Morgunblaðið - 13.02.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 13.02.2018, Síða 27
irúmi. Ég er hættur að vasast í öðr- um félagsmálum, þó að maður fylg- ist að sjálfsögðu með góðu starfi LV og lífeyrismálum SFR.“ Einar starfaði mikið að skipulagi og löggjöf um veiðimál. Mætti á marga stofnfundi veiðifélaga um allt land. Einar segir að uppbygging og skipulag veiðimála hafi verið einn happadrýgsti þátturinn í uppbygg- ingu lax- og silungsveiði á landinu. Einar vann líka mikið að fé- lagsmálum á vegum bindindishreyf- ingarinnar á Íslandi í stúkunni Ein- ingunni og m.a. að stofnun Íslenskra ungtemplara. Hann hefur verið virk- ur í starfi IOGT á Íslandi og félagi þar í 70 ár. Á tímabili umróts og flokkadrátta í hópi félagshyggjumanna á síðari hluta liðinnar aldar vann hann með Magnúsi Torfa Ólafssyni, Hannibal Valdimarssyni og öðrum sem ekki voru yst á vinstri kanti stjórnmála. Hann lagði hönd á plóginn í útgáfu- málum flokksins, m.a. með setu í rit- sjórn Fjálsrar þjóðar. Áhugamál og starf Einars að fé- lagsmálum veiðimála hafa líka gefið af sér mikinn fjölda greina og fróð- leik í blöð og tímarit um veiðimál. Einar var sæmdur gullmerki LV á 50 ára afmæli sambandsins 2008. Fjölskylda Einar kvæntist 1950, Katrínu Pét- ursdóttur, f. í Syðri-Hraundal á Mýrum 13.6. 1924, d. 16.11. 2005, húsfreyju. Foreldrar hennar voru Pétur Þorbergsson, f. 29.9. 1892, d. 12.10. 1973, og Vigdís Eyjólfsdóttir, f. 8.3. 1889, d. 13.6. 1978, sem voru bændur á Nautaflötum í Ölfusi.. Börn Einars og Katrínar eru 1) Hannes Einarson, f. 11.10. 1950, skipstjóri í Kópavogi, en eiginkona hans er Linda Saennak Buanak hús- freyja og eru synir hans og Ragn- heiðar Gísladóttur Einar Hann- esson, lögfræðingur og aðstoðar- maður dómsmálaráðherra, og Grétar Hannesson lögfræðingur og sonur Grétars er Einar Tómas, en synir Hannesar og Lindu eru Sveinn Tilapong bréfberi og Stefán hár- greiðslumaður 2) Pétur Einarsson, f. 27.5. 1952, byggingatæknifræðingur og forstöðumaður fasteigna Íslands- pósts, kvæntur Kristínu Sigurþórs- dóttur, viðskiptafræðingi og mann- auðsstjóra hjá Sunnuhlíð, og eru börn þeirra María Pálsdóttir við- skiptafræðingur en sambýlismaður hennar er Ingi Rúnar Gíslason og börn þeirra Tanja Rós, Birnir Snær og Aron Skúli, Sigurþór Pétursson, sálfræðingur og tölvunarfræðingur, og Katrín Pétursdóttir sérfræðingur en sambýlismaður hennar er Kjart- an Andri Baldvinsson og dóttir þeirra Helena Dís Kjartansdóttir, og 3) Margrét Rósa Einarsdóttir, f. 15.7. 1957, veitingamaður sem rak Iðnó um árabil, en unnusti hennar er Sigurður H. Ólason og sonur hennar og Stefáns Stefánssonar Pétur Stef- ánsson arkitekt, í sambúð með Hrefnu Lind Einarsdóttur, og Hannes Stefánsson sérfræðingur. Afkomendur Einars eru 17 talsins. Systkini Einars: Guðni Hann- esson, f. 4.4. 1925, d. 30.12. 2016, hagfræðingur, þýðandi og fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, og Guðný Hannessdóttir, f. 12.3.1930, hús- freyja í Reykjavík. Uppeldissystir þeirra er Ellen Marie Sveins, f. 26.4. 1929, húsfreyja í Reykjavík.. Foreldrar Einars voru Rósa Steinun Guðnadóttir, f. í Vigfús- arkoti í Grjótaþorpi, f. 17.5. 1899, d. 15.9. 1991, húsfreyja í Reykjavík, og Hannes Einarsson f. 11.3. 1896, d. 7.8. 1970, togarasjómaður sem sigldi til Englands á stríðsárunum, og fiskimatsmaður. Úr frændgarði Einars Hannessonar Einar Hannesson Benedikt Jónsson bóndi í Grísatungu í Borgarfirði Guðný Benediktsdóttir húsfreyja í Rvík Guðni Oddsson húsasmíðameistari í Rvík Rósa Steinunn Guðnadóttir húsfreyja í Rvík Þorbjörg Guðnadóttir húsfreyja á Harðbala í Kjós, af Fremra-Hálsætt Oddur Halldórsson b. á Harðbala í Kjós, síðar í Seltjarnarnesi og Rvík Guðni Hannesson hagfræðingur og stórkaupmaður í Rvík Kolbrún Ingólfs- dóttir meina- tæknir á Seltjarnar- nesi Ingólfur Ólafsson verslunarm. í Rvík Ingveldur Einars- dóttir húsfr. í Rvík Ágúst Ólafur Ágústsson alþm. Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir dr. í heilbrigðisvísindum Auðólfur Gunnarsson yfirlæknir í Rvík Stefán Magnús Gunnarsson forstöðum. í Seðlabankanum Þóra Jónsdóttir húsfr. á Auðkúlu Sigríður Stefánsdóttir húsfr. í Rvík og Kópavogi Árni Gunnarsson skrifstofustj. í menntamálaráðun Gísli Brynjólfsson prófastur á Kirkjubæjar- klaustri Brynjólfur Gíslason pr. í Stafholti í Stafholtstungum Guðný Jónsdóttir húsfr. í Skildinganesi við Skerjafjörð Jón Þórðarson prófastur á Auðkúlu í Svínadal Margrét Þorleifsdóttir húsfreyja í Árbæ, af Fjallsætt Ólafur Torfason bóndi í Árbæ í Ölfusi Vilborg Ólafsdóttir ljósmóðir í Árbæ Einar Hannesson bóndi í Árbæ í Ölfusi Ingveldur Jónsdóttir húsfreyja í Bakkárholti, af Reykjakotsætt Hannes Hannesson bóndi í Bakkárholti Ölfusi, af Kaldaðarnesætt og Bergsætt Hannes Einarsson togarasjóm. og fiskimatsm. í Rvík Unnur Magnúsdóttir húsfreyja í Grísatungu ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Bragð af vináttu • Hágæða gæludýrafóður framleitt í Þýskalandi • Bragðgott og auðmeltanlegt • Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi. Jón Ástvaldur Gissurarsonfæddist í Drangshlíð undirAustur-Eyjafjöllum 13.2. 1906, sonur hjónanna Gissurar Jónssonar, bónda og hreppstjóra í Drangshlíð, og k.h., Guðfinnu Ísleifsdóttur ljós- móður. Gissur var sonur Jóns, hreppstjóra og dbrm. í Eystri-Skógum Hjörleifs- sonar, bónda í Drangshlíð Jónssonar, bróður Ingveldar, húsfreyju í Eyj- arhólum við Pétursey, sem Eyjólfur Guðmundsson, bóndi og rithöfundur í Hvammi í Mýrdal, fjallar um í riti sínu, Afi og amma. Móðir Gissurar var Guðrún Magnúsdóttir frá Kana- stöðum, húsfreyja. Guðfinna var dóttir Ísleifs, bróður Guðrúnar í Eystri-Skógum, og Sigríður Árna- dóttir, hreppstjóra og dbrm. í Þor- lákshöfn Magnússonar, af Bergsætt. Eiginkona Jóns var Anna Sigríður Þórðardóttir húsfreyja. Kjördætur þeirra: Ólafía húsfreyja og Halldóra Lísbeth kennari, en stjúpsonur Jóns, Steingrímur Gunnar Halldórsson sem lést 1951. Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1929 og stundaði síðan nám í versl- unarháskólum og í uppeldisfræði í Þýskalandi. Jón kenndi við ýmsa skóla í Vest- mannaeyjum og Reykjavík frá 1934. Hann var skólastjóri Gagnfræðaskól- ans við Lindargötu á árunum 1949-69 og skólastjóri Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar í Reykjavík 1969-85. Auk þess var hann lengi prófdómari í þýsku við VÍ. Jón var formaður Félags skóla- stjóra gagnfræðaskóla og héraðs- skóla um skeið og sat í kvikmynda- eftirlitinu um árabil. Hann ritaði margar greinar um uppeldis- og þjóðfélagsmál í blöð og tímarit, samdi kennslubækur og gaf út end- urminningar sínar, Satt best að segja. Jón var virtur og vinsæll skóla- maður, góður stærðfræðikennari og laginn við baldna nemendur með hógværð sinni og yfirvegun. Jón lést 31.8. 1999. Merkir Íslendingar Jón Á. Gissurarson 90 ára Einar Hannesson Halldóra Halldórsdóttir 85 ára Baldur Ágústsson Lydia Rósa Sigurlaugsdóttir Sigurþór Sigurðsson 80 ára Bryndís Flosadóttir Sigurður Bjarnarson Una Þórdís Elíasdóttir Þorsteinn Sigfússon 75 ára Bergþóra Skúladóttir Ingvar Helgi Árnason Jón Gunnarsson Kristbjörg Hallsdóttir Sigurður Ölversson Tómas Ingi Olrich 70 ára Anna Jónsdóttir Eiður Helgi Sigurjónsson Guðlaug Helga Pétursdóttir Jóhanna G. Sigurðardóttir Sigurbjörg Guðmundsdóttir Svala Tómasdóttir Valgerður Ólafsdóttir Þórir Magnússon 60 ára Albert Pálsson Ágúst Sigurður Hrafnsson Gísli Hansson Wiium Guðjón Jónsson Guðný Jónasdóttir Ólafur Pétur Hauksson Ólöf Ingþórsdóttir Páll Jóhannesson Sigurbaldur Clausen Kristinsson Sigurður Baldursson Viktors Lapenko Zofia Pruszkowska 50 ára Arna Tryggvadóttir Árný Hafborg Hálfdánardóttir Ásta Birna Stefánsdóttir Björn Maríus Jónasson Guðríður Snjólfsdóttir Halldór Hauksson Hlynur Sturla Hrollaugsson Nína Björk Friðriksdóttir Robert Modzelewski Sigríður Hrönn Sveinsdóttir Sigurlaug Ásta Val Sigvaldad. 40 ára Agbons Emmanuel Baro Anna Lára Zoéga Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir Haraldur Jóhann Þórðarson Hildur Gottskálksdóttir Hólmar Þór Eðvaldsson Sigurbjörg Þorvaldsdóttir Skúli Björn Jónsson Yulia Yudinova Þóra Björk Karlsdóttir Þórður Sigfússon 30 ára Egill Bjarnason Emil Atli Ellegaard Katarzyna Janina Ociepka Kolbrún Siv Freysdóttir Maren Ósk Elíasdóttir Ragnhildur Hólm Sigurðardóttir Raimundas Narauskas Sandra Ósk Kristbjarnardóttir Sif Hauksdóttir Svanhvít Júlíusdóttir Thelma Björk Snorradóttir Unnur Birgitta Halldórsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sif ólst upp í Kópa- vogi, býr þar, lauk prófi í þroskajálfun frá HÍ og er þroskaþjálfi við Salaskóla. Maki: Guðni Hjörvar Jóns- son, f. 1982, tölvunarfræð- ingur. Börn: Baldvin Týr, f. 2009; Baldur Ari, f. 2010; Addú Sjöfn, f. 2013, og Anna Ið- unn, f. 2015. Foreldrar: Anna M. Wern- ersdóttir, f. 1960, og Haukur Svavarsson, f. 1961. Sif Hauksdóttir 30 ára Ragnhildur ólst upp á Gautlöndum, býr þar, lauk BA-prófi í félags- ráðgjöf og starfar í Voga- fjósi í Mývatnssveit. Maki: Ólafur Ragnarsson, f. 1980, rekur verktaka- fyrirtækið Húsheild. Stjúpdætur: Agnes Ósk, f. 2001; Helga Sól, f. 2004, og María Von, f. 2011. Foreldrar: Margrét Hólm Valsdóttir, f. 1967, og Sig- urður G. Böðvarsson, f. 1966. Ragnhildur Hólm Sigurðard. 30 ára Svanhvít ólst upp í Hafnarfirði, býr í Reykja- vík, lauk BSc-prófi í verk- fræði frá HÍ og kennir stærðfræði við Fellaskóla. Maki: Davíð Sigurðarson, f. 1985, arkitekt. Foreldrar: Svanhvít Að- alsteinsdóttir, f. 1956, starfsmaður við utanrík- isráðuneytið, og Július Birgir Kristinsson, f. 1954, fjármálastjóri Orf líftækni. Þau eru búsett í Reykja- vík. Svanhvít Júlíusdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.