Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 29

Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þetta er ekkert verri tími en hver annar til þess að brydda upp á nýjungum. Taktu á móti deginum með bjartsýni, því dagurinn getur orðið einkar skemmtilegur. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú lendir í erfiðum samtölum við yf- irmenn þína í dag. Láttu vita ef þú veist ekki til hvers er ætlast af þér og stattu með sjálfum þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hvað sem þú tekur þér fyrir hendur gerðu það af öryggi og festu. Eng- ar áhyggjur. Þú ert fullfær um að ljúka því sem þú tekur að þér að gera. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Dagurinn markast af kraftmiklum og skapandi törnum. Gættu þess bara að tala ekki of mikið og sýndu öðrum tillits- semi og skilning. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gættu orða þinna í samskiptum við samstarfsmenn þína í dag. Ekkert getur slegið á vinsældir þínar á meðan þú brosir og deilir lífsgleðinni með öllum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur þörf fyrir að kafa til botns í hlutunum. Vertu óhræddur við að taka að þér verkefni þótt erfitt sýnist í fyrstu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Mæltu þér mót við einhvern í kaffi eða mat. Fylgdu því gamla ráði að borða ekki meira en þú getur lyft. Allt er best í hófi. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Reyndu að vera þolinmóður gagnvart einhverjum sem reynir að skipta sér af einkamálum þínum. Yfirgangssamir einstaklingar virðast laðast að þér þessa dagana. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér hættir til að reyna að troða þínum skoðunum upp á aðra í dag. Hugs- aðu þig tvisvar um áður en þú festir kaup á einhverju. Þú gæti átt eftir að sjá eftir því. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú mátt ekki vanmeta vinsældir þínar en mátt heldur ekki misnota þér vel- vild annarra. Þú munt hugsanlega eignast nýjan vin í dag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ekki afsala þér öllu í dag. Hvar viltu vera eftir tíu ár eða eftir fimm ár? Hvað getur þú gert til þess að byrja leiðina að settu marki? 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert eitthvað líflaus þessa dag- ana og þarft að leggja mikið á þig til að koma þér í gang. Brynjaðu þig gegn ut- anaðkomandi áhrifum og taktu málin í þín- ar hendur. Víkverji hefur eins og flestir lands-menn þurft að kljást við vetur konung síðustu daga. Það skal strax viðurkennt að þessi árstími er ekki í neinu uppáhaldi hjá Víkverja, hann kann betur við hlýrra loftslag og það að vera laus við snjó og slabb. Og vitaskuld lægðirnar. x x x Ekki er þó svo að skilja að Víkverjihafi lent í teljandi vandræðum vegna lægðanna síðustu daga. Það er frekar að brúnin hafi þyngst vegna þeirra leiðinda sem hljótast af því að hlaupa á milli bíls og húsa og blotna í fæturna. Nú er enn einni lægðinni spáð í morgunsárið og Vík- verji krossleggur fingur að þetta verði með skárra móti. x x x Tímasetningin á þessum lægða-gangi er sú nákvæmlega sama og í fyrra. Það var helgina fyrir bolludag að allt fór á kaf í snjó og fæstir komust leiðar sinnar. Ekki var höggið eins slæmt nú en við skulum sjá hvað verður. Það hefur í það minnsta verið huggun harmi gegn að gæða sér á ljúffengum boll- um nú í byrjun vikunnar. Og í dag tekur ekki síðri veisla við með sprengidagsketinu og baunasúp- unni. x x x Undantekningin sannar regluna.Sú var upplifun Víkverja í gær þegar hann festi kaup á grímubún- ingi fyrir eitt afkvæmið vegna ösku- dagsins á morgun. Gleðin sem þetta færir unga fólkinu trompar flest en Víkverji hefur þó stundum hugsað sitt þegar hann hefur litið á reikn- inginn. Þar til í gær. Þá heimsótti Víkverji verslunina Hókus Pókus á Laugavegi. Úrvalið var nokkuð gott og kaupin voru afgreidd fljótt og vel. Víkverji borgaði glaður 3.500 krón- ur, um það bil helmingi minna en hann hefur gert síðustu ár. x x x Risaskref var stigið á heimili Vík-verja í vikunni þegar betri helm- ingurinn keypti áskrift að Netflix. Fyrsta mál á dagskrá er þættirnir Chef’s Table sem lofa mjög góðu. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn er góður, athvarf á degi neyð- arinnar, hann annast þá sem leita hælis hjá honum (Nahúm 1.7) Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Hann hefur gengið á með bylj-um. Þar sem ég sit við stofu- gluggann og horfi á veðrið get ég ekki stillt mig um að fletta upp í Uppsala-Eddu hvað þar skyldi standa um þvílíkt tíðarfar: „Gangleri segir: Hvaðan kemur vindur? Hann er sterkur, hann hrærir stór höf og leysir eld. Engi má hann sjá, því er hann undarlega skapaður.“ Og síðan er vísa úr Vafþrúðn- ismálum til frekari uppfyllingar: Hræsvelgr heitir jötunn hann sitr á himins enda jötunn í arnarham. Af hans vængjum kveða vind standa alla menn yfir. Ármann Þorgrímsson yrkir um færðina á Akureyri eftir að hann skrapp með konuna á Glerártorg: Bæði snjór og bleyta var blindað færi alls staðar eins og hinir ók ég þar eftir minni göturnar. Ingólfur Ómar Ármannsson yrk- ir á Boðnarmiði: Nú er færðin fremur þung fátt sem vekur kæti. Snjóinn óð ég upp í pung eftir miðju stræti. Þessi vísa kallast á við hring- hendu Þangskála-Lilju. Hannes Pétursson segir svo frá tildrögum hennar að Lilja kjagaði að vetr- arlagi milli bæja í ófærð, sumir segja frá Ketukirkju heim að Þang- skála. Hún var spurð hvernig ferða- lagið hefði blessazt, og svaraði með bögu sem varð landfleyg:“ Færðin bjó mér þunga þraut, þrótt úr dró til muna. Hreppti snjó í hverri laut, hreint í ónefnuna. Ingólfur Ómar gaf tóninn og eins og við var að búast brugðust hag- yrðingar vel við. Ég læt þetta til- brigði eftir Halldór Guðlaugsson fylgja sem sýnishorn: Hans var ferðin fremur þung fátt sem vakti kæti en áfram snjóinn óð í pung eftir Vonarstræti. Guðmundur Arnfinnsson á þessa fallegu hringhendu: Hríðarbylur úti er, inni vil nú kúra, hringa bil, við hlið á þér hlakka til að lúra. – Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Hræsvelg og Þangskála-Lilju „AF HVERJU MYNDI ÉG HRINGJA Í FORELDRA MÍNA? ÉG HÉLT AÐ ÞIÐ VÆRUÐ FORRÁÐAMENN MÍNIR NÚNA.“ „ÉG ÞEKKI ÞIG; ÞAÐ ER KONAN ÞÍN SEM ER AÐ ÝTA ÞÉR TIL ÞESS AÐ GERA ÞETTA!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að bjóða honum út til að fagna stöðuhækkun þinni í næstráðanda fyrirtækisins, og það er skipun! BÍDDU, HVAÐ KOM Á UNDAN ÞVÍ? ÞAÐ ÞARF AÐ SLÁ GARÐINN OG? OG? ÞAÐ ÞARF AÐ BORÐA SÚKKULAÐIÐ ÞAÐ ÞARF AÐ VASKA UPP ÞAÐ ER LÍKA HÆGT AÐ ÞJÁLFA KETTI TIL ÞESS! ÉG KANN BETUR VIÐ HUNDA EN KETTI, ÞVÍ HUNDAR ERU GÓÐIR Í AÐ SÆKJA INNISKÓNA MANNS JÁ, EN KETTIR EIGA TIL AÐ SKILJA EFTIR GLAÐNING Í SKÓNUM! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.