Morgunblaðið - 13.02.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.02.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Gæðafiskur Kæliþurrkaður harðfiskur sem hámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. Einfaldlega hollt og gott snakk 84% prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Egill Bjarnason, sjálfstætt starfandi blaðamaður, á 30 ára af-mæli í dag. Hann starfar mest fyrir AP-fréttastofuna, en hef-ur einnig verið að skrifa fyrir New York Times, Al Jazeera, Lonely Planet og kanadíska tímaritið Hakai, sem fjallar um málefni hafsins. „Það hefur einhvern veginn æxlast þannig að ég fór að skrifa um málefni Íslands fyrir erlendu pressuna. Ég var í námi í heim- ildamyndagerð í Kaliforníuháskóla, kom heim árið 2015 og fór í fram- haldinu að aðstoða hina og þessa að taka upp sjónvarpsþætti og sá að það væri grundvöllur fyrir því að það að einhver með aðsetur hér á Ís- landi skrifaði fyrir erlenda miðla. Ísland er ekki alltaf í heimsfréttunum og AP-fréttastofan þarf ekki að fjalla um Ísland, en þykir það gaman og finnst það auka gildi fréttastofunnar. Svo er alltaf eftirspurn eftir góðum sögum. Það eru ákveðnar klisjur til um Ísland og oft fjallað um það sama og ég hef reynt að leggja mig eftir að bæta við þá flóru. Það hefur margt verið að gerast á árinu. Það er gríðarlegur áhugi á Íslandi ári út af HM í fótbolta, og svo var ég í síðustu viku suður með sjó að fjalla um raf- myntina bitcoin og námugröftinn á henni sem mun nýta jafnmikla raf- orku og öll íslensk heimili á þessu ári. Í tilefni afmælisins er Egill búinn að lofa sambýliskonu sinni að taka sér frí í dag. „Við eigum von á erfingja í næsta mánuði og ætlum að gera það sem við munum ekki hafa tækifæri til þegar barnið er komið í heiminn, eins og að fara í bíó eða leikhús og förum út að borða.“ Sambýliskona Egils er Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir mannfræð- ingur og foreldrar Egils eru Bjarni Harðarson bóksali og Elín Gunn- laugsdóttir tónskáld. Í Gröndalshúsi Egill leigir skrifstofu í húsinu en það var flutt í Grjóta- þorpið og opnað í fyrra, en þar skrifaði Benedikt Gröndal Dægradvöl. Skrifar um Ísland fyrir erlenda miðla Egill Bjarnason er þrítugur í dag E inar Hannesson er fæddur í Reykjavík 13.2. 1928 og er nú bú- settur í Kvosinni. Hann hefur verið Vesturbæingur í anda alla ævi, þrátt fyrir að hafa byggt sér heimili í Smá- íbúðahverfinu árið 1953 og átt þar heima í 53 ár. Einar ólst upp við Ránargötuna í Vesturbæ Reykjavíkur, gekk í Mið- bæjaskólann og útskrifaðist úr Sam- vinnuskólanum 1947. Einar var ráðinn til embættis veiðimálastjóra sama ár. Hann var fulltrúi veiðimálstjóra eftir náms- dvöl í Noregi 1951, starfaði hjá Veiðimálastofnun í 41 ár, lengst af sem skrifstofustjóri. Árið 1988 varð Einar framkvæmdastjóri hjá Lands- sambandi Veiðifélaga og vann þar til ársloka 2003. „Ég er við hestaheilsu miðað við aldur. Samt farinn að tapa heyrn og hef verið með lélega sjón vegna augnbotnahrörnunar í þónokkur ár. Heyrnin er í raun háð hleðslunni á batterímu, því heyrnartækin mín eru ágæt, segir Einar og hlær. Og ef hnén gefa sig má alltaf fara og fá búnað hjá Össuri til að hjálpa til við gönguferðir. Annars er ég vel kominn með bú- setu í Kvosinni, kominn aftur í Vest- urbæinn og sæki góða þjónustu í Þorraseli á Vesturgötu 7. Hin síðari ár hef ég aðallega ferðast með góðri vinkonu minni, Birgittu Puff. Að sjálfsögðu er félagsskapurinn hjá Bindindishreyfingunni líka í fyr- Einar Hannesson, fyrrv. fulltrúi – 90 ára Á sögufrægum stað Einar Hannesson og Birgitta Puff njóta veðurblíðunnar á fallegum haustdegi. Kominn aftur í Vestur- bæinn eftir 53 ár Stoltur afi Einar með yngsta lang- afabarninu Helenu Dís. Reykjavík Hulda Ingi- björg fæddist á Akranesi 29. júlí 2017 kl. 6.13. Hún vó 3.840 g var og 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Kristjana Pálsdóttir og Böðvar Steinþórsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.