Morgunblaðið - 13.02.2018, Side 10

Morgunblaðið - 13.02.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Ágúst Ingi Jónsson Sunna Ósk Logadóttir „Almennt hefur þetta gengið ágætlega í vetur þrátt fyrir ótrúlega aukningu í vetrarferða- mennsku síðustu ár. Ef gerir hríðarbylji fara starfsmenn þjóðgarðsins út og ganga göngu- stígana til að tryggja að fólk fari sér ekki að voða, en hér í þjóðgarðinum er fólk í öllum veðrum,“ segir Einar Á.E. Sæmundsen þjóð- garðsvörður um ástandið á Þingvöllum í leið- inlegu vetrarveðri undanfarið. Mokstur og sandburður nánast daglega „Við erum vel á verði og höfum rutt óheyri- lega miklum snjó og sandborið göngustíga nánast daglega. Landverðirnir eru meðvitaðir um veðurlag og aðstæður sem á ekki alltaf við um ferðamennina sem því miður eru á stund- um vankunnandi og vanbúnir,“ segir Einar. Erlent par sat fast í bíl sínum á veginum skammt frá Miðfelli austan Þingvallavatns og utan þjóðgarðsins í um 20 klukkustundir frá því á sunnudegi þar til í gærmorgun að land- vörður í þjóðgarðinum kom að þeim. Konan er ólétt og var orðið kalt í bílnum svo hún var flutt í þjónustumiðstöðina þar sem hlúð var að henni. Fólkið var á jepplingi og hafði hafst við í bílnum sem var pikkfastur á miðjum veginum. Guðjóna Björk Sigurðardóttir, rekstrar- stjóri Þingvallaþjóðgarðs, segir að fólkið hafi verið með mat og svefnpoka en svo virðist sem því hafi ekki tekist að láta vita af sér. Lokanir hafa virkað vel í vetur Einar segir að í vetur hafi lokanir virkað vel, menn eigi ekki að vera hræddir við að loka sé veðurspáin þess eðlis. Jafnvel megi loka fyrr á leiðinni yfir Mosfellsheiðina í gegnum þjóðgarðinn og austur Lyngdals- heiði til Laugarvatns. Um helgina hafi verið ákveðið að loka þjónustu í þjóðgarðinum á föstudagskvöld vegna afleitrar veðurspár fyrir laugardaginn og starfsfólk hafi farið til síns heima í höfuðborginni og fyrir austan fjall. Þegar í ljós hafi komið að veðrið tók ekki að versna fyrr en síðdegis á laugardag hafi landvörður farið austur í öryggisskyni og talsvert af fólki hafi þá verið í þjóðgarðinum. Hann hafi leiðbeint því og bent á veðrið sem væri framundan. Á sunnudag var allt lokað en í gærmorgun byrjuðu landverðir á því að fara hring í þjóð- garðinum til að athuga hvort fólk væri þar í erfiðleikum. Síðan var tekið til við að moka en miklum snjó kyngdi niður á Þingvöllum um helgina. Landverðir í eftirlit ef gerir hríðarbylji  Fólk í öllum veðrum í þjóðgarðinum  Erlent par var í um 20 tíma í pikkföstum bíl við Miðfell Ljósmynd/Torfi Stefán Jónsson Vinsæll útsýnisstaður Ferðafólk þyrptist til Þingvalla strax í gærmorgun enda höfðu margir verið veðurtepptir í borginni um helgina. Myndin er tekin á Kárastaðastíg efst í Almannagjá og höfðu starfsmenn þjóðgarðsins grafið í gegnum snjóskaflana, en ekkert var mokað um helgina. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þessa vikuna standa yfir kjördæma- dagar á Alþingi og því verða engir þingfundir haldnir. Það getur reynst snúið fyrir alþingismenn að hitta kjósendur sína að þessu sinni vegna illviðra og ófærðar um allt land. Fyrsti þriðjungur 148. löggjafar- þingsins er nú að baki og því ástæða til að skoða hverjir hafa látið mest til sín taka í ræðustól Alþingis. Þegar ræðulistinn er skoðaður sést að Píratinn Helgi Hrafn Gunn- arsson hefur tekið afgerandi for- ystu. Helgi hefur flutt 153 ræður og athugasemdir og talað í samtals 450 mínútur, eða sjö og hálfa klukku- stund. Næstur á eftir Helga kemur annar Pírati, Björn Leví Gunnars- son, sem hefur talað í 387 mínútur eða rúmar sex klukkustundir. Þor- steinn Víglundsson (Viðreisn) hefur talað í 354 mínútur og Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra (Sjálf- stæðisflokkur) hefur talað í 320 mín- útur. Ræðukóngur 146. löggjafaþings- ins (2016-2017), Kolbeinn Óttarsson Proppé (VG), hefur haft hægt um sig á þessu þingi. Hann hefur talað í 59 mínútur, eða í eina klukkustund. Á fyrra þinginu talaði hann í 933 mínútur (16 klukkustundir). Ef Helgi Hrafn heldur sínu striki það sem eftir er þings getur hann farið langt fram úr Kolbeini í mældum ræðumínútum. Sá þingmaður sem talaði skemmst á 146. þinginu, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Miðflokkur), hefur heldur betur gefið í á þessu þingi. Sigmundur Davíð hefur nú tekið til máls 56 sinnum og talað í 174 mínútur. Hann talaði aðeins í 23 mínútur á öllu 146. löggjafar- þinginu. Samkvæmt upplýsingum frá Al- þingi hafa á yfirstandandi þingi (148.) hafa verið haldnir þingfundir á 19 þingfundadögum – samtals 24 þingfundir á 19 dögum. Samkvæmt starfsáætluninni eru 40 þingfundadagar eftir fram til þingfrestunar, sem er áætluð 7. júní. Síðan er gert ráð fyrir hátíðarþing- fundi 18. júlí á Þingvöllum, þar sem minnst verður 100 ára fullveldis Ís- lands. Mögulega verður þingfundur daginn áður til undirbúnings hátíðarfundinum. Helgi Hrafn hefur tekið af- gerandi forystu  Píratar hafa talað mest það sem af er þinghaldinu  Sigmundur Davíð gefur í Helgi Hrafn Gunnarsson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Innkauparáð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum 26. janúar síðastliðinn að gengið yrði að til- boði lægstbjóðanda, K16 ehf., í end- urbætur á Háaleitisskóla í Álfta- mýri. Tilboðið hljóðaði upp á 82.935.000 krónur. Það var 87,4% af kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á tæpar 94,9 milljónir. Miklar framkvæmdir eru fyrir- hugaðar við Háaleitisskóla í Álfta- mýri á næstu mánuðum. Ráðist verður í steypuviðgerðir á húsinu, endurbætur og viðgerðir á glugga- og hurðakerfi hússins og viðgerðir á þökum auk þess sem húsið verður málað. Stefnt er að því að við- gerðum verði lokið áður en skólinn tekur á ný til starfa að loknu sum- arfríi í haust. Háaleitisskóli er 50 ára gamalt hús sem hefur fengið lítið viðhald. Í Háaleitisskóla eru 350 nemendur á grunnskólastigi og 50 starfsmenn. Alls bárust sjö tilboð í verkið. Næstlægsta tilboðið var frá MG húsum ehf. 87.343.250 krónur. sisi@mbl.is Samið um viðgerðir á Háaleitisskóla AÐALFUNDUR MAREL HF. 2018 Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins • Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu • Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf • Önnur mál, löglega borin fram Fundarstörf munu fara fram á ensku. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 1. mars. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 24. febrúar. Á aðalfundarvef félagsins, marel.com/agm, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2017, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 7. febrúar 2018, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir aðalfund á framangreindum aðalfundarvef félagsins, sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30. Stjórn Marel hf. Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, þriðjudaginn 6. mars næstkomandi kl. 16:00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.