Morgunblaðið - 13.02.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 13.02.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það er alveg ömurleg tilfinning að líða eins og manni sé haldið í gísl- ingu,“ segir Sunna Elvira Þorkels- dóttir, sem lamaðist eftir fall á Malaga á Spáni fyrir um fjórum vik- um. Í kjölfar slyssins var eiginmaður Sunnu, Sigurður Kristinsson, hand- tekinn grunaður um aðild að slysinu, en honum var sleppt að loknum yfir- heyrslum. Sunna segir atburði síðustu vikna hafa verið mikið áfall og líkir þeim við vondan draum. „Þetta er búið að vera mjög erfitt. Það fyrsta sem ég man eftir slysið eru tveir lögreglumenn sem standa yfir mér og tjá mér að eiginmaður minn hafi verið handtekinn grunaður um aðild að málinu og heimilis- ofbeldi, sem ég veit ekki á hverju var byggt. Ég fékk mikið áfall enda með mikla verki eftir slysið auk þess að vera algjörlega ein á báti,“ segir Sunna. Að loknum yfirheyrslum yfir Sunnu var Sigurði sleppt. Í fram- haldinu hélt hann heim til Íslands þar sem hann var handtekinn og úr- skurðaður í gæsluvarðhald grunaður um aðild að stórfelldum fíkniefna- innflutningi. Sunna segir málið hafa komið sér í opna skjöldu. Slæmar aðstæður á spítalanum „Mér dauðbrá þegar ég frétti af þessu. Fljótlega eftir að ég fékk spurnir af þessu koma lögreglumenn frá Alicante á spítalann og segjast vilja yfirheyra mig vegna málsins. Þeir spyrja um alls konar hluti eins og hvort ég þekki einhverja ákveðna aðila á Alicante og hvort ég hafi tekið eftir einhverju einkennilegu í fari Sigurðar undanfarin misseri. Ég hafði ekki hugmynd um þennan inn- flutning en reyni að gera mitt besta til að svara spurningum þeirra. Fljótlega eftir að yfirheyrslunni lýk- ur er mér sagt að þeir hafi krafist þess að vegabréfið mitt yrði tekið vegna rannsóknarhagsmuna og ég þar af leiðandi í farbanni. Síðan þá hef ég ekkert heyrt og er ennþá föst á þessum spítala þar sem ég fæ ekki viðeigandi læknisaðstoð,“ segir Sunna, en hún er þríhryggbrotin, með þrjú brotin rifbein auk annarra áverka. Að hennar sögn er aðbúnaður á spítalanum afar slæmur og litlar sem engar upplýsingar fáanlegar frá læknum um hvernig best sé að með- höndla meiðslin. Þá séu verkjastill- andi lyf af skornum skammti, en Sunna fær 400 mg íbúfentöflur tvisv- ar á dag. Hún segist furða sig á vinnubrögðum utanríkisráðuneytis- ins í málinu og hversu langan tíma það hefur tekið að koma henni af spítalanum. „Þetta er auðvitað bara mannrétt- indabrot að fá ekki læknisþjónustu við hæfi. Ég er orðin dauðkvíðin því að foreldrar mínir, sem dvalið hafa hjá mér frá slysinu, þurfi að fara heim því þá hef ég engan til að hugsa um mig. Ég skora á yfirvöld að beita sér í þessu máli þannig að ég geti komið heim, enda get ég alveg eins svarað einhverjum spurningum heima á Íslandi og hér. Lögmaður minn hefur verið að pressa á alþjóða- deild lögreglunnar á Íslandi að ræða við spænsku lögregluna með það fyr- ir augum að koma mér til Íslands en það hefur lítið sem ekkert gerst,“ segir Sunna og bætir við að hún telji lögregluna ætla að notfæra sér stöðu hennar til að fá upplýsingar frá Sig- urði. „Íslenska lögreglan hefur sagt lögmanni mínum að þeir gruni mig ekki um aðild að málinu á nokkurn hátt, auk þess sem ég er tilbúin að veita þeim allar þær upplýsingar sem ég hef. Ég held að þeir séu að nýta sér það að ég er föst hérna án læknisaðstoðar til að pressa á eig- inmann minn að tala,“ segir Sunna. Tildrög slyssins í móðu Þegar talið berst að tildrögum slyssins segist Sunna lítið muna eftir því sem gerðist, en hún féll úr um fjögurra metra hæð af svölum á ann- arri hæð íbúðar þeirra Sigurðar. Hún geti þó fullyrt að þegar slysið átti sér stað hafi einungis Sigurður og dóttir þeirra verið heima. „Ég fékk höfuðhögg í fallinu þannig að ég get ekki fullyrt hvernig slysið bar að en það eru svona smá glampar sem eru að koma til baka. Ekkert samt sem ég get hent reiður á, en maður- inn minn er ekki ofbeldismaður og ég veit það í hjarta mínu að hann var ekki sá sem olli slysinu,“ segir Sunna og bætir við að hún hafi ekki verið undir áhrifum áfengis eða lyfja þeg- ar slysið varð. Hún muni hins vegar ekki hvar Sigurður var um kvöldið, en hana reki ekki minni til annars en hann hafi verið á öðrum stað í íbúð- inni. Spurð hvort hún hefði fundið fyrir einhverju óvenjulegu í fari Sigurðar undanfarin misseri segir Sunna svo ekki vera. Skuldir ástæða innflutningsins Áður en Sunna og fjölskylda fluttu til Malaga á Spáni í sumar starfaði Sunna sem lögfræðingur og Sigurð- ur sem byggingarverktaki. Þau ákváðu hins vegar að flytja til Spán- ar eftir að upp komu fjárhagsörðug- leikar í rekstri byggingarfélags í eigu Sigurðar. Flutningarnir til Malaga voru því von um nýtt upphaf. „Það er ekkert leyndarmál að fé- laginu gekk illa og það var búið að koma því þannig fyrir að hann var búinn að losa sig út úr því og aðrir teknir við. Með því að flytja hingað vorum við að vonast eftir að geta byrjað upp á nýtt enda vorum við ekkert sérstaklega vel stödd fjár- hagslega. Það voru ennþá skuldir sem hann þurfti að borga, sem er lík- lega ástæða þess að hann fer út í þetta,“ segir Sunna og bætir við að hún sé mjög ósátt við þá stöðu sem Sigurður hafi komið henni í. „Að ég sé föst á spítala á Spáni þar sem ég fæ ekki viðeigandi læknisþjónustu sökum þess að hann tengist fíkni- efnainnflutningi,“ segir Sunna. Er hrærð yfir stuðningnum Sunna segir að þrátt fyrir að síð- ustu vikur hafi reynst henni afar erf- iðar sé stuðningur íslensku þjóðar- innar ljós í myrkrinu. „Ég er alveg rosalega hrærð yfir móttökunum og hvað fólk sýnir mér mikinn hlýhug. Ég vil koma á fram- færi þakklæti frá dýpstu hjartarót- um til þeirra sem bæði hafa hugsað fallega til mín og þeirra sem hafa lagt söfnuninni lið,“ segir Sunna, en alls hafa safnast yfir sex milljónir króna í söfnun sem sett var af stað til að koma Sunnu til landsins. Í gær bárust fréttir af því að fulltrúi frá íslenska utanríkisráðu- neyti væri kominn til Spánar til að kynna sér mál Sunnu. Urður Gunn- arsdóttir, upplýsingafulltrúi utan- ríkisráðuneytisins, sagði við mbl.is að með þessu vildi ráðuneytið tryggja að allt yrði gert til að koma Sunnu heim. Þá yrði allt gert til að gera dvöl hennar á Spáni sem bæri- legasta. Sagði Urður að ráðuneytið hefði unnið í máli Sunnu hvern ein- asta dag síðan það kom upp í janúar. „Þetta hefur verið eins og vondur draumur“  Telur lögreglu reyna að notfæra sér stöðuna  Man lítið eftir tildrögum slyssins Áfall Sunna hefur verið í farbanni undanfarinn mánuð og er því föst á afar illa útbúnum spítala í Malaga. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Sóknarnefnd Dómkirkjunnar mun í dag kæra nýtt deiliskipulag Landssímareits til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þetta staðfesti Mar- inó Þorsteinsson, formaður sóknarnefndar, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Þetta eru síðustu forvöð til að koma málinu í þennan farveg því kærufrestur rennur út í dag. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður sem fer með málið fyrir söfnuðinn segir að kæran lúti að fyrirhugaðri hótelbyggingu Icelandair á þeim hluta Landssímareits, þar sem hluti Víkurgarðs, hins forna kirkjugarðs Reykvíkinga, var. Þetta er sá hluti reitsins sem liggur að Kirkjustræti. Þá kærir sóknarnefndin einnig áform um að inngang- ur í hótelið verði um þann hluta kirkjugarðsins sem nú gengur almennt undir heitinu Fógetagarður. Samkvæmt 6. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála skal nefndin kveða upp úrskurð eins fljótt og kostur er eftir að kæra berst og jafnan innan þriggja mánaða frá því að málsgögn bárust frá stjórnvaldi, en inn- an sex mánaða frá sama tímamarki sé mál viðamik- ið. Minjar um kirkjugarðinn fundust Við fornleifauppgröft á hinu umdeilda svæði sumarið 2016 komu m.a. í ljós 20 kistur með heil- legum beinagrindum frá fyrri öldum auk minja sem ekki er útilokað að séu frá því fyrir kristni- töku. Öllum athugasemdum við deiliskipulag reits- ins á þessum stað var hins vegar hafnað af um- hverfis- og skipulagsráði borgarinnar í nóvember síðastliðnum og var sú niðurstaða síðan endanlega staðfest í borgarstjórn snemma í desember. Í bréfi sem sóknarnefnd Dómkirkjunnar sendi borgaryfirvöldum í fyrrahaust sagði að öll leyfi sem Reykjavíkurborg gæfi fyrir mannvirkjum í landi Víkurgarðs væru heimildarlaus og ólögleg. „Sóknarnefndin lítur svo á að Víkurgarður sé í umsjá sóknarnefndar Dómkirkjunnar fyrir hönd kirkjunnar. Sóknarnefndinni sé heimilt að lögum að heimila Reykjavíkurborg að skipuleggja garð- inn sem almenningsgarð en önnur ráðstöfun er ekki heimil,“ sagði ennfremur í bréfinu. Kæra til úrskurðarnefndarinnar stöðvar ekki framkvæmdir og fram hefur komið að áformað sé að hefjast handa á næstunni, enda á gistihúsið að vera fullbúið á næsta ári. Hyggjast kæra deiliskipulagið  Deilunni um Víkurkirkjugarð hinn forna engan veginn lokið  Sóknarnefnd Dómkirkjunnar sættir sig ekki við hótelbygginguna í gamla kirkjugarðinum Morgunblaðið/Hanna Kært Sóknarnefndin vill stöðva framkvæmdir á þessu svæði. Guðrún Erlends- dóttir hefur ver- ið sett hæsta- réttardómari frá 6. febrúar til 31. mars 2018 vegna náms- leyfis Helga Ingólfs Jóns- sonar hæstarétt- ardómara, vara- forseta Hæstaréttar. Frá þessu er greint á vef Hæstaréttar. Samkvæmt upplýsingum frá Hæstarétti er Guðrún elst þeirra sem hafa verið settir hæstarétt- ardómarar um ákveðinn tíma. Sigurður Líndal var eldri er hann sat í einu máli árið 2014. Hann var á 83. ári en Guðrún er á 82. ári. Guðrún, sem fæddist árið 1936, var skipuð hæstaréttardómari 1. júlí 1986 og var fyrst kvenna til að gegna því embætti. Hún var forseti Hæstaréttar á árunum 1991-1992 og frá 2002-2003. Þá var hún varaforseti Hæstaréttar 1989-1990 og 2000-2001. Hún lét af störfum sem dómari við réttinn 15. apríl 2006. Eftir að Guðrún lét af störfum við Hæstarétt hefur hún tvisvar verið sett sem hæsta- réttardómari, árin 2014 og 2106. sisi@mbl.is Guðrún tekur sæti í Hæstarétti að nýju Guðrún Erlendsdóttir Umboðsmaður barna hefur birt á vef sínum viðmið vegna umfjöll- unar um börn á samfélagsmiðlum. Segir þar að börn njóti friðhelgi einkalífs skv. stjórnarskrá og barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna, innan og utan heimilis. Gildi það um trúnaðarsamskipti, tilfinn- ingasambönd og tilfinningalíf þeirra. Mikilvægt sé að fá samþykki barna áður en talað er um þau á samfélagsmiðlum eða birtar af þeim myndir. Forsjáraðilar skuli sýna ábyrgð og vera meðvitaðir um mannréttindi barna. Allt sem birt sé á netinu megi finna síðar og geti haft áhrif á líf barnsins. Myndir geti ratað víða um netið, t.d. á lok- aðar síður, og staðsetning megi ekki fylgja myndum til að tryggja öryggi barna. ernayr@mbl.is Morgunblaðið/Golli Velferð barna Friðhelgi einkalífsins. Foreldrar virði einkalíf barna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.