænum stjórn-
endum og fjölmiðlafólki að upplifa
hátíðina og hefur það skilað sér
til íslenskra djasstónlistarmanna,
að sögn Sunnu. Hún nefnir til
dæmis að listrænn stjórnandi
Münsterland-hátíðarinnar hafi
sótt hátíðina árið 2016 og bókað í
framhaldi marga íslenska djass-
leikara á hátíðina í fyrra. Í fyrra
kom einnig gagnrýnandi Jazzthe-
tik, tók fyrrnefnd viðtöl við Eyþór
og Agnar og fjallaði um hátíðina
fyrir tímaritið. helgisnaer@mbl.is
Íslenskum djassi dreift til
7.000 áskrifenda Jazzthetik
Sunna
Gunnlaugsdóttir
„Bára Grímsdóttir var í Grýlunum
með Röggu. Bára er eitt ástsælasta
tónskáld þjóðarinnar í dag en hún
samdi lagið „A young man’s son“,“
segir Hilmar Örn sem vildi fá fleiri
konur með lög á diskinn.
„Það verður að rétta hlut kvenna í
tónlistarheiminum. Það voru ekki
margar konur að semja árið 2011 en
ég fékk einnig til liðs við mig Völu
Gestsdóttur sem var þá ungt, frábært
nýútskrifað tónskáld og hefur komið
töluvert að upptökustjórnun. Vala
samdi lagið „Heim svefnsins“, sem við
höfum flutt víða á listahátíðum erlend-
is.“
Á diskinum eru fjórir einsöngvarar:
Einar Clausen, Hrólfur Sæmundsson,
Magga Stína og Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir en hún syngur lag Hauks
Tómassonar „Hún er vorið“.
„Örlygur Benediktsson er kórfélagi
ættaður úr Þingeyjarsýslu. Hann er
rússneskt menntað tónskáld sem býr á
Eyrarbakka og hefur verið mín hægri
hönd þegar kemur að efnisvali kórsins.
Hann samdi lagið „Augun bláu“,“ seg-
ir Hilmar Örn og bætir við að Magga
Stína, súperkrútt og sundsystir úr
Vesturbænum, sé nýbúin að klára
Listaháskólann og verkið hennar
„Stígar“ hafi verið útskriftarverkefnið
hennar.
Kammerkór Suðurlands kemur
víða við, ferðast mikið og hefur unnið
með erlendum tónskáldum undanfarin
ár.
„Afmælisárið var fjölbreytt. Við
vorum m.a. heiðursgestir á kórahátíð í
Southbank Music and Art Festival í
Lundúnum í júlí. Komum fram með
meistara Megasi á Airwaves í nóv-
ember og nú í desember vorum við
fulltrúar Íslands á jólamarkaðnum í
Strassborg. Við lokuðum svo árinu
með því að syngja í opnunaratriði
Norður og niður-tónlistarhátíðar Sig-
ur Rósar í Hörpu, sem var fallegur
endir á góðu afmælisári,“ segir Hilmar
Örn.
Heiðarlegur og sannur tónn
Kammerkór Suðurlands átti í miklu
samstarfi við sir John Tavener og fjöl-
skyldu hans. Hilmar Örn segir að fyrir
áeggjan dr. Péturs Péturssonar hafi
hann sent Tavener aðdáandabréf og
fyrstu plötu kórsins árið 2000. Nokkr-
um mánuðum síðar voru Pétur og
Hilmar Örn komnir til Lundúna og
fengu að fylgjast með upptökum hjá
Tavener í heila viku. Tónskáldið kom
skömmu síðar til Íslands ásamt konu
sinni og eftir það varð ekki aftur snúið.
„John valdi okkur til þess að frum-
flytja verk sín. Hann spáði mikið í fjöll-
in, heita vatnið og tæra loftið á Íslandi.
John heillaðist af tóni Kammerkórs-
ins, sem honum fannst vera heið-
arlegur og sannur,“ segir Hilmar Örn.
Fjölhæfur Kammerkór Suðurlands í Southwark-dómkirkjunni á Englandi árið 2013.
Kammerkór
Suðurlands
fór til Lond-
on árið 2013
til þess að
frumflytja
verk eftir sir
John Tave-
ner.
,,Mikil
spenna og
tilhlökkun var hjá fjölskyldu hans
og kórnum okkar. Þremur dögum
áður en við áttum að leggja í
hann hringir John í mig snemma
morguns til þess að fara yfir
verkið með mér. Við kveðjumst,
John leggst til hvílu og vaknar
ekki meir,“ segir Hilmar Örn með
söknuði.
Fyrirhugaðir tónleikar breytt-
ust í minningarathöfn í troðfullri
kirkju þar sem kórinn frumflutti
verk Johns, Three Shakespeare
Sonnetts, og fékk flutningurinn
mikla umfjöllun ytra.
Kveðjustund-
in í London
SIR JOHN TAVENER
Sir John Tavener
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas.
Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas.
Síðustu sýningar leikársins!
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s
Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s
Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Mið 31/1 kl. 20:00 10. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Medea (Nýja sviðið)
Mið 17/1 kl. 20:00 4. s Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s
Fim 18/1 kl. 20:00 5. s Sun 28/1 kl. 20:00 7. s
Ástir, svik og hefndarþorsti.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fim 18/1 kl. 20:00 45. s Lau 20/1 kl. 20:00 47. s Fös 2/2 kl. 20:00 49. s
Fös 19/1 kl. 20:00 46. s Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Lau 3/2 kl. 20:00 50. s
Draumur um eilífa ást
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas.
Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Allra síðustu sýningar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 20/1 kl. 13:00 5. s Lau 27/1 kl. 13:00 7. s
Sun 21/1 kl. 13:00 6. s Sun 28/1 kl. 13:00 8. s
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00
Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn
Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 8/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 7.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 Auka
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Hafið (Stóra sviðið)
Fim 18/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn
Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Faðirinn (Kassinn)
Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn
Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn
Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00
Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Ég get (Kúlan)
Lau 20/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn
Lau 20/1 kl. 15:00 4.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 19/1 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 22:30 Lau 3/2 kl. 22:30
Fös 19/1 kl. 22:30 Lau 27/1 kl. 20:00 Fim 8/2 kl. 20:00
Lau 20/1 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 20:00
Lau 20/1 kl. 22:30 Fim 1/2 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30
Sun 21/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00
Fim 25/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 22:30
Fös 26/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Efi (Kassinn)
Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fim 15/2 kl. 19:30 Auka
Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn
Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 13.sýn
Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka
Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Bílar