Morgunblaðið - 13.02.2018, Blaðsíða 13
Ekki bara útlitið Víðir segir að nútímaskartgripahönnun snúist um meira en bara útlit fullunninna hluta.
ar listaháskóli. Í honum er meðal
annars kenndur arkitektúr, leik-
myndagerð, fatahönnun, text-
ílhönnun, ljósmyndun, skart-
gripahönnun, gull- og silfursmíði,
kvikmyndagerð og margt fleira sem
viðkemur hönnun. Skólinn hefur
gefið af sér marga góða hönnuði og
listamenn og hafa, að sögn Víðis,
margir náð langt á sínu sviði og eru
orðnir stór nöfn í sinni grein.
„Ég er í hönnun nútímaskart-
gripa, sem er einskonar listrænt
skart. Landslagið er miklu víðara
heldur en í hefðbundinni skart-
gripahönnun, ef svo mætti að orði
komast. Efnistökin eru oft óhefð-
bundin og hlutirnir snúast um
meira en bara útlit fullunninna
hluta. Listrænt skart byggist mikið
á alkemíu myndi ég segja, bæði þá
efnistökin jafnt sem huglægar
skynjanir, að vinna út frá mismun-
andi hugmyndum, með ólík efni
eins og til dæmis málma, tré, gervi-
efni, sand, fundið efni og í raun
hvað svo sem manni dettur í hug.“
Tengingu við líkama og sál
Víðir segir að ekki þurfi endi-
lega að nota nútímaskart eins og
hefðbundið skart, en það þurfi þó
yfirleitt að vera með einhverja
tengingu við líkama og sál. „Ég er
persónulega að vinna með minn
bakgrunn í meistaranáminu, mína
arfleifð, umhverfi mitt og skynjanir
heima á Íslandi, þá aðallega í gegn-
um bernskuminningar mínar, en
verk mín eru að mestu byggð á
symbólisma, rómantík, og alkemíu.
Ég nota mikið tré, ull, sand, ösku
og málningu í verkum mínum, og
ólíka málma en ég nota plastefni
minna, þeim bregður þó stundum
fyrir.“
Víði líkar námið vel og segir
það bæði krefjandi og skemmtilegt.
„Fyrir mig að koma frá því að vera
listmálari, að galdra fram þrívídd á
tvívíðan strigann og fara að vinna
með þrívíða snertanlega hluti er
ákveðin framlenging á hugsuninni
en að vinna með þessa ólíku miðla
er ekki sjálfgefið og það heldur
manni á tánum í sköpuninni.“
Fullur bar af fólki klukkan
tíu á sunnudagsmorgni
Að sögn Víðis una þau Kamilla
sér vel á Bretlandi, en þau komu
sér fyrir í litlum bæ í Suður-
Englandi sem heitir Rochester og
er í Kent-héraðinu. Þaðan er um
það bil 45 mínútna lestarferð til
London. „Dvölin hefur verið góð
fram að þessu og okkur hefur verið
mjög vel tekið af heimafólki, flestir
eru mjög áhugasamir um hvaðan
við erum. Það hefur verið mjög
hagstætt að lifa hérna og matur og
drykkur er alveg helmingi ódýrari
en heima. Hins vegar er menningin
hérna mjög ólík því sem maður á að
venjast á Íslandi og manni líður
stundum eins og geimveru í röngu
sólkerfi. Í eitt skiptið var ég að
sækja vatn í búðina hérna á horn-
inu, klukkan tíu á sunnudagsmorgni
og mér varð litið inn á einn pöbbinn
rétt hjá. Hann var troðfullur af
fólki að drekka bjór. Og nei það var
enginn fótboltaleikur í gangi eða
neitt svoleiðis. Þá brosti ég út í
annað.“
En hvað skyldi taka við eftir að
námi lýkur?
„Eftir námið ætla ég heim og
athuga vinnugrundvöllinn, hanna
mína eigin línu, já eða jafnvel
hanna fyrir aðra, tíminn mun leið
það í ljós. Ég stefni á að halda mál-
verkasýningu á næsta ári, aldrei að
vita nema maður blandi saman mál-
verki og listrænu skarti, þrívíðum
hlutum sem eiga einhvers konar
samtal við málverkin mín. Spenn-
andi og óráðnir tímar þegar maður
kemur aftur heim á móðurjörðina,“
segir Víðir að lokum.
Skartgripahönnun Handlagni og nákvæmni þurfa að haldast í hendur.
Nútíma skart Víðir vinnur skartgripi sína oft úr óhefðbundnum efnivið.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018
Markmið okkar er að spara
viðskiptavinum tíma,
fyrirhöfn og fjármuni.
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK
Handafl er traust og fagleg
starfsmannaveita með
margra ára reynslu á markaði
þar sem við þjónustum
stór og smá fyrirtæki.
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Suðurlandsbraut 6, Rvk. | SÍMI 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Norræna félagið efnir til málþings
um lækkun kosningaaldurs til sveit-
arstjórna í sextán ár kl. 12-13 í dag,
þriðjudaginn 13. febrúar, í Norræna
húsinu.
Lagt hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til laga um lækkun kosn-
ingaaldurs til sveitarstjórna. Frum-
varpið nýtur þverpólitísks stuðnings
og er lagt fram til að styðja við lýð-
ræðisþátttöku ungs fólks og auka
tækifæri þess til að hafa áhrif á
samfélagið sem virkir og ábyrgir
þátttakendur.
Nokkur ríki Evrópu hafa farið
þessa leið til að auka þátttöku ungs
fólks í kosningum, þeirra á meðal er
Noregur en þar var sextán ára ald-
urstakmarki í kosningum til sveit-
arstjórna komið á í tilraunaskyni í
20 sveitarfélögum.
Á fundinum munu þau Andrés
Ingi Jónsson, fyrsti flutningsmaður
frumvarpsins, og Tinna Isebarn,
framkvæmdastjóri Landssambands
ungmennafélaga, fjalla um þetta
mál.
Fundarstjóri er Kristín Manúels-
dóttir, formaður Ungmennadeildar
Norræna félagsins.
Málþingið er hluti af verkefni Nor-
ræna félagsins Vegferð til velferðar
– 100 ára fullveldi Íslands.
Málþing í Norræna húsinu
Morgunblaðið/Eggert
Sextán ára Sitt sýnist hverjum um
að lækka kosningaaldur í 16 ár.
Á að lækka
kosninga-
aldur?