Morgunblaðið - 13.02.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 13.02.2018, Síða 36
Ireen Wüst frá Hollandi er orðin sig- ursælasti skautahlaupari allra tíma á Vetrarólympíuleikum eftir að hún sigraði í 1.500 metra hlaupi í Pyeongchang í gær og fór þar með í tíunda sinn á verðlaunapall á fernum Ólympíuleikum. Freydís Halla Ein- arsdóttir gat ekki keppt í stórsvigi vegna veð- urs en keppir fyrir vikið tvo daga í röð í vik- unni. Allt íslenska göngufólkið verður á ferðinni í Pyeong- chang í dag. »1-3 Wüst er orðin sú sigur- sælasta frá upphafi ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Föst í skafli í 20 tíma 2. Engin skömm að horfa 3. Öflugir jeppar til mestra vandræða 4. Innbrotsþjófurinn var „pollrólegur“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvartett gítarleikarans Andrésar Þórs Gunnlaugssonar kemur fram á djasskvöldi Kex hostels í kvöld og hefur leik kl. 20.30. Auk Andrésar skipa kvartettinn Agnar Már Magn- ússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur og hafa félagarnir fjórir leikið saman um árabil. Á tónleik- unum í kvöld munu þeir flytja ný lög eftir Andrés. Aðgangur er ókeypis. Leika ný lög eftir Andrés á djasskvöldi  Karl Jeppesen ljósmyndari flytur erindi í fyrirlestra- sal Þjóðminjasafns Íslands í dag kl. 12. Karl hefur ljós- myndað fornar ver- stöðvar í misjöfnu ástandi um land allt og sýnir á Veggnum í safninu úrval þessara mynda. Karl Jeppesen fjallar um fornar verstöðvar  Katie Melua heldur tónleika ásamt hljómsveit í Eldborgarsal Hörpu 10. júlí næstkomandi. Melua fæddist í Georgíu, fluttist til Bretlands þegar hún var átta ára og er með vinsælli tónlistarkonum þar í landi. Hún hefur selt yfir 11 milljónir platna og hlotið 56 platínuplötur. Fyrstu tvær plötur hennar komust í fyrsta sæti yfir mest seldu plöturnar í nokkrum löndum og árið 2006 var hún sú evrópska tónlistarkona sem flestar plötur seldi í álfunni það ár sem og í Bretlandi. Melua í Eldborg Á miðvikudag Gengur í austan 15-23 m/s, en 23-28 syðst. Dregur úr vindi síðdegis, allvíða austan 8-15 undir kvöld. Snjókoma eða slydda, einkum á austurhelmingi landsins. Hlýnar í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan hvassviðri eða stormur með snjó- komu víða um land, heldur hægari vindur suðvestantil. Minnkandi úrkoma og fer að lægja síðdegis. Hiti um eða undir frostmarki. VEÐUR Selfoss færðist upp í þriðja sæti Olís-deildar karla í handknattleik í gærkvöldi með stórsigri á ÍR, 37:25. Haukar fluttust einnig ofar í töflunni þegar þeir tóku Aftureldingu í karphúsið á Ásvöllum. Efsta lið deild- arinnar, FH, var lánsamt að ná stigi gegn næstneðsta liðinu, Fjölni í Grafarvogi, á sama tíma og botnliðið Vík- ingur steinlá fyrir Stjörn- unni. »4 Selfoss og Hauk- ar mjakast ofar Tindastóll og ÍR náðu Haukum og KR að stigum á toppi Dominos-deildar karla í körfuknattleik í gærkvöld með góðum útisigrum. Tindastóll vann Þór í Þorlákshöfn og ÍR lagði Val á Hlíðarenda. Afar óvænt úrslit urðu í Keflavík þar sem heimamenn töpuðu fyrir botnliði Hattar. Stjarnan vann Þór á Akureyri og Njarðvík lagði Grindavík í grannaslag. »2-3 Tindastóll og ÍR náðu toppliðunum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Rakarastofa Ragnars og Harðar á Vesturgötu 48 í Reykjavík, Litla Glasgow, lætur lítið yfir sér en á sér nær 61 árs merka sögu og er í raun eins og lítið safn um liðna tíma. Stofn- andinn Hörður Þórarinsson hóf reksturinn 17. febrúar 1957 og er sestur í helgan stein en Ragnar Heið- ar sonur hans, sem varð sextugur í liðinni viku, hefur staðið vaktina í 44 ár. Stórhýsið og verslunin Glasgow var byggt neðst á Vesturgötu (5a) um 1862, var þá stærsta hús landsins og setti svip sinn á Grjótaþorpið en húsið brann til kaldra kola 1903. Ragnar hefur alla tíð búið í Litlu Glasgow og rakarastofan er í við- byggingunni. Hann segir að nafnið sé þannig til komið að verslunarstjórinn í Glasgow hafi byggt húsið 1896 og þótt tilhlýðilegt að kalla það Litlu Glasgow þó að það hafi verið stórt á þeim tíma, kjallari, hæð og ris. „Nafn- ið var sjálfsagt meira grín en alvara en það hefur haldist síðan,“ segir Ragnar. „Reyndar var sagt að hann hefði notað eina og eina afgangsspýtu úr stóra húsinu í þetta hús en þegar ég hef rifið veggi hefur komið í ljós að grindin hefur komið tilbúin.“ Þrjár kynslóðir Hörður flutti með foreldrum sínum í húsið þegar hann var 17 ára en Þórður úri, föðurbróðir hans, átti húsið áður og lét byggja millibygg- inguna þar sem rakarastofan er. Hörður lærði rakaraiðnina á rakara- stofunni í Eimskipafélagshúsinu og stofnaði eigin stofu við annan mann á Vesturgötunni 1957. Gunnlaugur Hreiðar Hauksson, bróðursonur Ragnars, hefur unnið með Ragnari á stofunni í um áratug og Hrafnhildur Telma Þórarinsdóttir, bróðurdóttir hans, er nýbyrjuð að læra og slæst væntanlega fljótlega í hópinn. Sem unglingur málaði Ragnar mikið með bróður sínum en hann flutti til útlanda þegar Ragnar lauk grunnskólanum. „Ég hefði sennilega orðið málari hefði hann ekki flutt en það var enga vinnu að fá um sum- arið,“ rifjar hann upp. „Þá sagði kall- inn: „Þú getur alveg eins verið með mér í sumar, frekar en að gera ekki neitt“ og þar við sat. Mér líkaði vinn- an ágætlega og hélt áfram.“ Ragnar segir að vinnan sé mjög skemmtileg. „Vissulega hefur stund- um hvarflað að mér að fara að gera eitthvað annað en ég hef alltaf komist að þeirri niðurstöðu að grasið sé ekki grænna hinum megin við ána. Þetta er lífleg og skemmtileg vinna, stöðugt nýir kúnnar og ég er alltaf með ein- hvern í höndunum. Þetta er líka dríf- andi starf, kúnninn kemur og þá er ekki eftir neinu að bíða. Hér er stöð- ugur straumur og augljóst að rakara- stofur eru núna í tísku.“ Litla Glasgow leynir á sér  Rakarastofa Ragnars og Harðar í 61 ár Morgunblaðið/Eggert Þrjár kynslóðir Gunnlaugur klippir Hörð, afa sinn, og Ragnar fylgist með. Stofan verður 61 árs á laugardag. Litla Glasgow Hörður, Ragnar og Gunnlaugur við innganginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.