Morgunblaðið - 13.02.2018, Side 2

Morgunblaðið - 13.02.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Það var í nógu að snúast í eldhúsinu á Hrafnistu í gærmorgun en þar voru bakaðar rúmlega þrjú þúsund vatnsdeigsbollur fyrir bolludaginn í gær. Virtust allir njóta veitinganna þegar blaðamaður leit inn á Hrafn- istu við Brúnaveg í Reykjavík. Kristín Guðrún Sigurðardóttir, Anna Regína Pálsdóttir og Inga Jóhannesdóttir sátu saman í kaffistofunni en sú síðastnefnda varð 100 ára í fyrra. Anna sagðist aðspurð muna vel eft- ir bolludeginum sem barn. „Þá var maður með bolluvönd og flengdi alla á bolludagsmorgun áður en maður fór í skólann,“ segir hún og hlær. „Maður flýtti sér á morgnana að vekja pabba og mömmu til þess að fá bollu,“ bætir Kristín við. „Þá voru vatnsdeigsbollur ekki komnar, það voru bara bakaðar gerbollur.“ „Þetta er mjög gott með kaffinu, allur viðurgjörningur er mjög góð- ur,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, sem sat á næsta borði, spurður hvernig honum líkuðu bollurnar með kaffinu. Hann segist hafa borðað mikið af bollum í æsku og muni vel eftir bollunum sem voru bakaðar heima. Þrjú þúsund bollur bakaðar Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimilisfólk á Hrafnistu fékk sér bollur með kaffinu Erla María Markúsdóttir Höskuldur Daði Magnússon Jóhann Ólafsson „Okkar niðurstaða er að ferill málsins við úthlutun hafi verið mjög óform- legur. Við sjáum engin merki um að þetta mál hafi verið rætt á vikulegum fundum deildarinnar fyrr en 17. jan- úar 2018,“ sagði Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn á blaðamannafundi lögreglu í gær. Á fundinum voru kynntar niður- stöður skoðunar lögreglunnar á því sem fór úrskeiðis þegar dróst á lang- inn að hefja rannsókn á ætluðum kyn- ferðisbrotum karlmanns, sem starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur og sem stuðningsfulltrúi, gegn dreng sem var átta til 14 ára þegar meint brot voru framin. Maðurinn er grunaður um brot gegn átta börnum og er níunda málið í athugun. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, viðurkenndi að mistök hefðu verið gerð þegar upplýsingar um viðkom- andi voru ekki sendar barnaverndar- yfirvöldum fyrr en í janúar, en það var kært í ágúst. Í skýrslunni segir að aðkoma stjórnar deildarinnar hafi verið ómarkviss og eðlilegt aðhald ekki fyr- ir hendi. Stjórnendur hafi þó brugðist hratt og örugglega við þegar ljóst var hvers kyns var. Karl Steinar rakti að tveir hópar hefðu starfað við innri athugun hjá lögreglu, annar hefði skoðað feril allra þeirra 173 mála sem væru á borði kynferðisbrotadeildar. Niður- staða þeirrar vinnu er að forgangs- röðun 18 mála var breytt. Enginn starfsmaður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verður látinn sæta ábyrgð á þeim mistökum sem gerð voru. Þess í stað verður kynferð- isafbrotadeild lögreglunnar styrkt um sex stöðugildi og yfirstjórn efld. Forkastanleg vinnubrögð Sævar Þór Jónsson, lögmaður og réttargæslumaður drengs sem lagði fram kæru á hendur umræddum manni, segir það forkastanlegt að ítrekuðum tölvupóstum hans til lög- reglu hafi ekki verið svarað. Á blaða- mannafundinum í gær kom fram að það hefði farist fyrir vegna veikinda lögreglufulltrúa. „Það er forkastanlegt. Þetta er það svið hjá lögreglu sem er mjög mik- ilvægt að það sé virkur samskipta- máti á milli. Ég ítrekaði þennan póst og þessu var aldrei svarað og það er mjög alvarlegt.“ Viðurkenna að mistök voru gerð  Innri athugun lögreglu á máli manns sem grunaður er um kynferðisbrot kynnt  Mistök voru gerð og aðkoma stjórnenda var ómarkviss  Réttargæslumaður segir vinnubrögð lögreglu forkastanleg Morgunblaðið/Eggert Innri athugun Sigríður Björk Guðjónsdóttir og Karl Steinar Valsson. Kröpp lægð með talsverðri snjó- komu og skafrenningi gengur yfir landið allt í dag með hvassviðri eða stormi. Í lægðarmiðjunni er svokall- að svikalogn svo lægt getur í stutta stund á meðan hún fer yfir. Lægðin kemur upp að austan- og suðaustan- verðu landinu í nótt og til hádegis í dag og endar norðvestantil um kvöldmatarleytið þegar hún gengur til vesturs. Hvassast verður syðst á landinu. Aðeins dregur úr frosti, jafnvel frostlaust austan til. Á miðvikudag kemur önnur lægð upp að landinu með hvassri austan- átt og skilum með enn meiri snjó- komu yfir allt landið. Á fimmtudag og fram á helgi verður eitthvað skárra veður þar sem lægðarmiðjan verður yfir landinu á meðan hún eyðist og það kólnar. Enn er töluverð hætta á snjóflóð- um á Vestfjörðum og nokkur hætta er á Tröllaskaga og Austfjörðum vegna mikillar snjókomu og óstöð- ugleika í snjóþekju. ernayr@mbl.is Kröpp lægð með svika- logni í miðju Morgunblaðið/Hari Vonskuveður Snjókoma og ófærð. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Forseti Íslands veitti alls 48 fálka- orður í opinberri heimsókn sinni til Svíþjóðar á dögunum. Við sama tækifæri fengu 16 Íslendingar Norðurstjörnuorðuna frá Karli Gústav Svíakonungi. Meðal þeirra Svía sem fengu fálkaorðuna voru Lars Lagerbäck, fv. þjálfari ís- lenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu, Carl Philip prins, Daníel krónprins, Nanna Hermannsson, fv. borgarminjavörður í Reykjavík, og Peter Eriksson, húsnæðis- málaráðherra Svíþjóðar. Einnig fengu sr. Ágúst Einarsson og Ingibjörg Helga- dóttir hjúkr- unarfræðingur fálkaorðu fyrir störf sín í Sví- þjóð. Hefð er fyrir því í heimsóknum sem þessum á Norðurlöndunum og víðar að skiptast á heiðursorðum viðkomandi ríkja. Í þessu tilviki komu tilnefningar frá Svíum um hverjir skyldu fá íslenska fálkaorðu en orður frá gestgjafa fara jafnan til sendinefndar gestanna, auk ein- staklinga sem hafa látið að sér kveða í landi gestgjafans. Tilnefn- ingar um það komu frá forseta Ís- lands. Heimir og Kristinn fengu orðu Þannig fékk íslenska sendi- nefndin, sem fór til Svíþjóðar, Norð- urstjörnuorðu sænska konungsins, Nordstjärneorden, auk þeirra Heimis Pálssonar og Kristins Jó- hannessonar, íslenskufræðinga og fv. háskólakennara. Heimir og Kristinn eru búsettir í Svíþjóð. Íslenska sendinefndin var þannig skipuð: Guðni Th. Jóhannesson, for- seti Íslands, Eliza Jean Reid forsetafrú, Guðlaugur Þór Þórð- arson utanríkisráðherra, Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri og eig- inkona utanríkisráðherra, Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri í ut- anríkisráðuneytinu, Örnólfur Thors- son forsetaritari, Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri á skrifstofu forseta Íslands, Borgar Þór Einarsson, að- stoðarmaður utanríkisráðherra, Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík, Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum, Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Há- skóla Íslands, Ragna Þórhallsdóttir, deildarstjóri á skrifstofu forseta Ís- lands, Inga Hlín Pálsdóttir, for- stöðumaður ferðaþjónustu og skap- andi greina hjá Íslandsstofu, og Elín Óskarsdóttir, ritari í sendiráði Íslands í Stokkhólmi. Lars Lagerbäck fékk fálkaorðuna  Forseti Íslands veitti 46 Svíum og tveimur Íslendingum fálkaorðu í opinberri heimsókn til Svíþjóð- ar í janúar  Sextán Íslendingar fengu orðu sænska konungsins, þar á meðal íslenska sendinefndin Lars Lagerbäck

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.