Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 1

Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 3. F E B R Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  37. tölublað  106. árgangur  RÍFANDI BÍLASALA Í BYRJUN ÁRS VINNUR MEÐ ARFLEIFÐINA MARGBROTINN OG HÆFILEIKARÍKUR TÓNSMIÐUR HANNAR LISTRÆNT SKART 12 JÓHANNS MINNST 30BÍLAR 16 SÍÐUR Morgunblaðið/Eggert Fundur Sigríður Björk Guðjónsdóttir sagði að breytinga væri að vænta.  Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæð- inu, boðar umfangsmiklar skipu- lagsbreytingar á kynferðisbrota- deild embættisins í kjölfar mistaka sem gerð voru við meðferð máls á dögunum. Lögregla kynnti í gær skýrslu um málið og boðaði að starfsmönnum deildarinnar yrði fjölgað frá 1. apríl samhliða aukinni fjárveitingu og yfirstjórn yrði styrkt. Engum yrði sagt upp störf- um eða færðir til vegna mistaka sem gerð voru. »2 Boðar breytingar á skipulagi lögreglu í kjölfar mistaka „Það er búið að margbrjóta á mannréttindum mínum.“ Þetta segir Sunna Elvira Þorkelsdóttir, sem lamaðist eftir fall á Spáni fyrir um mánuði. Sunna hefur verið í farbanni eftir að eiginmaður hennar var handtekinn við komuna til Íslands grunaður um aðild að fíkniefnamáli. Sunna hefur undanfarinn mánuð dvalið á spítala í Malaga, en spítalinn er afar illa búinn og segist Sunna ekki hafa fengið læknisþjónustu við hæfi. Foreldrar Sunnu hafa þurft að sinna henni samkvæmt fyrirmælum íslenskra lækna þar sem nær ómögulegt reynist að fá upplýsingar frá læknum spítalans um hvernig meðhöndla eigi meiðslin. Man lítið eftir tildrögum slyssins Illa hefur gengið að koma Sunnu til Íslands eða á annan spítala þar sem hægt væri að gera að meiðslum hennar, en Sunna er þríhryggbrotin, með þrjú brotin rifbein auk annarra áverka. „Ég er alveg að gefast upp hérna. Utanríkisráðuneytið hefur ekkert gert og svo virðist sem lögreglan haldi mér hér í gíslingu til að fá upplýsingar frá eiginmanni mínum um eiturlyfjasmygl sem ég veit ekkert um,“ segir Sunna. Fram kom í gær að ráðuneytið hefur sent fulltrúa sinn til Spánar til að gæta hagsmuna Sunnu. Spurð um tildrög slyssins segir Sunna að þau séu að mestu í móðu, en Sunna féll úr um fjögurra metra hæð af svölum á heimili sínu. Hún muni þó eftir því að eiginmaður hennar og dóttir hafi verið í húsinu. Sunna segist vita í hjarta sínu að eigin- maðurinn hafi ekki orðið valdur að slysinu. »4 Telur sér vera haldið í gíslingu Á sjúkrabeði Sunna ásamt móður sinni, Unni Birgisdóttur, á spítalanum í Malaga en þar hefur Sunna dvalið sökum farbanns undanfarinn mánuð.  Sunna Elvira er föst á illa búnum spítala í Malaga  Segir lögreglu reyna að nýta sér stöðu hennar til að fá upplýsingar um fíkniefnamál frá manni hennar  Öll tæki sem Vegagerðin hef- ur yfir að ráða voru úti um helgina að sinna vetrarþjónustu. Mikið var að gera um allt land en nokkuð er um liðið síðan at- gangurinn á suðvesturhorninu og á Suðurlandi hefur verið jafn mikill og um nýliðna helgi. Kostnaður vegna moksturs gatna og stíga auk hálkuvarna í Reykja- víkurborg getur verið um 13 til 14 milljónir á dag þegar veðrið er eins og síðustu daga. Níu mokstursbílar sáu um að ryðja göturnar auk 22 véla á stofn- og tengibrautum í Reykjavík í gærmorgun. »6 Öll tæki kölluð til í snjóruðning Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri stærsta lífeyrissjóðs landsins, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, segir að skort hafi á upplýs- ingar um framtíðarsýn núverandi eigenda Arion banka hvað rekstur bankans varðaði, en það hafi verið meðal ástæðna þess að sjóðurinn, eins og aðrir stærstu lífeyrissjóðir landsins, ákvað að taka ekki tilboði Kaupskila um kaup á hlut í Arion banka. „Framtíðarsýn þeirra mætti vera skýrari. Svo má segja að stutt sé í skráningu bankans á markað ef af henni verður og þá er heppilegra fyr- ir okkur að horfa til þess og halda að okkur höndum að svo stöddu. Einnig hefur það áhrif að fjármagnshöftum hefur verið aflétt og nú er áhersla okkar því meiri á erlendar fjárfest- ingar.“ Þá segir Haukur að m.a. hafi skort á gagnsæi í söluferlinu. Ólafur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri lífeyrissjóðsins Birtu, segir í samtali við Morgunblaðið að kaupum á Arion banka fylgi áhætta og í við- skiptum sé alltaf spurning um hvernig áhættan er verðlögð. „Það er ákveðin áhætta fyrir hendi þegar tíminn er knappur og bankinn er stór og alltaf erfitt að verðleggja óvissu.“ »16 Framtíðarsýn of óskýr  LSR fannst skorta á gagnsæi í söluferli Arion banka  Erfitt að verðleggja áhættu segir framkvæmdastjóri Birtu Morgunblaðið/Eggert Sala Arion banki skilar ársskýrslu sinni fyrir árið 2017 á morgun. Sóknarnefnd Dómkirkjunnar hefur ákveðið að kæra nýtt deiliskipulag Landssímareits í miðborg Reykja- víkur til úrskurðarnefndar umhverf- is- og auðlindamála. Sóknarnefndin telur fyrirhugaðar byggingar- framkvæmdir við hótel í Víkurgarði, hinum forna kirkjugarði Reykvík- inga, ólöglegar. Þá kærir sóknar- nefndin einnig áform um að inn- gangur í hótelið verði um þann hluta kirkjugarðsins sem nú gengur al- mennt undir heitinu Fógetagarður. Samkvæmt 6. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála skal nefnd- in kveða upp úrskurð eins fljótt og kostur er eftir að kæra berst og jafn- an innan þriggja mánaða frá því að málsgögn bárust frá stjórnvaldi, en innan sex mánaða frá sama tíma- marki sé mál viðamikið. Kæran stöðvar ekki framkvæmdirnar en í ráði er að opna hótel á vegum Ice- landair á reitnum á næsta ári Við fornleifauppgröft á hinu um- deilda svæði sumarið 2016 komu m.a. í ljós 20 kistur með heillegum beinagrindum frá fyrri öldum auk minja sem ekki er útilokað að séu frá því fyrir kristnitöku. Öllum athuga- semdum við deiliskipulag reitsins á þessum stað var hins vegar hafnað af borgaryfirvöldum. »4 Kærir deiliskipulag Landssímareits  Deilunni um Víkurgarð ekki lokið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.