Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 12

Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar Hjólalegur öxlar driflokur 2012 -2017 Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja1988@gmail.com Áhuginn á að skapa vaknaðimjög snemma hjá mér oger orðinn algjörlega sam-ofinn persónu minni í dag. Ég hef verið mjög ötull í sýn- ingarhaldi síðustu tuttugu árin, verk eftir mig finnast víða í einka- söfnum og ég er einn af ungu lista- mönnunum hjá Gallerí Fold,“ segir Víðir. Hann hefur einnig af og til í nokkur ár kennt listmálun, enda með bæði mikla menntun og reynslu á því sviði. „Ég nam meðal annars í Myndlistaskólanum í Reykjavík, lærði hönnun í Iðnskólanum í Reykjavík og var gítarnemandi í Tónlistarskóla FÍH um tíma. Árið 2011 til 2012 var ég svo nemandi hins norska, umdeilda en stórgóða listmálara, Odd Nerdrum. Stóð á krossgötum sem leiddu hann til Bretlands Víðir ákvað að leggja land und- ir fót og flytja til Bretlands. „Ég var nýbúinn að kynnast kærustunni minni, Kamillu Svavarsdóttur, en hún var þá búin að sækja um í meistaranámi í textílhönnun í virt- um hönnunar- og listaháskóla á Englandi. Ég stóð sjálfur á kross- götum á þessum tíma og ákvað því að slá bara til og sækja um í sama skóla. Við komumst bæði inn í skól- ann og meistaranám í nútímaskart- gripahönnun varð fyrir valinu hjá mér.“ Háskólinn sem um ræðir heitir UCA, sem stendur fyrir University for the Creative Arts, nokkurs kon- Vinnur með arfleifðina og hið íslenska umhverfi Víðir Mýrmann I. Þrastarson er borinn og barnfæddur Íslendingur, þriggja barna faðir og starfandi listmálari, sem hefur lengi fengist við listir og sköpun, bæði í formi sjónlista og í músík. Hann fluttist til Bretlands, ásamt kærustu sinni, Kamillu Svavarsdóttur, þar sem hann stundar nú nám í hönnun nútímaskart- gripa sem flokka mætti sem einskonar listrænt skart. Listamaðurinn Víði líkar námið vel og segir það krefjandi og skemmtilegt. Í vetrarfríi grunnskólanna býður Listasafn Reykjavíkur upp á tveggja daga ritsmiðjur fyrir 8-12 ára á Kjar- valsstöðum í tengslum við sýninguna Myrkraverk. Annars vegar verður rit- smiðja kl. 9-12 fimmtudag og föstu- dag 15. og 16. febrúar og hins vegar kl. 10-13 laugardag og sunnudag, 17. og 18. febrúar. Þátttakendur læra að spinna af fingrum fram, skrifa stuttar sögur og koma hugmyndum sínum niður á blað. Umsjónarmaður og kennari er Markús Már Efraím. Ritsmiðjan er ókeypis en þar sem takmarkaður fjöldi kemst að þurfa þátttakendur að skrá sig á vefsíðuna www.listasafnreykjavikur. Á sýningunni Myrkraverk eru verk listamanna sem hafa fengið inn- blástur úr þjóðsögum og ævintýrum eða skapað sinn eigin huliðsheim. Sýningin er uppfull af dularfullum og spennandi verkum sem kveikja á ímyndunaraflinu og geta því hæglega orðið innblástur fyrir upprennandi rithöfunda. Vefsíðan www.listasafnreykjavikur.is Ólíkar kynslóðir Mynd eftir Alfreð Flóka (1938–1987) á sýningunni Myrkraverk, en þar mætast ólíkar kynslóðir listamanna. Elsti fæddist 1896, yngsti 1986. Myrkraverk fyrir 8 til 12 ára Guðmundur Oddur Magnússon, Goddur, rannsóknarprófessor við Listaháskóla Ís- lands, fjallar um þá sem ruddu brautina í myndlýsingum íslenskra barnabóka kl. 17 í dag, þriðjudaginn 13. febrúar, á 1. hæð í Bókasafni Kópavogs, aðalsafni. Margar þessar teikningar eru partur af æskuminn- ingum fjölmargra kynslóða. Viðburðurinn er liður í erindaröðinni Barnabókin í 100 ár. Allir velkomnir og að- gangur er ókeypis. Endilega … … rifjið upp æskuminningar Grýla Margir muna eftir þess- ari teikningu af Grýlu eftir Halldór Pétursson. Mikið er um dýrðir á frægustu kjöt- kveðjuhátíð heims, sem nú stendur sem hæst í Ríó de Jeneiro í Brasilíu. Á þessari árlegu þriggja daga hátíð keppast sambaskólar við að halda stórfenglegar sýningar, en samba er eitt aðaleinkenni hátíðarinnar. Kjötkveðjuhátíð er arfleifð kaþ- ólsku kirkjunnar en fyrr á tímum krafðist kirkjan þess að trúaðir föst- uðu í 40 daga fyrir páska. Þessi siður mun ekki vera í hávegum í Ríó þessa dagana. Í tengslum við hátíðina fór fólk að skarta grímum, halda grímuböll og keyra í skrautvögnum um götur á síð- ustu öld. Árið 1984 var kjötkveðjuhá- tíðin svo færð af götunum á sér- stakan sýningastað, Sambódrómó höll, með áhorfendapöllum sitt hvor- um megin við stóra breiðgötu. Kjötkveðjuhátíðin sem af öllum öðrum ber í heimi hér Stuð og stæll í Ríó AFP Samba Við Sambódrómó-höllina eru stórir áhorfendapallar sitt hvorum megin við stóra breiðgötu og eftir henni fara sýningarlið sambaskólanna á kjötkveðjuhátíðinni í Ríó. Skannaðu kóðann til að lesa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.