Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 30

Morgunblaðið - 13.02.2018, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2018 Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14 TILBOÐS- DAGAR Vertu velkomin í sjónmælingu Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Fjöldi vina og samstarfsmanna í tón- listar- og kvikmyndaheiminum hefur undanfarna daga minnst á prenti og í samfélagsmiðlum Jóhanns Jó- hannssonar, tónskálds og hljóðfæra- leikara, en hann lést í Berlín á föstu- daginn var, 48 ára að aldri. Tónlist Jóhanns hefur notið sívax- andi aðdáunar, bæði sem sjálfstæð tónverk sem hann hljóðritaði og gaf út og sem hluti af áhrifamiklum hljóðheimi margra athyglisverðra kvikmynda. Jóhann hlaut hin eftir- sóttu Golden Globe-verðlaun árið 2014 fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Theory of Everything og var jafnframt tilnefndur til Óskars- og BAFTA-verðlauna fyrir hana. Hann var aftur tilnefndur til Óskars- og BAFTA-verðlauna ári síðar, fyrir Sicario, og tilnefndur árið 2016 til BAFTA- og Golden Globe-verð- launanna fyrir tónlistina í Arrival. Hreppti Jóhann World Soundtrack- verðlaunin fyrir tónlistina í þeirri mynd. Tveimur síðastnefndu kvik- myndunum var leikstýrt af Dennis Villeneuve en áttu þeir Jóhann í gjöfulu samstarfi á síðustu árum; samdi Jóhann einnig tónlist við kvik- mynd Villeneuve Prisoners (2013) og við Blade Runner 2049 (2017) en at- hygli vakti þegar tónlistin var ekki notuð í kvikmyndinni heldur verk annarra og hefur ekki verið gefið upp hver ástæðan var. Tilfinninganæmur og lítillátur „Jóhann Jóhannsson var gríðar- lega hæfileikamikill tónsmiður og verk hans voru úthugsuð og hríf- andi,“ segir Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu. „Hann var tilfinninganæmur og lít- illátur snillingur sem setti ljós sitt undir mæliker en var alltaf til að leiða mann í sannleika um galdurinn á bak við hvert verka hans og leiðin sem hann fór var iðulega flókin og fjölskrúðug.“ Árni segist hafa séð Jóhann fyrst á sviði fyrir þrjátíu árum er hann leiddi rokksveitina Daisy Hill Puppy Farm. „Við kynntumst síðan betur þegar ég aðstoðaði hann við mynd- vinnslu á 12" sveitarinnar, „Spray- can“ og áttum ýmis samskipti eftir það í tengslum við hljóðverið Nýj- ustu tækni og vísindi, veru hans í hljómsgeitinni Ham, Fünkstraße, Tilraunaeldhúsinu, Dip, Orgel- kvartettinum Apparati og Lhooq. Allt lá vel fyrir honum, hvort sem það var gítarsýra, óhljóðalist, súr- kálsfönk eða vinsældapopp. Eftir að Jóhann fluttist til Kaup- mannahafnar og síðan til Berlínar minnkuðu samskipti okkar eðlilega, maður hitti hann sjaldnar á förnum vegi, en það var einkar gaman að fylgjast með honum úr mismikilli fjarlægð og sjá hann vaxa sem tón- skáld í tónverkum eins og Virðulegu forsetum, IBM 1401: A User’s Ma- nual, Fordlandia og nú síðast Orphée sem Deutsche Grammophon gaf út. Ég átti einmitt síðast spjall við Jóhann fyrir rúmu ári er við ræddum um feril hans og framgang í tilefni af Orphée. Í því viðtali lýsti hann vel hve margslungin hugmynd var grunnur Orphée, en einnig að hann væri enn að leita nýrra leiða í listsköpun og væri með í smíðum kvikmynd í fullri lengd sem flutt yrði með lifandi undirleik.“ Samdi um missi og brotthvarf „Nær öll tónlist Jóhanns byggist á þemum um missi og brotthvarf sem jafnvel þegar verkin eru einföld og ljúf gefur þeim ólýsanlega dýpt sem lætur hlustandanum finnast að þau geti gleypt hann ef hann hlustar of djúpt á þau,“ skrifar blaðamaðurinn Joe Muggs í The Guardian. Hann segir að tónlist Jóhanns hafi iðulega túlkað missi og eftirsjá á ægifagran hátt og vísar til þess að í tónverkum og á sólóplötum Jóhanns, The Miner’s Hymns (2011), IBM 1401: A User’s Manual (2006) og Fordlandia (2008), séu einskonar sálumessur fyrir mannlegar framkvæmdir eða verkefni sem séu horfin í fortíðina. Og Muggs segir að þegar hlýtt sé á þessi verk nú, þegar Jóhann er all- ur, eða á kvikmyndatónlistina sem hefur borið hróður hans víða á síð- ustu árum, þá sé eins og hann „hafi samið sína eigin sálumessu“. Muggs rifjar upp fjölbreytilegan og gifturíkan tónlistarferil Jóhanns en segir hann hafa fundið fjölina sína þegar hann fór að semja tónverk fyrir stærri hljómsveitir og þar séu töfrarnir í sköpuninni. „Á sólóplöt- um hans sem komu út eftir árið 2001 blandar hann saman klassískum hljóðfærum og raftónlist svo eftir var tekið í neðanjarðarsenunni víða um lönd og það var svo í verkinu IMB 1401 sem þetta koma allt sam- an,“ skrifar Muggs og bætir við að þá hafi mátt vera orðið ljóst að Jó- hann hafi haft þann skapandi metn- að sem þurfti til að verða kvik- myndatónskáld í fremstu röð. Hann segir að þrátt fyrir myrkrið og tilvistarangistina sem óneitan- lega einkenni tónlist Jóhanns, þá hafi hann verið margbrotinn tónlist- armaður og fegurðin sem umlukti myrkrið sé mjög mikilvæg. „Það er Margbrotinn tónlistarmaður  Jóhanns Jóhannssonar er minnst víða um lönd  Sagður hafa útvíkkað form kvikmyndatónlistar AFP Verðlaunatónskáld Jóhann Jóhannsson hampar Golden Globe-verðlaunagripnum sem hann hreppti árið 2014. Rúmum þrjátíu árum eftir andlát franska heimspekingsins Michel Foucault hefur franski útgefandinn Gallimard gefið út eftir hann áður óbirta bók. Um er að ræða fjórðu bókina í seríu hans um Sögu kyn- ferðisins sem ber undirtitilinn „Játn- ingar holdsins“. Frá þessu greinir The New York Times. Þar kemur fram að þegar Foucault lést hafi hann ekki skilið eftir sig formlega erfðaskrá, en hann skildi eftir sig bréf þar sem hann lagði blátt bann við því að þau handrit og skrif sem hann ætti óútgefin í fórum sínum yrðu gefin út eftir hans dag. Í sama bréfi tók hann skýrt fram að Daniel Defert, ástmaður hans og félagi til tveggja áratuga, ætti að erfa íbúð hans og skjalasafn, þeirra á meðal öll óútgefin handrit. Fyrir fimm árum seldi Defert allt skjalasafn Foucault til Frönsku þjóðarbókhlöðunnar. Skjalasafnið innihélt bæði handskrifaða útgáfu af fjórða bindi Sögu kynferðisins og vélritað handrit sem Foucault var þegar byrjaður að leiðrétta. Þriðju útgáfu handritsins hafði hann þegar sent Gallimard fyrir andlát sitt, en handritið þótti ófullkomið þar sem það innihélt villur. „Þegar ég hafði öll þrjú handritin í minni vörslu gerði ég mér grein fyrir því að hægt væri að setja saman boðlega út- gáfu,“ segir Henri-Paul Fruchaud, frændi Foucault. Fjölskylda Fou- cault, sem á útgáfurétt verka hans, taldi að ekki aðeins fræðimönnum ætti að standa handritin til boða til rannsókna, heldur ættu skrifin er- indi við almenning. Því ákvað hún að leyfa Gallimard að gefa út fjórða bindið í ritröðinni um Sögu kynferð- isins. Samkvæmt Vísindavefnum átti Saga kynferðisins að verða margra binda verk um tengsl valds og þekk- ingar í þeim breytingum sem orðið hafa á eðli kynferðisins í sam- félögum okkar í gegnum aldirnar. Ókláruð bók gefin út gegn vilja Foucault Gegn vilja Michel Foucault. AFP Jóhann Jóhannsson var fjölhæfur listamaður sem kom víða við sem flytj- andi og tónskáld. Tónlistarferill hans hófst á níunda áratugnum þegar hann var meðlimur í rokksveitinni Daisy Hill Puppy Farm og einnig lék hann með hljómsveitum á borð við Ham, Unun, Olympia og Lhooq. Þá var Jóhann þegar farinn að vinna með listamönnum í ýmsum greinum, meðal annars í Tilraunaeldhúsinu sem stóð fyrir ýmsum listuppákomum hér á landi og erlendis en hann var einn stofnenda þess 1999. Fyrsta sólóplata Jóhanns, Englabörn, kom út árið 2002 og var tónlist samin við samnefnt leikrit Hávars Sigurjónssonar. Hún vakti umtalsverða athygli fyrir frumlegar tónsmíðar og útsetningar. Sólóplötur hans urðu alls átta og kom sú síðasta, Orphée, út árið 2016 hjá hinu kunna útgáfu- fyrirtæki Deutsche Grammophon. Fyrstu kvikmyndatónlistina samdi Jó- hann við íslenskar kvikmyndir um og uppúr 2000 og varð hann sífellt þekktari sem kvikmyndatónskáld og samdi tónlist við 27 myndir. Þekkt- astur varð hann fyrir samstarf við leikstjórann Denis Villeneuve, kvik- myndirnar Prisoners (2013), Sicario (2015) og Arrival (2016), og var til- nefndur til virtra verðlauna fyrir þær, og þá hreppti Jóhann Golden Globe-verðlaunin fyrir tónlistina í The Theory of Everything (2014). Hann samdi einnig tónlist í fjölda leikrita, í sjónvarpsþætti og fyrir dansara. Fjölhæfur listamaður JÓHANN SAMDI TÓNLIST Í HÁTT Í 30 KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.